Morgunblaðið - 10.02.2021, Síða 18

Morgunblaðið - 10.02.2021, Síða 18
18 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 10. FEBRÚAR 2021 Raðauglýsingar Félagsstarf eldri borgara atvinna@mbl.is Pantaðu pláss fyrir þína atvinnuauglýsingu á Aflagrandi 40 Opin vinnustofa kl. 8.30-12.30. Söngstund við píanóið, með Helgu kl. 13.45. Kaffi kl. 14.30-15. Bókaspjall með Hrafni kl. 15. Vegna fjöldatakmarkana þarf að skrá sig í viðburði hjá okkur og jafnframt er grímuskylda í Samfélagshúsinu, gestir bera ábyrgð á að koma með eigin grímu og passa uppá sóttvarnir. Nánari upplýsingar í síma 411-2702, allir velkomnir. Árskógar Opin vinnustofa kl. 9-12. Smíðar, útskurður með leiðbein- anda kl. 9-14. Stóladans með Þóreyju kl. 10.30. Bónusbíllinn fer frá Árskógum 6-8 kl. 12.55. Spænskukennsla kl. 14. Hádegismatur kl. 11.40-12.50. Kaffisala kl. 14.15-15.30. Heitt á könnunni, allir velkomnir. Grímuskylda og það þarf að skrá sig í viðburði eða hópa, 411-2600. Boðinn Handavinnustofa er opin frá kl. 13-16, skráning í síma 441- 9922, munið grímuskyldu og tveggja metra regluna. Sundlaugin er opin frá kl. 13.30-16. Bólstaðarhlíð 43 Opin handverksstofa kl. 9-16. Tálgað með Valdóri frá kl. 9.15. Morgunkaffi í kaffihorninu kl. 10. Opið kaffihús kl. 14.30. Vegna sóttvarnaregla biðjum við ykkur að skrá ykkur fyrirfram í alla viðburði hjá okkur í síma 535-2760. Bústaðakirkja Það verður opið hús hjá okkur kl. 13-16. Við gætum millibils og sóttvarna. Allt verður á sínum stað. Hlakka til að sjá yk- kur. Hólmfríður djákni. Félagsmiðstöðin Hæðargarði 31 Opið frá kl. 8.10-16. Kaffisopi og spjall kl. 8.10-11. Upplestararhópur Soffíu kl. 10-12. Línudans kl. 10-11. Hádegismatur kl. 11.30-12.30. Tálgun með Valdóri kl. 13-16. Síðdegis- kaffi kl. 14.30-15.30. Þátttökuskráning í síma 411-2790 og á skrifstofu. Grímuskylda og fjöldatakmörk miðast við 20 manns. Virðum allar sóttvarnir. Nánari upplýsingar í síma 411-2790. Garðabær Pool-hópur í Jónshúsi kl. 9. Gönguhópur fer frá Jónshúsi kl. 10. Gönguhópur fer frá Smiðju kl. 13. Stólajóga í Jónshúsi kl. 10 og 11. Málun Smiðju Kirkjuhvoli kl. 13. Zumba í sal í kjallara Vídalínskirkju kl. 16.30 og 17.15. Litlakot opið kl. 13–16 . Áfram skal gæta að hand-þvotti og smitvörnum og virða 2 metra reglu, athugið grímuskylda. Guðríðarkirkja. Það verður opið hús hjá okkur kl. 13, við pössum uppá millibilið og virðum sóttvarnir. Spjall, og samvera ásamt hug- vekju og bæn. Hrönn organisti kemur og spilar nokkur lög og við syngjum undir hjá henni og Lovísa töfrar fram kaffi og meðlæti, kr. 700.- Við hlökkum til að sjá ykkur, starfsfólk Guðríðarkirkju; sr. Karl, sr. Leifur, Hrönn og Lovísa. Gullsmári Myndlist kl. 9. Postulínsmálun kl. 13. Sóttvarnir, grímu- skylda og tveggja metra reglan. Hraunsel Dansleikfimi á þriðjudögum og fimmtudögum kl. 8.30 og 9.30. Bingó á miðvikudögum kl. 13. Handverk á miðvikudögum kl. 13. Píla á fimmtudögum kl. 13. Línudans á föstudögum kl. 10 og 11. Grímuskylda og 2ja metra reglan eru í gildi og nauðsynlegt að skrá sig í allt starf fyrirfram í síma 5550142. Hvassaleiti 56-58 Morgunkaffi og spjall frá kl. 8.30-10.30. Útvarps- leikfimi kl. 9.45. Dansleikfimi kl. 10. Handavinnuhópur kl. 13-16. Bíó- dagar í Hvassaleiti kl. 13.15 miðvikudag, fimmtudag og föstudag. Bíómyndin Á hverfanda hveli ,,Gone With The