Morgunblaðið - 03.02.2021, Síða 12
12
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 3. FEBRÚAR 2021
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/
Þau ótíðindibárust ámánudags-
morguninn, að
herinn í Búrma
hefði steypt af
stóli löglega
kjörnum stjórnvöldum. Her-
foringjarnir lýstu því um
leið yfir að þingkosning-
arnar sem haldnar voru í
nóvember væru ólöglegar,
en þeir höfðu áður haft uppi
ásakanir um kosningasvik.
Valdaránið réttlætti her-
inn með vísan til stjórnar-
skrár landsins og ákvæða
þar um neyðarástand, en um
leið fóru herforingjarnir
framhjá Win Myint, forseta
landsins, sem einn hefur
vald til þess að lýsa slíku
ástandi yfir, og settu hann í
stofufangelsi ásamt flestum
öðrum borgaralegum leið-
togum landsins.
Þó að yfirstjórn hersins
hafi sagt að neyðarstjórn sín
muni einungis vara í eitt ár,
eða þar til boðað verður til
nýrra þingkosninga, er aug-
ljóst að með gjörðum sínum
hefur herinn bundið enda á
vanmáttugar tilraunir til
þess að koma á lýðræði aft-
ur í Búrma. Herforingja-
stjórn ríkti þar með harðri
hendi í nærri hálfa öld, frá
1962 og þar til herinn féllst
á að deila völdum með borg-
aralegum öflum árið 2011.
Ekki er hægt að segja að
samskipti hers og borgara-
legra afla hafi gengið
snurðulaust fyrir sig á und-
angengnum áratug. Ítök
herforingjanna við stjórn
landsins voru enn gríðarlega
mikil, jafnvel eftir að Aung
San Suu Kyi, leiðtogi stjórn-
arandstöðunnar gegn her-
foringjastjórninni, tók við
völdum árið 2015, en hún
vakti heimsathygli með and-
ófi sínu á þeim rúmu 20 ár-
um sem herinn hélt henni í
stofufangelsi.
Ofsóknir hersins gegn
Róhingjum sýndu eflaust
einna best hversu óþægilegt
samstarfið var, og hversu
viðkvæmur sá línudans var,
sem borgaralegu öflin
þurftu stíga til þess að varð-
veita völd sín. Aung San Suu
Kyi, sem áður hafði hlotið
friðarverðlaun Nóbels, varð
þannig að andliti ofsókna og
þjóðernishreinsana þegar
hún reyndi að verja aðfar-
irnar sem herinn hafði veg
og vanda af. Orðspor hennar
varð þannig að fórnarlambi
kerfis, sem átti að vera
nokkurs konar millivegur
milli herforingjastjórn-
arinnar og lýðræðisins.
Undir því kerfi
sem komið var á
laggirnar 2011
var hernum
tryggður fjórð-
ungur allra þing-
sæta hið minnsta
og um leið neitunarvald um
allar stjórnarskrárbreyt-
ingar, auk þess sem innan-
ríkis- og varnarmálaráðu-
neytin voru bæði í höndum
traustra bandamanna. Þrátt
fyrir það þótti einsýnt að
ítök hersins myndu síst fara
vaxandi eftir nýafstaðnar
þingkosningar, en þar vann
flokkur Aung San Suu Kyi
góðan sigur, á sama tíma og
flokkur hersins galt afhroð.
Svo virðist sem það hafi
komið illa við kaunin á Min
Aung Hlaing, yfirmanni her-
aflans, en hann var að nálg-
ast eftirlaunaaldur innan
hersins og hafði ætlað sér
frama í stjórnmálum eftir
það. Hlutverk stjórnarand-
stöðuleiðtogans mun hins
vegar ekki hafa heillað
hann, sem skýrir eflaust að
látið var til skarar skríða á
mánudaginn, degi áður en
nýkjörið þing átti að koma
saman.
Viðbrögð umheimsins hafa
mestmegnis verið hörð, og
hafa vesturveldin þegar hót-
að því að taka upp refsiað-
gerðir og viðskiptaþvinganir
gagnvart herforingjunum og
öðrum sem stutt hafa valda-
ránið. Annað hljóð hefur
raunar heyrst úr ranni Kín-
verja, en í ríkisfjölmiðlunum
þar hefur einungis verið
greint frá því að ákveðið
hafi verið að „stokka dug-
lega upp“ í ríkisstjórninni.
En þó að kínverskum
stjórnvöldum þyki ekki mik-
ið til valdaránsins koma,
enda ekki sérstaklega
áhugasöm um lýðræði,
stendur þó eftir að herfor-
ingjastjórnin hættir nú á
afturhvarf til fyrri tíma, þar
sem Búrma varð að hálf-
gerðu útlagaríki, einangrað
að mestu frá umheiminum.
Reynsla þess tíma sýnir að
líklega láta herforingjarnir
sér það í léttu rúmi liggja,
þó að þeir njóti ekki stuðn-
ings umheimsins.
