Morgunblaðið - 24.02.2021, Side 13

Morgunblaðið - 24.02.2021, Side 13
FRÉTTIR 13Erlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 24. FEBRÚAR 2021 Smiðjuvegi 34 • gul gata Kópavogi • biljofur@biljofur.is Viðgerðir // Bilanagreining // Varahlutir // Smurþjónusta 544 5151 tímapantanir Rótgróið fyrirtæki, starfrækt frá 1992 Getum sótt og skilað bílum á höfuðborgarsvæðinu án endurgjalds Förum yfir bifreiðar fyrir aðalskoðun/endurskoðun og förum með bifreiðina í skoðun Kominn tími á aðalskoðun? Allar almennar BÍLAVIÐGERÐIR 25% afsláttur af vinnu út febrúar Ríkustu þjóðir heims fordæmdu í gær yfirmenn hers Mjan- mar, áður Búrma, og herforingjastjórnarinnar fyrir að svara kröfum friðsælla andstæðinga valdaráns hersins um endur- reisn lýðræðis í landinu og endurkomu Aung San Suu Kyi í Yangon með vopnavaldi. „Beiting skotvopna gegn óvopn- uðum almenningi er óviðunandi,“ sagði í harðorðri yfirlýs- ingu leiðtoga G7-ríkjanna. Hafa ESB og Bandaríkin verið að herða efnahagslegar refsiaðgerðir gegn Mjanmar. Mun her- inn hafa skotið minnst þrjá friðsama mótmælendur síðustu daga. Í gær settu Bandaríkin yfirmann flughers Mjanmar og samverkamenn á svartan lista sem takmarkar ferðafrelsi þeirra. Mörgum var heitt í hamsi við mótmæli í Yangon í gær. AFP Skotárás á mótmælendur harðlega fordæmd Ágúst Ásgeirsson agas@mbl.is Facebook hefur söðlað um og aft- urkallað bann sitt við birtingu frétta- efnis á samfélagsmiðli sínum í Ástr- alíu. Notendur síðunnar höfðu ekki haft fullan aðgang að henni frá því á fimmtudag vegna ágreinings um fyr- irhugaða löggjöf sem knýja myndi Facebook og Google til að borga fjöl- miðlum fyrir að brúka fréttir þeirra. Josh Frydenberg, fjármálaráð- herra Ástralíu, sagði eftir viðræður sínar við Mark Zuckerberg, for- stjóra Facebook, að fréttabanninu myndi ljúka á næstu dögum. Sagði Frydenberg að breytingar yrðu gerðar á lögum er ná myndu yfir starfsemi miðla samfélagsrisanna. „Facebook er vinur Ástralíu á ný,“ sagði hann í Canberra í gær. Frumvarp ríkisstjórnar Ástralíu er nú til meðferðar í þinginu. Það hefur þegar verið samþykkt í full- trúadeildinni og var á dagskrá öld- ungadeildarinnar í gær. Litið er svo á að lögin geti orðið prófsteinn fyrir málshöfðun á alþjóðavísu. Í sáttinni sem náðist á fundi Fryd- enbergs og Zuckerbergs felst að frumvarpinu verði breytt á þann veg að Google og Facebook geti gert samninga við ástralska fjölmiðla sem átt hafa erfitt uppdráttar og veiti þeim þannig stóraukið fjár- magn fyrir afnot af fréttum þeirra. Í staðinn losna risarnir tveir undan skyldugreiðslum sem hefðu getað orðið miklu hærri en hefðu einnig haft fordæmisgildi fyrir aðrar heimsálfur. Aðeins nokkrum stundum eftir sáttina tilkynnti Facebook fyrsta samning sinn við ástralska fjölmiðla- félagið Seven West. Voru aðrir samningar við önnur staðbundin fjölmiðlasamtök sagðir í farvatninu. Verða þessir samningar nýttir til að hleypa nýrri fréttaþjónustu af stokk- um síðar á árinu sem byggja mun á efni sem framangreindir samningar veita stafrænu risunum aðgang að. Skynsamleg málamiðlun „Með þessum breytingum getum við haldið áfram á þeirri