Morgunblaðið - 10.02.2021, Síða 21
DÆGRADVÖL 21
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 10. FEBRÚAR 2021
Trésmíðavélar frá
Fartools
Laugavegi 29 | sími 552 4320 | www.brynja.is | verslun@brynja.is
rum með þúsundir vörunúmera
inn á vefverslun okkar brynja.is
E
Opið
virka
daga
frá 9
-18
lau fr
á 10-
16
Borðsög
TS188C
Verð 69.670
Rennibekkur TFB1000
Verð 198.000
Rennibekkur TBS400
Verð 77.570
Borabrýni
Verð 12.500
Slípiband CP150
Verð 39.980
Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger
„TENNURNAR ERU FÍNAR EN ÞESSIR
GÓMAR ÞURFA AÐ FJÚKA.”
Hermann
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... að bíða eftir þér.
BRJÁLAÐ
AÐ GERA?
ÞESSI VEGGUR
STARIR EKKI Á
SIG SJÁLFUR
SJÁÐU HRÓLF SYNDA
AÐ BAUJUNUM!
ÉG HELD AÐ ÞETTA SÉU
EKKI BAUJUR BUSLI
BUSL
„ÉG ER BÚINN AÐ PANTA ÓMSKOÐUN
FYRIR ÞIG Á MÁNUDAGINN,
ÞRIÐJUDAGINN OG MIÐVIKUDAGINN.”
Fjölskylda
Eiginkona Guðmundar er Ragna
María Ragnarsdóttir, f. 12.1. 1948,
framkvæmdastjóri. Þau eru búsett í
Smárahverfinu í Kópavogi. For-
eldrar Rögnu voru hjónin Ragnar Á.
Bjarnason, f. 3.4. 1917, d. 5.4. 1948,
járnsmiður og María Halldórsdóttir,
f. 10.4. 1923, d. 19.3. 2016, versl-
unarmaður.
Börn Guðmundar og Rögnu eru:
1) Ragnar, f. 2.4. 1968, íþróttafræð-
ingur, búsettur í Hjørring í Dan-
mörku. Maki: Nicole Cordes íþrótta-
fræðingur. Börn: Laura Björk, f.
1998, og Julia Ósk, f. 2003; 2) Þórunn
Kristín, f. 28.5. 1969, klínískur lyfja-
fræðingur, búsett í Kópavogi. Barn:
Rebekka Ýr Guðbjörnsdóttir, f.
1999; 3) Hörður, f. 10.2. 1974, flug-
stjóri, búsettur í Reykjavík. Maki:
Melanie Powell, sérfræðingur í geð-
heilsu. Börn: Sunna Björg, f. 2006,
Embla, f. 2014, og Fróði, f. 2016; 4)
María Björk, f. 24.5. 1982, kvik-
mynda- og dagskrárgerðarkona, bú-
sett í Reykjavík. Maki: Einar Jón
Snorrason vélstjóri. Barn: Guð-
mundur Hildimar, f. 2013.
Systkini Guðmundar: Oddfríður
Lilja Harðardóttir, f. 23.12. 1941, d.
16.2. 2013, hjúkrunarkona, búsett
lengst í Fossvogshverfinu í Reykja-
vík; Kristján Harðarson, f. 15.7.
1948, vélfræðingur, búsettur í Mos-
fellsbæ.
Foreldrar Guðmundar voru hjón-
in Hörður Guðmundsson, f. 7.5.
1918, d. 9.2. 1999, bakarameistari, og
Steinunn Kristjánsdóttir, f. 5.4.
1916, d. 29.6. 2008, verslunarmaður.
Þau voru búsett lengst af í Skipholti
og Kambsvegi í Reykjavík.
Guðmundur Þorbjörn
Harðarson
Oddur Jónsson
formaður í Brautarholti í Reykjavík
Guðrún Árnadóttir
húsfreyja í Brautarholti
í Reykjavík
Guðmundur Ragnar Oddsson
bakarameistari og forstjóri Alþýðubrauð-
gerðarinnar og bæjarfulltrúi í Reykjavík
Oddfríður Steinunn Jóhannsdóttir
húsfreyja á Laugavegi 61 og
Öldugötu 50 í Reykjavík
Hörður Guðmundsson
bakarameistari og
leigubílstjóri í Reykjavík
Jóhann Björnsson
verkamaður í Reykjavík
Helga Tómasdóttir
húsfreyja á Bræðraborgarstíg 24 a í Reykjavík
Guðjón Jónsson
trésmiður í Reykjavík
Katrín Guðrún Schram
húsmóðir á Bjarnarstöðum og
Þóroddsstöðum í Grímsnesi
Kristján Schram Guðjónsson
verkamaður í Gasstöðinni og
kyndari í Reykjavík
Kristín Guðmundsdóttir
húsmóðir í Reykjavík, dó úr spænsku veikinni
Guðmundur Gíslason
vinnumaður á Lambastöðum á
Seltjarnarnesi, síðar sjómaður
í Reykjavík
Þorbjörg Steinsdóttir
húsfreyja á Kirkjuhóli í Seyluhr., Skag.
Úr frændgarði Guðmundar Þ. Harðarsonar
Steinunn Kristjánsdóttir
húsmóðir og
verslunarmaður í Reykjavík
Sigurlín Hermannsdóttir skrifaðií Boðnarmjöð á mánudag:
„Bóndi minn var að reyna að þrífa
bílinn með óhreinni tusku. Hann
fékk þessa athugasemd“:
Sannleikann ég segja hlýt
því svo er heimur gerður:
Ef þú þrífur skít með skít
skítugt áfram verður.
Philip Vogler, Egilsstöðum, svar-
aði:
Ef á veröld kalt við kíkjum,
korni sannleiks frá ei víkjum:
skítlegt eðli ræður ríkjum,
réttan lit við aldrei svíkjum.
Maðurinn með hattinn segir eins
og satt er:
Skyldi einhver hnjóta hér
og hrasa í mikinn vanda.
Lítil hjálpin löngum er
sem lætur á sér standa.
Jón Thoroddsen yrkir:
Allt er fullt með ósóma
sem ekki tjáir mína boðun.
Flest ég kalla fordóma
er fellur ekki að minni skoðun.
Margur getur tekið undir með
Dagbjarti Dagbjartssyni þegar
hann segir: „Hafið þið nokkurn
tíma velt því fyrir ykkur hvað það
er merkilegt að flest það fólk sem
er manni sammála í einhverjum
deilumálum er vel gefið og víðsýnt
skynsemdarfólk en þeir sem eru
ósammála eru að mestu leyti þröng-
sýnir, illa gefnir þverplankar? Al-
veg merkilegt.“:
Ég álít þá andlega lasna
og upplagt að geta þess hér,
flesta þá endemis asna
sem ekki eru sammála mér.
Hallmundur Guðmundsson svar-
aði:
Því mun seint ég segja frá
að sértu viti rændur,
því efalaust þá allir sjá;
að við séum frændur.
Indriða á Skjaldfönn verður
hugsað austur í Þingeyjarsýslu „til
Fíu á Sandi – að gefnu tilefni“:
Fía B. mín frænka er
og fjarskalega klár.
Við dægurvísur dundar sér
og drekkur á við þrjár.
Ekki stóð á svarinu: „Satt segirðu
frændi“:
Ýmsa steypu yrki ég
ógn er vísna sjórinn.
Og óðar en ég andann dreg
allur klárast bjórinn.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Bílþvottur og víðsýnt
skynsemdarfólk