Morgunblaðið - 03.02.2021, Qupperneq 16

Morgunblaðið - 03.02.2021, Qupperneq 16
16 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 3. FEBRÚAR 2021 ✝ Svava Snorra-dóttir fæddist á Fáskrúðsfirði 12. febrúar 1934. Hún lést á kvennadeild Landspítalans 23. janúar 2021. Foreldrar hennar voru Snorri Magn- ússon rafvirkja- meistari, f. á Gagn- stöð í Hjaltastaða- þinghá 12. maí 1906, d. 16. maí 1990, og Anna Gunn- laug Guðmundsdóttir, f. á Ak- ureyri 7. september 1901, d. 14. desember 1953. Systkini Svövu eru Magnús, f. 1935, eiginkona hans var Sylvía Arnardóttir, f. 9. febrúar 1935, d. 4. febrúar 2016; Elínbjörg, f. 13. september 1939, eiginmaður hennar er Berg- sveinn Gíslason, f. 2. febrúar 1938. Svava eignaðist tvö börn, Snorra Bogason, f. 18. sept- ember 1952, og Önnu Rósu Sig- urgeirsdóttur, f. 22. september 1953. Fyrri kona Snorra var Berglind Adda, f. 1973, eig- inmaður Jónas Árnason. Þau eiga tvo syni; Sigurrós, f. 1978, eiginmaður Daði Gränz. Þau eiga tvö börn. Svava flytur með föður sínum og börnum að Mjólkárvirkjun við Arnarfjörð þar sem þau hefja störf við virkjunina. Þaðan flyt- ur Svava með börnin til Kópa- vogs, þar hóf hún störf á leik- skóla og síðan ýmis önnur störf, var lengi á Hótel Loftleiðum þar sem hún lærði smurbrauðsgerð og rak á tímabili veisluþjónustu. Hún starfaði við smurbrauð og fleira á ýmsum veitingastöðum, síðast sem matráður hjá Rík- isútvarpinu. Síðustu árin hefur Svava búið í Hæðargarði 33 í Reykjavík. Útför Svövu fer fram frá Bú- staðakirkju í dag 3. febrúar 2021 og hefst athöfnin klukkan 13. Í ljósi aðstæðna verða ein- ungis nánustu ættingjar og vinir viðstaddir athöfnina en henni verður streymt á: https://youtu.be/icW6ZXzuK8A Finna má virkan hlekk á streymi á slóðinni: https://www.mbl.is/andlat Ragnheiður Al- freðsdóttir. Þeirra börn eru Kristjana Milla, f. 1978, sam- býlismaður hennar er Guðmundur Gunnarsson og eiga þau tvö börn; Bergsveinn Magn- ús, f. 1980, sam- býliskona hans er Herborg Eiríks- dóttir. Þau eiga tvö börn; Inga Sigríður, f. 1984, sambýlismaður hennar er Óli Finnsson. Móðir Ingu Sigríðar er Anna Margrét. Seinni kona Snorra er Agnes Ásgeirsdóttir, f. 1962. Þeirra sonur er Jóakim, f. 1987, en fyrir átti Agnes son- inn Ásgeir Kristinsson, f. 1982, sem Snorri gekk í föðurstað, sambýliskona hans er Arna Rannveig Guðmundsdóttir og eiga þau tvö börn. Eiginmaður Önnu Rósu er Halldór Leifsson og þeirra börn eru Svava Björk, f. 1972, eiginmaður Björn Þor- geirsson. Þau eiga tvo syni; Elsku besta amma mín er fallin frá, það er erfitt að hugsa til þess að ég fái ekki að sjá hana aftur. Eiginlega finnst mér það ótrúlegt þar sem ég hélt að hún yrði að minnsta kosti 100 ára, við héldum það báðar. Mér hefur verið sagt að þegar amma var ung þá hafi hún verið ákveðin og dugleg kona og þannig var hún líka á sínum seinni árum. Hún var heilsuhraust kjarnakona allt þar til krabbinn náði henni. Ég á margar góðar minningar um elsku ömmu og er þakklát fyrir allar góðu stundirnar okkar sam- an. Minningar sem seint gleymast, enda