Morgunblaðið - 01.02.2021, Qupperneq 32

Morgunblaðið - 01.02.2021, Qupperneq 32
Sýningin Undiralda var opnuð í Hannesarholti um helgina. Á henni eru verk eftir Lilý Erlu Adamsdóttur sem vinnur á mörkum myndlistar, hönnunar og list- handverks. Verk hennar einkennast af litum og form- um, þar sem endurtekning er ríkjandi á myndfletinum og eru yfirborð henni hugleikin, finnur hún gjarnan sterkan samhljóm milli innra og ytra landslags. Áferð verkanna og form þeirra sameina í myndbyggingu sinni fleiri en eitt sjónarhorn og mynda þannig víðfeðmt sjónarspil, eins og segir í tilkynningu og er sýningin sögð óður til orkunnar sem býr undir yfirborðinu. Vegna sóttvarna er fólk beðið að bóka skoðun í síma 511-1904 eða á hannesarholt@hannesarholt.is. Óður til orkunnar undir yfirborðinu neinni gerð af kortum: „Ég fleygi aldrei korti,“ segir hún. Það gildir líka um auglýsingamiða sem kynni að rata inn um lúguna á morgun þar sem nýjustu garðstólarnir eru kynntir neytendum. Guðrún var með búskap á Götum í Mýrdal í hartnær hálfa öld ásamt bónda sínum Jóni Hjaltasyni, þar til þau fluttu til Víkur fyrir nokkrum ár- um. Dætur þeirra eru fjórar og segir Guðrún ekki laust við að það sé safn- ari í þeim. Hvort þær taki við kyndl- inum þegar þar að kemur er óráðið en fari svo verður áskorunin nokkur. Eigandi svona safns þarf nefnilega að þekkja það út og inn, því að reki nýtt kort á fjörur hans þarf hann að vita hvort hann eigi annað eins. Í safni Guðrúnar er aðeins eitt kort af hverri sort. Annað væri auðvitað arg- asti óþarfi. Snorri Másson snorrim@mbl.is „Það sem heitir kort, því safna ég.“ Guðrún Einarsdóttir frá Kaldrana- nesi í Mýrdal á vafalaust stærsta safn korta á landinu, hún hefur safn- að þeim markvisst í rúmlega hálfa öld. „Þetta er auðvitað árátta, að vera að safna svona öllu í kringum sig þörfu og óþörfu. Af hverju? Ég veit það ekki. Það er eitthvað í manni, kannski einhver gen,“ segir Guðrún í samtali við Morgunblaðið. Guðrún á einhvers staðar á milli tuttugu og þrjátíu þúsund kort af ýmsum toga, sem eru skipulega flokkuð eftir skreytingum. Þau eru í 97 möppum og þekur safnið heilan vegg í einu herbergja heimilis henn- ar á Vík í Mýrdal. Upptök árátt- unnar eru í æsku Guðrúnar á fimmta áratug síðustu aldar, þegar jólakort voru enn grundvallarboðleið hátíð- legra kveðja hjá þorra landsmanna. „Þegar ég var krakki hirti ég alltaf þau kort sem ég náði í en var ekki beint að safna þeim. Það er ekki fyrr en eftir að ég eignast stelpurnar mín- ar sem ég fer virkilega að safna þessu,“ segir Guðrún. Það er upp úr 1960, þannig að söfnunin hefur staðið yfir lengur en hálfa öld. Móðir Guð- rúnar geymdi öll jólakort sem hún fékk, þó að þar hafi ekki verið um skipulagða söfnun að ræða. Það var þó álitlegt safn, sem kom í hlut Guð- rúnar þegar móðir hennar lést. Þar leyndist til dæmis jólakort frá 1912, sem er elsta kortið í safninu núna. Fleygir aldrei korti Enda þótt söfnun Guðrúnar ein- skorðist alls ekki við jólakort er sá flokkur uppistaða safnsins. Í einni möppu eru kort með jólakúlum, í næstu kort með jólasveinum, svo jólatrjám, jólafuglum, jólakertum og þannig mætti lengi telja. Á eftir jóla- kortum koma póstkort, sem eru einnig umtalsvert mörg. Þau skulu helst íslensk og eru þá flokkuð eftir því hvaðan af landinu þau koma. Guðrún áréttar að þó að áherslan sé á þessi kort fúlsi hún raunar ekki við Aðeins eitt kort af hverri sort  Safnið telur 20-30.000 kort  „Þetta er auðvitað árátta“ Morgunblaðið/Jónas Erlendsson 97 möppur Guðrún við eina kortamöppuna. Hún þarf að þekkja hvert kort. MÁNUDAGUR 1. FEBRÚAR 32. DAGUR ÁRSINS 2021 Sími: 569 1100 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is Í lausasölu 739 kr. Áskrift 7.982 kr. Helgaráskrift 4.982 kr. PDF á mbl.is 7.077 kr. iPad-áskrift 7.077 kr. Höttur vann sinn fyrsta sigur í Dominos-deild karla í körfubolta er liðið vann 88:83-sigur á Njarðvík á heima- velli í gær. Þór Akureyri vann óvæntan 98:89-sigur á Val og KR vann sannfærandi 103:87-sigur á Haukum á úti- velli. Mesta spennan var hins vegar í Þorlákshöfn þar sem Tindastóll vann 104:103-sigur á Þór í fram- lengdum leik. Toppbaráttan í deildinni er mögnuð og skilja aðeins tvö stig efstu sjö liðin að eftir leiki gær- dagsins. Stjarnan og Keflavík eru með tíu stig, tveimur stigum á undan næstu liðum. »27 Tvö stig skilja sjö efstu liðin að í ótrúlegri toppbaráttu ÍÞRÓTTIR MENNING Gítarar Frábært úrv al Tónastöðin • Skipholti 50d • Reykjavík • sími 552 1185 • tonastodin.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.