Morgunblaðið - 24.02.2021, Side 14

Morgunblaðið - 24.02.2021, Side 14
14 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 24. FEBRÚAR 2021 Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/ Margt hefurbjargastfrá glötun vegna þess að gæt- ið fólk og góðviljað hefur tekið svari þess. Þess vegna er tekið eftir því þegar Hollvinafélag Austur- bæjarskóla biður um að aðrir leggi þeim lið svo ekki verði haft af þeim dulítið rými í risi skólans, sem skólastjórinn hafði tryggt því svo að mætti „varðveita þar gamla muni, bækur, myndir og skjöl skól- ans. Áhugasamt félagsfólk vinn- ur sjálfboðastarf við að koma hlutunum fyrir í risinu og taka á móti gestum og gangandi, t.d. á menningarnótt og vorhátíð. Guðmundur R. Sighvatsson, fyrrverandi skólastjóri, varð- veitti þessa gömlu muni og átti frumkvæðið að því að sýna þá,“ eins og segir í ályktun félags- ins. Þar segir og: „Hollvina- félag Austurbæjarskóla, með skólamunastofuna sem sitt að- alverkefni, hefur verið í sam- starfi við Reykjavíkurborg í 20 ár og er skemmst að minnast ánægjulegs samstarfs við borgarskjalasafn við að flokka gamla pappíra og koma þeim í varðveislu. Þar er oft um ómetanlegar heimildir að ræða. Félagar í hollvinafélaginu eru á ýmsum aldri, flestir eru fyrrverandi nemendur og starfsfólk. Sumir hafa fært fé- laginu góða gripi, s.s. skrifborð Stefáns Jónssonar rithöfundar, og hafa sýnt skóla- munastofunni mik- inn áhuga og einn- ig skólanum sjálfum sem er lík- lega merkasti safn- gripurinn. Skólamunastofan í Austurbæjarskóla er einstök á landsvísu.“ Yfirvöld í Reykjavík sækjast eftir fyrrnefndu afdrepi. En óneitanlega virðist það illa fall- ið til þeirrar starfsemi sem nefnt er í bréfi til Hollvina- félagsins eins og formaður þess bendir á: „Það hreinlega getur ekki verið vilji yfirvalda að safngripirnir fari á haugana eða í ófullkomnar geymslur hér og þar. Það er löngu tímabært að íslensku skólastarfi sé sýnd sú virðing að saga þess og þró- un sé einhvers staðar sýnileg. Skólamunastofan er vísir að þess konar safni, og það er von okkar og trú að yfirvöld sýni henni áhuga og stuðli að við- haldi hennar og viðgangi. Skólamunastofan er í löngu, mjóu herbergi undir súð í risi Austurbæjarskóla, langt frá annarri starfsemi skólans. Margir stigar eru þangað upp en engin lyfta. Á henni eru ein- göngu þakgluggar og ekkert útsýni. Dyr eru á báðum end- um stofunnar og almenn um- ferð í gegn. Bannað er að læsa stofunni með sérlyklum af ör- yggisásæðum. Engar snyrt- ingar eru nálægar, ekkert rennandi vatn og langt í það.“ Trúa verður því að varla vefjist fyrir yfirvöldum í Reykja- vík að bregðast rétt við lítilli bón } Lítið mál, en stórt Rekstur versl-ana í dreifbýli getur verið vanda- samur. Í hnot- skurn má segja að vandinn sé sá að verðlagið í þeim sé of hátt fyrir almenning og of lágt til að reksturinn beri sig. Það er skiljanlegt að rekstur verslana í fámennum byggð- arlögum sé erfiður. Í nýrri rannsóknarskýrslu eftir Emil B. Karlsson, fyrrverandi for- stöðumann Rannsóknaseturs verslunarinnar, kemur fram að meðalverð á vörukörfu ASÍ, sem í eru 104 vörutegundir, var 48% hærra í dreifbýlisversl- unum en í lágvöruverðsversl- unum. Emil sagði í viðtali í Morgun- blaðinu í gær að hann teldi að það væri borin von að reka verslanir í fámennum byggðum án einhvers stuðnings. Verð- lagið í þessum verslunum skipti þar mestu. „Þær sitja ekki að sömu kjörum og stóru lágvöruverðsverslanirnar, þær geta ekki nýtt sér stærðar- hagkvæmnina og hafa ekki sama kaupmátt og fá ekki sömu afslátt- arkjör og stóru keðjurnar,“ segir hann og bætir við að margar þessara verslana kaupi jafnvel vörur sínar úr lágvöruverðsverslunum. Þetta eru athyglisverð orð. Þetta mætti lesa þannig að í krafti stærðar sinnar hafi verslunarkeðjur birgja í skrúf- stykki og geti fengið þá til að lækka verðið. Litlu versl- anirnar hafa hins vegar engin tök á að beita slíkum þrýstingi