var hún yndisleg og mikill karakter. Í mínum augum var hún einstök amma. Elskaði að dansa og klæða sig upp. Það var henni efst í huga að vera fín og mikill tími fór í að skoða föt, fallega og litríka kjóla. Ég held að Kringlan hafi verið einn af hennar uppáhalds- stöðum, þar gat hún eytt heilu og hálfu dögunum. Þegar elsku amma var komin inn á spítala og einungis nokkrum dögum áður en hún féll frá, þá hringdi hún í mig þar sem hún var á Facebook á út- sölum, hana vantaði svo kjól, þessa elsku. Þær eru ófáar minningarnar sem tengjast því að sitja með henni yfir kaffibollanum og ræða alla heimsins hluti, það var nota- legt að tala við hana og alveg magnað að hún var alltaf með putt- ann á púlsinum sama hvert um- ræðuefnið var. Amma var alveg of- boðslega gestrisin kona og það var alltaf þannig að það sást ekki í borðið fyrir mat. Það var alveg ómetanlegt að ferðast með ömmu. Vesturferðirn- ar með henni voru svo dýrmætar, þar sem hún var búin að nesta okk- ur upp með gott kaffi og brauð- meti. Þvílíkur fróðleikur sem kom frá henni í hverri ferð. Hún var mikil sögukona, gaf sig alla í sög- urnar og sagði skemmtilega frá. Svíþjóðarferðin þegar við fórum tvær til að heimsækja Millu og Begga er ógleymanleg og hvað þá þegar við fórum í stelpuferð til Alicante þar sem strandlengjan var þakin básum með litríkum kjólum, þar gat hún þrætt strönd- ina fram og til baka í sól og yl, því- líkur sælustaður. Amma var ofboðslega fé- lagslynd, nærðist á því að vera með sem flesta hjá sér og hafði mikinn áhuga á fólkinu sínu og vildi vera með þeim sem oftast. Henni þótti svo vænt um börnin mín og ef þau komu ekki með mér í heimsókn til hennar þá spurði hún um þau og hafði mikinn áhuga á því sem þau voru að gera. Hún hafði mjög gaman af því að gefa og lána Karen Rós kjóla, þannig að yfirleitt fór ég klyfjuð heim með urmul af litríkum kjólum handa henni eða þegar hún fór sjálf frá henni. Ömmu þótti vænt um að sjá myndir af henni í fötum frá sér. Amma nefndi það oft hve hlýr og ljúfur hann Anton Orri væri og þótti alltaf svo vænt um að fá sím- tal frá þeim systkinum til ömmu sinnar. Ég get endalaust talað um hve mikið hörkutól hún amma var og hún kvartaði aldrei yfir neinu, t.d. þegar hún var orðin mikið veik lét hún mann aldrei heyra annað en að hún væri bara eldhress bara svolít- ið löt. Þá var hún komin á það stig að vera hætt að geta gengið. Ég kveð ömmu mína með sorg. Ég mun ávallt minnast hennar með hlýhug og virðingu. Blessuð sé minning hennar. Sigurrós. Meira á www.mbl.is/andlat Það er erfitt að hugsa til þess að hún amma mín sé farin. Ég á svo margar og góðar minningar um ömmu og ég elskaði að koma í heimsókn til hennar. Í einni heim- sókninni sátum við saman og sagði hún mér frá áhugaverðri ævi sinni. Ég tók niður þessa frásögn hennar og langar mig að birta hana hér. Fyrri hlutinn er hér en frásögnina í heild sinni má finna á vefsíðu mbl.is. Þegar ég spyr ömmu hvernig hún myndi lýsa persónuleikanum sínum, byrjar hún á að segja mér að hún sé vatnsberi. Hún segir að