Morgunblaðið - 03.02.2021, Síða 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 3. FEBRÚAR 2021
Funahöfða 7, 110 Reykjavík | Sími 577 6666
., '*-�-,�rKu KIEL/ - OG FRYSTITJEKI
Iðnaðareiningar
í miklu úrvali
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Andrés Magnússon andres@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson
menning@mbl.is Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
Innflutningur á jurtaosti og jurta-
rjóma minnkaði stórlega á síðasta
ári frá árinu á undan. Innflutning-
urinn hrapaði síðustu mánuði ársins.
Mjólkuriðnaðurinn hefur einmitt á
þessum tíma vakið athygli á þessum
innflutningi og talið hann að ein-
hverju leyti ranglega tollflokkaðan.
Innflutningur á mjólkurosti held-
ur áfram að aukast. Hann jókst um
41 tonn á síðasta ári sem er 7% aukn-
ing frá fyrra ári. Markaðshlutdeild
íslensks osts er nú komin niður í 89%
á móti 11% hlut innfluttra osta.
Breytt tollaframkvæmd
Ef jurtaostur er tekinn með í út-
reikninginn er markaðshlutdeild ís-
lenskrar framleiðslu 86% og inn-
fluttra osta 14%. Talið er að
umræddur jurtaostur sé að ein-
hverju leyti rifinn ostur með hertri
pálmafitu sem notaður er við fram-
leiðslu á pítsum í sérstökum pítsu-
ofnum. Tollflokkur jurtaosta er án
tolla. Mjólkuriðnaðurinn hefur gert
athugasemdir við það, talið að þenn-
an ost ætti að flokka með öðrum osti
og falla þá eftir atvikum undir inn-
flutningskvóta samkvæmt milliríkja-
samningum eða bera tolla sam-
kvæmt tollskrá. Það var staðfest af
tolla- og skattaskrifstofu ESB í júní.
Erna Bjarnadóttir, verkefnisstjóri
hjá Mjólkursamsölunni, vekur at-
hygli á því að 13% af heildarinnflutn-
ingi jurtaosta hafi komið til landsins
á síðasta þriðjungi ársins en 87%
fyrstu átta mánuði ársins. Telur hún
freistandi að draga þá ályktun að
þarna hafi breytt tollaframkvæmd
komið til og viðkomandi vara sé nú
annaðhvort ekki flutt inn eða toll-
flokkuð með osti eins og vera ber.
Innflutningur á jurtarjóma
minnkaði einnig verulega eða um
46%. Erna telur að þessi vara fari
mikið til veitingahúsa og fækkun
ferðamanna hafi haft mikil áhrif í
þeim geira.
Innflutningur gæti aukist
Erna telur ýmislegt benda til að
markaðshlutdeild íslenskra osta
kunni að minnka áfram. Nefnir hún
stækkandi kvóta Evrópusambands-
ins í því efni. Sala á innlendri fram-
leiðslu mjólkurvara dróst saman á
síðasta ári, vegna fækkunar ferða-
manna í kórónuveirufaraldrinum,
þrátt fyrir viðspyrnu með öflugu
markaðsstarfi. Markaðurinn er
minni þegar ferðafólkið vantar. Loks
nefnir hún að lækkandi markaðsverð
á búvörum í Evrópu geri tollvernd-
ina heldur minni en hún hefur verið.
Jurtaosturinn á hröðu undanhaldi
Barátta mjólkuriðnaðarins leiðir til breytinga á innflutningi jurtaosta sem ekki eru greiddir tollar af
Innflutningur mjólkurosta eykst og er markaðshlutdeild innlendrar framleiðslu komin niður í 89%
Innlend framleiðsla og innflutningur á osti árið 2020Tonn innflutnings 2019 og 2020
Innflutningur á mjólkurafurðum árið 2020
2019 2020 Breyting 2019-2020
Mjólk, rjómi 108 93 -15 -14%
Jógúrt 170 170 0
Smjör, mjólkurviðbit 5 4 -1
Ostar 603 644 41 7%
Skyr 0 1 1
Mjólkurafurðir alls 886 912 26 3%
Jurtavörur
Jurtarjómi 174 94 -80 -46%
Jurtaostur 299 216 -83 -28%
Alls með jurtavörum 1.359 1.222 -137 -10%
Innflutningur árið 2020 með jurtaosti: 860 tonn, 14%Heimild: Hagstofa Íslands, bráðabirgðatölur
Innlend framleiðsla,
5.994 tonn, 89% Innflutningur,
644 tonn, 11%
Starfsmenn Veðurstofu Íslands
flugu í gær yfir Jökulsá á Fjöllum og
upp með allri ánni til að kanna hvort
hugsanleg hætta stafaði af stíflu-
myndun í henni sökum íshröngls og
krapa. Ef illa færi gæti flætt upp á
brúna yfir Jökulsá.
