Morgunblaðið - 01.02.2021, Qupperneq 26

Morgunblaðið - 01.02.2021, Qupperneq 26
26 ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 1. FEBRÚAR 2021 England Everton – Newcastle............................... 0:2  Gylfi Þór Sigurðsson lék allan leikinn með Everton. Arsenal – Manchester United ................ 0:0  Rúnar Alex Rúnarsson var allan tímann á bekknum hjá Arsenal. Chelsea – Burnley ................................... 2:0  Jóhann Berg Guðmundsson kom inn á sem varamaður á 62. mínútu hjá Burnley. Crystal Palace – Wolves .......................... 1:0 Manch. City – Sheffield United .............. 1:0 WBA – Fulham......................................... 2:2 Southampton – Aston Villa...................... 0:1 Leicester – Leeds..................................... 1:3 West Ham – Liverpool............................. 1:3 Brighton – Tottenham ............................. 1:0 Staðan: Manch. City 20 13 5 2 37:13 44 Manch. Utd 21 12 5 4 37:27 41 Liverpool 21 11 7 3 43:24 40 Leicester 21 12 3 6 37:25 39 West Ham 21 10 5 6 31:27 35 Tottenham 20 9 6 5 34:21 33 Chelsea 21 9 6 6 35:23 33 Everton 19 10 3 6 29:24 33 Aston Villa 19 10 2 7 34:21 32 Arsenal 21 9 4 8 26:20 31 Southampton 20 8 5 7 27:25 29 Leeds 20 9 2 9 35:36 29 Crystal Palace 21 7 5 9 25:36 26 Wolves 21 6 5 10 21:30 23 Newcastle 21 6 4 11 21:34 22 Burnley 20 6 4 10 13:26 22 Brighton 21 4 9 8 23:29 21 Fulham 20 2 8 10 17:29 14 WBA 21 2 6 13 17:50 12 Sheffield Utd 21 2 2 17 12:34 8 Manchester City – West Ham................. 4:0  Dagný Brynjarsdóttir lék ekki með West Ham vegna meiðsla. B-deild: Cardiff – Millwall .................................... 0:1  Jón Daði Böðvarsson kom inn á sem varamaður á 78. mínútu hjá Millwall. D-deild: Carlisle – Exeter...................................... 1:0  Jökull Andrésson stóð allan leikinn á milli stanganna hjá Exeter. Þýskaland Dortmund – Augsburg............................ 3:1  Alfreð Finnbogason lék ekki með Augs- burg vegna meiðsla. Staða efstu liða: Bayern München 19 14 3 2 57:26 45 RB Leipzig 19 11 5 3 32:17 38 Wolfsburg 19 9 8 2 30:19 35 Eintr.Frankfurt 19 8 9 2 38:28 33 Leverkusen 19 9 5 5 32:19 32 Dortmund 19 10 2 7 38:27 32 M’Gladbach 19 8 8 3 36:29 32 B-deild: Regensburg – Darmstadt ....................... 1:1  Guðlaugur Victor Pálsson kom inn á sem varamaður á 66. mínútu hjá Darmstadt. Ítalía Bologna – AC Milan................................. 1:2  Andri Fannar Baldursson var allan tím- ann á bekknum hjá Bologna. Staða efstu liða: AC Milan 20 14 4 2 41:23 46 Inter Mílanó 20 13 5 2 49:23 44 Roma 19 12 4 3 44:30 40 Juventus 19 11 6 2 39:18 39 Napoli 19 12 1 6 43:19 37 B-deild: Ascoli – Brescia ....................................... 2:1  Hólmbert Aron Friðjónsson kom inn á sem varamaður á 79. mínútu hjá Brescia en Birkir Bjarnason var ekki í hópnum. C-deild: Padova – Fano.......................................... 1:1  Emil Hallfreðsson kom inn á sem vara- maður á 62. mínútu hjá Padova. Frakkland Bikarkeppnin, 32 liða úrslit: Bordeaux – Le Havre.............................. 5:0  Svava Rós Guðmundsdóttir var ekki í leikmannahópi Bordeaux.  Anna Björk Kristjánsdóttir og Andrea Rán Hauksdóttir léku allan leikinn með Le Havre en Berglind Björg Þorvaldsdóttir var ekki í leikmannahópnum. Holland AZ Alkmaar – Ajax ................................. 0:3  Albert Guðmundsson lék fyrstu 77 mín- úturnar með AZ Alkmaar. B-deild: Excelsior – Den Bosch ............................ 4:4  Elías Már Ómarsson lék allan leikinn með Excelsior og lagði upp eitt mark. Belgía Zulte-Waregem – Oostende ................... 2:1  Ari Freyr Skúlason lék fyrstu 86 mín- úturnar með Oostende. B-deild: Molenbeek – Union St. Gilloise .............. 