Morgunblaðið - 24.02.2021, Page 27

Morgunblaðið - 24.02.2021, Page 27
ÍÞRÓTTIR 27 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 24. FEBRÚAR 2021  Næstsigursælasti kylfingur sög- unnar, Tiger Woods, var fluttur á sjúkrahús í gær eftir bílveltu í Kali- forníu. Fór hann beint í aðgerð vegna ýmissa áverka á fótum samkvæmt Golf Digest sem hafði það eftir um- boðsmanni Woods. Frekari fréttir lágu ekki fyrir þegar blaðið fór í prentun en í gærkvöldi var slysið fyrsta frétt hjá helstu miðlum í Bandaríkjunum. Engin önnur bifreið kom við sögu í slysinu og mun Woods hafa verið einn í bílnum.  Knattspyrnusamband Evrópu, UEFA, hefur aflýst Evrópumótum U19 ára karla og kvenna sem átti að ljúka á þessu ári. Undankeppni átti að fara fram í mars og apríl þar sem til stóð að íslensku piltarnir myndu spila í Noregi en stúlkurnar í Búlgaríu.  Haukur Helgi Pálsson, landsliðs- maður í körfuknattleik, er klár í slag- inn á ný með Andorra eftir að hafa ver- ið frá keppni undanfarnar sex vikur vegna meiðsla. Haukur tognaði á ökkla í leik með liðinu í janúar og hefur því misst af leikjum liðsins í spænsku A- deildinni og í Evrópubikarnum þar sem liðið er í riðlakeppni 16-liða úrslitanna.  Jón Dagur Þorsteinsson, fyrirliði 21-árs landsliðsins í knattspyrnu, er í úrvalsliði 17. umferðar dönsku úrvals- deildarinnar, bæði hjá deildinni sjálfri og hjá Tipsbladet. Jón Dagur átti mjög góðan leik með AGF um helgina þegar liðið sigraði SönderjyskE, 2:0.  Meiðsli sem Aron Einar Gunnars- son landsliðsfyrirliði í knattspyrnu varð fyrir í upphitun fyrir leik Al-Arabi og Al-Sadd í katörsku úrvalsdeildinni reynd- ust ekki alvarleg. Aron stífn- aði í hálsi og gat ekki hreyft sig eðli- lega, að sögn Freys Alexand- erssonar aðstoð- arþjálfara Al-Arabi sem sagði við mbl.is að þessi meiðsli myndu engin áhrif hafa á þátttöku Arons í landsleikj- unum í næsta mánuði og reiknað væri með honum í næsta leik liðsins. Eitt ogannað Geir Guðmundsson handknattleiks- maður missir væntanlega af næstu leikjum Hauka eftir að hafa fengið þungt höfuðhögg í leik liðsins gegn ÍR í fyrrakvöld. „Ég er með haus- verk og því fylgir ógleði sem kemur og fer. Ég er mjög orkulaus og við- kvæmur fyrir hávaða og birtu. Þeg- ar ég er orðinn einkennalaus undir áreynslu er ég orðinn nægilega góð- ur til þess að spila á nýjan leik að sögn lækna. Ég veit hins vegar ekk- ert hvað það mun taka langan tíma,“ sagði Geir í gær en ítarlegt viðtal er við hann á mbl.is/sport/handbolti. Geir missir af næstu leikjum Morgunblaðið/Eggert Höfuðhögg Geir Guðmundsson veit ekki hvenær hann má spila á ný. Ari Freyr Skúlason, landsliðs- maður í knattspyrnu, er á góðum batavegi eftir að hafa fengið kór- ónuveiruna og misst af fjórum leikj- um með belgíska liðinu Oostende. „Ég útskrifaðist síðasta fimmtudag, ég missti bragð- og lyktarskyn og ég fann fyrir smá þreytu fyrstu vik- una en ekkert alvarlegt þannig. Við fengum þetta öll fjölskyldan og miðað við hvernig ástandið er í heiminum í dag tel ég okkur öll hafa sloppið mjög vel,“ sagði Ari við Morgunblaðið í gær en hann er byrjaður að æfa með liðinu á ný. Ari aftur af stað eftir veiruna Morgunblaðið/Eggert Kórónuveiran Ari Freyr Skúlason er byrjaður að æfa á nýjan leik. HM 2022 Víðir Sigurðsson vs@mbl.is Mánuði áður en „leiðin til Katar“ hefst í Duisburg, fimmtudaginn 25. mars, er ekki auðvelt að stilla upp mögulegu íslensku landsliði sem þann dag mætir stórveldinu Þýska- landi í fyrsta leik J-riðils undan- keppni HM karla í fótbolta. Arnar Þór Viðarsson, nýr lands- liðsþjálfari með Eið Smára Guðjohn- sen sér við hlið, þarf