Morgunblaðið - 01.02.2021, Síða 20

Morgunblaðið - 01.02.2021, Síða 20
20 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 1. FEBRÚAR 2021 ✝ HaraldurGuðnason fæddist á Brekk- um í Hvolhreppi, Rangárvallarsýslu 14. desember 1928. Hann lést á líknardeild Land- spítalans 17. jan- úar 2021. For- eldrar hans voru Guðni Guðjónsson, f. 11.6. 1898, d. 14.4. 1995, og Jónína Guðný Jónsdóttir, f. 5.6. 1902, d. 16.6. 1969. Haraldur var fimmti í röð 12 systkina en þau eru: Valgerður, f. 14.6. 1923, Ingólfur, f. 21.2. 1925, Guðni Björgvin, f. 1.4. 1926, Ágústa, f. 20.8. 1927, d. 5.2. 1980, Gunnar, f. 7.3. 1930, d. 1.6. 2013, Hafsteinn, f. 22.10. 1932, d. 20.2. 1995, Júlíus, f. 16.10. 1933, d. 30.10. 1968, Guðjón Sverrir, f. 31.5. 1935, Drengur, f. 31.5. 1935, d. 15.2. 1936, Dagbjört Jóna, f. 1.9. 1939, og Þorsteinn, f. 19.6. 1942, d. 25.4. 1990. Haraldur kvæntist árið 1955 Ragnhildi Guðrúnu Páls- dóttur, f. 27.9. 1935, frá Kirkjulæk II í Fljótshlíð, Rangárvallasýslu. Foreldrar hennar voru Páll Nikulásson, f. 27.9. 1899, d. 30.10. 1968, vörubíl með Gunnari bróður sínum sem þeir ráku saman í nokkur ár. Fór meðal annars nokkrar ferðir á bílnum vest- ur á firði til að kaupa ásetn- ingslömb fyrir bændur í Hvol- hreppi vegna fjárskipta árið 1953, en sauðfé hafði verið skorið þar niður vegna mæði- veiki. Hann fór jafnframt á margar vertíðir til Vest- mannaeyja og stundaði þar störf við fiskvinnslu. Árið 1953 kynntist hann Ragnhildi. Þau settust að á Brekkum og tóku við búinu af foreldrum Haraldar árið 1955 og bjuggu þar til ársins 1957. Þá fluttu þau til Reykjavíkur og Haraldur byrjaði fljótlega að vinna hjá Hitaveitu Reykjavíkur og síðar Orku- veitu Reykjavíkur þegar það fyrirtæki varð til við samein- ingu hitaveitu, rafmagnsveitu og vatnsveitu Reykjavíkur. Haraldur starfaði samfleytt í 42 ár hjá þessum fyrirtækjum við viðgerðir og hitaveitu- lagnir inn í hús, jafnframt var unnið við borholur í Reykja- vík, í Mosfellsbæ og á Nesja- völlum en hin síðari ár við skipti á hitaveitumælum í hús- um. Útför Haraldar fer fram frá Bústaðakirkju í dag, 1. febr- úar 2021, klukkan 13. Útför- inni verður streymt og nálg- ast má streymið á slóðinni: https://tinyurl.com/y3urxszq/. Hlekk á streymið má einnig finna á Andlátsvef mbl.is: www.mbl.is/andlat og Helga Metúsal- emsdóttir, f. 7.10. 1907, d. 12.6. 1980. Börn Haraldar og Ragnhildar eru: 1) Helga, f. 10.6. 1955, d. 4.12. 1993, maki Nagu- ib Zaglouhl, f. 18.2. 1929, d. 5.11. 2012. 2) Páll, f. 13.7. 1958, maki Björg Sigurðardóttir, f. 24.3. 1958. Börn þeirra eru: a) Ragnhildur Guðrún, f. 8.6. 1979. b) Sigurður Bóas, f. 18.8. 1980. c) Haraldur Rafn, f. 2.12. 1987, og d) Helga Rún, f. 9.9. 1994. 3) Gunnar, f. 31.3. 1963, maki Kristín Ögmunds- dóttir, f. 25.2. 1966. Börn þeirra eru: a) Magdalena, f. 5.10. 1988. b) Ögmundur Páll, f. 6.8. 1992. c) Helgi Ragnar, f. 18.7. 1995. d) Hildur Kristín Margrét, f. 17.10. 