Morgunblaðið - 10.02.2021, Page 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 10. FEBRÚAR 2021
FALLEG LJÓS
Í ÚRVALI
Ármúla 24 • rafkaup.is
Páll Vilhjálmsson hefur, einsog landar hans, ótal skoð-
anir á bólugátunni miklu:
Líklega fáumvið bóluefni
frá Pfizer og lík-
lega verður þjóðin
bólusett með
snöggu átaki. Við
erum nokkuð flink
í áhlaupsverkum.
Efasemdir, sem komið hafafram, t.d. hjá Vilhjálmi
Árnasyni og fleirum, fá ekki
hljómgrunn.
Allar þjóðir eru í innbyrðissamkeppni um bóluefni.
Frá lýðheilsusjónarhorni get-ur tilraunin ekki klikkað.
Nema svo ólíklega vildi til að
bóluefnið yrði gallað.
En það er fleira sem hangir áspýtunni.
Takist tilraunin eru Íslend-ingar í þeirri stöðu að
þurfa ekki að hafa áhyggjur af
faraldri sem nær allar þjóðir
heims eru í öngum sínum yfir,
a.m.k. næstu mánuði ef ekki
misseri.
Hvernig ætlum við að hagaokkur í þeirri stöðu?
Íslandi sem vin í farsótt-areyðimörkinni stafar hætta
af átroðslu.
Huggulegheit geta auðveld-lega breyst í hörmungar.
Þá er betra heima setið en af
stað farið.“
Páll
Vilhjálmsson
Ótal sjónarhorn
STAKSTEINAR
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
Styrktarreikningur hefur verið
stofnaður fyrir börn og fjölskyldu
Freyju Egilsdóttur sem nýverið var
ráðinn bani í Danmörku. Hún lét eft-
ir sig tvö ung börn sem eru nú í
umsjá nákominna ættingja.
„Freyja var yndisleg móðir og góð
vinkona sem vildi allt fyrir alla gera.
Hún var ávallt tilbúin að rétta
hjálparhönd þegar á reyndi og gaf
sér tíma til að hlusta á aðra, hún var
sannarlega vinur vina sinna. Freyja
á tvær systur og móður búsettar hér
á Íslandi og langar okkur að styrkja
fjölskylduna til þess að þau hafi
tækifæri á að vera saman á þessum
erfiðu tímum. Hugur okkar er hjá
þeim og blessuðum börnunum,“ seg-
ir í fréttatilkynningu.
Númer söfnunarreikningsins er
0511-14-007189 kt. 250463-2789.
Sem kunnugt er fannst Freyja lát-
in á heimili sínu í
bænum Malling á
Austur-Jótlandi
2. febrúar síðast-
liðinn. Fyrrver-
andi sambýlis-
maður Freyju, 51
árs gamall, var
handtekinn grun-
aður um að vera
valdur að dauða
hennar. Hann hafði áður tilkynnt að
hún væri horfin og vöknuðu strax
grunsemdir við lýsingar mannsins.
Leitin beindist fljótt að heimili
Freyju þar sem lík hennar fannst.
Maðurinn játaði við yfirheyrslu
hjá lögreglu og var ákærður fyrir
manndráp og fyrir ósæmilega með-
ferð á líki. Hann fékk tíu ára dóm ár-
ið 1996 fyrir manndráp á barnsmóð-
ur sinni. gudni@mbl.is
Söfnun fyrir fjölskyldu Freyju
Freyja
Egilsdóttir
Börn hennar eru í umsjá nákominna ættingja Tvær systur og móðir búa á Íslandi
Að fenginni tillögu Þjóðminjasafns
Íslands og Listasafns Íslands til
mennta- og menningarmálaráðu-
neytisins hefur ráðherra tekið
ákvörðun um að verkefni Safnahúss-
ins við Hverfisgötu færist til Lista-
safnsins frá og með 1. mars næst-
komandi og verði vettvangur nýrrar
grunnsýningar þess. Sýningin Sjón-
arhorn sem staðið hefur yfir frá
árinu 2015 mun renna sitt skeið í
apríl en sýningin er samstarfsverk-
efni sex menningarstofnana um
sjónrænan menningararf.
Einstakur menningararfur
„Þjóðminjasafnið hefur veitt hús-
inu forstöðu frá 2013 og á þeim tíma
hefur rík áhersla verið lögð á sam-
vinnu stofnana í anda nýsköpunar í
opinberri stjórnsýslu. Það fer því vel
á því nú að Listasafn Íslands taki við
húsinu frá Þjóðminjasafninu,“ segir
Margrét Hallgrímsdóttir þjóðminja-
vörður. „Það er ánægjulegt að ráð-
herra hafi nú tekið ákvörðun um það
að þessi merka og fagra bygging
verði áfram vettvangur fyrir spenn-
andi safnastarf í þágu almennings.
Sérstaklega er spennandi að takast
á við það að nýrri grunnsýningu
verði ætlað að veita börnum og safn-
gestum almennt hughrif á grundvelli
okkar einstaka menningararfs sem
Listasafn Íslands varðveitir,“ segir
Harpa Þórsdóttir, safnstjóri Lista-
safns Íslands.
Stefnt á Menningarnótt
Aðspurð segir Harpa að það sé
áhugaverður kostur að nýta nýja
tækni og byggja á vísindum til fjöl-
breyttrar miðlunar, ekki síst til
yngstu gestanna. Undirbúningur og
hugmyndavinna við mótun sýningar
er hafin og viðmiðið að hún verði
opnuð á Menningarnótt, í síðari
hluta ágústmánaðar. sbs@mbl.is
Ný grunnsýning
opnuð í sumar
Listasafn Íslands fær Safnahúsið
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Safnahúsið Glæsilegri byggingu
verður fengið nýtt hlutverk.