Morgunblaðið - 01.02.2021, Side 24

Morgunblaðið - 01.02.2021, Side 24
24 DÆGRADVÖL MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 1. FEBRÚAR 2021 50 ára Sonja er Reyk- víkingur, ólst upp í Seljahverfi en býr í Kópavogi. Hún er lyfja- fræðingur að mennt frá HÍ og er sérfræð- ingur í lyfjaskráningum hjá Vistor. Sonja situr í siðanefnd Lyfjafræðingafélags Íslands. Maki: Erlendur S. Þorsteinsson, f. 1971, reiknifræðingur og starfar hjá CCP. Börn: Birkir Örn, f. 2000, Þorsteinn Hilmir, f. 2004, og Þórunn Erla, f. 2006. Foreldrar: Erla B. Axelsdóttir, f. 1948, myndlistarmaður, og Guðfinnur R. Kjart- ansson, f. 1945, fv. framkvæmdastjóri. Þau eru búsett í Breiðholti. Sonja Björg Guðfinnsdóttir Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl  Hrútur Veittu því athygli hvað góðvild fólksins í kringum þig skiptir þig miklu máli. Er ekki kominn tími til að klippa á nafla- strenginn milli þín og viss aðila? 20. apríl - 20. maí  Naut Þú áttar þig svo sannarlega á því hversu mikla umhyggju aðrir bera fyrir þér á komandi vikum. Gerðu áætlanir í dag svo þú getir nýtt tímann sem best. 21. maí - 20. júní  Tvíburar Það er kominn tími til þess að þú dragir þig í hlé frá ákveðnum málum og leyfir öðrum að taka við. Reyndu að minnka frestunaráráttuna. 21. júní - 22. júlí  Krabbi Nánasta samband þitt er loks farið að breytast til batnaðar. Gefðu þér tíma til að hafa samband við vini. Fjölskyldan kem- ur þér á óvart. 23. júlí - 22. ágúst  Ljón Líttu í kringum þig og leitaðu eftir ein- hverju sem má betur fara. Umtal annarra um þig truflar þig ekki. 23. ágúst - 22. sept.  Meyja Þú hefur mikla löngun til þess að læra eitthvað nýtt. Ekki reyna að forðast vissa persónu, það er best að hitta hana og afgreiða málið strax. 23. sept. - 22. okt.  Vog Þú komst þér sjálfur í þessar aðstæður og ræður hvort þú kallar það heppni eða óheppni. Það að leita eftir hjálp er styrk- leikamerki. 23. okt. - 21. nóv. Sporðdreki Þú ert ákveðinn í að komast til botns í heimilisvanda og laga hann. Hlust- aðu á líkama þinn, ekki hunsa viðvörunar- merkin. 22. nóv. - 21. des. Bogmaður Meginverkefni dagsins er að skilja sjónarmið annarra. Samninga- viðræður við unglinginn eru stál í stál, sá vægir sem vitið hefur meira. 22. des. - 19. janúar Steingeit Varastu alla fljótfærni í sam- bandi við fjárfestingar. Þú ert með stjörnur í augunum yfir vissri manneskju, haltu því bara áfram. 20. jan. - 18. febr. Vatnsberi Fyrirætlanir þínar um að bæta við menntun þína eru góðar. Deilur rísa um eignarrétt og þú verður að hafa þig allan við til þess að standa á rétti þínum. 19. feb. - 20. mars Fiskar Láttu ekki dagdrauma spilla fyrir árangri þínum í dag. Erfiðleikarnir eru meira leyndir en ljósir og verða að baki bráðum. H alldór Elís Ólafsson fæddist 1. febrúar 1981 í Reykjavík, en ólst upp á Seltjarnar- nesi. Hann gekk í Mýrarhúsaskóla og Valhúsaskóla og lauk stúdentsprófi frá Mennta- skólanum við Hamrahlíð. Árið 2006 var Halldór meðal fyrstu nemenda sem luku námi við nýja deild japanskra fræða við Há- skóla Íslands. „Það er kannski ekki ein ástæða fyrir því að ég fór að hafa áhuga á Japan,“ segir Halldór að- spurður. „Pabbi hafði ferðast tals- vert í Asíu og komið heim með myndir og muni þaðan. Það eru fyrstu minningarnar. Svo man ég eftir bíómyndum þar sem þessi heimur var framandi og spennandi og við að eignast Nintendo og Sony Walkman og þessi japönsku raftæki þá varð Japan þetta framtíðarland en líka með samúræjum og hofum og það var rosalega heillandi. Að einu ári loknu í HÍ fór ég fyrst út til Jap- an, sem skiptinemi í Osaka en það er næststærsta borg Japan. Þar verð ég alveg hugfanginn; maturinn, menningin og þægindin og svo stór- borgartilfinningin og mannmergðin, en hún verður aldrei óþægileg þar.“ Rúmu ári eftir útskriftina úr HÍ hlaut Halldór styrk japanska menntamálaráðuneytisins til fram- haldsnáms í Japan og útskrifaðist hann með meistaragráðu í alþjóða- samskiptum frá Waseda-háskóla í Tókýó árið 2010. „Waseda er gamal- gróinn einkaskóli en rithöfundurinn Haruki Murakami hafði búið á heimavistinni þar sem ég var og lét m.a. aðalpersónuna í skáldsögunni Norwegian Wood búa þar.