2003. Barnabarnabörnin eru níu talsins. Haraldur starfaði við land- búnaðarstörf á búi foreldra sinna á Brekkum, þá vann hann við vegagerð, varn- argarða við Markarfljót og byggingarvinnu, meðal annars við smíði félagsheimilisins Hvols á Hvolsvelli. Hann átti Meira á Lífið gefur og lífið tek- ur, það verðum við öll að sætta okkur við. Við sem eftir stöndum erum aldrei tilbúin fyrir þessa stund. Pabbi var orðinn 92 ára en hafði alla tíð verið mjög hraustur. Pabbi fæddist á Brekkum í Hvol- hreppi og var fimmti úr tólf systk- ina hópi0. Brekkurnar áttu alltaf stað í hjarta hans. Mamma og pabbi giftu sig árið 1955 og byrj- uðu sín búskaparár á Brekkum en fluttu síðan til Reykjavíkur. Þeim varð þriggja barna auðið. Pabbi starfaði lengst af hjá Hitaveitu Reykjavíkur eða í 42 ár. Hann var mjög dáður af sínum yfirmönnum fyrir dugnað og ósérhlífni. Um helgar var gjarnan farið austur í Fljótshlíð á æskustöðvar mömmu, en þar komst pabbi í snertingu við búskapinn, sem var hans aðal- áhugamál. Árið 1987 byggðu for- eldrar mínir sumarbústað og að sjálfsögðu í sveitinni sinni, annað kom ekki til greina. Hann talaði mikið um sveitina og þegar hann kom austur var eins og hann væri alltaf kominn heim. Pabba langaði helst af öllu að vera bóndi, en það fór á annan veg. Ég var ekki hár í loftinu þegar pabbi fór að leyfa mér að vera með sér í vinnunni, sem var mikið sport fyrir ungan dreng. Við fjölskyldan eigum margar yndislegar minningar frá því þegar við byggðum okkar sumarbústað. Pabbi var mjög duglegur að hjálpa okkur þar. Þá vildi hann leggja snemma af stað til að það yrði meira úr deginum. Pabbi fór alltaf snemma á fætur. Pabbi var mikill dýravinur, kindur og hundar voru þar í uppáhaldi. Pabbi fór oft með mér austur að gefa nokkrum kindum sem við eigum og þá sá ég hvað hann hafði gaman af dýrunum. Núna í veik- indunum var hann með hugann fyrir austan og hafði áhyggjur af hvernig dýrin hefðu það. Hann var svo öflugur að moka með mér undan kindunum og talaði um hvað hann hefði gaman af þessu. Ég á eftir að sakna þessara stunda, en ég hef þá trú að pabbi verði áfram með mér í þessum ferðum. Pabbi hafði mikinn áhuga á bílnum sínum, hann var oftast stífbónaður og í góðu standi, hann hafði gaman af að skutla okkur og barnabörnin sögðu oft að afi segði aldrei nei. Í ferð okkar með hon- um um Vestfirði sagði hann okkur frá því þegar hann var í fjárflutn- ingum að vestan, en hann átti þá vörubíl með bróður sínum. Hann mundi þetta allt saman mjög vel. Árið 1993 varð stórt áfall í fjöl- skyldunni þegar Helga systir mín dó. Það var erfitt fyrir okkur að sætta okkur við það. Pabbi lifði mjög heilsusamlegu lífi og hreyfði sig mikið. Í sumar sá maður að pabbi var ekki líkur sjálfum sér, en þá hafði þessi óvinur sem hann kallaði svo verið að byrja að segja til sín. Það var okkur mikils virði að geta verið hjá þér síðustu dag- ana sem þú lifðir. Elsku pabbi minn, með þessum fátæklegu orðum langar mig að kveðja þig og þakka þér allt sem þú gerðir fyrir mig og mína fjöl- skyldu. Þú varst góð fyrirmynd, heiðarlegur, traustur, ósérhlífinn, duglegur og stundvís, allt þetta einkenndi þig. Ég horfi á bak góð- um föður og vin, þín verður sárt saknað. Við lofum þér að hugsa vel um mömmu. Ég veit að Helga systir tók vel á móti þér þegar þú komst í sumarlandið. Hvíl í friði elsku pabbi minn. Þinn Gunnar og fjölskylda. Elsku pabbi minn, nú hefur þú fengið hvíldina, eftir stutt en erfið veikindi. Þú varst alla tíð heilsu- hraustur og naust þess að takast á við erfiða vinnu sem reyndi bæði á úthald og þrek. Það átti því ekki við þig þegar heilsan gaf sig, enda