Morgunblaðið - 03.02.2021, Blaðsíða 11
FRÉTTIR 11Erlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 3. FEBRÚAR 2021
Töfrar eldhússins byrja með Eirvík
Eldhúsið er ekki bara herbergi,
heldur upplifun
Hvort sem þú leitar að klassískum retro kæliskáp á heimilið, rómantískri eldavél í sumar-
bústaðinn, litríkum matvinnslutækjum í eldhúsið eða nýrri fallegri innréttingu erum við með
frábæra valkosti fyrir þig. Vöruúrval Eirvíkur er afar fjölbreytt og ættu allir að geta fundið
eitthvað við sitt hæfi. Af hverju að vera eins og allir hinir - þegar maður getur verið
einstakur!
Eirvík Suðurlandsbraut 20, Reykjavík, sími 588 0200, eirvik.is.
Opnunartími mánudaga - föstudaga 10-18, laugardaga 11-15
Dómstóll í
Moskvu úrskurð-
aði í gær að Alex-
ei Navalní hefði
rofið skilorð sitt
frá árinu 2014,
og því bæri að
senda hann í
fangelsi. Upphaf-
legur dómur var
til þriggja og
hálfs árs, en frá honum dregst tími
sem Navalní hefur dvalið í haldi
stjórnvalda.
Navalní sagði við réttarhöldin að
þeim væri ætlað að hræða rúss-
nesku þjóðina en stuðningsmenn
Navalnís hafa þegar boðað til mót-
mæla honum til stuðnings.
Sendur í fangelsi til
tveggja og hálfs árs
Alexei Navalní
RÚSSLAND
Hinn hundrað
ára gamli Tom
Moore, fyrrver-
andi höfuðs-
maður í breska
hernum, lést í
gær vegna kór-
ónuveirunnar.
„Kafteinn Tom“
vakti heims-
athygli síðasta
vor fyrir söfnun-
arátak sitt en hann safnaði millj-
ónum punda í baráttuna gegn kór-
ónuveirunni. Boris Johnson
forsætisráðherra sagði að Moore
hefði verið „vonarneisti fyrir alla
veröldina“. Voru fánar í hálfa stöng
í gær vegna andlátsins.
Kafteinn Tom fallinn
frá vegna Covid-19
Kafteinn Tom
Moore
BRETLAND
Stefán Gunnar Sveinsson
sgs@mbl.is
Bandaríska utanríkisráðuneytið
ákvað í gær að binda enda á alla
fjárhagsaðstoð við stjórnvöld í
Búrma, sem einnig er þekkt sem
Mjanmar, eftir að herinn steypti af
stóli lýðræðislega kjörnum valdhöf-
um þar. Forsvarsmenn stjórnar-
flokksins NLD skoruðu á herfor-
ingjastjórnina að sleppa Aung San
Suu Kyi, leiðtoga flokksins, og Win
Myint, forseta landsins, úr haldi
þegar í stað, sem og öllum öðrum
sem handteknir hefðu verið vegna
valdaránsins.
„Við lítum á þetta sem svartan
blett á sögu ríkisins og hersins,“
sagði í yfirlýsingu flokksins, sem
birtist á facebook-síðu hans. Krafð-
ist flokkurinn einnig að herinn við-
urkenndi úrslit þingkosninganna í
nóvember á síðasta ári, en NLD
hlaut þar mikið fylgi umfram USDP,
stjórnmálaarm hersins, og vann
hreinan meirihluta á þinginu.
Íhuga enn frekari aðgerðir
Bandaríkjastjórn tók undir það
ákall, en ákvörðun utanríkisráðu-
neytisins um að útnefna atburði
mánudagsins sem valdarán þýðir að
allri fjárhagsaðstoð og viðskiptum
Bandaríkjamanna við stjórnvöld í
Búrma er sjálfhætt.
Ákvörðun ráðuneytisins er þó
sögð mestmegnis táknræn, þar sem
langstærstur hluti þeirrar aðstoðar
sem Bandaríkin hafa veitt Búrma á
undanförnum árum hefur runnið til
frjálsra félagasamtaka en ekki
stjórnvalda. Þá munu Bandaríkja-
menn áfram styðja við mannrétt-
indamál í landinu, þar á meðal
minnihlutahóp Róhingja, sem hafa
verið ofsóttir af stjórnvöldum.
Flestir af herforingjunum sem
viðriðnir voru valdaránið sæta nú
þegar viðskiptaþvingunum vegna
herferðarinnar gegn Róhingjum, en
Joe Biden Bandaríkjaforseti lýsti
því yfir í fyrrinótt að ríkisstjórn sín
myndi íhuga enn frekari aðgerðir í
ljósi valdaránsins. Þá hafa Banda-
ríkjamenn sett sig í samband við
Japani og Indverja um að þeir þrýsti
á herforingjastjórnina, en bæði ríki
hafa lagt sig fram um að bæta sam-
skiptin við Búrma á undanförnum
misserum, meðal annars til þess að
koma í veg fyrir of mikil ítök Kín-
verja í landinu.
Suu Kyi aftur í stofufangelsi
Hermenn voru á götum höfuð-
borgarinnar Naypyidaw í gær og
stóðu vörð um alla helstu staði þar.
Talsmenn NLD-flokksins sögðu í
gær við AFP-fréttastofuna að þeir
hefðu ekki heyrt í Aung San Suu
Kyi, en herinn hefur sett hana aftur
í stofufangelsi á heimili sínu. Ná-
granni hennar sagði þó að hún hefði
sést á gangi um garð sinn, og vildi
hún þannig senda þau skilaboð að
hún væri enn við góða heilsu.
Íbúar í borginni Jangon, áður
Rangoon, létu í ljós óánægju sína
með aðgerðir hersins með því að ýta
á bílflautur sínar og slá saman pott-
um og pönnum í mótmælaskyni. Var
boðað til mótmælanna á samfélags-
miðlum, og hrópuðu sumir mótmæl-
enda „lengi lifi móðir Suu“, henni til
stuðnings.
Öryggisráðið á fundi
Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna
fundaði í gær til þess að ræða mál-
efni Búrma, en fastafulltrúar Breta,
sem nú fara með forystu í ráðinu,
settu fundinn á dagskrá með það að
markmiði að leita samþykkis ráðsins
fyrir ályktun, þar sem valdaránið
yrði fordæmt og herinn hvattur til
þess að láta aftur af völdum.
Fundurinn var hins vegar haldinn
fyrir luktum dyrum að beiðni Kín-
verja, en ríkisfjölmiðlar þar hafa
viljað gera lítið úr valdaráninu og
sagt það í raun ekkert annað en upp-
stokkun á ríkisstjórninni. Kínverska
utanríkisráðuneytið hefur kallað eft-
ir því að allir aðilar í Búrma „leysi úr
ágreiningi“ sínum, en ekki var víst í
gær hvort stuðningur Kínverja
myndi fást fyrir tillögu Breta.
Stöðva viðskipti við Búrma
Biden hótar frekari refsiaðgerðum gegn herforingjastjórninni Flokkur Suu
Kyi krefst þess að henni verði sleppt án tafar Valdaráninu mótmælt í Jangon
AFP
Barið á búsáhöld Íbúar í Jangon, stærstu borg Búrma, börðu á potta og
pönnur í gær í mótmælaskyni við valdarán hersins á mánudagsmorgun.