Morgunblaðið - 24.02.2021, Side 26
26 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 24. FEBRÚAR 2021
Lengjubikar kvenna
A-deild, riðill 1:
Valur – ÍBV............................................... 8:0
Keflavík, Þróttur R. og Valur eru með
þrjú stig eftir fyrstu umferð, ÍBV, KR og
Selfoss eru án stiga.
England
Leeds – Southampton .............................. 3:0
Staðan:
Manch. City 25 18 5 2 50:15 59
Manch. Utd 25 14 7 4 53:32 49
Leicester 25 15 4 6 44:27 49
West Ham 25 13 6 6 39:29 45
Chelsea 25 12 7 6 41:25 43
Liverpool 25 11 7 7 45:34 40
Everton 24 12 4 8 37:33 40
Aston Villa 23 11 3 9 37:26 36
Tottenham 24 10 6 8 37:27 36
Leeds 25 11 2 12 43:43 35
Arsenal 25 10 4 11 31:26 34
Wolves 25 9 6 10 26:32 33
Crystal Palace 25 9 5 11 29:43 32
Southampton 25 8 6 11 31:43 30
Burnley 25 7 7 11 18:30 28
Brighton 25 5 11 9 26:32 26
Newcastle 25 7 4 14 26:43 25
Fulham 25 4 10 11 21:32 22
WBA 25 2 8 15 19:55 14
Sheffield Utd 25 3 2 20 15:41 11
B-deild:
Luton – Millwall....................................... 1:1
Jón Daði Böðvarsson lék fyrstu 75 mín-
úturnar fyrir Millwall sem er í ellefta sæti
deildarinnar.
D-deild:
Colchester – Exeter ................................ 1:2
Jökull Andrésson varði mark Exeter
sem er komið í sjötta sæti deildarinnar.
Holland
B-deild:
Jong PSV – Helmond Sport ................... 2:2
Kristófer Ingi Kristinsson kom inn á hjá
Jong PSV eftir 75 mínútur.
Volendam – Jong Ajax............................ 3:2
Kristian Nökkvi Hlynsson var ekki í
leikmannahópi Jong Ajax.
Meistaradeild Evrópu
16-liða úrslit, fyrri leikir:
Lazio – Bayern München......................... 1:4
Atlético Madrid – Chelsea....................... 0:1
Undankeppni EM kvenna
A-riðill:
Eistland – Slóvenía................................... 0:9
D-riðill:
Aserbaídsjan – Moldóva .......................... 1:0
Spánn – Pólland........................................ 3:0
Pólland hafnaði í þriðja sæti riðilsins, á
eftir Spáni sem fer beint á EM og Tékk-
landi sem fer í umspil. Pólland þurfti sigur
til að komast í umspilið.
E-riðill:
Skotland – Portúgal ................................. 0:2
Kýpur – Finnland..................................... 0:5
Portúgal endar í öðru sæti riðilsins, á eft-
ir Finnlandi sem fer beint á EM, en Portú-
galar þurfa að fara í umspil.
H-riðill:
Króatía – Rúmenía ................................... 0:1
Meistaradeild karla
A-RIÐILL:
París SG – Kielce................................. 37:26
Sigvaldi Björn Guðjónsson lék ekki með
Kielce og Haukur Þrastarson er frá keppni
vegna meiðsla.
Kielce 17, Flensburg 15, París SG 12,
Meshkov Brest 11, Pick Szeged 10, Porto 8,
Elverum 5, Vardar Skopje 4.
B-RIÐILL:
Kiel – Aalborg...................................... 28:26
Arnór Atlason er aðstoðarþjálfari Aal-
borg.
Nantes – Zagreb................................... 30:28
Barcelona 24, Veszprém 17, Aalborg 12,
Motor Zaporozhye 12, Kiel 11, Nantes 10,
Celje Lasko 6, Zagreb 0.
Evrópudeild karla
B-RIÐILL:
Sporting Lissabon – Kristianstad ..... 27:26
Teitur Örn Einarsson skoraði 5 mörk og
gaf eina stoðsendingu fyrir Kristianstad og
Ólafur Andrés Guðmundsson skoraði 1.