Wind“ sýnd í þremur hlutum. Korpúlfar Glerlistarnámskeið kl. 9 í Borgum í dag. Gönguhópar leggja af stað kl. 10 frá Borgum og inni í Egilshöll. Minnum á skrán- ingu í mat og kaffiveitingar fyrir kl. 12 deginum áður. Allir velkomnir, kaffi á könnunni. Grímuskylda í Borgum og 20 manna hópaskipting. Takk fyrir tillitssemina, við gerum þetta saman, það er gaman. Seltjarnarnes Gler á neðri hæð félagsheimilisins kl. 9 og 13. Leir á Skólabraut kl. 9. Botsía í salnum á Skólabraut kl. 10. Kaffispjal í krókn-um kl. 10.30. Handavinna, samvera og kaffi í salnum á Skólabraut kl. 13-16. Á morgun fimmtudag verður bingó í salnum á Skólabraut kl. 13.30. Grímuskylda er í félagsaðstöðunni á Skólabraut. Virðum almennar sóttvarnir. Smáauglýsingar Sumarhús Sumarhús – Gestahús – Breytingar  Framleiðum stórglæsileg sumarhús í ýmsum stærðum.  Tökum að okkur stækkun og breytingar á eldri húsum.  Smíðum gestahús – margar útfærslur.  Sjáum um almennt viðhald á sumarhúsum og sólpöllum.  Setjum niður heita potta og smíðum palla og skjólveggi. Áratugareynsla – endilega kynnið ykkur málið. Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn, sími 892-3742 og 483-3693, www.tresmidjan.is með morgun- nu ✝ Herdís Stein-grímsdóttir sameindalíffræð- ingur fæddist í Reykjavík 26. mars 1953. Hún lést á Royal Sussex County-sjúkrahús- inu í Brighton á Englandi 24. jan- úar 2021. Foreldrar henn- ar voru Jóhanna Eggertsdóttir, húsmóðir, f. 31.5. 1919, d. 12.5. 1975, og Steingrímur Benediktsson garðyrkjufræðingur, f. 9.6. 1915, d. 25.9. 1997. Systkini hennar eru: Unnur, f. 18.10. 1945; Benedikt Stein- ar, f. 18.8. 1947; Björk, f. 20.4. 1949, d. 22.6. 1973; Eggert, f. 21.1. 1951, og Steinunn, f. 24.4. 1961. Þá átti Herdís eina hálf- systur (samfeðra), Steinunni Margréti, f. 2.2. 1942. Herdís kynntist eftirlifandi eiginmanni sínum, Dave Gill- ard endurskoðanda, f. 30.11. 1953, á háskólaárunum í Leeds og giftust þau í janúar 1983. Synir þeirra eru: (1) Daniel, lífefna- og tölvufræðingur, f. 22.7. 1982. Hann er í sambúð fékk Herdís starf á rannsókn- arstofu við sameindalíffræði- deild Háskólans í Sussex. Hún fékk brennandi áhuga á faginu og sýndi strax hvað í henni bjó. Fyrr en varði hóf hún nám í fræðunum samhliða vinnu. Herdís lauk doktorsprófi í sam- eindalíffræði 1990. Næstu árin starfaði hún áfram við rann- sóknir við háskólann í Sussex og við King’s College í London. Árið 1998 stofnaði hún ásamt Dave líftæknifyrirtækið Microzone, þar sem hún hóf þróun á prófefnablöndum fyrir sameindalíffræðilegar rann- sóknir. Þannig tók hún þátt í þróun á bóluefnum við ýmsum illvígum smitsjúkdómum, s.s. berklum. Hún lætur eftir sig mikið rannsókna- og þróun- arstarf. Í árslok 2018 seldu þau fyrirtækið, en Herdís vann sem ráðgjafi nýju eigendanna. Síð- astliðið vor leituðu þeir til hennar um þróun á prófefna- blöndu fyrir skimun á Co- vid-19. Fljótlega varð til nýtt skimunarpróf sem var tekið í notkun í september að loknum klínískum athugunum. Herdís var kona sem hafði ætíð ráð undir rifi hverju; hún dó ekki ráðalaus. Útför Herdísar verður frá Downs Crematorium Main Chapel í Brighton, í dag, 10. febrúar 2021, klukkan 14 og verður henni streymt til ætt- ingja og vina. með Maija Hall lögfræðingi. Þau búa í London; (2) Róbert, f. 6.7. 