að setja saman lið sem gæti orðið talsvert breytt frá því í nóvember þegar forveri hans Eric Hamrén stýrði því í síðasta sinn, gegn Ungverjalandi, Dan- mörku og Englandi. Þegar Ísland og Ungverjaland mættust í leiknum dramatíska í Búdapest 12. nóvember, og Ungverj- ar tryggðu sér EM-sætið með því að skora tvisvar undir lokin og vinna 2:1, var stillt upp því liði sem eflaust flestir eru sammála um að hafi verið það sterkasta sem völ var á. Hannes Þór Halldórsson, Guð- laugur Victor Pálsson, Kári Árna- son, Ragnar Sigurðsson, Hörður Björgvin Magnússon, Jóhann Berg Guðmundsson, Aron Einar Gunn- arsson, Rúnar Már Sigurjónsson, Birkir Bjarnason, Gylfi Þór Sigurðs- son og Alfreð Finnbogason hófu leik- inn. Fjórum og hálfum mánuði síðar, 25. mars, gæti nokkuð breytt lið gengið inn MSV-leikvanginn í Duis- burg. Eins og staðan er í dag eru bara fimm af þessum ellefu „tiltölulega öruggir“ um sæti í liðinu. Guðlaugur Victor, Hörður Björgvin, Aron Ein- ar, Birkir og Gylfi. Þeir hafa allir spilað reglulega með félagsliðum sínum undanfarnar vikur og mánuði. Aron stífnaði reyndar í hálsi í upphitun fyrir leik á mánudag og gat ekki spilað með Al- Arabi en ætti að vera fljótur að hrista það af sér. Það er eini leik- urinn sem landsliðsfyrirliðinn hefur misst af vegna meiðsla á þessu keppnistímabili í Katar. Ekki spilað í marga mánuði Hjartað í varnarleiknum er hins vegar stærsta spurningarmerkið. Hannes Þór Halldórsson mark- vörður og Kári Árnason miðvörður leika með Val og Víkingi og hafa ekki spilað deildaleik með félagsliði síðan í byrjun október. Ragnar Sigurðsson miðvörður hefur ekki spilað leik með félagsliði síðan í september og hans síðasti fótboltaleikur til dagsins í dag var í Búdapest 12. nóvember. Hann kom í nýtt lið, Rukh Lviv í Úkraínu, eftir áramót en er ekki byrjaður að spila með því. Hannes, Kári og Ragnar hafa myndað magnað þríeyki í öftustu línu landsliðsins á velgengnisárum þess en ásamt verkefnaleysi vetrarins eru þeir 37, 39 og 35 ára á þessu ári og endast ekki að eilífu. Kári sagði sjálf- ur eftir leikina í nóvember að hann sæi ekki fram á mikla spurn eftir 39 ára leikmanni frá íslensku liði þegar komið yrði fram á árið 2021. Ragnar gæti þó enn náð að spila fjóra leiki fram að landsleikjahléinu sem myndi vafalítið breyta miklu fyr- ir hann. Rúnar Már hefur ekkert spilað síð- an í nóvember. Hann var ekki með í lokaleikjum Astana í Kasakstan vegna meiðsla og er ekki byrjaður að spila með sínu nýja liði í Rúmeníu, CFR Cluj, en gæti þó náð þremur til fjórum leikjum í mars. Meiðsli Alfreðs og Jóhanns Þá hefur Alfreð misst af fjórum síð- ustu leikjum Augsburg vegna meiðsla og óvíst er með þátttöku hans. Jó- hann Berg meiddist í leik með Burn- ley um síðustu helgi en útlit er fyrir að þau meiðsli séu ekki alvarleg. Maður kemur í manns stað. Jón Daði Böðvarsson frá Millwall og Al- bert Guðmundsson frá AZ Alkmaar hafa spilað mikið undanfarnar vikur og mánuði og myndu væntanlega fylla skörð Alfreðs og Jóhanns ef þannig færi. Ari Freyr Skúlason ætti líka að vera klár eftir að hafa hrist af sér kórónuveiruna en hann hefur annars spilað mikið í vetur. Arnór Ingvi Traustason sem hefur oft verið í byrjunarliðinu spilar með Malmö í Svíþjóð þar sem tímabilið hefst ekki af alvöru fyrr en í apríl og hann stendur því ekki vel að vígi. Jón Dagur Þorsteinsson hefur leikið afar vel með AGF í Danmörku á þessu keppnistímabili og gæti gert tilkall til sætis í byrjunarliðinu. Að öðrum kosti verður hann í Ungverja- landi á sama tíma í úrslitakeppni Evrópumóts 21-árs landsliðanna. Þar eru reyndar gjaldgengir