Morgunblaðið - 03.02.2021, Side 6

Morgunblaðið - 03.02.2021, Side 6
6 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 3. FEBRÚAR 2021 Skoðið fleiri innréttingar á innlifun.is Suðurlandsbraut 26 Sími 587 2700 Opið 11-18 virka daga, 11-16 laugardaga innlifun.is ALVÖRU ELDHÚS Guðni Einarsson gudni@mbl.is Sjúkratryggingar Íslands hafa aug- lýst eftir viðræðum við aðila, fyrir- tæki, félög eða stofnanir um að taka við rekstri fjögurra hjúkrunarheim- ila. Þau eru Hraunbúðir í Vest- mannaeyjum, Hulduhlíð á Eskifirði, Uppsalir á Fáskrúðsfirði og Öldr- unarheimili Akureyrar sem rekur Hlíð og Lögmannshlíð. Á þessum heimilum eru samtals 244 hjúkrun- arrými, 12 dvalarrými og 46 dagd- valarrými. Í auglýsingu Sjúkratrygginga segir að æskilegt sé að rekstrar- aðilar séu sjálfseignarstofnanir eða þar sem hagnaður er endurfjárfest- ur í þágu starfseminnar. Einnig að greiðslur til nýs eða nýrra rekstrar- aðila muni byggjast á núgildandi samningum um þjónustuna. Taprekstur á heimilunum Bæjarstjórn Vestmannaeyja gerði nýlega sameiginlega bókun þar sem lýst var áhyggjum af þeirri óvissu sem ríkir um framtíðarrekstrar- fyrirkomulag dvalar- og hjúkrunar- heimilisins Hraunbúða. Jafnframt lýsti bæjarstjórnin undrun „á við- bragðs- og úrræðaleysi Sjúkra- trygginga Íslands“. Hjúkrunarheimilin sem hér um ræðir eru í Samtökum fyrirtækja í velferðarþjónustu. Formaður þeirra er Gísli Páll Pálsson. „Sveitarfélögin treysta sér ekki til að reka þessi hjúkrunarheimili áfram vegna viðvarandi hallarekst- urs og ríkið vill greinilega að einhver annar reki þessi heimili en þeir sjálf- ir og þá auglýsa þeir,“ sagði Gísli. Hann sagði um auglýsinguna: „Mér þykir þetta mjög áhugaverð auglýsing. Þar kemur fram að æski- legt sé að nýir rekstraraðilar muni endurfjárfesta hagnað í þágu starf- seminnar en samanlagt rekstrartap þessara fyrirtækja síðustu þrjú ár eru mörg hundruð milljónir ef ekki meira. Tekjurnar eru of lágar og gjöldin of mikil. Ég held að það séu allir sammála um það.“ Muni ekki ganga betur Gísli kvaðst ekki sjá að nýjum rekstraraðilum myndi ganga betur en sveitarfélögunum að reka þessi hjúkrunarheimili miðað við að greiðslur ríkisins yrðu óbreyttar eins og boðað er í auglýsingunni. Hann nefndi að kjarasamningar hjúkrunarheimila sveitarfélaga við starfsfólk væru um 10% hærri en sambærilegir kjarasamingar til dæmis hjá Grund og Mörk sem Gísli veitir forstöðu og eins hjá fleiri hjúkrunarheimilum á borð við Hrafnistu, Skjól og Eir. Morgunblaðið/Margrét Þóra Akureyri Hjúkrunarheimilin Hlíð og Lögmannshlíð eru á meðal þeirra heimila sem leitað er rekstraraðila að. Auglýsa rekstur hjúkrunarheimila  Akureyri, Fjarðabyggð og Vestmannaeyjar sögðu upp Þrautakappinn Einar Hansberg hyggst gera tilraun nk. laugardag við heimsmet í samanlagðri þyngd í réttstöðulyftu og fá það skráð í Heimsmetabók Guinness. Núver- andi met er 500 tonn. Með þessu vill Einar vekja athygli á velferð barna, segir í tilkynningu. Einar hyggst reyna við metið í húsakynnum Crossfit Reykjavík í Faxafeni frá kl. 12 á laugardag til 12 á hádegi á sunnudag. Streymt verður á Facebook á vefsíðunni Heimsmet fyrir börn. Guinness Einar Hansberg hyggst reyna við heimsmet í samanlagðri réttstöðulyftu. Reynir að slá heims- met í réttstöðulyftu Margir buðu í afla norska loðnuskips- ins Vendlu, sem kom á miðin austur af