sagðist þú frekar vilja fá að fara en vera svona á þig kominn. Á svona stundum hlaðast upp minningarnar sem eru ótalmarg- ar allt frá því maður man fyrst eft- ir sér. Minningar frá því maður var strákur í Fljótshlíðinni og mamma og pabbi voru að koma í heimsókn um helgar – mér fannst það alltaf svo spennandi, minning- ar frá því maður var að koma gangandi heim úr skólanum og maður rakst á pabba þar sem hann var að vinna við hitaveitu- borholurnar sem voru víða um í Reykjavík og dældu upp heitu vatni til að hita upp húsin. Ég var svo hreykinn á þessum tíma að sjá pabba vinna við þetta og fannst hann vera mikil hetja, því þetta var mikil erfiðisvinna. Minningar þegar hann keyrði mig alla morgna þegar ég byrjaði í Versl- unarskólanum sem var þá á Grundarstígnum. Minningar þeg- ar pabbi fór með mig niður í bæ á 17. júníhátíð í Reykjavík og ég týndist í mannfjöldanum. Minn- ingar þegar mig langaði að byrja að selja dagblöð en búið var að loka blaðaafgreiðslunni og pabbi vildi þá kaupa nokkur blöð sem ég gæti selt. Svona væri hæglega hægt að halda áfram og og telja upp fleiri minningar með pabba. Óhætt er að segja að pabbi hafi verið afburðaduglegur maður og eftirsóttur í vinnu, sökum ósér- hlífni og driftar sinnar við vinnu. Mikil ákefð og hugur fylgdi öllu því sem hann tók sér fyrir hendur og það var helst ekki hætt fyrr en verkinu var lokið. Hann var morg- unmaður, fór snemma á fætur til að sinna hinum ýmsu verkum, sagði ætíð morgunstund gefur gull í mund. Hann var mjög bón- góður og aðstoðaði mig ætíð þegar maður var að mála, smíða eða eiga við pípulagnir á mínu heimili. Hann var bæði samviskusamur og heiðarlegur og vildi aldrei skulda neinum neitt. Alla reikninga varð að borga strax og þeir birtust hon- um. Hann var til að mynda að koma úr bankaferð, þar sem var verið að greiða aðeins einn happ- drættismiða þegar hann datt í hálku og upp frá því hrakaði heilsu hans. Pabbi var einnig mjög fastur fyrir og stífur á skoðunum sínum og því oftast erfitt að breyta þegar búið var að taka ákvörðun. Pabbi var ekki mikið fyrir að fara á utan, þess vegna er minn- isstæð ferðin sem við fórum með hann til Hollands í kringum 1990 og dvöldum þar í sumarhúsi ásamt fleira fólki. Hann naut sín vel í þeirri ferð og talaði oft um hana. Þar var bæði hjólað og gengið mikið. Pabbi og mamma reistu sum- arbústað í Fljótshlíðinni árið 1987 og áttu mörg mjög góð ár saman í Hlíðinni fögru og nutu sín vel við gróðurinn og önnur störf úti í náttúrunni. Sumarbústaðurinn átti hug hans allan og þar sá mað- ur hvar rætur hans lágu enda tal- aði hann oft um uppeldisár sín á Brekkum þar sem hann ólst upp ásamt 11 systkinum sínum og að það hafi oft verið fjörugt á svo barnmörgu heimili. Þá var gengið í skólann út í Hvolsvöll sem er um eins km leið í hvaða veðri sem var. Brekkurnar áttu vissan stað í hjarta pabba sem leyndi sér ekki þegar hann ók þar fram hjá á leið inn í Fljótshlíð. Það var alltaf stutt í bóndann hjá pabba, hann fylgdist vel með málefnum landbúnaðarins og hafði sterka skoðun á þeim mál- um. Að vera úti í náttúrunni og vinna við að slá gras eða moka jarðveg átti vel við hann. Og ekki má gleyma að minnast á hversu gaman hann hafði af að setja niður kartöflur á vorin og taka þær síð- an upp að