Morgunblaðið - 03.02.2021, Side 25

Morgunblaðið - 03.02.2021, Side 25
MENNING 25 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 3. FEBRÚAR 2021 Nánari upplýsingar um sýningartíma á sambio.is SÝND MEÐ ÍSLENSKU TALI. TRYGGÐU ÞÉR MIÐA INNÁ VA R I E T Y C H I C AG O S U N T I M E S I N D I E W I R E T H E T E L E G R A P H Jazzklúbburinn Múlinn hefur göngu sína á ný í kvöld kl. 20 í Flóa í Hörpu. Djassrokksveitin Gammar heldur þá útgáfutónleika. Undan- farin misseri hefur hljómsveitin hljóðritað nýtt efni og gaf út 14. október síðastliðinn á öllum helstu miðlum, eins og segir í tilkynningu. Gammar eru Stefán S. Stefánsson á saxófón, gítarleikarinn Björn Thor- oddsen, Þórir Baldursson á píanó og orgel, Bjarni Sveinbjörnsson á bassa og Sigfús Óttarsson sem leik- ur á trommur. Gammar Djassrokksveitin góða. Gammar leika í Múlanum í Flóa JFDR, Indriði, Úlfur o.fl. hafa gefið út góð- gerðarplötu til styrktar sam- félaginu á Seyðisfirði í kjölfar aur- skriðanna sem ollu þar miklu tjóni í desem- ber í fyrra. Hljómsveitin Hell Yeah, Beautiful gefur plötuna út en hún er skipuð Indriða Arnari Ingólfssyni, Tuma Árnasyni, Úlfi Hanssyni, Jófríði Ákadóttur, Ólafi Sverri Traustasyni og Arnljóti Sig- urðssyni sem komu saman til að taka upp þessa stöku hljómplötu sem nefnist Blue Church Session. Platan varð til árið 2013 og var samin og hljóðrituð í Seyðisfjarðar- kirkju. Figureight records gefur plötuna út í samstarfi við „Saman fyrir Seyðisfjörð“ og hana má kaupa á bandcampsíðu figureight records fyrir átta dollara. Bláa kirkjan Plata til styrktar Seyðisfirði Silja Björk Huldudóttir silja@mbl.is „Ég fékk hugmyndina að því að setja upp leiksýningu á pólsku 2019 eftir að hafa séð Pólverja streyma út úr Bíó Paradís að lokinni kvik- myndasýningu. Ég hugsaði með mér að gaman væri að bjóða þessum fjöl- menna hópi Pólverja sem hér búa upp á annars konar afþreyingu á pólsku,“ segir Ólafur Ásgeirsson um sýninguna Co za poroniony pomysł – Úff hvað þetta er slæm hugmynd! sem leikhópurinn PólíS frumsýnir í Tjarnarbíói annað kvöld kl. 20. „Á þessum tíma þekkti ég bara tvo Pólverja og mótaði hugmyndina utan um þau, en hvorugt þeirra er menntað í leiklist,“ segir Ólafur og vísar þar til Jakubs Ziemanns og Aleksöndru Skołozynska sem leika með honum í uppfærslunni. „Jakub er lífeindaverkfræðingur sem starfar sem kokkur og Aleks- andra er búinn að vera að vinna sem þjónn, en ég kynntist henni gegnum Improv Ísland. Ég byrjaði á því að taka við þau viðtöl og síðan vannst sýningin áfram í spuna,“ segir Ólaf- ur og bendir á að Pétur Ármannsson hafi komið að hugmyndavinnunni. „Sýningin byggist að hluta á okk- ur og okkar sögu. Við erum þannig að setja á svið nokkurs konar hliðar- sjálf við okkur sjálf. Sýningin byrjar á því sem er satt, en spinnst síðan áfram yfir í hluti sem liggja fjær raunveruleikanum. Ég held að margir Pólverjar eigi auðvelt með að setja sig í spor Jakubs og Aleks- öndru,“ segir Ólafur og tekur fram að leiðarstef sýningarinnar sé löng- unin til að tengjast öðrum. „Þetta er gamanleikur með sönn- un tón. Verkið fjallar fyrst og fremst um það hvernig