Nimes 11, Füchse Berlín 10, Kristianstad
10, Sporting Lissabon 8, Dinamo Búkarest
5, Tatran Presov 2.
C-RIÐILL:
Magdeburg – Alingsås........................ 36:21
Ómar Ingi Magnússon skoraði 2 mörk
fyrir Magdeburg og Gísli Þorgeir Krist-
jánsson 2 og gaf 5 stoðsendingar.
Aron Dagur Pálsson skoraði 3 mörk fyr-
ir Alingsås og gaf 2 stoðsendingar.
Magdeburg 14, Montpellier 10, CSKA
Moskva 12, Nexe 8, Alingsås 4, Besiktas 0.
D-RIÐILL:
GOG – Trimo Trebnje......................... 32:31
Viktor Gísli Hallgrímsson varði 14 skot í
marki GOG og gaf 2 stoðsendingar.
Tatabánya – Kadetten ........................ 30:32
Aðalsteinn Eyjólfsson þjálfar Kadetten.
Rhein-Neckar Löwen 15, GOG 10, Ka-
detten 10, Pelister 9, Trimo Trebnje 4,
Tatabánya 0.
MEISTARADEILDIN
Víðir Sigurðsson
vs@mbl.is
Chelsea og Bayern München eru í
afar góðri stöðu til að komast í átta
liða úrslit Meistaradeildarinnar í fót-
bolta eftir góða útisigra í sextán liða
úrslitunum í gærkvöld.
Olivier Giroud skoraði glæsilegt
mark með hjólhestaspyrnu á 70.
mínútu gegn Atlético og það reynd-
ist sigurmark Chelsea, 1:0. Sann-
gjarn sigur enska liðsins en leikið
var í Búkarest þar sem ensk lið
mega ekki koma til Spánar. Giroud
hefur nú skorað sex mörk fyrir
Chelsea í Meistaradeildinni og liðið
er taplaust í sjö leikjum þar í vetur.
Aðeins Norðmaðurinn Erling
Haaland hefur skorað fleiri mörk en
Giroud í keppninni í vetur, átta tals-
ins fyrir Dortmund.
Bayern fór létt með Lazio í Róm
og vann 4:1 eftir að staðan var 4:0
eftir 50 mínútna leik. Robert Lew-
andowski, Jamal Musiala og Leroy
Sané skoruðu fyrir hlé og Lazio hóf
seinni hálfleik á sjálfsmarki. Joaquín
Correa svaraði strax fyrir Lazio en
þar við sat.
Lewandowski er með markinu
orðinn þriðji markahæstur í sögu
meistaradeildarinnar með 72 mörk,
á eftir Cristiano Ronaldo (134) og
Lionel Messi (119). Lewandowski
fór fram úr spænska markaskor-
aranum Raúl sem gerði 71 mark í
keppninni á sínum tíma.
Jamal Musiala varð yngsti Eng-
lendingurinn til að skora í Meistara-
deildinni, 17 ára og 363 daga gamall,
og er jafnframt næstyngsti leikmað-
urinn til að skora í útsláttarkeppni
deildarinnar. Bojan Krkic á metið en
hann skoraði 17 ára og 217 daga
gamall fyrir Barcelona.
Seinni leikirnir í báðum einvígjum
fara fram 17. mars.
Fyrri leikjum sextán liða úr-
slitanna lýkur í kvöld. Þá tekur
þýska liðið Borussia Mönchenglad-
bach á móti enska toppliðinu Man-
chester City, í Búdapest, og Atal-
anta fær Spánarmeistara Real
Madrid í heimsókn til Bergamo á
Ítalíu. Seinni leikir 16-liða úrslitanna
fara síðan fram á bilinu 9. til 17.
mars.
Magnað sigur-
mark Girouds
Bayern München ekki í vandræðum
AFP
Tilþrif Olivier Giroud skorar sigurmark Chelsea gegn Atlético með stór-
brotinni hjólhestaspyrnu. Markið var dæmt af en síðan úrskurðað löglegt.
Leeds United fór nokkuð létt með
Southampton í ensku úrvalsdeild-
inni í gær og sigraði 3:0 á Elland
Road en reyndar var staðan 0:0 að
loknum fyrri hálfleik.