hausti og spennan yfir því að sjá uppskeruna. Börnin mín eiga góðar minningar í sumarbú- staðnum með pabba og mömmu, þar fengu þau yfirleitt eitthvað að aðstoða því þar var alltaf eitthvað verið að dytta að. Gaman var að sjá hversu hreykinn pabbi var af öllum afabörnum sínum. Fylgdist vel með hvernig þeim gengi í lífinu og hann tók líka vel eftir því hvernig þau tókust á við verkefnin og sagði oft við þau hversu efnileg þau væru. Elsku pabbi minn, mig langar að þakka þér fyrir fylgdina í gegn- um lífið og hversu góður og um- hyggjusamur þú varst við börnin, þau munu sakna Hadda afa mikið og það er erfitt að skýra út fyrir þeim að nú ert þú kominn til Guðs. Við munum kenna þeim að minn- ast þín í bænum sínum. Góða ferð í sumarlandið, elsku pabbi minn, með kærri þökk fyrir allt og allt. Blessuð sé minning þín. Þinn sonur, Páll. Meira: www.mbl.is/andlat Mig langar hér með í nokkrum orðum að minnast tengdaföður míns, hans Hadda eins og hann var alltaf kallaður. Á þessum tímamótum finn ég mest fyrir þakklæti, er óendanlega þakklát fyrir allt sem hann gerði fyrir okk- ur fjölskylduna. Hann fylgdist vel með sínu fólki og vildi allt fyrir fjölskylduna sína gera, hvort sem það var eitthvað tengt smíðum, pípulögnum eða jafnvel barna- pössun. Hann var mjög laginn við börnin og hafði ótakmarkaða þol- inmæði gagnvart þeim, börnin okkar og barnabörnin sóttust í að vera í Afabæ, en það var heimili tengdaforeldra minna ætíð kallað. Haddi og Ragnhildur áttu sinn sælureit í Fljótshlíðinni, þar sem þau byggðu sér bústað og dvöldu mikið þar á sumrin við uppbygg- ingu og gróðursetningu. Í bú- staðnum naut hann sín vel, fór snemma á fætur og var allan dag- inn að sinna ýmsum störfum og það átti vel við hann. Ég hefði ekki getað óskað mér betri tengdaföð- ur. Minningar um góðan mann munu lifa í hjörtum okkar. Blessuð sé minning hans. Þar sem englarnir syngja sefur þú sefur í djúpinu væra. Við hin sem lifum, lifum í trú að ljósið bjarta skæra veki þig með sól að morgni. (Bubbi Morthens) Þín tengdadóttir, Björg. Elsku afi og langafi. Þakka þér fyrir þann langa tíma sem þú gafst okkur með þér. Þú varst alveg sérstakur maður, alltaf tilbúinn að hjálpa og hlusta og svo barngóður. Þó tíminn þinn með okkur hafi verið langur var hann samt alltof stuttur. Minn- umst þín með söknuði og þú verð- ur alltaf í hjarta okkar. Þitt afabarn Ögmundur Páll og fjölskylda. Ég minnist afa míns í dag með miklum söknuði. Núna ert þú kominn til Helgu okkar og Mola sem þér þótti svo vænt um, keyr- andi um með þeim á flottum ný- bónuðum bíl. Afi, Helga og Moli eiga það sameiginlegt að krabba- meinið sigraði á endanum. Haddi afi var afskaplega barn- góður og hjálpsamur maður sem vildi öllum vel. Í afabæ sótti ég mikið sem barn því þar þótti mér afskaplega gott að vera. Við afi áttum ofsalega gott samband sem er ómetanlegt fyrir barn að fá að upplifa. Hann hafði svo gaman að því að fá að hjálpa okkur. Hann var alltaf fyrstur að koma þegar snjóaði og þá kom hann með skófl- una sína og mokaði fyrir okkur svalirnar. Hann var einnig alltaf tilbúinn til að hjálpa til við ýmis dagleg störf eins og skutla, passa eða aðstoða á einhvern máta. Bíl- inn hans var alltaf hreinn og hann hafði mikla unun af að keyra á milli staða. Fljótshlíðin