líka þeir Arnór Sigurðsson frá CSKA Moskvu og Mikael Anderson frá Midtjylland sem hafa báðir hafa nokkuð við sögu með A-landsliðinu síðustu misserin. Andri Fannar Baldursson frá Bologna og Ísak Bergmann Jóhannesson frá Norr- köping, sem fengu að spreyta sig kornungir með A-landsliðinu á síð- asta ári, eru örugglega á leið til Ungverjalands. Markvörðurinn og miðverðirnir eru stærsti óvissuþátturinn og svo gæti farið að Arnar þyrfti að hefja undankeppnina með algjörlega nýju þríeyki. Rúnar Alex Rún- arsson hefur leikið fimm leiki í marki Arsenal frá því í desember og Ögmundur Kristinsson tvo bik- arleiki með Olympiacos. Þeir eru annars varamarkverðir sinna liða og ekki sjálfgefið að annar þeirra taki skrefið fram fyrir Hannes Þór í goggunarröð landsliðsins. Sverrir fyrstur á blað Sverrir Ingi Ingason spilar nán- ast alla leiki PAOK í Grikklandi og þótt hann sé miðvörður er hann markahæsti íslenski fótboltamað- urinn erlendis frá áramótum með fjögur mörk. Sverrir er án efa fyrsti maður á blað til að fylla skarð Kára eða Ragnars, enda hefur hann gert það reglulega undan- farin ár. Hjörtur Hermannsson er annars sá miðvörður sem er í mestri leikæfingu en hann hefur spilað flesta leiki Bröndby í vetur, á meðan Hólmar Örn Eyjólfsson hjá Rosenborg og Jón Guðni Fjóluson hjá Hammarby eru í svipaðri stöðu og leikmenn íslensku liðanna og byrja ekki sín tímabil af alvöru fyrr en í apríl. Á sama báti og þeir Hólmar og Jón eru líka m.a. þeir Viðar Örn Kjartansson, Birkir Már Sævars- son, Kolbeinn Sigþórsson og Sam- úel Kári Friðjónsson. Þarf Arnar nýtt „þrí- eyki“ fyrir marsleikina?  Óvissa með marga lykilmenn fyrir fyrstu leiki Íslands í undankeppni HM Morgunblaðið/Golli Þríeykið Kári Árnason, Hannes Þór Halldórsson og Ragnar Sigurðsson hafa myndað magnaða „bakvarðasveit“ íslenska landsliðsins um árabil en nú er óvíst hvort þeir spili fleiri leiki saman í landsliðstreyjunni. Ísland leikur þrjá af tíu leikjum sínum í undankeppni HM 2022 dagana 25. til 31. mars. Fyrst er leikið við Þýskaland í Duisburg, þá við Armeníu í Jerevan og loks við Liechtenstein í Vaduz. Hinir sjö leikirnir fara fram í haust þegar leikið verður við Rúmeníu, Norður-Makedóníu og Þýskaland á heimavelli í september, og við Armeníu og Liechtenstein í október, en end- að verður á útileikjunum í Rúmeníu og Liechtenstein í nóvember. Sigurlið riðilsins fer beint á HM í Katar ásamt níu öðrum sigurvegurum en liðið í öðru sæti fer í tólf liða umspil um þrjú síðustu sætin á HM. Fyrir utan þessa tíu leiki í undankeppninni mun íslenska landsliðið mæta Færeyingum og Pólverjum í vináttulandsleikjum í Þórshöfn og Poznan dagana 4. og 8. júní. Undankeppni HM öll á árinu KÖRFUKNATTLEIKUR Úrvalsdeild kvenna, Dominos-deildin: Dalhús: Fjölnir – Keflavík ................... 18.15 Smárinn: Breiðablik – KR ................... 19.15 Stykkish.: Snæfell – Skallagrímur...... 19.15 Origo-höll: Valur – Haukar.................. 20.15 HANDKNATTLEIKUR 1. deild kvenna, Grill 66-deildin: Varmá: Afturelding – Grótta............... 19.30 Kórinn: HK U – Fjölnir/Fylkir ........... 19.30 Hleðsluhöll: Selfoss – Fram U ............ 19.30 Austurberg: ÍR – Víkingur.................. 20.15 Í KVÖLD! NBA-deildin Houston – Chicago ........................... 100:120 Dallas – Memphis ............................... 102:92 Oklahoma City – Miami ..................... 94:108 Phoenix – Portland........................... 132:100 Utah – Charlotte............................... 132:110 LA Lakers – Washington........ (frl.) 124:127  

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.