1985, hljóðverk- fræðingur og hönnuður. Róbert er í sambúð með Marie Lytken, hús- gagnasmiði og hönnuði. Þau búa í Kaupmannahöfn. Þegar Herdís fæddist, bjó fjölskyldan í Þor- móðsdal í Mosfellssveit og þar eyddi hún bernskuárunum en 1960 fluttist fjölskyldan til Reykjavíkur. Hún hóf skóla- göngu í Laugarnesskóla, en ár- ið 1973 lauk hún stúdentsprófi frá MR. Að prófi loknu vann hún hjá Rannsóknarráði rík- isins, en hélt til Englands 1974 og hóf nám í matvælafræði við Háskólann í Leeds. Hún lauk BS-prófi 1978 og vann síðan við matvælarannsóknir við há- skólastofnanir í Leeds. Herdís og Dave fluttu til Ís- lands 1980; þau bjuggu í Reykjavík og starfaði Herdís á RALA. Í apríl 1983 fluttu þau til Englands og settust að í Brighton. Í ársbyrjun 1984 Þegar Hedda var námsmaður í Leeds á áttunda áratugnum komumst við að því að enginn spegill var til á hennar litla heimili. Flestar ungar konur hefðu líklega saknað slíks hús- gagns, en ekki Hedda. Hún þurfti enga spegla til þess að vita hver hún var. Við vinkonurnar höfum feng- ið að vera samferða Heddu gegnum lífið. Þess vegna bland- ast minningarnar um tímabilin og árin okkar saman í lifandi púsluspil. Þess vegna er Hedda enn menntaskólastúlkan sem vann í sjoppunni á Langholts- veginum – sú sem var búin með kaupið sitt nokkrum dögum eft- ir útborgun þótt hún eyddi nán- ast engu í sjálfa sig. Hún er líka unga stúlkan í Íslandsúlpunni með nafnið Che skrifað stórum stöfum á bakið, tilbúin að takast á við óréttlæti heimsins. Og einnig sú sem vann á Herjólfi áður en hún fór til Leeds að læra matvælafræði þar sem hún hitti manninn sinn, öðlinginn hann Dave. Hún er unga konan sem settist að í Brighton og bjó þar síðan með Dave og strákun- um þeirra tveimur. Hún er einnig vísindamaðurinn og at- hafnakonan sem stofnaði Micro- zone-líftæknifyrirtækið og rak um langt árabil og örláta vin- konan sem bauð okkur í æv- intýraferðir um sveitir Eng- lands, í gönguferð um Yorkshire-dalina, í vikuferð um ána Thames á langbát, til vi- kudvalar á gömlu herrasetri í Devon og fleiri ógleymanlegar ferðir. Hedda var alltaf stór- huga og ákveðin en um leið sanngjörn og góðviljuð. Hjarta- hlýr töffari – gjarnan með kankvíst bros á vör, tilbúin að takast á við áskoranir og erf- iðleika með jákvæðu hugarfari og spriklandi húmor. Þannig er Hedda í hjörtum okkar, á ýms- um aldri og óteljandi góðum vinafundum. Gálgahúmor Heddu var alla tíð til staðar. Og orðin „hún dó ekki ráðalaus“ lýsa henni best. Um leið og við þökkum Heddu samfylgdina og örlætið sendum við Dave og strákunum okkar innilegustu samúðar- kveðjur. Ragnheiður, Auður og Guðrún Íris. Kæmi maður heim til Her- dísar vinkonu okkar að kvöldi til þegar við vorum unglingar var eins víst að öll fjölskyldan sæti í kvöldkaffi í eldhúsinu, og hlátrasköll kvæðu við. Færum við vinkonurnar á flakk kom Björk, eldri systir Heddu, ávallt með, og væri gangan lengri en heilsa hennar leyfði var hún umsvifalaust tekin á hestbak af einhverri stöllunni. Mikið var hlegið saman þá, og þegar Steina yngsta systirin var með í för í Englandi 2013 rifjaðist upp glaði hlátur systranna fyrrum. Hedda var þá og síðar einstak- lega fjölskyldu- og vinrækin. Í MR var Hedda stúlka sem stóð fyrir sínu og tók til dæmis ekki þegjandi athugasemdum kennara sem beindust að því sem litlu skipti, svo sem stóru R-i inni í miðjum orðum í stíl á