Morgunblaðið - 24.02.2021, Síða 21

Morgunblaðið - 24.02.2021, Síða 21
SB, Rótarý og einnig innan Verkstjórasambandsins. Öll voru þau störf unnin í sjálfboða- vinnu. Töluverður aldursmunur var á okkur Gísla, en hann flutti að heiman um það leyti sem ég byrjaði í barnaskóla, en eftir að ég varð fullorðin og þau Gunna byrjuðu að búa hefur samband okkar verið mikið og gott, þau bæði glaðsinna, afar samhent, hörkudugleg, bæði mikil snyrti- menni með myndarleg hóp í kringum sig, börnin fjögur, tengdabörn og barnabörn. Sumarbústaður fjölskyldunn- ar í Svartagili var í gegnum tíð- ina mikill samkomustaður okk- ar, og einnig var mjög oft komið við hjá þeim Gunnu og Gísla á leið til eða frá bústaðnum. Við höfum heilmargt skemmtilegt gert saman í gegn- um tíðina, Gísli og Gunna og við Kristján. Fyrir 27 árum fórum við ásamt börnum í mjög skemmtilega ferð til Mallorca, ógleymanleg er ferð til Parísar þegar við Borgarnesvinkonurn- ar urðum fimmtugar, einnig höfum við farið saman í margar útilegur og ferðalög um landið. Ég kveð minn kæra bróður með þökkum fyrir allt og allt. Gunnu, Möggu, Sigrúnu, Kristínu Hebu, Alla og fjöl- skyldum vottum við fjölskyldan innilega samúð. Sigurbjörg Halldórsdóttir. Í dag kveðjum við Gísla Vil- hjálm Halldórsson, frænda minn og vin. Ég fylgdist með honum í æsku, sá þennan ljós- hærða strák vaxa úr grasi og verða að virtum og gegnum borgara. Gísli lærði bifvélavirkj- un hjá BTB undir leiðsögn Kar- els Einarssonar. Hann taldi það gæfu sína að hafa fengið þenn- an vandvirka og flinka leiðsögu- mann sem Karel var. Gísli var einn af stofnendum Prjónastofu Borgarness hf. og var verk- smiðjustjóri og hægri hönd framkvæmdastjóra. Hann og Sigurborg sáu um að aldrei fór illa frá gengin eða gölluð flík úr húsi. Velgengni Prjónastofunn- ar var ekki síst Gísla að þakka. Eftir langt og giftudrjúgt starf hjá Prjónastofu Borgarness breytti hann um starfsvettvang og stofnaði eigið fyrirtæki, rak um tíma bifreiðaverkstæði í Borgarnesi. Snyrtimennska var Gísla í blóð borin og kom það greinilega fram á verkstæðinu hjá honum. Haft var á orði að þar væri allt pússað og fínt eins og í stássstofu. Þar átti Guðrún Birna sinn þátt. Allt sem Gísli sagði og gerði stóð eins og staf- ur á bók. Hann hafði yndi af samskiptum við fólk, tók þátt í félagslífi, var lengi í stjórn UM- SB og meðal annars þegar hin eftirminnilegu Húsafellsmót voru haldin. Hann var einnig virkur í starfi Framsóknar- flokksins. Alltaf tilbúinn að starfa, vinna verkin, ekki bara tala. Hér verða ekki talin upp öll þau félagsmálastörf sem Gísli tók að sér. Þó er ekki hægt annað en minnast á áhuga hans á gengi UMF Skallagríms, hvort heldur var í körfubolta eða öðrum íþróttum. Hann var ómissandi á pöllunum. Ég leit á Gísla sem fósturbróður minn. Hann og fjölskylda hans sýndu mér og mínum vináttu í verki. Hann tók á móti okkur þegar við fluttum í Borgarfjörðinn, var hjálparhella okkar meðan við vorum að aðlagast nýju um- hverfi og viljum við þakka fyrir það. Hann var