Morgunblaðið - 01.02.2021, Síða 25
DÆGRADVÖL 25
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 1. FEBRÚAR 2021
Smiðjuvegi 4C | 200 Kópavogur | Sími 587 2202 | hagblikk@hagblikk.is | hagblikk.is
HAGBLIKK
Álþakrennur
& niðurföll
Þakrennurnar eru frá GRÖVIK VERK í Noregi
Þær eru einfaldar í uppsetningu
HAGBLIKK
Ryðga ekki
Brotna ekki
Litir á lager:
Svart, hvítt, ólitað, rautt
silfurgrátt og dökkgrátt
„ÉG GET GERT VIÐ ÞETTA FYRIR
TVÖHUNDRUÐÞÚSUNDKALL. FYRIR ÖNNUR
ÁTTATÍU ÞÚSUND SKAL ÉG ÚTSKÝRA
VERÐÚTREIKNINGINN.”
„OKKUR VANTAR EINN ÞRIGGJA METRA
STIGA OG ANNAN FJÖGURRA METRA.”
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... að geta brugðist við
neyðarástandi.
Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann
ÉG ÆTLA AÐ FÁ EITT PUND
AF RÚSÍNUM – OG TYLFT AF
SÚKKULAÐIBOLLAKÖKUM!
LÍSA ÆTLAR AÐ KÍKJA OG
GRISJA AÐEINS HÚSMUNI
MEÐ MÉR!
HÚN FER EKKI AÐ HENDA
KÓKTAPPASAFNINU MÍNU, ER
ÞAÐ NOKKUÐ?
FELDU ÞAÐ Á BAKVIÐ
BANANALÍMMIÐA-
MÖPPUNA
ÉG ELSKA
AÐ KOMA
FÉLÖGUNUM
Á ÓVART MEÐ
NAMMI!
RÚSÍNUR FYRIR ALLA!
hefur m.a. stundað fótbolta og hand-
bolta frá unga aldri en stundar helst
nú útihlaup og fjallgöngur. „70 pró-
sent af öllu landsvæði í Japan er
skógi vaxið fjalllendi. Það er því
endalaust af fjallgörðum og þjóð-
görðum hérna og gönguleiðum og
gott að komast úr steypunni.“
Halldór hefur mikinn áhuga á alls
konar tónlist og í störfum sendiráðs-
ins hefur hann í gegnum árin að-
stoðað íslenska tónlistarmenn á ferð
í Japan sem hefur verið honum sér-
stök ánægja. „Fyrir Covid var mikið
farið á tónleika og ég vona að það
taki við aftur. Það þrífst öll tónlistar-
menning í Japan, en það sem fólk
þekkir helst núna er svokallað
j-popp sem er mjög sjónræn popp-
menning í Idol-stíl. En í Japan er
mjög góð rokktónlist og raftónlist og
áhugi minn á japanskri tónlist kvikn-
aði með Yellow Magic Orchestra og
Ryuichi Sakamoto. Japanir eru með
rosa flotta djasssenu og klassísk tón-
list er í hávegum höfð.“
Fjölskylda
Eiginkona Halldórs er Tomoko
Nagata, f. 10.7. 1985, markaðs-
ráðgjafi. Þau búa í Minato-hverfi í
Tókýó. Foreldrar Tomoko eru Yu-
kiko Nagata og Kiyokazu Nagata.
Börn Halldórs og Tomoko eru Is-
sey Máni Halldórsson Nagata, f.
25.1. 2015, og Nína Sól Halldórs-
dóttir Nagata, f. 20.1. 2018.
Systir Halldórs er Guðbjörg Ólafs-
dóttir, f. 14.10. 1987, sérfræðingur hjá
Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu.
Maki er Jón Bjarni Jóhannsson, f.
26.9. 1987, innanhússarkitekt og um-
sjónarmaður gæðamála hjá Formus
ehf. Dóttir þeirra er Alexandra Mist,
f. 30.5. 2017. Þau búa í Kópavogi.
