Morgunblaðið - 03.02.2021, Síða 20
20 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 3. FEBRÚAR 2021
50 ára Inga Rut er
Reykvíkingur, ólst upp í
miðbænum en býr í
Kópavogi. Hún er
ferðafræðingur og
grunnskólakennari að
mennt og vinnur á
skrifstofu hjá Ice-
landair.
Maki: Sigurður Arnarson, f. 1967, sókn-
arprestur í Kópavogskirkju.
Börn: Kristinn Örn, f. 1999, Birna Magn-
ea, f. 2002, Karólína María, f. 2006, og
Gunnar Karl, f. 2009.
Foreldrar: Karl Sigurbjörnsson, f. 1947,
biskup og Kristín Guðjónsdóttir, f. 1946,
fv. bankastarfsmaður. Þau eru búsett í
Reykjavík.
Inga Rut
Karlsdóttir
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Það er til lítils að vera að gera sér
rellu út af öllum sköpuðum hlutum. Mestu
skiptir að á þig er hlustað. Gerðu ráðstafanir
til að lyfta þér á kreik.
20. apríl - 20. maí
Naut Fólk laðast að þér og þú nýtur þess en
gefðu þér tíma til að hugleiða hvort þú þurfir
á því að halda. Mundu að koma fram við
aðra eins og þú vilt að þeir komi fram við
þig.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Þú kemur þér að kjarnanum í
vinnunni og gerir þér grein fyrir að hingað til
hefur þú eytt of miklum tíma til einskis.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Ástúðlegar tilfinningar til einhvers
sem er þér nákominn eru sterkar í dag.
Hættu að vinna þegar þú segist ætla að gera
það.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Þú færð góðar hugmyndir í dag um
það hvernig þú getur nýtt orku annarra til að
gera gagn. Valdi fylgir sú mikla ábyrgð að
misnota það ekki.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Þér kann að þykja það erfitt hversu
vinur þinn er hikandi við að standa við sinn
hluta af skuldbindingum ykkar. Málið er að
sinna aðeins raunverulegum þörfum.
23. sept. - 22. okt.
Vog Allt er breytingum háð og því skaltu
ekki blekkja sjálfan þig með því að þú sért
búinn að skipa málum til eilífðar.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Láttu liðið vera liðið í sam-
skiptum við aðra og hafðu stjórn á skapi
þínu. Of mikið umtal kallar bara á öfund-
armenn sem gera þér lífið leitt.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Þótt þér líði frábærlega skaltu
láta það eiga sig að upplýsa aðra um hvað
veldur því. Gættu þess að ganga ekki of
langt, það hefnir sín.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Þetta er ekki góður dagur til þess
að sinna fjármálunum. Sumt er okkur ætlað
að eiga um sinn en annað bara um stund-
arsakir.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Vertu passasamur með þína hluti
og gættu þess sérstaklega að aðrir komist
ekki í mál sem að þeim koma ekki við.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Það er auðveldara að yfirvinna hindr-
anir í peningamálum ef maður fer ekki á
taugum. Taktu þér bara góðan tíma til að
beita kunnáttu þinni.
verið í mörgum gönguhópum með
Ferðafélaginu og Útivist og það er
algjör draumur að ganga á fjöll með
góðu fólki allan ársins hring. Vetr-
arferðirnar eru í mestu uppáhaldi,
þá eru aðstæður oftast meira krefj-
andi. Að sumarlagi hef ég einnig
yndi af að egna fyrir bleikju og urr-
iðafiska, og kappkosta að eiga nægi-
legt bleikfiskmeti í frystinum fyrir
mjög hrifnir af náttúru landsins. Ég
kynntist mörgu yndislegu fólki og
hef samband við sum þeirra enn.
Ég hef mikla útiveru- og hreyfi-
þörf og sameina það í göngu- og
fjallaferðum. Fyrstu tjaldgönguferð-
ina fór ég á Hornstrandir 1987, lent-
um þar í algjöru úrhelli, en eins og
svo oft var rosalega gaman eftir á, og
hef ég lítið stoppað síðan. Ég hef
B
irgir Martin Barðason
fæddist 3. febrúar 1961
á Landspítalanum í
Reykjavík og ólst upp
til sex ára aldurs í Álf-
heimum 36. „Þar var mikið opið leik-
svæði fyrir aftan blokkirnar sem við
krakkarnir kölluðum Sultuna, mold-
ar- og drulluflag að mestu þar sem
nú er Grasagarðurinn.“
Fjölskyldan fluttist í Garðahrepp,
sem þá var, 1967 og Birgir byrjaði í
Barnaskólanum þar um haustið.