sannarlega vinur í raun. Hans er sárt saknað. Við Gerður og fjölskylda vottum Guðrúnu Birnu og fjöl- skyldu innilega samúð og þökk- um vináttu og ánægjuleg sam- skipti á liðnum árum. Sveinn Hallgrímsson. Gísla má minnast fyrir margt gott, þótt sérstaklega sé mér minnisstætt tvennt. Ég kynntist Gísla fyrst sem félagsmála- manni, virkum í ungmenna- félagshreyfingunni, sérstaklega innan UMF Skallagríms og UMSB og síðar sem húsverði við Varmalandsskóla. Hvar sem Gísli kom að starfi lagði hann metnað sinn í vandaða og fág- aða vinnu, ekkert skyldi spara til þess að ná árangri. Þetta kom vel fram við rómaðar Húsafellshátíðir og við kaup UMSB á húsnæði í Borgarnesi. En sá kostur og eiginleiki sem Gísli hafði fram yfir okkur mörg var einstök snyrti- mennska hans. Þegar hann rak ásamt konu sinni Guðrúnu Birnu bílaverkstæði úti í Brák- arey sást aldrei að þar færi nokkur bifreið inn. Allt þrifið og pússað. Ég var svo heppinn að fá að starfa með Gísla þegar hann réðst til Varmalandsskóla eitt skólaár. Þar sáust spor hans um allt hvort sem var inn- anhúss eða úti á skólalóð. Virð- ing, umhirða og ræktun lands og lýðs var hans aðalsmerki. Þótt við félagar værum ekki skoðanabræður í pólitík bar aldrei skugga á samstafið. Ein lítil saga. Ég hafði orð á því að gaman væri að mála hurðir í kjallara skólans. Og viti menn. Nokkrum dögum síðar var minn maður búinn að mála og kallaði á mig. Mig rak í rogastans. Nú voru þær rauðar en ekki græn- ar. „Því breyttirðu um lit, Gísli?“ spurði ég. Og svarið kom strax. „Hvað gerir maður ekki fyrir vini sína?“ Guðrúnu Birnu og fjölskyldu sendum við Kristín Ingibjörg okkar innilegustu samúðar- kveðjur. Flemming Jessen. Margs er að minnast nú við fráfall félaga okkar Gísla V. Halldórssonar sem lést 16. febr- úar síðastliðinn. Ungur að árum tók hann þátt í félagslífinu í Borgarnesi og var meðal annars alla tíð virkur og áhugasamur ungmennafélagi. Gísli gekk til liðs við Rótarýklúbb Borgar- ness árið 1971, því vantar nú einungis fáeina mánuði að hann hefði náð 50 ára samferð með klúbbnum. Hann var sannur rótarýfélagi og hafði gegnt öll- um embættum í stjórn klúbbs- ins og sumum oftar en einu sinni, t.d. var hann tvívegis for- seti klúbbsins. Gísli var glað- sinna maður, snyrtivirkur, sam- viskusamur og vandaður í orði og athöfnum, maður sem virki- lega var gaman að vinna með. Fyrr að árum voru klúbbfundir haldnir vikulega allt árið um kring og ýmislegt þar til gam- ans gert og gagns fyrir klúbb og samfélag. Í klúbbstarfinu komu kostir Gísla vel í ljós; brennandi áhugi fyrir viðfangs- efninu og mikill dugnaður. Hann tók virkan þátt í um- ræðum á fundum klúbbsins og var hrókur alls fagnaðar á góðri stundu. Gísli var mjög minn- ugur á liðna atburði og var gaman að heyra hann segja frá á sinn skemmtilega og glaðværa máta. Hann var góð fyrirmynd og leiðbeinandi nýrra félaga þegar þeir voru að stíga sín fyrstu skref í störfum innan klúbbsins. Í klúbbstarfinu var Gísli lengi vel burðarásinn og skipulagshæfileikar hans