Foreldrar Halldórs eru hjónin
Ólafur Elís Benediktsson, f. 13.9.
1949, starfaði lengst sem fulltrúi út-
flutnings hjá Icelandair Cargo, síðar
hjá Bluebird Cargo, og Þuríður Hall-
dórsdóttir, f. 4.10. 1958, geislafræð-
ingur hjá Röntgen Domus Medica.
Halldór Elís
Ólafsson
Matthea Guðný Sigurbjörnsdóttir
húsmóðir á Húsavík
Þorgrímur Maríusson
sjómaður á Húsavík
Guðrún Þorgrímsdóttir
verkakona á Húsavík
Halldór Ingólfsson
húsgagnasmíðameistari á Húsavík
Þuríður Halldórsdóttir
geislafræðingur í Reykjavík
Þuríður Halldórsdóttir
húsmóðir á Húsavík
Ingólfur Helgason
framkvæmdastjóri á Húsavík
Anna Guðrún Torfadóttir
húsmóðir í Stakkadal og Saurbæ
Ólafur Hermann Einarsson
bóndi í Stakkadal og Saurbæ
á Rauðasandi
Guðbjörg Ólína Ólafsdóttir
saumakona í Reykjavík
Benedikt Kristinsson
verkamaður í Reykjavík
Evlalía Kristjánsdóttir
húsmóðir á Patreksfirði
Kristinn Benediktsson
sjómaður á Patreksfirði
Úr frændgarði Halldórs Elísar Ólafssonar
Ólafur Elís Benediktsson
fv. skrifstofumaður í Reykjavík
Í Þingvísum stendur: „Pétur Jóns-son bóndi á Gautlöndum þing-
maður Suður-Þingeyinga viðhafði
stundum í ræðum sínum orð það hið
erlenda, er fram kemur í vísunni“:
Allt var gott sem gerði Drottinn forðum,
– „prinsip“ þó hann þetta braut,
þegar hann bjó til Pétur Gaut.
Á sumarþinginu 1917 var flutt
frumvarp til markalaga, þar sem
borin voru fram ýmis nýmæli um
merkingu sauðfjár:
Eyrnamörk eru óþörf hér í salnum.
Þekkist allur þingsins fans
á þessum parti líkamans.
Ég hef alltaf Vísnasafn Jóhanns
Sveinssonar frá Flögu við höndina.
Þaðan eru þessar vísur:
Lifa kátur líst mér mátinn bestur.
Þó að bjáti eitthvað á
úr því hlátur gera má.
Ef ég væri orðinn fær að skapa
forlög manna hér í heim
hefði ég annan taum á þeim.
Hún er að veiða, hún er að seyða
beinin,
hún er að skeiða út og inn
andlitsbreiða kerlingin.
Sveinbjörn Egilsson orti:
Edda prýðir, allir lýðir segja
en hana að brúka of mjög er
eins og tómt að éta smér.
Gömul vísa, sennilega ort fyrir
1800. Kiðaskarð er fjallvegur milli
Stafns í Svartárdal og Mælifells í
Skagafirði.
Fylgi þér Drottinn fram í skarðið Kiða,
hann þó skilji þar við þig
það kemur ekki par við mig.
Úr formannavísum. Björn
Brandsson Höfnum orti um Vil-
hjálm Hákonarson í Kirkjuvogi:
Sjór og hauður honum auðinn færa,
gæfan skrýðir heiðri hann,
hún er blíð við þennan mann.
Lúðvík B. Blöndal frá Hvammi
orti:
Þér ég segi það af eigin munni
þó ei sáttur sért við mann
signor áttu að kalla hann.
Úr rímum um Jóhann Blakk eftir
Gísla Sigurðsson Klungurbrekku:
Sumir fæðast, sumir klæðast helju,
sumir vaða sorgardý,
sumir baða rósum í.
Úr ljóðabréfi Páls skálda:
Hissa kusi, hissa niptin prjóna;
hissa þeir sem horfðu á,
hissa varð ég sjálfur þá.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Stuðlafall er skemmtilegur
bragarháttur