og verða að sætta sig við það verð sem birgjarnir setja upp og eru jafnvel að niðurgreiða vöruna í lágvöruverðsversl- anirnar. Hér er augljóslega misræmi á ferð, sem vert er að athuga. Það er í það minnsta eitthvað öfugsnúið við að eig- endur lítilla verslana sjái sér jafnvel hag í að fara í lág- vöruverðsverslanir til að fylla hjá sér hillurnar fremur en að fara beint til birgja. Verðið er of hátt fyrir viðskiptavinina og of lágt til að reksturinn beri sig} Vandi verslana í dreifbýli Í leiðara Kjarnans frá 19. febrúar síðast- liðnum, „Viljið þið að upplýsinga- fulltrúar og spunameistarar segi ykk- ur fréttir?“, fer Þórður Snær Júlíusson yfir stöðu fjölmiðla í dag. Fjölmiðlar, sem áður voru vettvangur lýðræð- islegrar samfélagsumræðu, eru nú í harðri samkeppni við samfélagsmiðla og glíma við tæknibreytingar í samskiptum manna á milli. Fjölmiðlar eru ekki lengur í ritstjórnar- hlutverki gagnvart opinberri umræðu, svokall- aðri „hliðvörslu“. Jakob Bjarnar Grétarsson, fjölmiðlamaður á Vísi, fjallar um grein Þórðar í fésbókarhópi fjölmiðlanörda þar sem hann víkur að mikil- vægi þess að almenningur þurfi að „vakna til vitundar um hvers kyns vá er hér fyrir dyrum“. Tilkynningar frá upplýsingafulltrúum eða stjórnmálamönnum séu ekki fréttir og falsfréttir þrífast á samfélagsmiðlum, miðlum sem stjórnmálamenn kaupa auglýsingar hjá fyrir fé sem þeir skammta sjálfum sér úr almannasjóðum. Sama dag birtist tilkynning frá mennta- og menningar- málaráðuneytinu um stofnun sáttanefndar ríkisstjórnar- flokkanna um hlutverk RÚV og tillögur að breytingum – eða alla vega að skoða hvort það þurfi að breyta einhverju – eða hvort hægt sé að ná einhverri sátt um hverju þarf að breyta. Það er í raun mjög óljóst hvaða árangri sáttanefnd stjórnarflokkanna á í raun og veru að ná. Á að greina vandann, á að koma með tillögur til þess að leysa vandann eða á bara að ná pólitískri sátt milli stjórnarflokkanna? Umræðan um vanda fjölmiðla fer víða, skilj- anlega, því vandinn er raunverulegur. Upplýs- ingaóreiða og falsfréttir eru vandamál. Frjáls- ir fjölmiðlar ættu að gegna þar lykilhlutverki í að greina hvað er satt og hvað er logið, að leggja fram sjónarmiðin á skýran og aðgengi- legan hátt. Í staðinn eru flestir fjölmiðlar ann- aðhvort fastir í fjármögnun frá hagsmuna- aðilum eða auglýsendum. Þórður Snær tekur dæmi um nýlega forsíðufrétt þar sem Ragnar Þór Ingólfsson formaður VR var stimplaður, samkvæmt áreiðanlegum heimildum, veiði- þjófur. Þær heimildir reyndust koma frá ónafngreindum aðilum og stóðust ekki nánari skoðun. Fjármögnun með auglýsingum er svo hitt vandamálið. Ólíkt fyrri tíð þegar auglýsingar höfðu áþreifanlegt pláss í prentuðum miðlum eða tíma í útsendingu þá miðast þær nú við fjölda birtinga. Það þýðir að það er betra að gefa út margar litlar fréttir sem laða að sér marga smelli og mörk „læk“. Upp er runnið annað tímabil æsifréttamennsku með tilheyrandi látum og afleiðingum. Eftir sitjum við öll og getum illa gert greinarmun á kostaðri birtingu, falsfrétt, tilkynningu, auglýsingu, yf- irlýsingu, pistli, skoðun, orðrómi eða frétt. Allir keppast við að vera fyrstir með birtingu til þess að sanka að sér smellunum á undan öðrum og enginn verður upplýstari fyrir vikið. Bara ringlaðri. bjornlevi@althingi.is Björn Leví Gunnarsson Pistill Kerfislægur vandi fjölmiðla? Höfundur er þingmaður Pírata STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Ritstjóri: Davíð Oddsson Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal Ritstjóri og framkvæmdastjóri: Haraldur Johannessen SVIÐSLJÓS Ómar Friðriksson omfr@mbl.is Aðgengi að dagvöruversl-unum, hátt vöruverð ogtakmarkað vöruúrval get-ur haft mikil áhrif á ánægju íbúa í fámennari byggðar- lögum og afstöðu þeirra til áfram- haldandi búsetu. Mikill munur er þó á því milli landsvæða. Nýlegar niður- stöður íbúakönnunar landshluta- samtaka sveitarfélaga sýna m.a. að íbúar