er sveitin okkar og þangað þótti afa alltaf óskaplega gaman að fara. Í ferðum okkar austur þuldum við upp nöfnin á öllum fjöllunum á leiðinni frá Reykjavík og þær ár sem á vegi okkar urðu. Frá Fljótshlíð á ég margar góðar minningar og hlakka ég til að halda þeim á lofti og heiðra minningu afa míns. Þar liggja mörg handtökin sem við fjölskyldan áttum saman og mun- um varðveita. Við afi fórum mikið á leik- eða rólóvelli í Fossvoginum og svo hjólaði hann með mig, sem litla stelpu, um gangstéttir í Fossvog- inum. Þá fengum við viðurnefnin Ingimundur fiðla og Tobba fylgi- kona. Ef lesa má um þau hjónin á svokölluðum veraldarvef þá kem- ur fram að Ingimundur var hæfi- leikaríkur fiðluleikari og konan hans hét Ingibjörg. Ekki veit ég af hverju okkur var líkt við þau en mikið sem þau amma og afi hlógu þegar hjólaferðir okkar afa voru ræddar við matarborðið. Afa þótti gaman að hugsa til þessara stunda okkar. Afi var duglegur að hrósa fyrir framfarir í lífinu. Þegar ég stofn- aði fyrirtækið mitt fékk ég aldeilis að heyra hvað hann væri ofsalega stoltur af mér. Hann talaði mikið um hvað ég væri dugleg og þegar auglýsingar komu í blöðunum frá fyrirtækinu hringdi hann alltaf í mig og sagði mér að hann hafði séð flotta auglýsingu í blaðinu. Það er mikils virði að fá hrós og þetta er mér mikils virði. Ég vissi að hann var stoltur af mér og það þótti mér mjög vænt um. Ég gleymi aldrei brosinu hans og hvað honum þótti gaman að tala og segja frá, en að tala illa um fólk gerði hann aldrei. Slíkan mann er sjaldgæft að finna í dag. Afi minn var besti afi í öllum heiminum. Ég er afskaplega þakklát fyrir að hafa fengið að vera elsta barnabarnið hans og hafa haft hann í mínu lífi í 41 ár. Það eru forréttindi að hafa svona náið og gott samband við afa sinn. Ég er ómetanlega þakklát fyrir að dætur mínar hafa fengið að kynn- ast langafa sínum vel. Þær eiga alltaf eftir að muna eftir Hadda afa. Afi fór mikið með vísur og sagði okkur Sigga bróður margar sög- ur. Í minningu um þig, elsku afi minn, vísan sem þú fórst alltaf með: Fyrr var oft í koti kátt, krakkar léku saman. Þar var löngum hlegið hátt hent að mörgu gaman. Úti um stéttar urðu þar einatt skrýtnar sögur, þegar saman safnast var sumarkvöldin fögur. (Þorsteinn Erlingsson) Elsku besti afi minn. Ég elska þig og sakna mikið. Þín Ragnhildur Guðrún Pálsdóttir yngri (Ragga). Meira: www.mbl.is/andlat Elsku afi, takk fyrir að vera alltaf til staðar fyrir fjölskylduna. Það var ávallt hægt að treysta á þig og þú varst fljótur að stökkva til ef eitthvað amaði að í fjölskyld- unni. Stuðningur þinn var mikill og var alltaf gífurlegur áhugi til staðar á því hvernig manni gengi að takast á við áskoranirnar sem lífið hefði upp á að bjóða. Það er mikil sorg hvað þú varst tekinn snöggt frá okkur, því hraustur varstu alltaf og var ekki við þessu búist. Minningarnar eru margar sem við eigum saman en hefði ég viljað eiga þær enn fleiri afi minn. Þín mun verða sárt saknað um ætíð. Helgi Ragnar Gunnarsson. Himnaríki hefur eignast nýjan engil, engil með hjarta úr gulli. Elsku afi. Ég trúi því ekki enn að þú sért farinn frá okkur, maður gat einhvern veginn alltaf kallað til þín eftir aðstoð og þú hjálpaðir manni alltaf, orðið nei var ekki til hjá þér. Ég á