„Við bjuggum eitt ár í Englandi, ég
gekk eitt ár í skóla þar sem var
ómetanlegt, lærði enskuna og kynnt-
ist hefðum og siðum þar. Síðan gekk
ég í Gagnfræðaskólann og eftir hann
héldum við flest áfram skólagöngu í
Garðabænum, og vorum fyrstu nem-
endurnir í framhaldsdeildinni, sem
síðar varð að Fjölbrautaskólanum í
Garðabæ.“ Seinni tvö árin voru síðan
í Flensborgarskólanum og varð
Birgir því stúdent þaðan 1981 af
raungreinabraut. „Ég fékk þar mik-
inn áhuga á eðlisfræði, en hafði alltaf
haft mikinn áhuga á bókmenntum og
las mikið, þ.a. valið stóð á milli raun-
greina og bókmennta.“ Raungreinar
urðu ofan á og Birgir útskrifaðist
með BS-próf í eðlisfræði vorið 1986,
en hafði að auki bætt við sig heilu ári
í efnafræði.
Kennir eðlisfræði
Eftir námið hefur Birgir að mestu
starfað við eðlisfræðikennslu í fram-
haldsskólum síðan og líkað vel,
lengst af í Fjölbrautaskólanum í
Breiðholti. Hann gerði hlé á kennslu
í tvö ár til að ljúka kennsluréttinda-
námi og var á sama tíma í Leiðsögu-
skólanum í Kópavogi og útskrifaðist
þaðan sem leiðsögumaður með
þýsku og ensku vorið 1991.
„Þýskuna fékk ég frá móður minni
en hún passaði vel upp á að við bræð-
urnir myndum ná tökum á því fal-
lega tungumáli. Ég er því tvítyngdur
sem er mjög mikilsvert. Ég var síðan
eins og þeytispjald með ferðamenn í
tjald- og gönguferðum hvert sumar
um 12 ára skeið, var þá kominn með
fjölskyldu svo aðstæður breyttust.
Það var mjög gefandi að kynna land-
ið okkar fyrir erlendum ferðamönn-
um, sem voru undantekningalaust
vetur komanda. Ekki má gleyma
berja- og sveppatínslu, förum á
hverju hausti, krækiberjasaft er
ómissandi út á vanillubúðinginn.
Lestur og framsækið rokk
Lestur er síðan eilífðaráhugamál
hjá mér, ég les nánast alla daga og
íslenskir gæðahöfundar og erlendir
eru í miklum metum. Það hefur verið
unnið mikið brautryðjendaverk í
þýðingum erlendra heims-
bókmennta og ómetanlegt að geta
sökkt sér ofan í þær. Við eigum tölu-
verðan hóp af virkilega góðum og
frumlegum rithöfundum og það er
hrein unun að lesa fagurlega mót-
aðan texta þeirra.
Framsækin rokktónlist stendur
hjarta mínu mjög nærri, við vorum
miklir pælarar félagarnir í Garða-
bænum og hittumst reglulega til að
hlusta og skeggræða. Listinn yfir
uppáhaldshljómsveitir er langur og
ánægjustundirnar sem tónlist þeirra
hefur veitt mér eru ómælanlegar og
ómetanlegar. Rokkið er alvöru-
listform sem er stórlega vanmetið af
menningarforkólfum. Ég hef einnig
áhuga á sinfóníum og fúgum og við
Birgir Martin Barðason framhaldsskólakennari 60 ára
Gönguferð Marina, eiginkona Birgis, og börn þeirra, Jakob og Tamara, að vori til í Selvogi.
Vetrarferðir í mestu uppáhaldi
Afmælisbarnið Birgir á toppi Dýja-
fjallshnjúks á Tröllaskaga.
Hjónin Birgir og Marina við Gull-
foss, uppáhaldsfossinn þeirra.
40 ára Ólöf ólst upp
að mestu í Garðinum
en býr nú á Akur-
eyri. Hún lauk
félagsliðaprófi frá Sí-
mey og er félagsliði
á Öldrunarheimilinu
Hlíð á Akureyri.
Maki: Konráð Logi Fossdal, f. 1979,
félagsliði á búsetusviði Akureyrar-
bæjar.
Börn: Inga Dóra, f. 2016, og Júlíus
Grétar, f. 2018.
Foreldrar: Leifur Ólafsson, f. 1959,
verkamaður hjá fjarskiptafyrirtækinu
Tengir, búsettur á Akureyri, og Gréta
Sævarsdóttir, f. 1959, d. 2019, hús-
freyja í Garði og á Akureyri.
Ólöf Sandra
Leifsdóttir
Til hamingju með daginn
Börn og brúðhjón
Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu
er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks,
svo sem stórafmælum, hjónavígslum,
barnsfæðingum og öðrum tímamótum.
Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum
borgara eða mynd af brúðhjónum fá fría
áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð.
Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni
mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is