Morgunblaðið - 24.02.2021, Qupperneq 15
15
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 24. FEBRÚAR 2021
Brosa Fátt er meira hressandi en útivist í góðra vina hópi. Þessar vinkonur gengu á Úlfarsfell á dögunum og þegar upp var komið voru teknar myndir í gríð og erg.
Ingó
Ég leita reglulega í
skrif og ræður forystu-
manna og hugsuða
Sjálfstæðisflokksins á
síðustu öld. Við getum
sagt að ég sé að leita til
upprunans til að skerpa
hugmyndafræðina. Í
aðdraganda kosninga
er er gott að sækja
þangað skotfæri.
Eftir því sem árin
líða hef ég sannfærst æ betur um
hversu nauðsynlegt það er, ekki síst
fyrir stjórnmálamenn samtímans og
kjörna fulltrúa Sjálfstæðisflokksins
sérstaklega, að þekkja söguna og öðl-
ast þannig betri skilning á eigin hug-
myndum og hugsjónum – fá tilfinn-
ingu fyrir þeim jarðvegi þar sem
ræturnar liggja. Þótt aðstæður
breytist og viðfangsefnin séu oft önn-
ur og jafnvel flóknari, hafa grunn-
atriði hugsjóna Sjálfstæðisstefn-
unnar ekki breyst.
Það hefur verið gæfa Sjálfstæð-
isflokksins að hafa átt öfluga hug-
myndafræðinga og forystumenn sem
hafa haft burði til að marka stefnuna
og meitla hugsjónirnar. Og aðeins
þannig geta kjósendur fengið það á
hreint fyrir hvað Sjálfstæðisflokk-
urinn stendur; takmörkuð ríkis-
afskipti, lága skatta og aukið frelsi
einstaklinganna. Allt samtvinnast
þetta í áherslu á fjárhagslegt sjálf-
stæði einstaklinganna, öflugt al-
mannatryggingakerfi og traust heil-
brigðiskerfi þar sem þarfir hinna
sjúkratryggðu eru í forgrunni. Í hug-
um sjálfstæðismanna er uppbygging
menntakerfisins besta verkfærið til
að tryggja jöfn tæki-
færi án þess að loforð
um jafna útkomu fylgi.
Baráttan fyrir atvinnu-
frelsi gegn höftum er
inngróin og að baki
liggur sannfæring um
„undramátt frelsisins“
svo vitnað sé til orða
Bjarna Benedikts-
sonar (eldri).
Afnám allra
sérréttinda
Á fundi Heimdallar
1939, áratug eftir að Sjálfstæðis-
flokkurinn var stofnaður, flutti Jó-
hann Hafstein erindi um sjálfstæð-
isstefnuna. Þar lagði hann áherslu á
að þjóðskipulagið eigi að verða til
þess að lyfta hverjum og einum, en
ekki kæfa einstaklingana. Lýðræðið
sé byggt á hugsjón jafnréttis, þ.e.:
„1. afnámi allra sérréttinda, sem
bundin eru við aðal, nafnbætur, fjár-
magn eða annað slíkt,
2. jöfnum lífsmöguleikum,
3. hlutfallslega jöfnum áhrifum á
þjóðfélagsmálefni með almennum
kosningarétti.“
Til þess að lýðræðið geti notið sín
var það augljóst í huga Jóhanns „að
einstaklingarnir verða að geta notið
þjóðfélagslegs frelsis, sem greinist
aðallega í tvennt; athafnafrelsi og
skoðanafrelsi, er aftur skiptist í rit-
frelsi og málfrelsi samfara funda-
frelsi“.
Jóhann var aðeins 24 ára gamall
þegar hann flutti erindið en varð síð-
ar forsætisráðherra og formaður
Sjálfstæðisflokksins. Hann benti á
að ekki þurfi „víðsýna hugsun til
þess að sjá, að einmitt þar, sem hlúð
er að persónuleika og sjálfstæði ein-
staklinganna, hlýtur jarðvegurinn að
vera frjósamur fyrir lýðræði. Í slík-
um jarðvegi getur hvorki einræði né
ofbeldiskennt flokksræði fest ræt-
ur.“
Frelsið er frumréttur
Rauði þráðurinn í hugmyndafræði
Sjálfstæðisflokksins hefur því frá
upphafi verið sjálfstæði einstaklings-
ins, atvinnufrelsi, eignaréttur og sú
sannfæring að ríkið sé til fyrir borg-
arana og starfi í þeirra þágu og í um-
boði þeirra.