landinu um helgina. Fiskeribladet/ Fiskaren greindi frá því í gær að afl- inn, 435 tonn, hefði verið seldur á 4,2 milljónir norskra króna eða fyrir 9,61 krónu á kíló. Í íslenskum krónum gerir þetta rúmlega 63 milljónir fyrir farminn og 145 krónur á kíló. Segir í fréttinni að fyrirtæki víða í Noregi hafi boðið í aflann og hann hafi á endanum verið seldur á mun hærra verði en búist var við. Kaup- andinn er Lofoten Viking í Værøy. Engar loðnuveiðar hafa verið við Ís- land né í Barentshafi síðustu tvö ár og er því mikil spurn eftir loðnuaf- urðum. Aflinn fékkst í nót rétt norðan við línu sem dregin er í austur frá punkti sunnan Álftafjarðar, en sunnar mega Norðmenn ekki veiða. Loðnan var stór, 38-39 stykki í kílói, og hrogna- fyllingin um 10%. Norðmönnum er heimilt að veiða samtals 33.388 tonn af loðnu í lögsögunni til og með 22. febrúar 2021. Í gær voru norsku skip- in Österbris, Birkeland, Sjöbris og Senior að veiðum fyrir austan. Níu norsk skip voru á leiðinni á miðin. Alls hefur verið úthlutað 61 þúsund tonnum af loðnu á vertíðinni og er leyfilegur heildarafli íslenskra skipa rúmlega 20 þúsund tonn. Grænlensk- um skipum er heimilt að veiða sam- tals 4.453 tonn og Færeyingum 3.050 tonn. Beðið er eftir niðurstöðum um- fangsmikilla loðnumælinga í síðustu viku og þá hvort bætt verði við ráð- gjöfina. aij@mbl.is Hátt verð fyrir íslensku loðnuna  Norsk skip að veiðum fyrir austan Á loðnu Vendla var fyrst norsku skipanna til að tilkynna afla. Hlutfall slysa sem eldri ökumenn voru valdir að hækkaði á síðasta ári frá fyrri árum. Samkvæmt upplýs- ingum frá Samgöngustofu voru 9,1% slysa og óhappa í umferðinni hér á landi af völdum ökumanna sem eru 70 ára og eldri í fyrra. Þær tölur ná aðeins til fyrstu ellefu mánaða árs- ins. Hlutfall slysa sem eldri öku- menn voru valdir að var 8,7% allt ár- ið 2019 og 8,6% allt árið 2018. Þórhildur Elínardóttir, sam- skiptastjóri Samgöngustofu, segir í svari við fyrirspurn Morgunblaðsins að „eilítil hækkun“ hafi orðið hjá elsta aldurshópnum í fyrra. „Það þýðir þó ekki að hann hafi valdið fleiri einstökum slysum held- ur má að líkindum rekja til almennr- ar fækkunar í tengslum við Cov- id-19. Fátt erlent ferðafólk var hér á síðasta ári og jafnframt var minna um að fólk ferðaðist til og frá vinnu. Þar með varð fólk 70 ára og eldra stærra hlutfall af heildarmengi öku- manna,“ segir Þórhildur. Samkvæmt upplýsingum frá Guð- björgu S. Bergsdóttur, verkefnis- stjóra á þjónustusviði embættis rík- islögreglustjóra, eru 24.262 manns, 71 árs og eldri, með gilt ökuskírteini á Íslandi, svokölluð B-réttindi. Þar af eru 13.172 karlar og 11.090 konur. hdm@mbl.is Morgunblaðið/Hari Umferð Eldri ökumenn ollu 9,1% slysa og óhappa í umferðinni 2020. 9,1% slysa í fyrra af völdum eldri ökumanna Heilbrigðisráðherra skipaði í ágúst 2020 starfshóp til að greina raun- gögn um rekstur og rekstrarkostnað hjúkrunarheimila. Í hópnum sitja fulltrúar Samtaka fyrirtækja í velferðarþjónustu, Sam- bands íslenskra sveitarfélaga, Sjúkratrygginga Íslands og heilbrigð- isráðuneytisins. Formaður starfshópsins er Gylfi Magnússon prófessor. Hann segir að ekki sé komin dagsetning á hvenær starfshópurinn skilar niðurstöðum sínum en að farið sé að sjá fyrir endann á þessari vinnu. Farin að sjá fyrir endann STARFSHÓPUR

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.