Morgunblaðið - 24.02.2021, Page 24

Morgunblaðið - 24.02.2021, Page 24
24 DÆGRADVÖL MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 24. FEBRÚAR 2021 40 ára Þórður er Breiðhyltingur og býr í Breiðholti. Hann er með UEFA A- og UEFA elite-réttindi sem knattspyrnuþjálfari. Hann er yfirþjálfari yngri flokka Þróttar. Þórður stofnaði Knattspyrnufélag Breið- holts og stýrði og spilaði með félaginu og einnig Leikni. Hann fékk jafnréttis- verðlaun KSÍ árið 2015. Maki: Jéssica Santos Fernandes, f. 1992 í Brasilíu, enskukennari í meistaranámi í kennslufræðum við HÍ. Foreldrar: Einar Marel Þórðarson, f. 1952, rafeindavirki, búsettur í Reykjavík, og Margrét Harðardóttir, f. 1959, sjúkra- liði, búsett í Reykjavík. Þórður Einarsson Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl  Hrútur Vertu með peningamálin á hreinu í dag og vingastu við bankareikninginn, ef svo má að orði komast. Menn vilja skemmta sér í dag. 20. apríl - 20. maí  Naut Haltu áfram að skipuleggja þig betur. Þú ert sáttari við ástandið á heimilinu en þú hefur verið. Skapandi hugmyndir eru orkusprauta. 21. maí - 20. júní  Tvíburar Vertu óhræddur við að bera upp þær spurningar, sem þér liggja á hjarta. Láttu ekki allt hvíla á mótaðilanum heldur leggðu fram þinn skerf. 21. júní - 22. júlí  Krabbi Samstarfsmenn þínir munu koma auga á hæfileika þína og vilja njóta þeirra. Forðastu að vera með stóryrtar yfirlýsingar um líf annarra. 23. júlí - 22. ágúst  Ljón Það er eitthvað í fari þínu sem kallar á athugasemdir félaga þinna. Gakktu hik- laust til verks og láttu utanaðkomandi hluti ekki trufla þig. 23. ágúst - 22. sept.  Meyja Samböndum, sem þurfa á að halda að vera byggð upp upp á nýtt, mun vegna vel. Reyndu að leita skjóls frá utanaðkom- andi kröfum og hvíla þig. 23. sept. - 22. okt.  Vog Mundu að láta aðra í friði með sín leyndarmál og gerðu þér heldur ekki upp hugmyndir um eðli þeirra. Vertu ekki nið- urdreginn þótt þú sjáir eftir orðum þínum. 23. okt. - 21. nóv. Sporðdreki Þú átt ekki að reka á eftir mál- um, nema þú sért tilbúinn til að hlusta á lyktir þeirra. Gættu þess vegna orða þinna. 22. nóv. - 21. des. Bogmaður Samkeppnin ræður ríkjum í vinnunni, en ef þú vinnur vel heima, ferðu auðveldlega með sigur af hólmi. Reyndu að sjá hlutina í jákvæðu ljósi. 22. des. - 19. janúar Steingeit Þótt friður sé æskilegur getur hann stundum verið of dýru verði keyptur. Skilaðu öllu sem þú hefur að láni. 20. jan. - 18. febr. Vatnsberi Stundum þarf að kafa djúpt í hlutina, dýpra en hægt er að ímynda sér við fyrstu sýn. Reyndu að forðast alla árekstra milli starfs og heimilis. 19. feb. - 20. mars Fiskar Fátt er betra en góðir vinir svo leggðu þig fram um að eiga með þeim ánægjulega stund. Viljastyrkurinn er ekki mikill þessa dagana. P étur Hrafn Sigurðsson fæddist 24. febrúar 1961 í Reykjavík og ólst upp í Hlíðunum að stærstum hluta, en átti heima í Vestmannaeyjum tveggja til sex ára. Pétur gekk í Hlíðaskóla en tók 10. bekk í Ármúlaskóla þar sem 10. bekkur var ekki í Hlíðaskóla á þessum tíma. Hann fór svo í Menntaskólann við Hamrahlíð og lauk síðan BA-prófi í sálfræði við Háskóla Íslands. „Ég var fimm sumur í sveit í Efri-Lækjardal í Engihlíðarhreppi í Austur-Húnavatnssýslu hjá ömmubróður mínum Friðgeiri Kemp og konu hans Elísabetu Geirlaugsdóttur Kemp. Það var frábær tími þar sem ég lærði til verka, allt frá girðingavinnu og heyskap yfir í smalamennsku á haustin. Eftir menntaskóla tók ég mér frí og fór á sjóinn og var m.a. á Ingólfi Arnarsyni sem var mikil og góð reynsla.