Morgunblaðið - 03.02.2021, Page 4

Morgunblaðið - 03.02.2021, Page 4
4 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 3. FEBRÚAR 2021 IB ehf | Fossnes A | 800 Selfoss | ib.is Nánari upplýsingar ib.is Ábyrgð og þjónusta fylgir öllum nýjum bílum frá IB Bílar á lager Sími 4 80 80 80 10 gíra skipting, auto track milli- kassi, multipro opnun á afturhlera, flottasta myndavélakerfið á markað- num ásamt mörgu fleirra. Samlitaðir brettakantar, heithúðaður pallur með gúmmímottu, sóllúga. VERÐ 13.380.000 m.vsk 2021 GMC Denali Ultimate 2500 10 gíra skipting, auto track milli- kassi, multipro opnun á afturhlera, flottasta myndavélakerfið á markað- num ásamt mörgu fleirra. Samlitaðir brettakantar, heithúðaður pallur með gúmmímottu, sóllúga. VERÐ 13.480.000 m.vsk 2021 GMC Denali Ultimate 2500 Bjóðum upp á glæsilega 37” breytingu. Innifalið í TREMOR-pakkanum er læst framdrif, 2” upphækkun að framan, 35” dekk, Drive mode stillingar, TREMOR demparar, minni svunta undir framstuðara, hærra loftinntak. Sem sagt original stórkostlegur OFF ROAD bíll! 475 hö, 1050 pund tog og 10 gíra sjálfskipting. VERÐ FRÁ 12.990.000 m.vsk 2021 Ford F-350 TREMOR Eigum á leiðinni nokkra Lariat, Lariat Sport og Platinum bíla. Útför Svavars Gestssonar, fyrrverandi alþingismanns, ráðherra og sendiherra, fór fram frá Dómkirkjunni í Reykjavík í gær. Sr. Elínborg Sturludóttir jarðsöng, Tumi Torfason lék á trompet og Kammerkór Dóm- kirkjunnar söng. Barnabörn Svavars báru kistu hans úr kirkju eftir athöfnina. Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Útför Svavars Gestssonar Mennta- og menningarmálaráðu- neytið hefur óskað eftir tilnefningum í nýja heimsminjanefnd. Áður voru starfandi nefndir til að vinna að und- irbúningi og skráningu á heims- minjaskrá en skipunartími síðustu nefndarinnar rann út árið 2013. Hlutverk nefndarinnar er meðal annars að fjalla um endurskoðun yfirlitsskrár Íslands. Núverandi skrá er úrelt. Nefndinni er ætlað að ræða forgangsröðun nýrra tilnefn- inga á heimsminjaskrá Unesco áður en tillaga er gerð til ráðherra. Torfhúsahefðin líkleg Þrír heimsminjastaðir eru á Ís- landi, Þingvellir, Surtsey og Vatna- jökulsþjóðgarður, og fram hefur komið að torfhúsahefðin er talin lík- legust til að verða næst í röðinni. Þá er unnið að skráningu óáþreifan- legra minja. Þannig hafa Norður- löndin ákveðið að tilnefna saman á heimsskrá hefðbundna smíði báta með súðbyrðingslagi. Ráðherra hef- ur falið Stofnun Árna Magnússonar að undirbúa tilnefningu laufabrauðs- hefðarinnar. Ráðuneytið óskar eftir tilnefning- um umhverfisráðuneytis, Þjóðminja- safns, Minjastofnunar, Þingvalla- þjóðgarðs, Vatnajökulsþjóðgarðs og Umhverfisstofnunar í nýja heims- minjanefnd. Í nefndinni munu einnig sitja fulltrúi ráðuneytisins og aðalrit- ari íslensku Unesco-nefndarinnar. Búist er við að skipan nefndarinnar liggi fyrir í lok febrúar. helgi@mbl.is Vinna við skráningu hefst  Ráðherra óskar tilnefninga í nýja heimsminjanefnd Morgunblaðið/Helgi Bjarnason Byggingahefð Einn merkasti torfbær landsins er í Glaumbæ í Skagafirði. Höskuldur Daði Magnússon hdm@mbl.is „Það hefur verið mikið um gesti hér eftir að snjórinn kom og við eigum von á ansi mörgum í vetrar- fríinu,“ segir María Tryggvadóttir, verkefnastjóri ferðamála hjá Akur- eyrarbæ. Í kringum helgina 19.