Morgunblaðið - 03.02.2021, Page 13
13
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 3. FEBRÚAR 2021
Sinueldur Slökkviliðið á höfuðborgarsvæðinu var kallað að nágrenni Korpúlfsstaða í gærmorgun en þar hafði kviknað í sinu. Mikill reykur myndaðist og lagði yfir íbúahverfi í Grafarvogi.
Kristinn Magnússon
Á fimm ára afmæli
Vöku, félags lýðræð-
issinnaðra stúdenta ár-
ið 1940 gerði Bjarni
Benediktsson (eldri)
eiginleika forystu-
manna í stjórnmálum
að umtalsefni. Nú 81
ári síðar eiga ábend-
ingar Bjarna erindi til
okkar sem höfum lagt
stjórnmál fyrir okkur
til lengri eða skemmri tíma.
Til að taka að sér forsjá í málum
þjóðar þarf alltaf mikla þekkingu:
„Stjórnmálamaðurinn verður m.a.
að þekkja land sitt, gæði þess og tor-
færur, þjóð sína, kosti hennar og
galla, viðskipti hennar við aðrar
þjóðir og geta gert sér grein fyrir,
hver áhrif atburðir með þeim muni
hafa á hag hennar,“ var boðskapur
Bjarna til stúdenta en bætti við:
„Svo verður hann [stjórnmálamað-
urinn] að þekkja sjálfan sig, mann-
legt eðli, veilur þess og styrkleika.“
Stjórnmálin eru ekki vísindi, held-
ur listin að sjá hvað er mögulegt á
hverjum tíma og framkvæma það.
En það er ekki nægjanlegt að koma
auga á möguleikana heldur verður
stjórnmálamaðurinn að hafa „skyn á
að velja þann rétta“. En hann þarf
einnig að hafa burði – kjark – „til að
standa með því, sem
maður telur rétt, og
þora að framkvæma
það, hvað sem tautar“.
Freistni
stjórnmálanna
Bjarni bendir á að
þekkinguna á góðum
stjórnunarháttum sé
hægt að fá með námi
en listin að stjórna rétt
og þrekið til að fylgja
málum eftir lærist ekki
og er fáum gefið.
Í huga Bjarna hlýtur starf stjórn-
málamannsins ætíð að verða erfitt
en erfiðast þar sem lýðræði ríkir:
„Annars staðar geta stjórn-
málamenn látið sér í léttu rúmi
liggja, hverja dægurdóma störf
þeirra fá. En í lýðræðislandi verður
hver sá, sem halda vill áhrifum sín-
um, þ.e. sá, er trúir á eigin málstað,
að sannfæra almenning um, að
ákvarðanir hans og athafnir séu
réttar. Þetta leiðir þann, sem til for-
ystu hefur verið settur, eðlilega oft í
þá freistni að velja heldur þá leiðina,
sem almenningi er geðþekkari, held-
ur en hina, sem forystumaðurinn tel-
ur rétta. En um leið er forystan farin
og stjórnmálamaðurinn þar með bú-
inn að bregðast skyldu sinni.“
Áratugum síðar voru skilaboðin
þau sömu. Í áramótaávarpi 1969
sagði Bjarni, þá forsætisráðherra:
„Engin skömm er að því að falla
vegna þess, að maður fylgir sann-
færingu sinni. Hitt er lítilmótlegt, að
játast undir það, sem sannfæring,
byggð á bestu fáanlegri þekkingu,
segir að sé rangt.“
Virðing fyrir skoðunum
Í blaðagrein árið 1942 hélt Bjarni
því fram að sá gerði lítið gagn í
stjórnmálum sem ekki fengist við
þau af einhverri innri þörf. Sjálfur
hefði hann lagt stjórnmálin fyrir sig
vegna þess að hann væri sannfærður
um að ef íslensku þjóðinni ætti að
vegna vel yrði sjálfstæðisstefnan að
ná fram að ganga. Hann hefði hins
vegar oft strengt þess heit að hætta
afskiptum af stjórnmálum: „En þeg-
ar til hefur átt að taka, þá hefur mér
fundist ég vera minni maður, ef ég
legði eigi fram krafta mína til þess
að vinna fyrir það, sem ég álít rétt.“
Bjarni var sannfærður um að andi
frelsis, jafnréttis og lýðræðis væri
Íslendingum í blóð borinn. Í ávarpi á
þjóðarhátíðardeginum 1945 sagði
hann meðal annars: „Vísvitandi
munum vér og seint feta í fótspor
þeirra, sem svipt hafa sjálfa sig rétt-
inum til gagnrýni eða mögu-
leikanum til að láta í ljós skoðanir
sínar. Og fáir eru oss síður hneigðir
til að sækja nokkurt mál út í ystu
æsar, né eru því andvígari, að níðst
sé á mönnum eða sá máttarmeiri láti
kné fylgja kviði.“
En í daglegu þrasi gleymist oft að
„játa öðrum hið sama frelsi og vér
heimtum sjálfum oss til handa“.
„Þegar við virðum ekki skoðanir
hver annars er gengið gegn lýðræð-
inu, sem fær ekki staðist nema við-
urkennt sé, að sjónarmiðin eru mörg
og skoðanirnar þar af leiðandi ólík-
ar.“
Styrkur flokks
Þessi orð Bjarna Benediktssonar
eru góð áminning til okkar sem
berjumst fyrir frelsi einstakling-
anna til orðs og athafna undir
merkjum Sjálfstæðisflokksins og
stöndum vörð um sjálfstæði þjóð-
arinnar. Það hefur verið styrkur
flokksins að virða ólíkar skoðanir.
Við höfum ýtt undir rökræður og
tekist á stundum harkalega á. Á
landsfundum fær suðupottur hug-
mynda að sjóða. Og það hefur oft
verið magnað að verða vitni að því
hvernig samkeppni hugmynda og
hörð skoðanaskipti leysa úr læðingi
pólitískan kraft sem andstæðingar
Sjálfstæðisflokksins hafa aldrei skil-
ið né staðist.
Kraftur Sjálfstæðisflokksins felst
í dagskrárvaldi almennra flokks-
manna sem skilja „að þótt þröng-
sýni sé að neita, að sjónarmiðin séu
mörg og skoðanir hljóti því að vera
ólíkar, þá er sú víðsýni mest að
kunna að rata hinn gullna meðalveg,
svo að sem flestir megi vel við una,“
svo vitnað sé til orða Bjarna 17. júní
1945. Sá er þetta skrifar hefur hald-
ið því fram að í öflugum stjórn-
málaflokki skilji flestir mikilvægi
þess að stilla að lokum saman
strengi – að konur og karlar, ungir
og gamlir standi saman í baráttunni
um grunnstef sjálfstæðisstefn-
unnar.
Sjálfstæðismenn hafa því neitað
að beygja sig undir vald umræðu-
stjóra samtímans. Aldrei fallið í
sömu gryfju og þeir sem helst kenna
sig við umburðarlyndi og víðsýni en
eiga erfitt með að bera virðingu fyr-
ir andstæðum skoðunum. Þeir vita
að í þeirri gryfju glatar flokkurinn
tilgangi sínum og verður hvorki
uppspretta nýrra hugmynda eða
hreyfiafl framfara.
Eftir Óla Björn
Kárason » Það er styrkur
Sjálfstæðisflokksins
að virða ólíkar skoðanir.
Stundum er tekist
harkalega á en kraft-
urinn felst í dagskrár-
valdi almennra
flokksmanna.
Óli Björn Kárason
Höfundur er alþingismaður
Sjálfstæðisflokksins.
Aldrei undir vald umræðustjóranna