Morgunblaðið - 03.02.2021, Síða 1

Morgunblaðið - 03.02.2021, Síða 1
M I Ð V I K U D A G U R 3. F E B R Ú A R 2 0 2 1 Stofnað 1913  28. tölublað  109. árgangur  LEIKHÓPURINN PÓLÍS FRUMSÝNIR Í TJARNARBÍÓI VETRARFRÍ Í VÆNDUM VIÐSKIPTIN MARKA KAFLASKIL TREYSTA Á VARKÁRNI FÓLKS 4 VIÐSKIPTAMOGGINNGAMANLEIKUR 25 Sjúkratryggingar Íslands hafa aug- lýst eftir viðræðum við aðila um að taka við rekstri fjögurra hjúkrunar- heimila, í Vestmannaeyjum, Fjarða- byggð og á Akureyri, sem viðkom- andi sveitarfélög hafa rekið. Að sögn Sjúkratrygginga er nauð- synlegt að auglýsa þar eð sveitar- félögin sem ráku hjúkrunarheimilin hafa tilkynnt að þau muni ekki fram- lengja samninga um reksturinn þeg- ar núgildandi samningar renna út. Gísli Páll Pálsson, formaður Sam- taka fyrirtækja í velferðarþjónustu, segir að sveitarfélögin treysti sér ekki til að reka þessi heimili áfram vegna viðvarandi hallareksturs. Sjúkratryggingar voru spurðar hvort einhver von væri um að nýir rekstraraðilar gætu rekið heimilin með hagnaði miðað við óbreytta samninga? „Markmiðið er ekki að þetta sé rekið með hagnaði heldur að rekstur sé í jafnvægi og þjónusta í takt við þær kröfur sem heilbrigðisyfirvöld gera. Þetta hefur tekist hjá sumum rekstraraðilum en ekki öðrum,“ sagði í svari Sjúkratrygginga. Starfshópur hefur unnið að grein- ingu á raunverulegum kostnaði við rekstur hjúkrunarheimila. Hann hefur ekki lokið störfum. Sjúkra- tryggingar sögðu aðspurðar að æski- legt hefði verið að bíða með að aug- lýsa þar til niðurstöðurnar lægju fyrir. Það hefði þó verið óhjákvæmi- legt að auglýsa þar eð sveitarfélögin voru ekki reiðubúin að framlengja samninga. Ríki og sveitarfélög hafa staðið sameiginlega að uppbyggingu hjúkrunarheimila og eiga húsnæðið í mismunandi hlutföllum eftir atvik- um. Eitt af verkefnum starfshópsins er að skoða húsnæðismál heimilanna og kostnað vegna þeirra. »6 Auglýsa rekstur hjúkrunarheimila  Sveitarfélögin sögðu upp samningum „Þetta gekk alveg ótrúlega vel. Við bólusett- um um 750 manns 90 ára og eldri,“ sagði Ragnheiður Ósk Erlendsdóttir, fram- kvæmdastjóri hjúkrunar hjá Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins. Í gær var öllum íbú- um á höfuðborgarsvæðinu sem voru orðnir 90 ára boðið að koma í bólusetningu fyrir Covid-19 á Suðurlandsbraut 34. „Fólk var mjög hresst og ánægt að fá að koma. Það hafði haft sig til og þetta var hvað margir myndu skila sér. Nú verður farið yfir listana og athugað með framhaldið. Ragnheiður taldi að áfram yrði farið niður aldursröðina og bólusett þegar kæmi meira bóluefni. gudni@mbl.is greinilega hátíðisdagur. Ég hefði viljað geta boðið þeim upp á kaffi og kleinur, en það má víst ekki,“ sagði Ragnheiður. Hún sagði að send hefðu verið boð á um 1.000 manns vegna bólusetningarinnar í gær. Ekki var vitað Morgunblaðið/Árni Sæberg Komu í hátíðarskapi og uppáklædd að fá bólusetninguna Umtalsverðar tekjur munu myndast á þessu ári af skráningum flugvéla sem ekki eru ætlaðar til notkunar hér á landi. Tekjurnar renna bæði til Samgöngustofu og annarra flug- þjónustuaðila, eins og viðhaldsþjón- ustufyrirtækisins Aero Design Glob- al, ADG. Fyrirtækið vinnur með Samgöngustofu að skráningunum. Í skriflegu svari frá Samgöngu- stofu segir að hún telji jákvætt að stuðla að verkefni sem kalli á sér- hæfða þjónustu frá íslenskum að- ilum og nýti þá sérþekkingu sem fyrir hendi er í landinu. „Stofnunin metur möguleika í framtíðinni með framhald á slíkum verkefnum í sam- starfi við íslensk fyrirtæki,“ segir í svarinu. Von er á a.m.k. fimm flugvélum á íslenska loftfaraskrá á þessu ári, samkvæmt upplýsingum frá Ægi Thorberg Jónssyni, framkvæmda- stjóra ADG, en fyrsta vélin var skráð nýverið. Ber hún einkennis- stafina TF-GOA og er staðsett í Abu Dhabi í Sameinuðu arabísku fursta- dæmunum. Eigandinn er írska fyrir- tækið Limpopo Aviation Leasing Limited. Þrjár aðrar Airbus A320- vélar sem ADG sér um viðhalds- stjórnun á eru í Abu Dhabi. Samgöngustofa segir að kostn- aður í tengslum við skráningu á þungu loftfari, með tilheyrandi eft- irlitsgjöldum fyrsta árið á skrá, sé af stærðargráðunni 3-4 milljónir króna, háð þyngd loftfarsins. Einnig getur bæst við kostnaður t.d. vegna ferða eftirlitsmanna, samþykkis á viðhaldsáætlunum o.fl. »ViðskiptaMogginn Framtíðarmöguleikar í skráningu erlendra véla  Ein þota komin í íslenska loftfaraskrá og fjórar á leiðinni Vél ADG sinnir nú viðhaldi TF-GOA í Sameinuðu arabísku furstadæmunum.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.