Morgunblaðið - 03.02.2021, Side 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 3. FEBRÚAR 2021
Opið mán - fim 8:30 – 17:00, fös 8:30 – 16:15
Síðumúli 16 I 108 Reykjavík I Sími 580 3900 I fastus.is
fastus.is
ÖFLUGAR
ÞVOTTAVÉLAR OG ÞURRKARAR
Verkstæði Heilbrigðis-stofnanir
Fiskvinnslu-
fyrirtæki
Hótel og
gistiheimili
Leikskólar
og skólar
Íþróttafélög
og sundlaugar
Efnalaugar
og þvottahús
Björn Zoëga, sem áður stýrðium tíma Landspítalanum,
stýrir nú Karólínska háskóla-
sjúkrahúsinu í Stokkhólmi. Morg-
unblaðið sagði frá því í gær að
mikil og jákvæð
umskipti hefðu
orðið í reksti
sjúkrahússins þar í
fyrra. Reksturinn
skilaði afgangi og
sjúkrahúsið veitti
6% meiri þjónustu
en samið hafði ver-
ið um. Starfsfólk Karólínska er
nú 700 færra en áður en Björn
hóf hagræðingaraðgerðir, án þess
þó að heilbrigðisstarfsfólki hafi
verið sagt upp. Sparnaðurinn er
metinn á 5% af rekstrarkostnaði
og launakostnaður stóð í stað
þrátt fyrir launahækkanir og
mikla yfirvinnu vegna kórónu-
veirufaraldursins.
Afköstin hafa aukist og þarmeð tekjurnar því að í Sví-
þjóð fá sjúkrahús greitt eftir
þeirri þjónustu sem þau veita,
ólíkt því sem er hér á landi. Hér
eru ekki sömu hvatarnir í heil-
brigðiskerfinu til að ná árangri
eins og í Svíþjóð og það skýrir
líklega þá staðreynd að á sama
tíma og þessi góði árangur næst í
Stokkhólmi hefur framleiðni
starfsfólks íslenskra sjúkrahúsa
farið minnkandi á undanförnum
árum, samkvæmt nýlegri skýrslu
heilbrigðisráðuneytisins.
Hérlendis snúast umræður umlausn á vanda í heilbrigð-
iskerfinu yfirleitt aðeins um auk-
ið fjármagn. Er ekki kominn tími
til að horfa frekar á málin út frá
afköstum og framleiðni og reyna
að bæta kerfið fremur en að
hækka sífellt kostnaðinn? Mætti
ekki jafnvel splæsa í einn fjar-
fund með forstjóranum í Stokk-
hólmi og kanna hvort hægt væri
að læra eitthvað af reynslunni
þar?
Björn Zoëga
Athyglisverður
árangur í Svíþjóð
STAKSTEINAR
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
Heilsusamlegasta land í heimi til bú-
setu er að finna á Spáni. Portúgal er
í öðru sæti og er Ísland einnig meðal
efstu landa eða í 5. sæti á lista yfir 20
heilsusamlegustu lönd heims sem
breski vefmiðillin money.co.uk hefur
tekið saman, en hann sérhæfir sig í
samanburði af ýmsum toga, einkum
í fjármála- og fasteignageiranum.
Fjölmargir þættir eru bornir sam-
an við mat á heilsusamlegustu lönd-
unum, s.s. lífslíkur, tíðni offitu, heil-
brigðisþjónusta, loftmengun,
framboð og verð á heilsusamlegum
matvælum, glæpatíðni og öryggi,
gæði samgangna, fjöldi sólarstunda
á ári o.fl. Sviss og Japan lenda í 3. og
4. sæti á listanum. Svíþjóð er í 7.
sæti og Noregur í 8. sæti.
Vefsíðan birtir einnig lista yfir 40
heilsusamlegustu borgirnar til að
búa í. Þar er Valencia á Spáni í efsta
sætinu og Madrid í 2. sæti. Lissabon
í Portúgal raðast í 3. sæti og Vín í
Austurríki í 4. sæti. Reykjavík lendir
í 14. sæti á þessum lista yfir sam-
anburð á heilsusamlegustu borg-
unum.
Reykjavík kemur einna best út
þegar metnar eru lífslíkur íbúa og
þegar glæpatíðni í borgunum er bor-
in saman en nokkur lönd eru þó talin
öruggari en Reykjavík á lista vef-
miðilsins. Loftmengun er óvíða
minni en í Reykjavík en loftgæðin
eru þó talin meiri í Helsinki þar sem
þau eru talin mest, í Wellington á
Nýja-Sjálandi og í Canberra, höfuð-
borg Ástralíu. Í engri þessara 40
borga er hins vegar að finna færri
sólarstundir á ári en í Reykjavík.
Nokkrar fleiri borgir á Norður-
löndum er að finna á listanum yfir
heilsusamlegustu borgirnar. Kaup-
mannahöfn er í 20. sæti, Helsinki er í
17. sæti og Osló í 33. sæti en borgir
Svíþjóðar komast ekki inn á listann.
Morgunblaðið/Eggert
Lífsgæði Fjöldi sólarstunda dregur
Ísland nokkuð niður á listanum.
Í hópi heilsusam-
legustu landa
Reykjavík í 14. sæti á lista 40 borga
Í lokaskýrslu Rannsóknarnefndar
samgönguslysa, siglingasviðs, koma
ekki fram skýringar á því hvað gerð-
ist þegar báturinn Blíða SH 277
sökk á Breiðafirði 5. nóvember 2019.
Þrír voru í áhöfn Blíðu og björg-
uðust þeir allir. Segir í skýrslunni að
nefndin álykti ekki í málinu þar sem
ekki sé vitað hvað gerðist.
Hins vegar telur nefndin afar mik-
ilvægt, m.a. vegna rannsóknarhags-
muna, að í tilfellum sem þessum sé
skipsflak tekið upp og vísar í því
sambandi til þess er vélbáturinn Jón
Hákon BA sökk í Aðalvík sumarið
2015. Með Jóni Hákoni fórst einn
maður, en þremur skipverjum var
bjargað af kili skipsins. Sumarið
2016 tókst að hífa Jón Hákon upp af
botninum og koma bátnum á þurrt
land.
Í lokaskýrslunni um Blíðu SH er
atvikum m.a. lýst þannig að skipið
hafi verið á á beitukóngsveiðum.
Undir hádegi hafi skipstjóri verið að
færa sig á önnur mið þegar hann
hafi tekið eftir að því að sjór var
kominn á þilfarið að aftan.
Sökk mjög hratt
Skipstjórinn sagði skipið hafa
sokkið mjög hratt; það hefði lagst á
bakborðshliðina og sokkið með skut-
inn fyrst niður. Fram kemur í
skýrslunni að björgunarbátar hafi
opnast sjálfkrafa en verið á hvolfi og
fastir við skipið. Skipverjarnir náðu
að koma sér fyrir á botni annars
þeirra og tókst að finna neyðarsendi
úr hinum bátnum sem þeir gang-
settu. Samkvæmt lýsingum áhafnar
virtist sem óvæntur leki hefði komið
að skipinu.
Daginn eftir fannst flakið á um 40
metra dýpi og var kafað við skipið en
ekkert athugavert kom í ljós sem
gat skýrt það sem gerðist, segir í
skýrslunni.
Mikilvægt að ná flaki Blíðu SH upp
Ekki ljóst hvað gerðist er skipið sökk á Breiðafirði Flakið á 40 metra dýpi