Í tveimur ritgerðum sem birtust
árið 1958 í Stefni, tímariti SUS, segir
Birgir Kjaran að sjálfstæðisstefnan
„byggist á trúnni á manninn, þroska-
möguleika hans, hæfni til þess að
stjórna sér sjálfur, til að velja og
hafna og til að leita sjálfur að eigin
lífshamingju án þess að troða öðrum
um tær eða þurfa á fyrirsögn eða
handleiðslu annarra manna að halda
um eigin mál“. Í krafti þessarar trú-
ar eigi einstaklingurinn að njóta
mannhelgi – frumréttur hans sé
frelsið, andlegt frelsi og efnahags-
legt frelsi. Þess vegna sé það æðsta
takmark samfélags að veita ein-
staklingnum allt það frelsi sem hann
þarfnast til þess að fá að fullu notið
hæfileika sinna og mannkosta án
þess að þrengja eða óvirða rétt ann-
arra einstaklinga eða tefla öryggi
þjóðarheildarinnar í hættu.
Birgir orðaði þetta svo:
„Sérhver einstaklingur er því
verðmætasta eining þjóðarfélagsins,
en ekki sérhver stétt eða aðrar fé-
lagseiningar, eins og sumar aðrar
þjóðfélagsstefnur vilja láta í veðri
vaka.
Ríkið hefur engan tilgang í sjálfu
sér, og síst af öllu eru þegnarnir til
vegna ríkisins. Ríkið er aðeins
rammi utan um þjóðfélagið. Ríkið er
til vegna þjóðarinnar og aðeins
vegna hennar. Engu að síður er ríkið
þýðingarmesta tæki þjóðarinnar
sökum þess fjölbreytilega hlutverks,
er það getur gegnt.“
Báknið burt – opin stjórnsýsla
Eyjólfur Konráð Jónsson – Eykon
– var óþreytandi að minna félaga
sína á að hlutverk Sjálfstæðisflokks-
ins í atvinnumálum sé fyrst og síðast
að „innleiða meira frjálsræði, minni
ríkisafskipti, öflugra einkaframtak,
minni ríkisumsvif“ – auka svigrúm
fyrir athafnir og tryggja framtaks-
mönnum frelsi. Í ræðu á Varðar-
fundi 1977 sagði Eykon:
„Hlutverk flokka og stjórnmála-
manna er ekki að fyrirskipa hvað
eina og skipuleggja allt. Það er hlut-
verk þeirra, sem beina aðild eiga að
atvinnurekstri. Þeim ber að sjá um
samkeppnina og arðsemina.“
Sama ár hófu ungir sjálfstæð-
ismenn baráttu fyrir minni ríkis-
umsvifum undir kjörorðinu „Báknið
burt“. Sú barátta tónaði vel við
landsfund fjórum árum áður þar
sem ungt fólk markaði stefnu Sjálf-
stæðisflokksins um aukið atvinnu-
frelsi, opnara samfélag og um opna
stjórnsýslu og aðgengi allra að upp-
lýsingum.
Frjálslynd íhaldsstefna með rót-
tækri markaðshyggju með áherslu á
valddreifingu, frelsi einstaklingsins,
opna stjórnsýslu og upplýsingafrelsi
hefur átt samhljóm með Íslend-
ingum, jafnt þeim eldri en ekki síður
þeim yngri. Hér skal fullyrt að í eng-
um íslenskum stjórnmálaflokki hefur
ungt fólk verið áhrifameira en í Sjálf-
stæðisflokknum. Það hefur rutt
brautina með nýjum hugmyndum
sem allar eru reistar á grunngildum
flokksins. Og ungu fólki hefur verið
treyst. Bjarni Benediktsson (eldri)
varð borgarstjóri aðeins 32 ára. Geir
Hallgrímsson var tveimur árum eldri
þegar hann tók við sem borgarstjóri.
Davíð Oddsson var á sama aldri þeg-
ar hann settist í stól borgarstjóra og
43 ára varð hann forsætisráðherra.
Gunnar Thoroddsen varð borgar-
stjóri 37 ára. Friðrik Sophusson tók
við embætti varaformanns 38 ára.
Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadótt-
ir var þrítug þegar hún varð ráð-
herra og 31 árs var hún kjörin vara-
formaður Sjálfstæðisflokksins.
Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir sett-
ist í ráðherrastól 29 ára gömul.
Í krafti trúarinnar á einstaklinginn
hefur ungt fólk verið áhrifamikið inn-
an Sjálfstæðisflokksins, þar sem
hver og einn á að njóta hæfileika
sinna en er ekki dæmdur út frá aldri,
kyni, trú, kynhneigð, stétt eða upp-
runa. Rætur sjálfstæðisstefnunnar
liggja í þessum jarðvegi. Í aðdrag-
anda kosninga er gott fyrir yngri
jafnt sem okkur eldri sjálfstæðis-
menn að vökva ræturnar.
Eftir Óla Björn
Kárason » Og aðeins þannig
geta kjósendur
fengið það á hreint fyrir
hvað Sjálfstæðisflokk-
urinn stendur; takmörk-
uð ríkisafskipti og frelsi
einstaklinganna.
Óli Björn Kárason
Höfundur er alþingismaður
Sjálfstæðisflokksins.
Hugmyndafræðin skerpt fyrir kosningar