braut að fjárfesta í alþýðlegri fjölmiðlun og endurreisa Facebook fyrir Ástrala á næstu dögum,“ sagði Will Easton, aðalstjórnandi Facebook í Ástralíu. Google hefur þegar samið við ástr- ölsk fjölmiðlafyrirtæki, þar á meðal þau tvö stærstu, News Corp, sem er í eigu Ruperts Murdochs, og Nine Entertainment. Eru þeir samningar sagðir margra milljóna dollara virði. Fréttaskýrendur segja að sam- komulag Frydenbergs og risafyrir- tækjanna tveggja sem tekist hafi á síðustu stundu fyrir lagasetningu séu „skynsamleg málamiðlun“, og að allir geti farið sáttir frá borði. Hafa nú Facebook og Google tveggja mánaða umþóttunartíma til frekari samninga við fjölmiðlafyrirtæki svo ekki komi til þess að deilumálin verði sett í bindandi gerðardóm. Facebook og Google höfðu barist kröftuglega gegn lagasetningunni alla tíð, en netrisarnir óttuðust að lögin myndu ógna viðskiptamódelum þeirra. Einkum og sér í lagi lögðust þau gegn reglum er skylduðu þau til samninga við áströlsk fyrirtæki ann- ars vegar og veittu óháðum áströlsk- um sáttasemjara heimild til að knýja þá til að taka gerð sinni. Undan þessu öllu losna fyrirtækin verði það mat sérfræðinga að með beinum samningum við fjölmiðlafyrirtækin hafi þau „veitt verulegt framlag“ til ástralskrar fréttafjölmiðlunar. Síðasta áratuginn hafa þúsundir starfa blaða- og fréttamanna og fjöldi fjölmiðlafyrirtækja horfið í Ástralíu vegna aukinnar áherslu á stafræna fréttamiðlun í stað hefð- bundinnar blaðaútgáfu, en áætlað er að um helmingur allra auglýsinga- tekna í Ástralíu hafni hjá Google og um fjórðungur hjá Facebook. Facebook afléttir fréttabanninu  Netrisarnir greiða áströlskum fjölmiðlum fyrir afnot frétta AFP Ná sáttum Facebook og Google hafa sæst við stjórnvöld í Ástralíu. Bretar hafa sleppt fram af sér beisl- inu og pantað ferðir í allar áttir í framhaldi af ræðu Boris Johnsons í þinginu í fyrradag þar sem hann birti ítarleg áform um afnám þvingana í þágu smitvarna og lét svo ummælt að færi flest á besta veg gætu Bretar verið komnir yfir kórónuveirufaraldurinn síðsumars. Þrátt fyrir að enn sé mörgum spurningum ósvarað um hvenær hægt verði að hefja millilandaflug til og frá Bretlandi á ný jukust bók- anir í ferðir Tui, stærstu ferðaskrif- stofu Bretlands, um 500% í gær. Voru það mest ferðir til sólríkra landa eins og Grikklands, Spánar og Tyrklands frá og með júlí. Þá sagðist eigandi ferðamiðl- arans Hoseasons Cottages hafa selt 10.000 gistipakka innanlands sem væri algjört met. Flugfélög nutu góðs af bjartsýninni en þannig juk- ust bókanir í ferðir með EasyJet í gær um 337% miðað við sama dag vikunni fyrr. Við þetta snarhækk- uðu hlutabréf í félaginu, samkvæmt tilkynningu. Hið sama er að segja um flesta keppinauta EasyJet. Ferðaskrifstofan Thomas Cook sagði að heimsóknum á netsíðu hennar hefði fjölgað um rúmlega 100% í gær. „Bókunum rignir yfir okkur til áfangastaða í Grikklandi, Kýpur, Mexíkó og Dóminíkanska lýðveldinu,“ sagði á síðunni. Bóka utanlandsferðir í stórum stíl AFP Barcelona Bretar eru tíðir gestir í sólarlöndum og vonast eftir betri tíð. BRETLAND

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.