“ Pétur stundaði íþróttir með Val, aðallega knattspyrnu upp alla yngri flokka en hætti eftir 2. flokk. „Ég var aðeins í körfubolta og í marki í handbolta þar til leikmenn fóru að skjóta svo fast að ég dofn- aði upp í höndunum þegar ég varð fyrir boltanum. Á þessum tíma voru ekki margar æfingar í viku í hverri grein eins og nú er og því var hægt að prófa ýmislegt og ég prófaði sund hjá Ármanni og frjáls- ar hjá ÍR þar sem ég fór á æfingar með Þórdísi Gísladóttur hástökkv- ara. Hún hélt áfram og varð ein besta íþróttakona landsins, en mín- ir hæfileikar lágu ekki í frjálsum og stoppaði ég stutt við. Ég náði þó að mæta á nokkrar æfingar hjá Guðmundi frjálsíþróttaþjálfara í ÍR-húsinu á Túngötu.“ Pétur varð framkvæmdastjóri Körfuknattleikssambands Íslands 1987 og starfaði þar í 17 ár. „Það var afar skemmtilegur tími. Mikil sprenging varð í íþróttinni þegar Michael Jordan kom fram í banda- ríska körfuboltanum. Við hjá KKÍ lögðum ofurkapp á að vinna að út- breiðslu íþróttarinnar og fjölga fé- lögum sem höfðu körfubolta innan sinna vébanda og fjölga iðkendum sem tókst mjög vel. Starfið var oft og tíðum mjög krefjandi sér í lagi að afla fjármagns til reksturs sam- bandsins og landsliðanna. Í þá daga var síminn aðalsam- skiptatækið og hringt hvenær sól- arhringsins sem var. Fyrstu árin var skemmtilegt að hitta forsvars- menn félaga af landsbyggðinni sem ég hafði aldrei séð, en talað við í síma í heilan vetur. Þá þekkti mað- ur þá af röddinni. Þegar ég hætti hjá KKÍ fannst mér ég allt í einu ekki eiga neina vini þar sem síminn hætti að hringja!“ Árið 1994 varð Pétur alþjóðlegur eftirlitsmaður í körfubolta og var þá sá yngsti í Evrópu. „Þegar ég mætti til Madríd sem eftirlitsdóm- ari hjá Real Madrid spurðu forviða Madrídingar hvort nú tíðkaðist að senda „baby commissioner“. Ég sat í unglinganefnd FIBA í átta ár. Fyrra kjörtímabilið var ég lang- yngstur en síðara kjörtímabilið kom inn yngra fólk sem gerði tölu- vert miklar breytingar á móta- fyrirkomulagi yngri landsliða. Eftir að Pétur hætti hjá KKÍ tók hann að sér sjálfboðaliðastörf eins og að vera formaður dómara- nefndar KKÍ í nokkur ár. Hann var síðan formaður körfuknatt- leiksdeildar Breiðabliks í þrjú ár. Hann er silfurbliki og fékk félags- málabikar Breiðabliks 2009. Pétur hefur fengið gullmerki bæði frá KKÍ og ÍSÍ sem viðurkenningu fyrir störf hans innan íþróttahreyf- ingarinnar. Pétur gerðist deildarstjóri hjá Íslenskri getspá 2004 og starfar þar enn. „Má segja að þá hafi ég flust hinum megin við borðið því Íslensk getspá leggur íþróttahreyf- Pétur H. Sigurðsson, deildarstj. hjá Íslenskri getspá og bæjarfulltrúi í Kópavogi – 60 ára Fjölskyldan Pétur og Sigrún, börn, tengdadóttir og barnabörn ásamt Þóreyju, móður Péturs, á 86 ára afmæli hennar í fyrra. Reynslan úr íþróttahreyfing- unni nýst vel í stjórnmálum Fjallahlaup Pétur með Bakkagerði í Borgarfirði eystra í baksýn. Hjónin Sigrún og Pétur á göngu- skíðum í Selárdal á Ströndum. 30 ára Andri er Árbæingur en er ný- fluttur í Kópavog. Hann er með M.Sc.- gráðu í við- skiptafræði frá Há- skóla Íslands og er rekstrarstjóri hjá Hringiðu netþjónustu. Andri lék yfir 100 leiki með meistaraflokki Fylkis í fótbolta. Maki: Þórunn Björg Guðmundsdóttir, f. 1992, M.Sc. í viðskiptafræði og vinn- ur hjá Icelandair. Foreldrar: Magnea Ragna Ögmunds- dóttir, f. 1961, skrifstofustjóri hjá Verslunarskólanum, og Jón Ingi Ingi- marsson, f. 1952, vann hjá Johan Rönning. Þau eru búsett í Kópavogi. Andri Þór Jónsson Til hamingju með daginn Börn og brúðhjón Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks, svo sem stórafmælum, hjónavígslum, barnsfæðingum og öðrum tímamótum. Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð. Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.