Hitt er þeim meira
áhyggjuefni, að þjóðin
stendur ekki með þeim.
Þrátt fyrir að ímynd Aung
San Suu Kyi á alþjóðavísu
hafi laskast mjög vegna
Róhingjamálsins, er hún enn
nánast í guðatölu meðal al-
mennings í Búrma. Óvíst er
hvaða áhrif það mun hafa,
nú þegar herinn hefur sett
hana aftur í stofufangelsi.
Herforingjarnir
ákváðu að sætta sig
ekki við lýðræðis-
lega niðurstöðu}
Valdarán í Búrma
M
unum að orð hafa áhrif og að
aðgát skal höfð í nærveru sál-
ar. Ekki bara þeirrar sálar
sem orði er hallað á, heldur
líka hinna sem heyra stóryrðin
og túlka á versta veg fyrir þann sem logið er
upp á. Þetta höfum við verið minnt á að und-
anförnu.
Einhverjir ganga svo langt að aldrei skuli
hallmæla neinum manni. Slíkt nær ekki nokk-
urri átt. Þá yrðum við að tala um heiðursmenn-
ina Hitler og Stalín, tvo af verstu fjöldamorð-
ingjum sögunnar. Okkur ber að vekja athygli á
óhæfuverkum þeirra, þó svo að einhver gæti
móðgast fyrir hönd þessara valinkunnu góð-
menna.
Eigum við þá alltaf að segja satt? Prestur
nokkur ákvað að fræða börn í sunnudagaskóla
um að jólasveinninn væri ekki til. Honum fannst óhugs-
andi „að ljúga að börnunum“. Þjóðfélagið fór nánast á ann-
an endann yfir grimmd þessa sannsögla manns.
Umræðan nú varð til þess að ég rifjaði upp bók sem ég
las einu sinni, Liar‘s Paradise eftir Graham Edmonds.
Hann bendir á að lygarnar eru misillskeyttar.
Siglt undir fölsku flaggi. Stjórnmálamenn lofa einhverju
hátíðlega fyrir kosningar, en svíkja svo loforðin vegna
„breyttra aðstæðna“ eða „ómöguleika“.
Eitthvað gefið í skyn. Viðmælandinn játar hvorki né
neitar þegar spurt er hvort hann ætli að styðja réttarbót.
Áheyrendur gefa sér að hann geri það, þó að það hafi aldr-
ei komið til greina.
Bætt við smáatriðum. Lagnir stjórnmálamenn skreyta
frásögu sína með atvikum sem eru óháð meg-
inefninu, en gera söguna trúverðuga.
Að koma sinni útgáfu af sögunni út. Sá sem
fyrstur segir frá einhverju hefur forskot. Þá
verða aðrir að leiðrétta sögu eða myndband
sem komin eru í dreifingu. „Látum helvítið
neita því,“ sagði Lyndon B. Johnson Banda-
ríkjaforseti, þegar hann laug óeðli upp á and-
stæðing sinn.
Að segja ekki söguna alla. Ég segist hafa
eytt tvöfalt lengri tíma með merkum stjórn-
málamanni en að var stefnt. Auðvitað sleppi ég
því að fundur okkar átti upprunalega aðeins að
vera fimm mínútur.
Skjall. Flestir vilja að aðrir séu hrifnir af
þeim. Já-menn eru vinsælli hjá hégómlegum
valdhöfum en þeir sem segja satt, þótt lítið
gagn sé að þeim fyrrnefndu.
Spila á tilfinningar. Hvers vegna ætti ég að ljúga að þér?
Að svara öðru en spurt er um. Nánast regla hjá sumum
stjórnmálamönnum. Þeir varpa líka fram smjörklípum
sem beina athyglinni frá kjarna málsins.
Virðuleiki. Segja að það sé fyrir neðan virðingu sína að
svara spurningum sem efast um sannsögli viðmælandans.
Margir halda að tölur séu góðar til blekkinga. Winston
Churchill bætti um betur og sagði að eina tölfræðin sem
menn gætu treyst væri sú sem þeir byggju til sjálfir.
Edwards mælti þó ekki með eintómri sannsögli: „Lífið
yrði leiðinlegt, því að við myndum öll þegja. Andrúmsloftið
sem fylgir endalausum heiðarleika væri að fara með okkur.“
Benedikt
Jóhannesson
Pistill
Lygin er lævís og lipur
Höfundur er stærðfræðingur og stofnandi Viðreisnar.
STOFNAÐ 1913
Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík.
Ritstjóri:
Davíð Oddsson
Aðstoðarritstjóri:
Karl Blöndal
Ritstjóri og framkvæmdastjóri:
Haraldur Johannessen
SVIÐSLJÓS
Ómar Friðriksson
omfr@mbl.is
Tíðni öndunarfærasýkingameðal barna sem erufjögurra ára eða yngri varundir lok desember síð-
astliðins aðeins 35% af meðaltíðni
slíkra sýkinga á árunum 2015-2019.