vatnsberinn sé ekki frekur, svolítið ljúfur og heldur listrænn, en bætir einnig við að ættingjar hennar og vinir myndu ekki taka undir þessi orð. Hún er nefnilega frekar ákveðin og beinskeytt, en segir að hún hafi orðið svoleiðis eftir að hafa þurft að taka stórar ákvarð- anir og bera mikla ábyrgð. Amma bjó á Akureyri frá níu ára aldri og þar til hún varð fimm- tán ára. Á þeim tíma var hún mikið í íþróttum og vann verðlaunapen- ingana hvern á eftir öðrum fyrir hlaup, stökk og fleira. Hún þótti alltaf best í handbolta og fékk allt- af hæstu einkunnir í sundi. Á sumrin fór hún í sveit á bæ rétt fyr- ir utan Akureyri og hún þótti svo efnileg að þegar kom að íþrótta- mótum var hún sótt í sveitina svo hún gæti tekið þátt fyrir hönd KA, Knattspyrnufélags Akureyrar. Hún eyddi miklum tíma á íþrótta- vellinum og segir frá því þegar hún hljóp fyrst í takkaskóm. „Hrylli- lega var það vont, manni fannst maður ekki drullast neitt áfram,“ segir hún hlæjandi. Hún segist þó aldrei hafa skilið af hverju þeim var kennt að hoppa yfir hesta og klifra í köðlum, hún vildi mikið frekar læra dans, því henni þótti dansinn svo skemmtilegur, en dans og föt voru hennar helstu áhugamál. Hún bætir við: „Þegar ég var tíu ára vorum við vinkon- urnar alveg fatasjúkar, við elskuð- um að fara heim eftir skóla og klæða okkur upp í föt af mömmu.“ Vinkonurnar stífmáluðu sig, fóru í eitthvað fínt, settu á sig hatta og gengu niður í bæ með regnhlífar í glampandi sólskini. „Mamma hafði verið úti í Danmörku og átti eitt- hvað agalega sniðugt, sem var kallað naglalakk,“ segir hún bros- andi. Hún lýsir þessum stundum sem dásamlegum. Það var spennandi þegar her- mennirnir komu á Akureyri. Krakkarnir fylgdust grannt með þegar herskipin sigldu upp að höfn Akureyrar og bærinn fylltist af flottum hermönnum. Amma var mikið hjá frænku sinni árin sem hermennirnir komu til Akureyrar en húsið hennar var með gott út- sýni yfir braggana þar sem her- mennirnir áttu heima. Þegar ég spyr hana hvernig henni hafi litist á hermennina svarar hún: „Ég var svo hryllilega hrædd við þá maður, ég ætla ekki lifandi að segja þér það,“ svo hlógum við báðar. En hún segir að þeir hafi staðið vörð með byssur og í öllum skrúðanum, en það þótti henni ofboðslega hræðilegt. Hermennirnir voru samt alltaf mjög glaðir og pössuðu vel upp á börnin, gáfu þeim lakkrís og ýmis sætindi. „Maggi bróðir fékk stundum að fara til her- mannanna og kom oft til baka með tyggjó alveg einstaklega mont- inn,“ segir hún. Karen Rós. Meira: www.mbl.is/andlat Ég sendi þér kæra kveðju, nú komin er lífsins nótt, þig umvefji blessun og bænir, ég bið að þú sofir rótt. Þó svíði sorg mitt hjarta þá sælt er að vita af því, þú laus ert úr veikinda viðjum, þín veröld er björt á ný. Ég þakka þau ár sem ég átti, þá auðnu að hafa þig hér, og það er svo margs að minnast, svo margt sem um hug minn fer, þó þú sért horfinn úr heimi, ég hitti þig ekki um hríð, þín minning er ljós sem lifir og lýsir um ókomna tíð. (Þórunn Sigurðardóttir) Takk elsku Svava fyrir alla skemmtilegu