Morgunblaðið - 03.02.2021, Side 13

Morgunblaðið - 03.02.2021, Side 13
13 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 3. FEBRÚAR 2021 Sinueldur Slökkviliðið á höfuðborgarsvæðinu var kallað að nágrenni Korpúlfsstaða í gærmorgun en þar hafði kviknað í sinu. Mikill reykur myndaðist og lagði yfir íbúahverfi í Grafarvogi. Kristinn Magnússon Á fimm ára afmæli Vöku, félags lýðræð- issinnaðra stúdenta ár- ið 1940 gerði Bjarni Benediktsson (eldri) eiginleika forystu- manna í stjórnmálum að umtalsefni. Nú 81 ári síðar eiga ábend- ingar Bjarna erindi til okkar sem höfum lagt stjórnmál fyrir okkur til lengri eða skemmri tíma. Til að taka að sér forsjá í málum þjóðar þarf alltaf mikla þekkingu: „Stjórnmálamaðurinn verður m.a. að þekkja land sitt, gæði þess og tor- færur, þjóð sína, kosti hennar og galla, viðskipti hennar við aðrar þjóðir og geta gert sér grein fyrir, hver áhrif atburðir með þeim muni hafa á hag hennar,“ var boðskapur Bjarna til stúdenta en bætti við: „Svo verður hann [stjórnmálamað- urinn] að þekkja sjálfan sig, mann- legt eðli, veilur þess og styrkleika.“ Stjórnmálin eru ekki vísindi, held- ur listin að sjá hvað er mögulegt á hverjum tíma og framkvæma það. En það er ekki nægjanlegt að koma auga á möguleikana heldur verður stjórnmálamaðurinn að hafa „skyn á að velja þann rétta“. En hann þarf einnig að hafa burði – kjark – „til að standa með því, sem maður telur rétt, og þora að framkvæma það, hvað sem tautar“. Freistni stjórnmálanna Bjarni bendir á að þekkinguna á góðum stjórnunarháttum sé hægt að fá með námi en listin að stjórna rétt og þrekið til að fylgja málum eftir lærist ekki og er fáum gefið. Í huga Bjarna hlýtur starf stjórn- málamannsins ætíð að verða erfitt en erfiðast þar sem lýðræði ríkir: „Annars staðar geta stjórn- málamenn látið sér í léttu rúmi liggja, hverja dægurdóma störf þeirra fá. En í lýðræðislandi verður hver sá, sem halda vill áhrifum sín- um, þ.e. sá, er trúir á eigin málstað, að sannfæra almenning um, að ákvarðanir hans og athafnir séu réttar. Þetta leiðir þann, sem til for- ystu hefur verið settur, eðlilega oft í þá freistni að velja heldur þá leiðina, sem almenningi er geðþekkari, held- ur en hina, sem forystumaðurinn tel- ur rétta. En um leið er forystan farin og stjórnmálamaðurinn þar með bú- inn að bregðast skyldu sinni.“ Áratugum síðar voru skilaboðin þau sömu. Í áramótaávarpi 1969 sagði Bjarni, þá forsætisráðherra: „Engin skömm er að því að falla vegna þess, að maður fylgir sann- færingu sinni. Hitt er lítilmótlegt, að játast undir það, sem sannfæring, byggð á bestu fáanlegri þekkingu, segir að sé rangt.“ Virðing fyrir skoðunum Í blaðagrein árið 1942 hélt Bjarni því fram að sá gerði lítið gagn í stjórnmálum sem ekki fengist við þau af einhverri innri þörf. Sjálfur hefði hann lagt stjórnmálin fyrir sig vegna þess að hann væri sannfærður um að ef íslensku þjóðinni ætti að vegna vel yrði sjálfstæðisstefnan að ná fram að ganga. Hann hefði hins vegar oft strengt þess heit að hætta afskiptum af stjórnmálum: „En þeg- ar til hefur átt að taka, þá hefur mér fundist ég vera minni maður, ef ég legði eigi fram krafta mína til þess að vinna fyrir það, sem ég álít rétt.“ Bjarni var sannfærður um að andi frelsis, jafnréttis og lýðræðis væri Íslendingum í blóð borinn. Í ávarpi á þjóðarhátíðardeginum 1945 sagði hann meðal annars: „Vísvitandi munum vér og seint feta í fótspor þeirra, sem svipt hafa sjálfa sig rétt- inum til gagnrýni eða mögu- leikanum til að láta í ljós skoðanir sínar. Og fáir eru oss síður hneigðir til að sækja nokkurt mál út í ystu æsar, né eru því andvígari, að níðst sé á mönnum eða sá máttarmeiri láti kné fylgja kviði.“ En í daglegu þrasi gleymist oft að „játa öðrum hið sama frelsi og vér heimtum sjálfum oss til handa“. „Þegar við virðum ekki skoðanir hver annars er gengið gegn lýðræð- inu, sem fær ekki staðist nema við- urkennt sé, að sjónarmiðin eru mörg og skoðanirnar þar af leiðandi ólík- ar.“ Styrkur flokks Þessi orð Bjarna Benediktssonar eru góð áminning til okkar sem berjumst fyrir frelsi einstakling- anna til orðs og athafna undir merkjum Sjálfstæðisflokksins og stöndum vörð um sjálfstæði þjóð- arinnar. Það hefur verið styrkur flokksins að virða ólíkar skoðanir. Við höfum ýtt undir rökræður og tekist á stundum harkalega á. Á landsfundum fær suðupottur hug- mynda að sjóða. Og það hefur oft verið magnað að verða vitni að því hvernig samkeppni hugmynda og hörð skoðanaskipti leysa úr læðingi pólitískan kraft sem andstæðingar Sjálfstæðisflokksins hafa aldrei skil- ið né staðist. Kraftur Sjálfstæðisflokksins felst í dagskrárvaldi almennra flokks- manna sem skilja „að þótt þröng- sýni sé að neita, að sjónarmiðin séu mörg og skoðanir hljóti því að vera ólíkar, þá er sú víðsýni mest að kunna að rata hinn gullna meðalveg, svo að sem flestir megi vel við una,“ svo vitnað sé til orða Bjarna 17. júní 1945. Sá er þetta skrifar hefur hald- ið því fram að í öflugum stjórn- málaflokki skilji flestir mikilvægi þess að stilla að lokum saman strengi – að konur og karlar, ungir og gamlir standi saman í baráttunni um grunnstef sjálfstæðisstefn- unnar. Sjálfstæðismenn hafa því neitað að beygja sig undir vald umræðu- stjóra samtímans. Aldrei fallið í sömu gryfju og þeir sem helst kenna sig við umburðarlyndi og víðsýni en eiga erfitt með að bera virðingu fyr- ir andstæðum skoðunum. Þeir vita að í þeirri gryfju glatar flokkurinn tilgangi sínum og verður hvorki uppspretta nýrra hugmynda eða hreyfiafl framfara. Eftir Óla Björn Kárason » Það er styrkur Sjálfstæðisflokksins að virða ólíkar skoðanir. Stundum er tekist harkalega á en kraft- urinn felst í dagskrár- valdi almennra flokksmanna. Óli Björn Kárason Höfundur er alþingismaður Sjálfstæðisflokksins. Aldrei undir vald umræðustjóranna

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.