0:2  Aron Sigurðarson var allan tímann á bekknum hjá Union St. Gilloise. Grikkland PAOK – Panetolikos ............................... 5:0  Sverrir Ingi Ingason lék allan leikinn með PAOK. Smyrnis – Olympiacos ............................ 1:3  Ögmundur Kristinsson var allan tímann á bekknum hjá Olympiacos. Panathinaikos – Lamia ........................... 0:0  Theódór Elmar Bjarnason lék allan leik- inn með Lamia.  KÖRFUBOLTINN Jóhann Ingi Hafþórsson johanningi@mbl.is Höttur vann sinn fyrsta sigur á tíma- bilinu í Dominos-deild karla í körfu- bolta er liðið lagði Njarðvík óvænt, 88:83, á heimavelli í gærkvöldi. Hött- ur lagði grunninn að sigrinum með góðum þriðja leikhluta í annars frek- ar kaflaskiptum leik. Nýliðar Hattar eru nú með tvö stig, eins og Haukar, og tveimur stigum frá Þór Akureyri, en þau mætast einmitt í næsta leik í leik sem gæti skipt miklu máli upp á framhaldið. Michael Mallory var sterkur hjá Hetti og skoraði 33 stig og tók 11 fráköst. Antonio Hester gerði gott betur hjá Njarðvík og skoraði 33 stig og tók 16 fráköst, en það dugði ekki til. Úrslitin eru áfall fyrir Njarðvíkinga eftir tvo sterka sigra á Val og Hetti í síðustu umferð- um, en stöðuleika vantar í Suður- nesjaliðið. Njarðvík á afar erfiðan leik gegn toppliði Stjörnunnar í næstu umferð og þarf að spila miklu betur til að fá eitthvað gegn meist- araefnunum í Garðabæ. Tomsick hetjan Nikolas Tomsick var hetja Tinda- stóls í 104:103-sigri í framlengdum leik á Þór frá Þorlákshöfn á útivelli. Tomsick lék með Þór fyrir tveimur árum og líður greinilega vel í Þor- lákshöfn. Hann skoraði þriggja stiga körfu í lokasókn Tindastóls og tryggði liðinu nauman sigur. Sig- urinn var kærkominn fyrir Tindastól eftir aðeins einn sigur í fjórum leikj- um þar á undan. Tapið er á sama tíma svekkjandi fyrir Þór sem hefði með sigri farið upp að hlið Stjörn- unnar og Keflavíkur í toppsætinu. Þess í stað er liðið með átta stig, eins og Grindavík, ÍR, Njarðvík og KR, að elta toppliðin tvö. Shawn Glover átti enn og aftur góðan leik fyrir Tindastól og skoraði 28 stig. Adomas Drungilas skoraði 28 stig og tók 17 fráköst fyrir Þór. KR kvittaði fyrir stórtap KR kvittaði fyrir 30 stiga tapið gegn Þór frá Þorlákshöfn í síðustu umferð með sannfærandi 103:87-sigri á Haukum á útivelli. KR hefur nú unnið fjóra í síðustu fimm en Haukar eru í miklu basli með aðeins einn sig- ur á tímabilinu og fimm töp í röð. Tyl- er Sabin átti enn og aftur gríðarlega góðan leik fyrir KR og skoraði 39 stig. Langt er síðan KR var með banda- rískan leikmann í sínum röðum sem skorar eins mikið og Sabin. Gerir hann vel í að fylla í það skarð sem Jón Arnór Stefánsson og Kristófer Acox skildu eftir. Haukar hafa síðustu ár átt erfitt uppdráttar án Kára Jóns- sonar og ljóst að veturinn yrði langur eftir að Kári skipti yfir til Girona á dögunum. Tveir í röð hjá Þór Þórsarar frá Akureyri unnu annan sigur sinn í röð er Valur kom í heim- sókn til Akureyrar. Þór var allan tímann með undirtökin og var sig- urinn sannfærandi. Ivan Aurre- coechea átti stórleik fyrir Þór og skoraði 29 stig og tók auk þess 15 fráköst. Dedrick Basile skoraði 28 stig, tók átta fráköst og gaf níu stoð- sendingar. Eftir tap í fyrstu fimm leikjunum eru Þórsarar komnir í gang og eru Akureyringar með tvo sigra í röð eftir sigurinn á Tindastóli í síðustu umferð. Liðið hefur komið nokkuð á óvart, en flestir spáðu Þórsurum falli úr deildinni fyrir leik- tíðina. Valur hefur aftur á móti vald- ið vonbrigðum til þessa með nokkra margfalda Íslandsmeistara í sínum röðum. Loksins fagnað á Egilsstöðum  Tomsick tryggði dramatískan sigur Ljósmynd/Þórir Tryggvason Akureyri Þórsarinn Ragnar Ágústsson sækir að Valsmönnum í gær. Landsliðskonan Gunnhildur Yrsa Jónsdóttir er komin til bandaríska knattspyrnufélagsins Orlando Pride frá Kansas City en félögin skiptu