Morgunblaðið - 24.02.2021, Page 15

Morgunblaðið - 24.02.2021, Page 15
15 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 24. FEBRÚAR 2021 Brosa Fátt er meira hressandi en útivist í góðra vina hópi. Þessar vinkonur gengu á Úlfarsfell á dögunum og þegar upp var komið voru teknar myndir í gríð og erg. Ingó Ég leita reglulega í skrif og ræður forystu- manna og hugsuða Sjálfstæðisflokksins á síðustu öld. Við getum sagt að ég sé að leita til upprunans til að skerpa hugmyndafræðina. Í aðdraganda kosninga er er gott að sækja þangað skotfæri. Eftir því sem árin líða hef ég sannfærst æ betur um hversu nauðsynlegt það er, ekki síst fyrir stjórnmálamenn samtímans og kjörna fulltrúa Sjálfstæðisflokksins sérstaklega, að þekkja söguna og öðl- ast þannig betri skilning á eigin hug- myndum og hugsjónum – fá tilfinn- ingu fyrir þeim jarðvegi þar sem ræturnar liggja. Þótt aðstæður breytist og viðfangsefnin séu oft önn- ur og jafnvel flóknari, hafa grunn- atriði hugsjóna Sjálfstæðisstefn- unnar ekki breyst. Það hefur verið gæfa Sjálfstæð- isflokksins að hafa átt öfluga hug- myndafræðinga og forystumenn sem hafa haft burði til að marka stefnuna og meitla hugsjónirnar. Og aðeins þannig geta kjósendur fengið það á hreint fyrir hvað Sjálfstæðisflokk- urinn stendur; takmörkuð ríkis- afskipti, lága skatta og aukið frelsi einstaklinganna. Allt samtvinnast þetta í áherslu á fjárhagslegt sjálf- stæði einstaklinganna, öflugt al- mannatryggingakerfi og traust heil- brigðiskerfi þar sem þarfir hinna sjúkratryggðu eru í forgrunni. Í hug- um sjálfstæðismanna er uppbygging menntakerfisins besta verkfærið til að tryggja jöfn tæki- færi án þess að loforð um jafna útkomu fylgi. Baráttan fyrir atvinnu- frelsi gegn höftum er inngróin og að baki liggur sannfæring um „undramátt frelsisins“ svo vitnað sé til orða Bjarna Benedikts- sonar (eldri). Afnám allra sérréttinda Á fundi Heimdallar 1939, áratug eftir að Sjálfstæðis- flokkurinn var stofnaður, flutti Jó- hann Hafstein erindi um sjálfstæð- isstefnuna. Þar lagði hann áherslu á að þjóðskipulagið eigi að verða til þess að lyfta hverjum og einum, en ekki kæfa einstaklingana. Lýðræðið sé byggt á hugsjón jafnréttis, þ.e.: „1. afnámi allra sérréttinda, sem bundin eru við aðal, nafnbætur, fjár- magn eða annað slíkt, 2. jöfnum lífsmöguleikum, 3. hlutfallslega jöfnum áhrifum á þjóðfélagsmálefni með almennum kosningarétti.“ Til þess að lýðræðið geti notið sín var það augljóst í huga Jóhanns „að einstaklingarnir verða að geta notið þjóðfélagslegs frelsis, sem greinist aðallega í tvennt; athafnafrelsi og skoðanafrelsi, er aftur skiptist í rit- frelsi og málfrelsi samfara funda- frelsi“. Jóhann var aðeins 24 ára gamall þegar hann flutti erindið en varð síð- ar forsætisráðherra og formaður Sjálfstæðisflokksins. Hann benti á að ekki þurfi „víðsýna hugsun til þess að sjá, að einmitt þar, sem hlúð er að persónuleika og sjálfstæði ein- staklinganna, hlýtur jarðvegurinn að vera frjósamur fyrir lýðræði. Í slík- um jarðvegi getur hvorki einræði né ofbeldiskennt flokksræði fest ræt- ur.“ Frelsið er frumréttur Rauði þráðurinn í hugmyndafræði Sjálfstæðisflokksins hefur því frá upphafi verið sjálfstæði einstaklings- ins, atvinnufrelsi, eignaréttur og sú sannfæring að ríkið sé til fyrir borg- arana og starfi í þeirra þágu og í um- boði þeirra. Í tveimur ritgerðum sem birtust árið 1958 í Stefni, tímariti SUS, segir Birgir Kjaran að sjálfstæðisstefnan „byggist á trúnni á manninn, þroska- möguleika hans, hæfni til þess að stjórna sér sjálfur, til að velja og hafna og til að leita sjálfur að eigin lífshamingju án þess að troða öðrum um tær eða þurfa á fyrirsögn eða handleiðslu