Þegar Morgunblaðið fór í prentun
í gær lá ekki fyrir hvaða niðurstöður
fengust úr vettvangsrannsókn
Veðurstofu en fundað verður um
stöðu mála klukkan hálftíu árdegis í
dag og ákvörðun tekin um fram-
haldið. Brúin yfir Jökulsá á Fjöllum
var opnuð fyrir umferð í gærmorg-
un eftir að hafa verið lokuð yfir nótt-
ina, en gripið hefur verið til þess
ráðs að loka brúnni þegar myrkva
tekur. Brúnni var síðan lokað um há-
degisbil. Í samtali við Vegagerðina í
gærkvöldi fengust þær upplýsingar
að vegurinn yrði lokaður þar til
fundað yrði í dag. Skömmu fyrir há-
degi í gær var vatnshæðin í Jökulsá
komin í 534 sentimetra. Á ellefta
tímanum í gærkvöldi hafði vatns-
hæðin minnkað og náði hún þá tæp-
um 485 sentimetrum.
Funda um
áframhald
lokunar
Ljósmynd/Ólafur Tryggvi Ólafsson
Jökulsá á Fjöllum Óttast er að klaki geti flætt yfir brúna yfir Jökulsá á Fjöllum. Veðurstofan og Vegagerðin munu funda með almannavörnum um áfram-
haldandi aðgerðir en veginum um ána var lokað í gær. Ólafur Tryggvi Ólafsson hjá lögreglunni á Norðurlandi eystra tók þessa mynd í gær.
Viðar Guðjónsson
vidar@mbl.is
Þrálátur orðrómur hefur verið á
kreiki undanfarið, þess efnis að bólu-
efnaframleiðandinn Pfizer hafi sam-
þykkt þær umleitanir sóttvarnayfir-
valda að Ísland verði tilraunaland
fyrir fjórða fasa rannsókna á bólu-
efninu. Þýddi það að Íslandi myndi
berast nægt bóluefni til að skapa hér
hjarðónæmi samkvæmt skilgrein-
ingu í sóttvarnafræðum. Hefur því
verið fleygt fram áður af sóttvarna-
yfirvöldum hér á landi að nægilegt
væri að bólusetja um 60% lands-
manna til að ná því fram. Þórólfur
Guðnason sóttvarnalæknir segir að
ekkert sé frekar að frétta af umleit-
unum Íslendinga umfram það sem
áður hefur verið
sagt. Enginn
samningur liggi á
borðinu og því sé
ekkert meira um
málið að segja á
þessu stigi.
„Auðvitað eru
menn að ræða
málin og velta
upp hugmyndum
fram og til baka.
Pfizer hefur lýst miklum áhuga á
þessum tillögum sem við settum
fram, en það er ekki kominn neinn
samningur og við vitum ekkert hvort
samningur eða tillögur þeirra séu
ásættanlegar fyrir okkur,“ segir
Þórólfur. Ein sögusögnin er á þá leið
að búið sé að ákveða bólusetningar-
dagana og þeir verði í kringum
næstu mánaðamót. Þórólfur segir
það rangt.
„Þetta er ekki komið svo langt að
búið sé að ákveða hvaða daga eigi að
bólusetja. Ég myndi nú vita það.
Þetta er ekki komið eins langt og
einhverjir eru að segja. Það er áhugi
hjá Pfizer og áhugi hjá okkur. Menn
eru bara að ræða málin og umfram
það er ekkert klárt,“ sagði Þórólfur
við mbl.is í gær.
Þórólfur segir að ef af samningi
við Pfizer verður sé ekki um að ræða
kaup á bóluefni heldur verði bólu-
efnaskammtar sendir hingað í þágu
rannsóknarinnar.
„Það er hluti af ferlinu að skoða
hvort þetta samræmist samningnum
við Evrópusambandið.“
Slær á orðróm um samning
Ekkert enn í höfn um bóluefnatilraun Íslands Bóluefni
Pfizer verður væntanlega gefins ef af samningum verður
Þórólfur
Guðnason