nýtt- ust vel; undirbúningur árshá- tíða, starfsfræðsludagar, at- vinnusýningar og hvaðeina, allt gert í réttri röð og á réttum tíma og hann lét ekki bíða eftir sér. Þá kom Gísli einnig mikið að undirbúningi þeirra þriggja umdæmisþinga sem klúbburinn stóð að á félagstíma hans. Klúbbfundi sótti hann mjög vel, enda náði hann nokkrum sinn- um 100% mætingu yfir heilt starfsár. Klúbbfundir eru oft haldnir utan hins venjulega fundarstaðar og þar á meðal á heimilum rótarýfélaga. Marg- sinnis buðu þau Gísli og Guðrún okkur félögunum heim við rausnarlegar móttökur og nota- legt spjall. Slíkra stunda er meðal annars gott að minnast nú. Fyrir allmörgum árum heiðraði klúbburinn Gísla með veitingu Poul Harris-orðunnar fyrir áratuga farsælt starf í þágu klúbbs og samfélags. Við rótarýfélagarnir söknum góðs vinar og þökkum honum sam- leiðina og vottum Guðrúnu og fjölskyldunni allri innilega sam- úð. Fyrir hönd félaga í Rótarý- klúbbi Borgarness, Guðmundur Þ. Brynjúlfsson. Í dag verður til moldar bor- inn góður vinur, Gísli V. Hall- dórsson í Borgarnesi. Gísli fæddist á Staðarfelli á Fells- strönd í Dölum og átti sína bernsku þar, en fluttist með fjölskyldu sinni í Borgarnes vorið 1955 þar sem faðir hans hafði tekið við starfi sveitar- stjóra. Búferlaflutningar fara ekki alltaf vel í unga fólkið sem er þar með skilið frá jafnöldrum og vinum en Borgarnes tók Gísla vel. Teningunum var kast- að um framtíð hans og þaðan í frá var hann fyrst og síðast Borgnesingur. Hann bar heill og hag Borgarness fyrir brjósti alla tíð, bæði í orði og verki, kom víða við, bæði sem óbreytt- ur starfsmaður, lærður bifvéla- virki, verkstjóri, framkvæmda- stjóri og atvinnurekandi. Gísli var athafnasamur og orkumikill en eitt sem einkenndi hann öllu öðru framar var snyrtimennska og reglusemi í hverju því sem hann tók sér fyrir hendur. Gísli var mikill félagsmála- maður og á þeim vettvangi kom hann einnig víða við og þar mættumst við tveir. Kynni okk- ar voru lítil á unglingsárum en það átti eftir að breytast þegar leiðir okkar lágu saman á vett- vangi ungmennafélaganna þeg- ar við báðir, fyrir meira en hálfri öld, vorum komnir í for- ystusveit fyrir okkar ung- mennafélög. Þá var ungmenna- félagshreyfingin hér í héraðinu í mikilli uppsveiflu undir for- ystu silfurmannsins Vilhjálms Einarssonar og einnig á lands- vísu undir forystu Hafsteins Þorvaldssonar. Þetta voru menn sem hrifu aðra með sér. - En nú er komið að Húsafells- mótakaflanum hugsa einhverjir og geta sér rétt til. Fyrsta sum- arhátíðin í Húsafelli á vegum UMSB var haldin um verslun- armannahelgina 1967 og áttu þær sér síðan lífdaga um tíu ára skeið. Á þeim vettvangi kynn- umst við Gísli betur og árið 1971 erum við komir í innsta hring, kjörnir í stjórn UMSB og Ófeigur heitinn Gestsson ári síðar, allir sjóaðir Húsafells- mótamenn. Fram undan voru fleiri Húsafellsmót en einnig var UMSB með í undirbúningi þjóðhátíðar í héraði 1974 og framkvæmdaaðili ásamt Umf. Skipaskaga að Landsmóti UMFÍ 1975. Allt brasið í