töflunni. Hedda leitaði til stjórnenda og fékk hnekkt þeim úrskurði að hún skyldi stroka út öll R-in í stílnum. Áræði ein- kenndi námsferil hennar sem var í raungreinum, innanlands og síðar á Englandi. Áræði var það líka þegar hún stofnaði sitt eigið fyrirtæki í Englandi og rak það af myndarskap. Hún varð fyrir miklu áfalli tvítug að aldri, er Björk systir hennar lést eftir hjartaaðgerð í Bretlandi. Móðir Heddu og kær móðursystir kvöddu einnig á skömmu árabili. Samstaða fjöl- skyldunnar og vinátta skipti mestu, og miklir kærleikar voru með Heddu og „Steina Ben.“, eins og hún nefndi gjarnan föð- ur sinn sem oft heimsótti hana til Englands. Hedda og Dave, maðurinn hennar, voru sérlega úrræðagóð sem foreldrar tvítyngdra sona. Þriggja ára búseta hérlendis dugði Dave til að læra íslensku svo vel að æ síðan var hún heimilismálið. Þetta skipti öllu máli í heimsóknum afa, og Daniel og Róbert skiptu líka vandræðalaust yfir í íslensku í ferðum heim til Íslands. Heimili þeirra í Brighton var opið vinum, jafnvel heilu fjöl- skyldunum. Þar fengum við að læra frá fyrstu hendi hversu vel Hedda, Dave og strákarnir kunnu að njóta lífsins. Að hjóla og ganga um fjöll og firnindi, elda góðan mat, njóta þess að borða úti, gjarnan framandi rétti – og taka fram spilastokk við borð á veitingastað, ef son- unum leiddist að bíða eftir matnum þegar þeir voru yngri. Það var fastur liður hjá Heddu og Dave að bjóða hvort öðru í óvissuferð á afmælinu – flug eða lest, og að kvöldi var komið í nýja borg í nýju landi, að borða úti á nýjum stað. Seinna leiddi hún íslenska saumaklúbb- inn sinn í ótrúlegar óvissu- og ævintýraferðir sem lengi verða í minnum hafðar. Hedda ræktaði vinskap við menn og málleysingja og átti góða fjölskyldu, vini á ýmsum aldri, frá Íslandi, Englandi, Kólumbíu – og hunda, sem voru oft tveir og gáfu henni mikla gleði. Vinkona frá Íslandi sat í sófanum og ræddi við Heddu við litla hrifningu tíkurinnar Týló. Greinilega rétt hjá Heddu að betra væri að hundarnir væru tveir á heimilinu, svo þeir hefðu líka félagsskap hvor af öðrum. Innilegar samúðarkveðjur til Dave, sona og tengdadætra, til Lellu og Daneliu og allra ást- vina Heddu. Eva, Helga og María Vigdís. Hugurinn hvarflar til ung- lingsáranna þar sem vinkonur hittast og spjalla, ólíkar stelpur sem endurspegla umrót tímans. Umræðurnar snerust gjarnan um þjóðfélagsmál, tónlist og framtíðarplön. Það lá fyrir að hópurinn mundi tvístrast um tíma þar sem sjálfsagt þótti að finna áhugamálum sínum far- veg hér heima eða ytra en leiðir lágu saman á ný eins og ósýni- legur segull togaði. Vísindamað- urinn Herdís Steingrímsdóttir settist að í Brighton ásamt manni sínum Dave og tveimur sonum en hún hélt sambandinu við okkur lifandi með tíðum heimsóknum enda Dave aðdá- andi íslenskrar náttúru og tal- aði tungumálið. Vinkvennahóp- urinn stækkaði og fleiri fengu að kynnast Heddu okkar sem geislaði af lífsorku. Bros og hlátur hennar var eins og hressandi andblær. Ekkert vol né víl í návist hennar. Þannig hugarfar er farsælast þegar ferðast er saman og ferðirnar áttu eftir að verða margar. All- ar þær ævintýralegu göngu- ferðir á breskri grundu sem hún skipulagði eru ógleyman- legar. Átti hún það til að koma okk- ur á óvart með því að láta ekk- ert uppi um áfangastað og til- högun ferðar, heldur segja