stundirnar sem við höfum átt saman í dansi og leik. Ég kveð þig með söknuði og þakk- læti. Guðrún Sveina María Jóns- dóttir (Sveina). Svava Snorradóttir, yndisleg vinkona okkar allra í Hæðargarði 33-35, lést eftir stutta legu. Hún fluttist hingað fyrir fáum árum og var fljót að eignast hér vini og festa rætur. Svava var afar minn- ug á ýmsa skemmtilega viðburði sem höfðu gerst hér og þar og sagði frá þeim skilmerkilega, enda hafði hún mjög áheyrilega fram- sögn. Einnig var hún dugleg að finna upp tilefni fyrir okkur hér í húsinu til að koma saman og eiga saman glaðar stundir. Áður en faraldurinn skall á í fyrra voru hér laugardagssam- komur í sólstofunni okkar og var gjarnan haft kaffi og með því. Oft- ar en ekki kom þá Svava klyfjuð kökum og smurbrauði handa öll- um. Sagði hún svo frá skemmtileg- um hlutum í daglega lífinu og hvatti aðra til að gera það líka. Svava var afar skoðanaföst og sagði aldrei já þegar hún meinti nei. Var það gjarnan þegar þjóð- málin bar á góma. Svo hafði Svava sín hugðarefni, sem einkenndust öðru fremur af fallegum hlutum. Sérstakan áhuga hafði hún á fal- legum fötum og er kjólasafn henn- ar stórkostlegt. Er okkur til efs að hún hafi haft tölu á kjólunum sín- um. Líka var mikill áhugi á falleg- um munum og skrautljósum til að prýða íbúðina, en heimili hennar var í einu orði sagt gullfallegt, svo að eftir var tekið. Á hverjum degi fór Svava niður í kaffistofu til að blanda geði við vini sína og kunningja. Einnig hafði hún náið samband við fjölskyldu og vini, hvort sem var í formi heim- sókna eða í gegnum síma og tölvu. Svo hafði Svava brennandi áhuga á línudansi og tók virkan þátt í hon- um, bæði hér í húsinu, sem og ann- ars staðar. Nú hefur verið höggvið stórt skarð í hóp okkar þriggja, sem skiptumst á að elda kvöldmat und- anfarin ár, og er söknuðurinn sár. Við teljum okkur mæla fyrir hönd allra í húsinu þegar við vottum að- standendum Svövu okkar dýpstu samúð. Erla (íb. 404) og Nikulás (íb. 601). Nú komið er að kveðjustund, Svava Snorradóttir er látin. Við vorum oft samferða gegnum lífið og áttum góðar stundir við vinnu og ýmis samskipti. Svava var æv- inlega kát og hress er ég kom til hennar. Síðasta heimsóknin var fyrir rúmu ári, rétt fyrir jólin. Við Dóri sonur litum við hjá henni seint um kvöld með pakka að vestan. Þáðum kaffi og kökur og Dóri fékk eina skondna sögu um hvern- ig henni tókst að festa litla bílinn í umferðinni. Þau hlógu mikið sam- an og höfðu bara gaman af. Þegar við kvöddum sagði hún: „Komið þið ekki bara aftur á morgun, það er svo gaman að fá svona jólasveina í heimsókn á kvöldin.