“ Starfsferillinn Að námi loknu hóf Halldór störf hjá ferðaskrifstofunni Viking Inc. í Tókýó, en fyrirtækið er umboðsaðili Icelandair, auk Air Greenland og Atlantic Airways (frá Færeyjum) í Japan. Þar vann Halldór að sölu og markaðssetningu ferðaþjónustu til Íslands, Grænlands og Færeyja til ársins 2013. Halldór hóf síðan störf hjá sendi- ráði Íslands í Japan sem viðskipta- fulltrúi árið 2013, auk þess að starfa sem fulltrúi borgaramála og umsjón- armaður rekstrarmála. Sendiráðið í Tókýó, auk þess að fara með fyrir- svar gagnvart Japan, hefur Filipps- eyjar, Indónesíu, Austur-Tímor og Brúnei í sínu umdæmi. Fimm manns starfa í sendiráðinu, að sendiherr- anum meðtöldum. „Þetta er ansi lítið apparat og og aðrir diplómatar eru hissa á því hve fá við erum. Það er gengið í öll störf en spennan liggur í líka í því og starfið er fjölbreytilegt. Þú getur verið að veita viðskipta- aðstoð og hitta fjárfesta, og hina stundina sinnt borgaraþjónustu- málum eða aðstoðað ferðamenn. Það er gaman að sjá að Ísland býr við góðan orðstír hér í Asíu og starfs- menn leggjast allir á eitt við að koma Íslandi á framfæri erlendis.“ Íslenskum íbúum á svæðinu sem heyrir undir japanska sendiráðið hefur fækkað mjög vegna Covid- ástandsins, en fyrir það voru íbúar í Japan í kringum 100 og 100 sömu- leiðis á Filippseyjum. „Það eru tölu- vert færri sem búa í Indónesíu en þar hefur verið töluvert af íslensk- um ferðamönnum, eins og á Balí og við höfum mikið verið að aðstoða þá.“ Frá 2013 hefur Halldór einnig starfað sem framkvæmdastjóri Ís- lenska viðskiptaráðsins í Japan, en ráðið var stofnað árið 2003. Halldór hefur þar að auki setið í fram- kvæmdastjórn Evrópska við- skiptaráðsins í Japan (European Business Council) ásamt því að hafa setið í samhæfingarnefnd alþjóða- mála hjá Minato-borg í Tókýó. Frá árinu 2018 hefur Halldór, auk starfa fyrir sendiráðið í Tókýó, starfað sem viðskiptafulltrúi í Singapúr þar sem hann hefur einnig verið stjórnarmaður í Norræna ný- sköpunarsetrinu þar í landi (Nordic Innovation House Singapore), en setrin, sem eru alls fimm talsins á heimsvísu, eru samstarfsvettvangur Norðurlanda um viðskiptasókn nor- rænna nýsköpunar- og vaxtafyr- irtækja á erlenda markaði. Árið 2020 tók sambærilegt nýsköp- unarsetur til starfa í Tókýó, og hef- ur Halldór einnig gegnt þar stjórn- arstöðu og tók við sem stjórnar- formaður í byrjun árs 2021. „Við erum svo heppin að taka þátt í þessu norræna samstarfi en það hefur allt- af verið okkur til mikilla hagsbóta að vera í góðum tengslum við Norð- urlöndin á erlendri grundu og við höfum verið dugleg að rækta það í Japan og Singapúr og líka á Filipps- eyjum og Indónesíu.“ Hefur fest rætur í Japan Halldór hefur núna búið í Japan í meira en tíu ár og er kominn með fjölskyldu. „Maður skýtur náttúr- lega rótum og það er mjög gott að eiga heima hérna. Þú getur verið óáreittur og lifað þínu lífi eins og þú vilt, en þetta er á margan hátt frek- ar passíft samfélag. Þú þarft sjálfur að sækja í kúltúrinn hérna til að fá mikið út úr honum, þú uppskerð það sem þú sáir og tungumálið er lykill- inn.“ Meðal áhugamála Halldórs má nefna íþróttir af öllu tagi, en hann Halldór Elís Ólafsson, viðskiptafulltrúi í Tókýó – 40 ára Í Kaupmannahöfn Halldór, Issey Máni, Nína Sól og Tomoko árið 2019. Heillandi heimur tækni og hefða Nánasta fjölskylda Á ferðalagi í Lígúríuhéraði á Ítalíu árið 2018. 30 ára Daníel Þór er Hafnfirðingur og Frakki, en hann fædd- ist í Perpignan í Frakk- landi og ólst upp í Hafnarfirði. Daníel býr í Reykjavík, er við- skiptafræðingur að mennt frá HÍ og löggiltur verðbréfamiðl- ari. Hann er sjóðstjóri hjá Gamma. Maki: Salka Sól Styrmisdóttir, f. 1990, lögfræðingur hjá Landslögum. Börn: Aría Björk, f. 2016, og Hólmar Hrafn, f. 2020. Foreldrar: Magnús Kristjánsson, f. 1963, leiðsögumaður, búsettur í Hafnarfirði, og Nadége Prat, f. 1958, hefur unnið við umönnun, búsett í Kópavogi. Daníel Þór Magnússon Til hamingju með daginn Reykjavík Hólmar Hrafn Daníelsson fæddist 16. mars 2020 á Landspítal- anum við Hringbraut klukkan 14.25. Hann vó 3.328 g og var 50 cm langur. Foreldrar hans eru Daníel Þór Magnússon og Salka Sól Styrmisdóttir. Nýr borgari

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.