kring- um þetta starf treysti vináttu- böndin sem hafa haldið meðan allir lifðu. Það hefði mátt þess vegna kalla okkur þríeyki. Við Gísli áttum einnig samleið undir merkjum Framsóknarflokksins, þó aðallega í baklandinu. Þar vildi Ófeigur ekki vera og við Gísli umbárum það. Í seinni tíð voru tíðari samfundir okkar allra gleðiefni og innlegg í sjóð minninganna. Undanfarin ár hafði Gísli átt við veikindi að stríða, þó ekki þannig að hann væri ekki lík- amlega hraustur og frár á fæti. En hann var rændur sjálfinu smátt og smátt sem gerði tengsl hans við raunheima sí- fellt óskýrari. Þó var sem opn- uðust gluggar af og til og varð allt um stund sem áður væri. Anga af þessu þekkjum við flest þegar árin færast yfir eins og t.d. þegar við gleymum nöfnum einhverra en náum þó oftast að rifja þau upp. En sem eiginleg veikindi er það bæði þeim sem við slíkt glíma og ástvinum erf- itt að upplifa. Elsku Guðrún Birna og fjöl- skylda, systkini og fjölskyldur þeirra. Við Guðrún Ása sendum ykkur innilegar hluttekningar- kveðjur. Blessuð sé minning Gísla V. Halldórssonar. Jón G. Guðbjörnsson. MINNINGAR 21 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 24. FEBRÚAR 2021 ✝ Ninna Dórót-hea Leifsdóttir fæddist í Vest- mannaeyjum 15. maí 1940. Hún lést á Landspítalanum 24. janúar 2021. Foreldrar henn- ar voru Leifur Sig- fússon tannlæknir, f. 4. nóvember 1892, d. 25. febrúar 1947, og Ingrid Sigfússon (f. Steengaard) tannsmiður, f. 30. september 1909 í Danmörku, d. 29. desember 1987. Börn Ninnu eru : 1) Lis Svein- björnsdóttir, f. 6. nóvember 1958. Maki Anna Lange, f. 18. ágúst 1950. 2) Leifur Lúther Garðarsson, f. 9 apríl 1963. Sam- býliskona Ása Við- arsdóttir, f. 18. júní 1963. 3) Jóhanna Vil- helmína Jóhann- esdóttir, f. 12. desember 1979. Útförin fór fram 18. febrúar 2021 að viðstöddum nánustu ætt- ingjum og vinum. Þá er komið að kveðjustund, elsku Ninna mín. Það er langt síð- an við kynntumst, um það bil 60 ár. Þá vorum við ungar námsmeyj- ar í Danmörku að læra snyrti- fræði. Með okkar tókst vinátta sem entist alla ævi þína og mína það sem komið er af henni. Það var dásamlegt að vera vinkona Ninnu Leifsdóttur. Móðir Ninnu var dönsk og hafði Ninna oft á sínum uppvaxtarárum dvalið langtímum saman í Dan- mörku. Ninna talaði því dönsku jafnvel og íslensku, sem kom sér oft vel. Við útskrifuðumst saman og fluttum þá til Íslands þar sem störf blöstu við og tímarnir breytt- ust. En vináttan hélst óbreytt. Fullorðinsárin gengu í garð og við eignuðumst fjölskyldur. Ninna eignaðist þrjú börn, Lís, Leif og Jóhönnu, og ég eignaðist tvö, Guð- laugu og Ólaf. Við unnum báðar ætíð störf, þar sem við nýttum þá kunnáttu sem nám okkar í Danmörku veitti. Og svo vildi til að leiðir okkar lágu saman þegar við unnum hlið við hlið um nokkurra ára skeið á Hrafnistu í Reykjavík. Þegar húmar og hallar að degi heimur hverfur og eilífðin rís. Sjáumst aftur á sólfögrum ströndum þar sem sælan er ástvinum vís. (Guðrún Halldórsdóttir) Elsku Ninna mín, þakka þér fyrir alla