bara; þið mætið á flugvöllinn og ég sæki ykkur. Hvern hefði grunað viku siglingu á Thames eða dvöl á herragarði frá 17. öld? Var henni metnaðarmál að við borðuðum staðbundinn breskan mat sem finna má á matseðlum breskra kráa og herragarða. Rausnarskap henn- ar voru engin takmörk sett og forgangsraðaði hún hlutunum samkvæmt lífsgildum sínum þar sem falleg samskipti og vinátta voru í fyrirrúmi. Stórt skarð er nú hoggið í hópinn og þökkum við samfylgdina, allar góðu stundirnar og vottum nánustu aðstandendum okkar dýpstu samúð. Kristjana, Kristín, Rakel og Þórunn. Við viljum kveðja kæra vin- konu okkar, Herdísi Stein- grímsdóttur, Heddu, með nokkrum orðum. Við kynntumst Heddu fyrir rúmum 35 árum fyrir hreina tilviljun á götu- markaði í Brighton. Þessi til- viljun varð okkur til mikillar gæfu. Við eignuðumst hana að vini. Milli okkar varð það sem við viljum kalla djúp vinátta. Þótt stundum liðu mánuðir á milli þess að við heyrðumst eða ár á milli þess að við hittumst var alltaf eins og við hefðum heyrst eða sést í gær. Og við fengum líka að kynnast Dave, manninum hennar, þessum ein- staka öðlingi, og sonunum tveimur, Daniel og Róbert, sem heita alltaf Danni og Robs á okkar heimili og eru eins og hluti af fjölskyldunni. Hedda bjó yfir mörgum mannkostum. Efst í huga er heiðarleikinn, hreinskilnin, gjaf- mildin og gestrisnin. Hún kom alltaf til dyranna eins og hún var klædd, sagði skoðanir sínar umbúðalaust. Hún var femín- isti. Þau Dave höfðingjar heim að sækja. Margar góðar veisl- urnar höfum við setið í hús- unum þeirra fallegu í Brighton. Og ekki má gleyma kímnigáf- unni hennar sem stundum var skemmtilega kaldhæðin. Ógleymanlegar eru gönguferð- irnar með þeim Dave um sveitir Sussex þar sem farið var á milli kráa og spjallað um allt milli himins og jarðar eða heimsókn í skógarlundinn hans Dave. Og margar góðar samverustundir höfum við átt með henni og þeim hér á landi, meðal annars í sumarbústaðnum okkar við Meðalfellsvatn. Þær stundir hefðu vissulega mátt vera enn fleiri. Og ekki má gleyma því að Hedda var skarpgreindur vís- indamaður; raunvísindakona, og ekki síður frjór hugvitsmaður. Hér verður ekki sögð saga af því hvernig við fengum að njóta góðs af því á ögurstundu. En hjá Heddu var allt „ekkert mál“. Eftir að hafa starfað lengi á rannsóknarstofu við Sussex- háskólann stofnaði Hedda eigið fyrirtæki í kringum uppgötvan- ir sínar í lífvísindum. Hún naut þess að vinna sjálfstætt. Um margra ára skeið, líklega í ein tíu ár, meðan Danni og Robs voru ungir, höfðum við (Lilja) það hlutverk að aðstoða Heddu og Dave við að finna þeim au-pair. Flest þeirra ung- menna sem fengu starfið urðu síðan nánast eins og hluti af fjölskyldu þeirra. Ræktarsemi er svo sannarlega orð sem kem- ur í hugann þegar við minnumst Heddu. Fyrir ári birtist hún óvænt í stórafmæli – kom án þess að gera boð á undan sér – í sólarhringsferð – bara til að vera með okkur og koma okkur skemmtilega á óvart. Svona var Hedda. Við sendum Dave, Danna, Maiju, Robs og Marie og öðrum aðstandendum okkar innileg- ustu samúðarkveðjur. Söknuð- urinn er sár. Megi allar góðu minningarnar sem við eigum um Heddu létta sorgina. Það eru forréttindi að hafa fengið að eignast hana að vini. Lilja og Ingvar. Herdís Steingrímsdóttir

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.