á leikmönnum á laugardag. Gunnhildur kemur til Orlando í staðinn fyrir valrétt í annarri um- ferð nýliðavalsins. Gunnhildur kom fyrst í bandaríska fótboltann árið 2018 og var í lykilhlutverki hjá Utah Royals í tvö ár. Hún lék með Val seinni hluta síðasta tímabils í láni frá Utah. Hún hefur leikið 76 A-landsleiki og skorað í þeim 10 mörk. Gunnhildur flytur til Flórída Morgunblaðið/Eggert Flórída Gunnhildur Yrsa Jónsdóttir er gengin í raðir Orlando Pride. Knattspyrnumaðurinn Kjartan Henry Finnbogason er á heimleið eftir að hann og danska félagið Horsens komust að samkomulagi um riftun á samningi leikmannsins. Horsens greindi frá því á heimasíðu sinni að Kjartan hefði óskað eftir riftun á samningi til að snúa heim til Íslands, en samningurinn átti að renna út í sumar. Framherjinn hefur aðeins leikið með KR hér á landi, alls 98 leiki í efstu deild, og skorað í þeim 38 mörk. Þá hefur hann skorað þrjú mörk í 13 A-landsleikjum. Kjartan Henry snýr aftur heim AFP Heimkoma Kjartan Henry Finn- bogason snýr heim frá Danmörku. Haukar voru sannfærandi í sínum fyrsta leik í Olísdeild karla í hand- bolta í 120 daga er liðið fékk Þór í heimsókn frá Akureyri á laugar- dag. Urðu lokatölur 33:22, Haukum í vil. Fyrir utan stuttan kafla í fyrri hálfleik voru Haukar með undir- tökin allan tímann og var sigurinn ekki í hættu, en staðan í hálfleik var 14:10, Haukum í vil. Orri Freyr Þorkelsson skoraði átta mörk fyrir Hauka og Darri Aronsson fimm, en Darri var að leika sinn fyrsta leik í 17 mánuði vegna meiðsla og hlésins sem gert var á deildinni vegna kórónuveir- unnar. Ihor Kopyshynskyi skoraði sex mörk fyrir Þór. Deildin er gríðarlega jöfn en Aft- urelding er í toppsætinu með níu stig. Þar á eftir koma ÍBV, Valur, FH og Haukar, öll með átta stig. Haukar mæta Aftureldingu í næstu umferð 3. febrúar en Gunnar Magn- ússon, sem þjálfaði Hauka í árarað- ir, er nú þjálfari Aftureldingar. johanningi@mbl.is Morgunblaðið/Eggert Mikilvægur Adam Haukur Baumruk er mikilvægur fyrir Haukamenn. Haukarnir flugu hátt eftir 120 daga hlé Valur og Fram, sem hafa verið með yfirburði í handknattleik í kvenna- flokki hér á landi síðustu ár, mis- stigu sig bæði í Olísdeildinni á laug- ardaginn var. Deildin er opnari og meira spennandi en síðustu ár og mörg lið sem gera tilkall til að berj- ast um Íslandsmeistaratitilinn. Fram var sterkasta liðið á síðustu leiktíð áður en keppni var hætt vegna kórónuveirunnar en Fram tapaði öðrum leik sínum á tíma- bilinu er liðið heimsótti KA/Þór. Lokatölur urðu 27:23, KA/Þór í vil. „Vörn KA/Þórs var aðal liðsins og virkaði hún eins og mulningsvél á köflum. Í sóknarleiknum bar Rut Jónsdóttir af og var hún frábær í að opna fyrir félögum sínum og koma boltanum á rétta staði á réttum augnablikum. Línumennirnir Ásdís Guðmundsdóttir og Anna Þyrí Hall- dórsdóttir voru skæðar og er með ólíkindum að sjá hvernig þær ná að grípa erfiðar og óvæntar send- ingar,“ skrifaði Einar Sigtryggsson m.a. um leikinn á mbl.is. KA/Þór er ásamt Val á toppnum með tíu stig, tveimur stigum á und- an Fram og Stjörnunni. Valur þurfti að sætta sig við eitt stig er liðið heimsótti HK, þar sem lokatöl- ur urðu 32:32. Í sjö leikjum hafa Valur og KA/Þór unnið fjóra, gert tvö jafntefli og tapað einum. Fram er í þriðja sæti ásamt Stjörnunni með átta stig en Fram hefur unnið fjóra leiki og tapað tveimur af fyrstu sex leikjum sínum, líkt og Stjarnan. ÍBV kemur þar á eftir með sjö stig eftir auðveldan 27:14-útisigur á FH. Nýliðar FH virðast eiga lítið erindi í deildina og er liðið í botn- sætinu án stiga eftir sjö leiki og með markatöluna 79 mörk í mínus. Áhugaverðasta topp- barátta síðari ára Morgunblaðið/Þórir Akureyri Sólveig Lára Kristjáns- dóttir skoraði fimm mörk.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.