við tengjumst öðru fólki. Við gerum það að stórum hluta gegnum tungumálið, en matur leik- ur líka stórt hlutverk,“ segir Ólafur og tekur fram að undir yfirborðinu kraumi oft fordómar í garð útlend- inga. „Við fjöllum ekki um það ber- um orðum, enda höfum við engan áhuga á að predika yfir leikhús- gestum. En það er auðvitað pólitískt í sjálfu sér að setja upp leiksýningu á Íslandi fyrir Pólverja, en við erum samt ekki að móta einhverja afstöðu fyrir áhorfendur,“ segir Ólafur. Lærði pólsku fyrir sýninguna Aðspurður segir hann sýninguna að stærstum hluta leikna á pólsku þó smá enska komi einnig fyrir, en hún er síðan textuð á íslensku á skjá. Sem hluta af undirbúningsferlinu lærði Ólafur pólsku, fyrst upp á eig- in spýtur með aðstoð smáforritsins Duolingo og síðan með því að sækja námskeið hjá Mími. „Enda ekki hægt að læra tungumál bara með hjálp smáforrits,“ segir Ólafur og tekur fram að tungumálanám hans fléttist inn í sýninguna. „Þegar ég var að æfa pólska framburðinn not- aðist ég töluvert við Google Trans- late og lét forritið lesa upp fyrir mig textann, sem var ótrúlega hjálplegt. Þetta var auðvitað algjör páfagauka- lærdómur,“ segir Ólafur. Spurður nánar um eigin bakgrunn segist Ólafur hafa útskrifast af leik- arabraut Listaháskóla Íslands 2015 og í framhaldinu farið til New York þar sem hann nam við skóla Mich- aels Chekhovs í eitt ár. Eftir heim- komu hefur Ólafur starfað sem leiklistarkennari á öllum skólastig- um og verið aðstoðarleikstjóri að smærri sýningum ásamt því að starfa með Improv Ísland. „Ég hef örugglega sýnt yfir hundrað spuna- sýningar á vegum Improv Ísland. Ég var síðan í Inni, sem var útskriftarverkefni Birnis Jóns Sig- urðssonar af sviðshöfundabraut Listaháskólans í fyrra,“ segir Ólaf- ur, en Birnir Jón er dramatúrg sýn- ingarinnar Co za poroniony pomysł – Úff hvað þetta er slæm hugmynd! sem Salvör Gullbrá Þórarinsdóttir leikstýrir. Aðrir listrænir stjórn- endur eru Þórdís Erla Zoëga sem hannar leikmynd og búninga, Krist- inn Smári Kristinsson sem er höf- undur tónlistar, Kjartan Darri Kristjánsson sem hannar lýsingu og Gréta Þorkelsdóttir sem sér um grafíska hönnun. Nýverið var tilkynnt hvaða sviðs- listahópar hlytu styrk úr sviðslista- sjóði árið 2021 og þar hlaut PólíS 2,8 milljónir króna til að vinna sýn- inguna Tu jest za drogo – Úff hvað allt er dýrt hérna. „Ég veit því á nú- verandi tímapunkti að ég er að fara að gera aðra sýningu undir merkjum PólíS, en hvað framtíðin ber í skauti sér verður bara að koma í ljós. Draumurinn væri auðvitað að hér á landi væri starfandi pólskt leikhús, nokkurs konar pólskt Tjarnarbíó,“ segir Ólafur að lokum. Ljósmynd/Marcin Matusiak Tengsl „Verkið fjallar fyrst og fremst um það hvernig við tengjumst öðru fólki,“ segir Ólafur Ásgeirsson, einn höf- unda og leikara leiksýningarinnar Co za poroniony pomysl – Úff hvað þetta er slæm hugmynd!, í Tjarnarbíói. Setja hliðarsjálfið á svið  Leikhópurinn PólíS frumsýnir Co za poroniony pomysł – Úff hvað þetta er slæm hugmynd! í Tjarnarbíói  „Þetta er gamanleikur með sönnun tón“

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.