annarra manna að halda um eigin mál“. Í krafti þessarar trú- ar eigi einstaklingurinn að njóta mannhelgi – frumréttur hans sé frelsið, andlegt frelsi og efnahags- legt frelsi. Þess vegna sé það æðsta takmark samfélags að veita ein- staklingnum allt það frelsi sem hann þarfnast til þess að fá að fullu notið hæfileika sinna og mannkosta án þess að þrengja eða óvirða rétt ann- arra einstaklinga eða tefla öryggi þjóðarheildarinnar í hættu. Birgir orðaði þetta svo: „Sérhver einstaklingur er því verðmætasta eining þjóðarfélagsins, en ekki sérhver stétt eða aðrar fé- lagseiningar, eins og sumar aðrar þjóðfélagsstefnur vilja láta í veðri vaka. Ríkið hefur engan tilgang í sjálfu sér, og síst af öllu eru þegnarnir til vegna ríkisins. Ríkið er aðeins rammi utan um þjóðfélagið. Ríkið er til vegna þjóðarinnar og aðeins vegna hennar. Engu að síður er ríkið þýðingarmesta tæki þjóðarinnar sökum þess fjölbreytilega hlutverks, er það getur gegnt.“ Báknið burt – opin stjórnsýsla Eyjólfur Konráð Jónsson – Eykon – var óþreytandi að minna félaga sína á að hlutverk Sjálfstæðisflokks- ins í atvinnumálum sé fyrst og síðast að „innleiða meira frjálsræði, minni ríkisafskipti, öflugra einkaframtak, minni ríkisumsvif“ – auka svigrúm fyrir athafnir og tryggja framtaks- mönnum frelsi. Í ræðu á Varðar- fundi 1977 sagði Eykon: „Hlutverk flokka og stjórnmála- manna er ekki að fyrirskipa hvað eina og skipuleggja allt. Það er hlut- verk þeirra, sem beina aðild eiga að atvinnurekstri. Þeim ber að sjá um samkeppnina og arðsemina.“ Sama ár hófu ungir sjálfstæð- ismenn baráttu fyrir minni ríkis- umsvifum undir kjörorðinu „Báknið burt“. Sú barátta tónaði vel við landsfund fjórum árum áður þar sem ungt fólk markaði stefnu Sjálf- stæðisflokksins um aukið atvinnu- frelsi, opnara samfélag og um opna stjórnsýslu og aðgengi allra að upp- lýsingum. Frjálslynd íhaldsstefna með rót- tækri markaðshyggju með áherslu á valddreifingu, frelsi einstaklingsins, opna stjórnsýslu og upplýsingafrelsi hefur átt samhljóm með Íslend- ingum, jafnt þeim eldri en ekki síður þeim yngri. Hér skal fullyrt að í eng- um íslenskum stjórnmálaflokki hefur ungt fólk verið áhrifameira en í Sjálf- stæðisflokknum. Það hefur rutt brautina með nýjum hugmyndum sem allar eru reistar á grunngildum flokksins. Og ungu fólki hefur verið treyst. Bjarni Benediktsson (eldri) varð borgarstjóri aðeins 32 ára. Geir Hallgrímsson var tveimur árum eldri þegar hann tók við sem borgarstjóri. Davíð Oddsson var á sama aldri þeg- ar hann settist í stól borgarstjóra og 43 ára varð hann forsætisráðherra. Gunnar Thoroddsen varð borgar- stjóri 37 ára. Friðrik Sophusson tók við embætti varaformanns 38 ára. Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadótt- ir var þrítug þegar hún varð ráð- herra og 31 árs var hún kjörin vara- formaður Sjálfstæðisflokksins. Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir sett- ist í ráðherrastól 29 ára gömul. Í krafti trúarinnar á einstaklinginn hefur ungt fólk verið áhrifamikið inn- an Sjálfstæðisflokksins, þar sem hver og einn á að njóta hæfileika sinna en er ekki dæmdur út frá aldri, kyni, trú, kynhneigð, stétt eða upp- runa. Rætur sjálfstæðisstefnunnar liggja í þessum jarðvegi. Í aðdrag- anda kosninga er gott fyrir yngri jafnt sem okkur eldri sjálfstæðis- menn að vökva ræturnar. Eftir Óla Björn Kárason » Og aðeins þannig geta kjósendur fengið það á hreint fyrir hvað Sjálfstæðisflokk- urinn stendur; takmörk- uð ríkisafskipti og frelsi einstaklinganna. Óli Björn Kárason Höfundur er alþingismaður Sjálfstæðisflokksins. Hugmyndafræðin skerpt fyrir kosningar

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.