vinátta þína og samveru. Sendi samúðarkveðju til fjöl- skyldunnar. þín vinkona, Guðbjörg Guðmundsdóttir (Gauja). Ninna Dóróthea Leifsdóttir Elsku Sveinn. Takk fyrir alla hlýjuna og kærleik- ann í sveitinni. Sumrin á Stekkjarvöllum voru það besta. Frelsið og lömbin, hænurnar og kálfarnir. Öll ástin sem var á heimilinu, þú og Heiða voruð enn eins og unglingakær- ustupar síðast þegar ég sá ykkur. Sveinn Guðjónsson ✝ Sveinn Guð-jónsson fæddist 8. október 1933. Hann lést 28. janúar 2021. Útför Sveins fór fram 9. febrúar 2021. Þú varst svo sann- arlega góð fyrir- mynd. Takk fyrir einar bestu minn- ingar æsku minnar. Takk fyrir allt sem þú kenndir mér, reka, mjólka og moka skít! Takk fyrir að vera auka- afi minn. Ég hef alltaf hugsað til þín þannig og mun seint hætta því. Takk fyrir að sýna mér hvernig á að ganga rétt frá matardisknum mínum. Ég læt þetta bara hérna og kveð þig, þangað til næst. Rakel Ósk Þorgeirsdóttir. Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, KRISTÍN Þ. G. JÓNSDÓTTIR, Lalla, Njálsgötu 1, Reykjavík, sem lést á hjúkrunarheimilinu Sóltúni aðfaranótt 16. febrúar, verður jarðsungin frá Fríkirkjunni í Reykjavík fimmtudaginn 25. febrúar klukkan 13. Þeim sem vilja minnast hennar er bent á hjúkrunarheimilið Sóltún. Ingibjörg Þóra Marteinsd. Hilmar Teitsson Kristinn Óskar Marteinsson Þóra Stefánsdóttir barnabörn og langömmubörn Innilegar þakkir fyrir hlýhug og samúð við andlát okkar ástkæra HALLGRÍMS SVEINS SÆVARSSONAR. Hrefna María Hallgrímsdóttir Linda Hreggviðsdóttir og fjölskylda Sigþór Sævar Hallgrímsson og fjölskylda Hjartans þakkir til allra sem sýndu okkur samúð, vinsemd og hlýhug við andlát og útför ástkærs eiginmanns míns, föður, tengdaföður og afa, PÁLS RAGNARSSONAR, tannlæknis á Sauðárkróki. Sérstakar þakkir til sr. Höllu Rutar Stefánsdóttur, ættingja, vina, félaga í Tindastóli og starfsfólks LSH sem annaðist hann í veikindunum. Stuðningur ykkar hefur verið ómetanlegur. Guð blessi ykkur öll. Margrét Steingrímsdóttir Ragnar Pálsson Helga Margrét Pálsdóttir Jón Þorsteinn Oddleifsson Anna Rósa Pálsdóttir Gunnar Valur Stefánsson og barnabörn Ástkær eiginkona mín, móðir og amma, BIRNA GUÐRÚN JÓHANNSDÓTTIR, sem lést sunnudaginn 14. febrúar, verður jarðsungin frá Grafarvogskirkju föstudaginn 26. febrúar klukkan 13. Athöfninni verður streymt. Sigurður Rúnar og Róbert Örn Skil | Þeir sem vilja senda Morgunblaðinu greinar eru vinsamlega beðnir að nota innsendikerfi blaðsins. Smellt á Morgunblaðslógóið í hægra horninu efst og viðeigandi liður, „Senda inn minningargrein,“ valinn úr felliglugganum. Einnig er hægt að slá inn slóðina www.mbl.is/sendagrein Skilafrestur | Ef óskað er eftir birtingu á útfarardegi verður greinin að hafa borist eigi síðar en á hádegi tveimur virkum dögum fyrr (á föstudegi ef útför er á mánudegi eða þriðjudegi). Þar sem pláss er takmarkað getur birting dregist, enda þótt grein ber- ist áður en skilafrestur rennur út. Minningargreinar

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.