-21. febrúar verður vetrarfrí í öllum grunn- skólum á höfuðborgarsvæðinu og búast má við að margir verði á far- aldsfæti. Í Kópavogi er frí á fimmtudegi og föstudegi fyrir þá helgi en í Reykjavík, Hafnarfirði, Mosfellsbæ, Seltjarnarnesi og Garðabæ er frí á mánudegi og þriðjudegi eftir umrædda helgi. Garðbæingar taka sér reyndar frí alla þá viku. Takmarkað framboð á sætum Óvenjulegt er að vetrarfrí sé hjá öllum sveitarfélögum á höfuðborg- arsvæðinu á sama tíma. Á tímum kórónuveirunnar gæti það hljómað varhugavert en ferðamálayfirvöld á Akureyri hafa ekki áhyggjur af því að of margt fólk verði í bænum. „Við treystum á að fólk haldi áfram að sýna varkárni. Þetta á að geta gengið vel,“ segir María í samtali við Morgunblaðið. „Við bjóðum gesti velkomna en við hvetjum fólk til að skipuleggja sig vel. Það er takmarkað framboð á sætum á veitingastöðum og eins í fjallið. Það þurfa því allir að bóka fyrirfram og fara varlega.“ Hún segir að aðstæður í Hlíðar- fjalli hafi verið hinar bestu að und- anförnu og býst við að svo verði áfram. „Svo er líka nóg af öðrum útivistarvalkostum, bæði hér og í nágrannasveitarfélögum. Það er til að mynda mjög vinsælt að fara á gönguskíði.“ Þær upplýsingar fengust hjá Reykjavíkurborg að sami háttur verði hafður á í vetrarorlofi nú og fyrir áramót. Vegna kórónuveir- unnar og samkomutakmarkana verði ekki boðið upp á viðburði eins og jafnan er gert heldur er bent á margvíslega afþreyingu sem börn og fjölskyldur geta notið saman heima við og utan dyra. Þar á með- al eru gönguferðir, ratleikir, vís- indatilraunir, föndur og streymis- viðburðir. Ekki sameiginleg ákvörðun Helgi Grímsson, sviðsstjóri skóla- og frístundasviðs Reykjavík- urborgar, segir að það sé ekki með ráðum gert að svo mörg stór sveit- arfélög séu með vetrarfrí á sama tíma í ár. Ekki hafi verið tekin sameiginleg ákvörðun þar að lút- andi. „Það eru kannski óvenjumörg sveitarfélög á sömu dögum núna. Það hittist bara þannig á og ákvörðun um þessar tímasetningar er yfirleitt tekin langt fram í tím- ann,“ segir Helgi og bendir á að vetrarleyfi séu mislöng hjá sveitar- félögum. Reykjavík sé til að mynda með vetrarorlof bæði á haustönn og vorönn en dæmi eru um að sveitar- félög hafi eitt langt vetrarlof. Orlof á vorönn sé yfirleitt miðja vegu milli jóla- og páskaleyfis og því sé það oftast á svipuðum tíma. Þarf að sýna varkárni í vetrarfríinu  Vetrarfrí verður í öllum grunnskólum á höfuðborgarsvæðinu í kringum sömu helgina í febrúar  Búast má við að margir hyggi á ferðalög  Akureyri nýtur vinsælda  Þarf að skipuleggja sig vel Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson Hlíðarfjall Það getur myndast einstök stemning í Hlíðarfjalli á góðum dögum. Nú þarf að panta sér tíma í fjallið.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.