“ Þökkum fyrir margar góðar sögur og samveru- stundir um ævina. En komin eru leiðarlok og lífsins kerti brunnið og þín er liðin æviönn á enda skeiðið runnið. Í hugann kemur minning mörg, og myndir horfinna daga, frá liðnum stundum læðist fram mörg ljúf og falleg saga. (Höf. ók.) Önnu Rósu, Snorra, Lóu, Magga og fjölskyldum þeirra send- um við samúðarkveðjur á þessum erfiðu tímum. Dagrún Sigurðardóttir og bræðurnir frá Hjarðardal. Elsku Svava vinkona okkar er fallin frá og lögð af stað í ferðalagið mikla sem bíður okkar allra. Við sem fengum að kynnast henni munum sakna hennar mikið og minnast hennar af mikilli virð- ingu og þakklæti. Ferðin til Vestfjarða er ógleym- anleg, harmonikumót, dans og gleði. Dýrafjörðurinn fagri þar sem systir hennar og mágur búa átti hug hennar allan og við feng- um að njóta með henni og eiga þau öll þúsund þakkir fyrir. Svava var létt á fæti í línudansi o.fl. sem var hennar yndi. Drottningin eins og við kölluð- um hana, lifði lífinu lifandi. Takk fyrir allt og allt. Góða ferð í sumarlandið. Þar sem englarnir syngja sefur þú sefur í djúpinu væra. Við hin sem lifum, lifum í trú að ljósið bjarta skæra veki þig með sól að morgni. (Bubbi Morthens) Árný, Sigríður og Ragnheiður. Svava Snorradóttir Minn kæri frændi, GUÐLAUGUR GUÐLAUGSSON, Skúlagötu 20, lést miðvikudaginn 27. janúar. Sigurður Aðils Ástkær móðir okkar, SIGRÍÐUR JÓNATANSDÓTTIR, lést á Droplaugarstöðum sunnudaginn 31. janúar. Útförin auglýst síðar. Jónatan Þórðarson Þórður Þórðarson Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, INGIBJÖRG GUÐJÓNSDÓTTIR, lést á hjúkrunarheimilinu Skjóli 24. janúar. Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Þórunn Erna Jessen Peter Winkel Jessen Guðjón Haukur Stefánsson Ingibjörg Stefánsdóttir Bryndís Stefánsdóttir Lars Thøgersen Innilegar þakkir til allra sem sýndu okkur samúð, vináttu og hlýhug við andlát og útför okkar ástkæra eiginmanns, föður, tengdaföður og afa, HRÓBJARTS HRÓBJARTSSONAR arkitekts. Karin Hróbjartsson Stuart Úlfur Helgi Hróbjartsson Sjöfn Evertsdóttir Ólafur Evert Úlfsson Karin Sigríður Úlfsdóttir Elsku mamma okkar, tengdamamma, amma og langamma, ANNA MARÍA HARALDSDÓTTIR, Miðtúni 9, Seyðisfirði, lést miðvikudaginn 27. janúar á hjúkrunarheimilinu Fossahlíð á Seyðisfirði. Jarðsett verður laugardaginn 6. febrúar klukkan 11 frá Seyðisfjarðarkikju. Hægt verður að fylgjast með á https://youtu.be/0b0W_GLonqs. Blóm og kransar afþakkast en þeim sem vilja minnast hennar er bent á hjúkrunarheimilið Fossahlíð eða Slysavarnafélagið Rán á Seyðisfirði. María S. Sigurðardóttir Þráinn E. Gíslason Haraldur Sigurðsson María Cecilia Sigurðsson Unnar Sigurðsson Adela Sigurðsson Ingibjörg I. Sigurðardóttir Trausti Marteinsson Þorsteinn Guðmundsson barnabörn og langömmubörn Elskulegur eiginmaður minn, faðir og afi, SIGFÚS ÓLAFSSON, Engjavegi 81, Selfossi, lést á Heilbrigðisstofnun Suðurlands, Selfossi, fimmtudaginn 28. janúar. Útförin fer fram föstudaginn 5. febrúar klukkan 14 frá Selfosskirkju. Í ljósi aðstæðna verða einungis nánustu ættingjar og vinir viðstaddir. Athöfninni verður streymt á vefsíðu Selfosskirkju. Blóm og kransar afþakkast vinsamlega. Sérstakar þakkir til alls starfsfólks lyflækningadeildar HSU, Selfossi, fyrir alúð og stuðning. Svanborg Egilsdóttir Guðmundur Rúnar Sigfússon Arnar Freyr Guðmundsson Helga Valentína Guðmundsdóttir Matthías Wilhelm Guðmundsson Sigmar Benjamín Guðmundsson

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.