Tíðni öndunarfærasýkinga lands-
manna í öllum aldurshópum fór
niður í 36% í desember.
Á tímum kórónuveirufarald-
ursins fækkaði öðrum smit-
sjúkdómum mikið hér á landi og
sýklalyfjanotkun dróst verulega
saman. Nú liggur fyrir yfirlit yfir
fækkun öndunarfærasjúkdóma og
sýklalyfjanotkunina yfir allt síðast-
liðið ár, sem birt er í Talnabrunni
embættis landslæknis.
„Takmarkanir á sam-
komuhaldi, fjöldatakmarkanir og
önnur breytt hegðun almennings í
kjölfar faraldursins virðist haldast
í hendur við fækkun öndunarfæra-
sýkinga, bæði meðal ungra barna
og fullorðinna. Færri öndunarfæra-
sýkingar, sérstaklega um vor og
síðla hausts árið 2020 í kjölfar
fyrstu og þriðju bylgju Covid-19-
faraldurs, virðast svo aftur hafa
leitt til minnkaðrar notkunar á
sýklalyfjum, sérstaklega í þeim
sýklalyfjaflokkum sem mælt er
með til meðhöndlunar algengra
öndunarfærasýkinga,“ segja höf-
undar greinarinnar.
Tíðni öndunarfærasýkinga
lækkaði mjög á vormánuðum og
var í aprílmánuði aðeins 22% af
meðaltíðni áranna 2015-2019 hjá
börnum yngri en fimm ára og 35%
hjá öllum aldurshópum. Tíðni sýk-
inga breyttist lítið yfir sumartím-
ann enda er hún að jafnaði í lág-
marki á þeim árstíma en þegar
haustaði fækkaði öndunarfærasýk-
ingum aftur mikið miðað við fyrri
ár, bæði hjá börnum og fullorðnum,
að því er segir í Talnabrunni.
Yfir allt seinasta ár fækkaði
greiningum á öndunarfærasýk-
ingum allra aldurshópa niður í 67%
af meðaltali áranna á undan en
meðaltíðnin meðal barna fór niður í
72%. Töluverður munur er þó á
tegundum þessara sýkinga í önd-
unarfærum. Fram kemur t.a.m. að
tíðni berkjubólgu og lungnabólgu
lækkaði hlutfallslega mest í fyrra
eða niður í 57% af tíðni áranna
2015-2019 en greiningum á háls-
bólgu fækkaði minnst og voru þær
92% af meðaltíðni áranna 2015-
2019. Greiningum á miðeyrnabólgu
meðal barna fækkaði einnig veru-
lega bæði sl. vor og aftur í haust.
Benda höfundar á að sýk-
ingum í neðri hluta öndunarvegar
fækkaði hlutfallslega mest í fyrra
miðað við fimm ár þar á undan
bæði meðal barna og fullorðinna.
Verulegur samdráttur varð á
ávísunum sýklalyfja á seinasta ári í
öllum aldurshópum. Meðalfjöldi
sýklalyfjaávísana var 500 á hverja
þúsund íbúa á ári samanborið við
tæplega 600 á árinu á undan.
„Mest var fækkunin þó hjá
börnum, fjögurra ára og yngri, þar
sem notkun sýklalyfja á árinu 2020
var aðeins 66% af meðaltali áranna
2015-2019. Alls fækkaði ávísunum
um 23% milli áranna 2019 og 2020
hjá þessum yngsta hópi,“ segir í
Talnabrunni. Minnst breyting á
ávísunum sýklalyfja varð hins veg-
ar meðal eldri borgara. „Alls fækk-
aði ávísunum um 12% hjá elsta
hópnum milli áranna 2019 og
2020.“
Einnig kemur í ljós að ávís-
unum sýklalyfja fækkaði mest fyrir
börn undir fimm ára aldri en hjá
þeim fækkaði sýklalyfjaávísunum
um 106% í apríl miðað við sama
árstíma áranna 2015-2019 og svo
aftur um 59% í desember.
Færri sýkingar og
minni lyfjanotkun
Tíðni öndunarfærasýkinga og notkun sýklalyfja
Fjöldi greindra tilfella öndunarfærasýkinga á 1.000 íbúa 2015-2020
Fjöldi ávísaðra sýklalyfja á viku á hver 1.000 börn á aldrinum 0-4 ára
35
30
25
20
15
10
5
0
300
250
200
150
100
50
0
2015 2016 2017 2018 2019 2020
jan. feb. mars apríl maí júní júlí ágúst sept. okt. nóv. des.
Fjöldi ávísana 2020
Meðaltal 2015-2019
24
66
47
49
48
23
69
51
56
54
26
72
52
53
53
25
67
53
46
52
22
62
50
49
49
38
31
47
34
Miðeyrnabólga Hálsbólga Skútabólga Berkjubólga Lungnabólga
14
234
253 256 243 232
164
Heimild: Embætti landlæknis
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Sótthreinsað Sýkingavarnir hafa
dregið úr tíðni ýmissa smitsjúkdóma.