Morgunblaðið - 03.02.2021, Qupperneq 28
Duo Atlantica flytur evrópsk þjóðlög í útsetningum fyr-
ir rödd og gítar í Salnum í Kópavogi í dag kl. 12.15. Flutt
verða lög frá Íslandi, Noregi, Írlandi, Spáni, Frakklandi,
Skotlandi, Slóveníu og Ítalíu. Dúó Atlantica er skipað
mezzósópransöngkonunni Guðrúnu Jóhönnu Ólafs-
dóttur og spænska gítarleikaranum og tónskáldinu
Francisco Javier Jáuregui og eru þau þekkt fyrir að
skapa mikla nánd við áhorfendur, innlifun, frumlegt
efnisval, heillandi framkomu, tilfinningaríka túlkun og
áhugaverðar kynningar, sem færa hlustendur inn í heim
hvers lags fyrir sig, eins og segir í tilkynningu.
Duo Atlantica flytur þjóðlög
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
Námskeið hjá Stílvopninu hafa legið
niðri á tíma kórónuveirufaraldursins
hérlendis, en Björg Árnadóttir, eig-
andi fyrirtækisins og kennari á nám-
skeiðunum, snýr aftur í dag þar sem
frá var horfið, nema hvað nú kennir
hún ritlistina á netinu í fyrsta sinn.
Björg segir að núverandi starf sitt,
það að kenna ritlist, hafi sprottið upp
úr myndlistinni. Hún hafi flutt með
eiginmanni sínum til Svíþjóðar 1983,
þá nýútskrifaður myndlistarkennari,
og fengið þar vinnu hjá stofnun sem
hafi haft það hlutverk að auka virkni
jaðarsetts fólks með listsköpun. „Ég
fór þar inn sem myndlistarkennari
og út sem ritlistarkennari,“ segir
hún, en eftir að hjónin fluttu aftur til
Íslands hélt hún sitt fyrsta ritlistar-
námskeið 1989.
Heilluð af ritlistinni hefur Björg
haldið áfram á sömu braut í yfir þrjá
áratugi auk þess sem hún hefur sinnt
ýmsum störfum, m.a. blaðamennsku,
ritstjórn og stjórnun fræðslufyrir-
tækja og rannsókna, en undanfarin
tólf ár hefur hún starfað sjálfstætt í
ReykjavíkurAkademíunni, þar sem
hún er með aðstöðu fyrir námskeiðin.
„Mér finnst ritlistin svo skemmtileg,
bæði að skrifa sjálf og leiðbeina öðr-
um um skrif,“ segir hún um áráttuna,
sem kunni að stafa af fjölda rithöf-
unda í fjölskyldunni. Ekkert sé henni
óviðkomandi á sviði ritlistar. Hún
kenni bæði á námskeiðum og í einka-
tímum, veiti ráðgjöf og taki að sér að
hjálpa fólki með ýmiskonar texta.
„Ég stofnaði Stílvopnið 2015 og síðan
hefur þetta verið mitt aðalstarf.“
Fjölbreyttur hópur
Björg segir að þátttakendur, að
hámarki 16 í hverjum hópi, hafi fjöl-
breyttar áherslur og misjafnan bak-
grunn og námskeiðin séu af ýmsum
toga. „Konur hafa verið fleiri en karl-
ar en körlunum fer fjölgandi og nám-
skeiðið Hetjuferðin höfðar sérstak-
lega til þeirra, ekki síst ungra karla,
sem er mjög skemmtilegt,“ segir
Björg, en Hetjuferðin er einmitt
fyrsta verkefni ársins. Hún leggur
áherslu á að hún hafi reynslu af því
að kenna öllum samfélagshópum en
ekki síst fólki sem hafi ekki skrifað
mikið og jafnvel ekki lesið mikið
enda hafi hún kennt hópum jaðar-
settra í mörgum löndum. „Almenn-
ingur kemur til mín, líka höfundar
útgefinna verka og allt þar á milli.
Allir passa saman á sama námskeið-
inu, allir læra með öllum, en ég býð
upp á margvíslega aðstoð og nýti
mér reynsluna af því að skrifa frá
skýrslum til skáldsagna.“
Björg sá sæng sína uppreidda
þegar kórónuveirufaraldurinn skall á
í fyrra og setti starfsemi Stílvopnsins
á ís. „Ég var með bók í smíðum og
ætlaði að einbeita mér að henni í
staðinn, en þá varð skyndilega aukin
eftirspurn eftir hliðarþjónustu minni,
sem ég hafði ekkert auglýst, aðstoð
minni við skrif og jafnvel skrifum
fyrir fólk,“ segir hún. „Þessi þjónusta
blómstraði, en ég hef líka gefið mér
tíma til þess að skrifa fyrstu skáld-
sögu mína og er að skrifa síðasta
kaflann.“
Fjarkennsla er nýlunda hjá
Björgu og hún segir mikla ögrun fel-
ast í breyttum vinnubrögðum. Hún
byggi leiðsögnina mikið á nánd og
samvinnu og hafi komist að raun um
að viðhalda megi hefðinni á netinu.
„Það leggst vel í mig að byrja aftur.“
Kennsla Björg Árnadóttir er vön að kenna í stofu en vegna kórónuveirufaraldursins byrjar fræðslan nú á netinu.
Stílvopnið og ritlistin
Björg aftur af stað með námskeið en nú á netinu
Verslun Tunguhálsi 10 - Sími 415 4000 – www.kemi.is - kemi@kemi.is
Airpop Light SE
öndunargríma
• Gríman er létt og situr vel á andlitinu
• Hindrar móðumyndun upp á gleraugu
• Það er léttara að anda í gegnum
Airpop Light SE en hefðbundnar grímur
• Hægt að nota í allt að 40 klst
(samtals notkun)
• Endurlokanlegar umbúðir til að geyma
hana milli þess sem þú notar hana
MIÐVIKUDAGUR 3. FEBRÚAR 34. DAGUR ÁRSINS 2021
Sími: 569 1100
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is
Í lausasölu 739 kr.
Áskrift 7.982 kr. Helgaráskrift 4.982 kr.
PDF á mbl.is 7.077 kr. iPad-áskrift 7.077 kr.
Keflavík er með nánast sama leikmannakjarna í ár og á
síðustu leiktíð og er það stór ástæða fyrir góðu gengi
liðsins í úrvalsdeild karla, Dominos-deildinni, í körfu-
bolta á tímabilinu að sögn Harðar Axels Vilhjálmssonar,
fyrirliða liðsins.
Liðið er með 12 stig í efsta sæti deildarinnar, hefur
unnið sex af sjö leikjum sínum og að undanskildu stór-
tapi gegn Stjörnunni í sjöttu umferð deildarinnar hefur
liðið varla stigið feilspor. Rætt er við Hörð Axel um
gengi Keflavíkur í blaðinu í dag. »23
Litlar breytingar á hópnum koma
Keflvíkingum til góða í vetur
ÍÞRÓTTIR MENNING