Patrick Bamford skoraði fyrsta
markið á 47. mínútu og Stuart Dall-
as bætti við öðru marki þegar tólf
mínútur voru eftir af venjulegum
leiktíma. Raphinha setti punktinn
yfir i-ið á 84. mínútu þegar hann
skoraði þriðja markið.
Leeds er í 10. sæti deildarinnar
með 35 stig eftir 25 leiki en South-
ampton er í 14. sæti með 30 stig.
Leeds í 10. sæti
eftir góðan sigur
AFP
3:0 Patrick Bamford fagnar marki
sínu ásamt samherjunum í gær.
Frá og með deginum í dag mega allt
að 200 áhorfendur mæta á íþrótta-
viðburði, svo framarlega sem
ströngum reglum heilbrigðis-
yfirvalda er fylgt. Ný reglugerð sem
kynnt var í gær gildir næstu þrjár
vikurnar. Sérsamböndin vinna nú að
útfærslum sem ráðuneytið þarf síð-
an að samþykkja áður en áhorf-
endur geta byrjað að mæta í íþrótta-
húsin. Hannes S. Jónsson, formaður
Körfuknattleikssambands Íslands,
sagði við mbl.is að það gæti tekið
einhverja daga að fá útfærslurnar
samþykktar.
Áhorfendur
leyfðir á ný
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Áhorfendur Tómir áhorfendapallar
heyra vonandi sögunni til.
Valur burstaði ÍBV 8:0 þegar liðin
fóru af stað í Lengjubikar kvenna í
knattspyrnu í gær en leikurinn fór
fram á Hlíðarenda.
Anna Rakel Pétursdóttir, sem
gekk í raðir Vals frá Uppsala í Sví-
þjóð í vetur, skoraði tvívegis. Þá
skoraði Mary Alice Vignola einnig í
leiknum en hún kom til Vals frá
Þrótti í vetur.
Markadrottningin Elín Metta Jen-
sen skoraði tvívegis, Bergdís Fann-
ey Einarsdóttir og Mist Edvards-
dóttir skoruðu sitt markið hvor og
eitt markanna var sjálfsmark.
Liðin leika í riðli 1 í A-deild
keppninnar. Keflavík, Þróttur R. og
Valur eru með þrjú stig eftir fyrstu
umferð en ÍBV, KR og Selfoss eru án
stiga. Um fyrri helgi vann Keflavík
lið Selfoss 8:2 og Þróttur vann KR
3:1.
Morgunblaðið/Eggert
Á Hlíðarenda Landsliðskonan Elín Metta Jensen ógnar marki ÍBV í gær en
hún skoraði fimmta og sjötta mark Vals , hvort sínum megin við hálfleik.
Valur rótburstaði ÍBV
Fjölnir fór illa með Skautafélag
Reykjavíkur þegar liðin mættust í
Hertz-deild kvenna í íshokkíi í Egils-
höllinni í gærkvöldi. Fjölnir vann
10:2 sem eru nánast ótrúlegar loka-
tölur í ljósi þess að staðan var 1:1 að
loknum fyrsta leikhluta. Fjölnir
vann annan leikhluta 7:0 og því var
staðan 8:1 fyrir síðasta leikhlutann.
Sigrún Árnadóttir skoraði fjögur
mörk fyrir Fjölni. Laura Murphy og
Berglind Valdimarsdóttir skoruðu
tvö og þær Harpa Kjartansdóttir og
Maríana Birgisdóttir sitt markið
hvor. Brynhildur Hjaltested skoraði
bæði mörk SR.
Fjölnir náði þar með í annan sig-
urinn í vetur og er með sex stig eftir
fimm leiki. Akureyringar í Skauta-
félagi Akureyrar hafa unnið alla
fimm leiki sína og eru með fimmtán
stig. SR hefur tapað fyrstu fjórum
og er því án stiga á botninum. sport-
@mbl.is
Fjölnir skoraði tíu mörk
Morgunblaðið/Eggert
Í Grafarvogi Fjölniskonur stungu SR-konur af í öðrum leikhluta í gær.