margar góðar minn- ingar með þér, mér fannst alltaf jafn gaman þegar ég var lítil að koma upp í bústað til þín og ömmu og þú labbaðir með mér út um alla lóðina og sagðir mér hvað öll trén hétu, einnig var skemmtileg stund þegar þið amma voruð að taka upp gulræturnar í bústaðnum og ég fékk að hjálpa til með því að taka þær upp og skola þær. Ég man líka einnig alltaf eftir því þegar þú komst með mér upp í hesthús og þú tókst það ekki til greina að ég myndi moka stíuna, þannig að ég fór á hestbak og þeg- ar ég kom til baka varstu enn þá að moka og eftir það hef ég ekki séð betur mokaða stíu! Þú varst með fallegustu sál sem til var og ég veit það vel að þú horfir yfir okkur og passar okkur núna. Þú munt alltaf eiga sérstakan stað í hjarta mínu, elsku afi minn. Hvíldu í friði, elsku Haddi afi, þín verður sárt saknað því betri afa var ekki hægt að hugsa sér. Kveðja, Hildur Kristín Margrét Gunnarsdóttir. Elsku afi minn hefur nú kvatt þennan heim eftir stutt en erfið veikindi. Mikill er söknuðurinn og erfitt fyrir okkur sem eftir sitjum að átta okkur á því hversu lífið getur verið hverfult. Afi var alla tíð afar heilsuhraustur, hugsaði vel um heilsuna og stundaði morg- unsund og hjólaði. Afi minn var alveg einstakur maður. Fyrir mér er hann einhver besta manneskja sem hugsast getur, hlýjan og brosið sem hann gaf af sér með nærveru sinni er minning mín sem lítill snáði sitj- andi í kjöltu hans meðan hann hossaði manni á lærinu og raulaði vísur. Ógleymanlegar minningar sem einkennast af svo mikilli væntumþykju, ást og hlýju. Þarna var maður öruggur og ekkert illt var til í heiminum. Ég hef alltaf verið mikill afa- strákur. Mér þótti gaman að vera hjá ömmu og afa þegar ég var lítill drengur. Afi var duglegur að fara með mig upp á leikvöll og stund- um var rölt út í Grímsbæ til að kaupa eitthvað gott í bakaríinu. Margar voru ferðirnar til Steina heitins bróður afa upp á bensín- stöð. Þar keypti afi iðulega happa- þrennur fyrir mig sem ég skóf svo meðan hann þreif bílinn. Afi vann hjá hitaveitunni á þessum tíma og fékk ég oft að fara með honum í vitjanir sem mér þótti skemmtilegt. Þegar sumabústaðurinn í Fljótshlíðinni kom svo til sögunar var oft farið þangað. Margar góð- ar minningar á ég frá þessum ferðum og sumarbústaðnum. Þarna fékk orkumikill og uppá- tækjasamur drengur að losa um orkuna hömlulaust ef svo má að orði komast en þó undir góðri handleiðslu og eftirliti. Afi hafði alltaf einhver verkefni handa manni, það var ekki verið að fara í bústaðinn til að slappa af, nei þvert á móti var alltaf eitthvað að gera og ég fékk að taka þátt í því. Afi fór iðulega með einhverjar vís- ur eða stökur þegar við vorum við störf, sagði sögur frá sveitinni og taldi upp bæina í Fljótshlíðinni og hver bjó á hvaða bæ. Ég minnist þess að í hvert sinni sem við komum austur byrjaði upptalningin á bæjum yfirleitt við Litla-Moshvol þar til komið var að sumarbústaðnum. Oftast var hægt á ferðinni þegar kom að Brekkunum til að lita yfir og kanna ástandið á túninu heima við bæinn. Afi talaði oft um Brekk- urnar og hans minningar sem ungur drengur að alast þar upp og þar mátti greina sterkar taugar. Afi hefur alltaf verið til staðar. Haraldur Guðnason

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.