í Dölunum, á Ströndum og Reykhólum, á sunnanverðum Vest- fjörðum og í Austur-Húnavatnssýslu eru óánægðir með vöruverð þegar spurt er um búsetuskilyrði. Á Akra- nesi og Hvalfirði, Akureyri og á Borgarfjarðarsvæðinu eru íbúar hins vegar jákvæðastir hvað vöruverð varðar. Samkvæmt upplýsingum Vífils Karlssonar, hagfræðings hjá Sam- tökum sveitarfélaga á Vesturlandi, sýna svör íbúa að fámennari svæði settu hátt vöruverð efst á listann yfir það sem talið var mikilvægast varð- andi áframhaldandi búsetu en spurt var um 40 atriði sem áhrif hafa á bú- setuskilyrði á hverjum stað. Í skýrslu Emils B. Karlssonar um verslun í heimabyggð, sem sagt var frá í blaðinu í gær, segir að mikill verðmunur sýni að fjölskyldur í fá- mennum byggðarlögum hafi ástæðu til að kaupa matvæli til heimilisins í lágvöruverðsverslunum þó svo að verja þurfi tíma og fjármunum og leggja í löng ferðalög til að gera inn- kaup fyrir heimilið. Íbúi á Patreks- firði þarf t.d. að aka rúma 120 km til að komast í næstu lágvöruverðs- verslun á Ísafirði eða 318 km í Borg- arnes. Kemur fram að lágvöruverðs- verslunarkeðjurnar Bónus, Krónan og Nettó eru á 17 stöðum á landinu utan höfuðborgarsvæðisins. Þær eru allar á flestum þéttbýlustu stöðunum. Öll bæjarfélög þar sem lágvöruverðs- verslun er staðsett eru með yfir eitt þúsund íbúa, að undanskilinni Vík í Mýrdal. „Þá vekur athygli að á Norð- urlandi vestra er engin lágvöruverðs- verslun staðsett,“ segir í skýrslunni. Litlar dreifbýlisverslanir eru um 40 talsins á landinu. Þá rekur Samkaup verslanir á 24 stöðum á landinu utan höfuðborgarsvæðisins. Ástæður hærri verðlagningar í dreifbýlisverslunum en öðrum dag- vöruverslunum eru sagðar þríþættar: Hærra innkaupsverð frá birgjum, flutningskostnaður og hlutfallslega hærri rekstrarkostnaður á hverja selda einingu. Tekin eru dæmi um fraktkostnað með landflutningum til nokkurra staða. Kostnaður á vöru- bretti frá Reykjavík til Þingeyrar getur t.d. verið rúmar 125 þúsund kr. og 122 þús. kr. til Kópaskers. Segjast ekki fá sanngjörn kjör Emil tók viðtöl við rekstraraðila dreifbýlisverslana sem nefndu ýmis dæmi og töldu sig ekki fá sanngjörn kjör frá birgjum í samanburði við verslunarkeðjurnar. Þetta megi m.a. sjá á því að útsöluverð í lágvöruverðs- verslunum á ýmsum algengum vörum sé lægra heldur en heild- söluverð sem dreifbýlisverslanir fái. Í skýrslunni er lýst stuðnings- aðgerðum við dreifbýlisverslun sem gefist hafi vel í öðrum norrænum ríkjum, t.a.m. Merkur-áætlunin í Noregi og fyrirkomulag þar sem dreifbýlisverslanir eru reknar undir hatti stórra verslunarkeðja en eign- arhald þeirra og ábyrgð er þó í hönd- um heimamanna á hverjum stað. Leggja í löng ferðalög til að gera innkaupin Dagvöruverslanir og vöruverð Hærra verð í dreifbýlis- verslunum í samanburði við lágvöruverðsverslanir Mjólkur- vörur Brauð, kex og morgun- korn Kjöt- og fi skvörur og álegg Frosnar vörur Dósa- matur og þurr- vörur Ávextir og græn- meti Drykkj- arvörur Sælgæti og snakk Te og kaffi Hrein- lætis- vörur Annað Heimild: Verslun í heimabyggð. Skýrsla Emils B. Karlssonar Lágvöruverðs- verslun 24% 60% 39% 56% 61% 49% 76% 69% 48% 80% 38% M eð al ta l 4 8% Í Svíþjóð ryðja sér nú til rúms ómannaðar sjálfsafgreiðsluversl- anir í dreifbýli. Í skýrslunni um dreifbýlisverslanir kemur fram að í Svíþjóð reka þrjú fyrirtæki slíkar verslanir og áætla að opna 500- 600 sjálfsafgreiðsluverslanir á næstu fimm árum. Skýrsluhöf- undur heimsótti slíka verslun sem er í einföldu húsnæði, er rek- in sem hluti af viðskiptasérleyfi og hefur aðgang að stórri inn- kaupakeðju með hagstæðum kjörum. Eigandinn ræktar græn- meti og korn sem er selt í búðinni og hefur haft til sölu egg sem hænur hans verpa og er viðskiptavinum treyst til að greiða sjálfviljugir það verð sem sett er upp og skilja eftir peninga. Ryðja sér víða til rúms ÓMANNAÐAR VERSLANIR

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.