Morgunblaðið - 26.02.2021, Síða 2
TIL SÖLU Við Stórakrika í Mosfellsbæ er að finna afar
heillandi einbýlishús sem byggt var 2007. Húsið er 244 fm að
stærð og er fasteignamat hússins 91.450.000 kr.
Eldhús, borðstofa og stofa liggja saman og er fallegt útsýni
út um stofugluggann sem er risastór. Labbað er nokkrar tröpp-
ur niður í stofuna sem gerir lofthæðina þar enn þá meiri. Gler-
handrið stúkar af stofu og borðstofu og gerir það að verkum að
birtan fær að flæða óhindrað.
Í eldhúsinu er hvít sprautulökkuð innrétting með svörtum
granít-borðplötum. Parket er á stofu og borðstofu en flísar á
eldhúsi.
Eins og sjá má á myndunum er húsið afar vandað og fallegt.
Hægt er að skoða eignina nánar á fasteignavef mbl.is.
Stórikriki 13
119.000.000 kr.
2 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 26. FEBRÚAR 2021
Útgefandi Árvakur Umsjón Marta María Jónasdóttir Blaðamenn Marta María Jónasdóttir mm@mbl.is, María Margrét Jóhannsdóttir
mariamargret@mbl.is Auglýsingar Sigrún Sigurðardóttir sigruns@mbl.is Bylgja Björk Sigþórsdóttir bylgja@mbl.is Prentun Landsprent ehf.
Forsíðumyndina tók
Gunnar Sverrirsson
H
eimir hefur starfað við fasteignasölu í rúm-
lega áratug. Hann segir að starfið sé fjöl-
breytt og hann viti oft ekki hvað dagurinn
muni bera í skauti sér.
Þegar hann er spurður að því hvað sé mest
spennandi við starfið segir hann að það sé að geta glatt
fólk.
„Eitt símtal sem getur leitt mig að skoða draumaeign
viðskiptavinar sem ég hef verið að leita að eign fyrir. Það
eru margir viðskiptavinir mínir í gegnum árin sem hringja
í mig og biðja mig um að finna draumaeignina þeirra. Það
mætti segja að það væri það sem er mest spennandi við
starfið. Orðsporið í fasteignasölu skiptir svo miklu máli og
ég hef verið svo heppinn að eignast stóran hóp við-
skiptavina sem vísa vinum og kunningjum á mig og því er
ég alltaf að heyra í og aðstoða nýja kaupendur ásamt því
að aðstoða þá sem hafa verið traustir viðskiptavinir um
árabil,“ segir hann.
Er hægt að selja allar eignir á núll einni?
„Nei ég get ekki sagt það. Þótt það komi oft fyrir að
eign seljist nánast áður en hún fer á netið. Það er þó
nokkur eftirspurn eftir sérbýlum og 2 til 3 herbergja íbúð-
um í flestum hverfum sem fara þá mjög fljótt og fá þá oft
færri en vilja þá eign. Það eru fyrst og fremst þessir
þættir sem valda þessari miklu eftirspurn. Of lítið hefur
verið byggt af sérbýlum á síðastliðnum árum. Einnig hafa
lágir húsnæðisvextir og aukinn kaupmáttur hjá mörgum
kaupendum hjálpað til. Þetta er samt óvenjuskökk mynd
miðað við undanfarin ár því eftir að Covid skall á varð
mikið högg á vinnumarkaði víða, þó ekki í öllum lands-
hlutum. Fólk er að vinna meira að heiman og því minni
kostnaður í ferðir til og frá vinnu. Það eru því margir
þættir sem spila inn í hvernig sambandið er milli fram-
boðs og eftirspurnar á fasteignamarkaði.“
Hvað þarf eign að hafa til að bera til þess að seljast
fljótt og örugglega?
„Þessi spurning fær ekkert eitt svar. Grunnþættirnir
eru oftast þeir sömu. Eignin þarf að vera í rétta hverfinu
og á rétta verðinu. Gott skiplag bæði innan og utan sem
og gróið og barnvænt hverfi þegar kaupendur eru fjöl-
skyldufólk. Þetta er svona hin dæmigerða vísitölu eign.“
Hvernig er fasteignamarkaðurinn að þróast?
„Ég sé hann þróast þannig að yngra fólk fer að færast
meira í úthverfin og þá meira í nágrannasveitarfélög
höfuðborgarsvæðisins. Það virðist langur vegur í að
Reykjavík, Kópavogur og Garðabær komi með nægjanlegt
magn lóða til að byggja á.“
Ef fólk er að velta fyrir sér að flytja, ætti það að gera
það strax eða bíða?
„Ef um fyrstu kaupendur er að ræða þá klárlega er það
núna, mjög góð kjör í boði fyrir fyrstu kaupendur víða, þó
ekki alls staðar. Þá er ég að tala um nýja úrræði HMS í
hlutdeildarlánum. Ef spurningin er frá fólki sem á íbúð
sem þarf að selja og kaupa annað þá í flestum tilfellum
skiptir það kannski ekki alveg máli því þær eignir haldast
saman í verði að mestu leyti og hækka báðar. Ég get ekki
séð að verð á fasteignum sé að lækka þegar eftirspurn er
meiri en framboðið.“
Hvernig er með þig sjálfan, flytur þú oft eða hefur þú
búið á sama staðnum lengi?
„Ég, ásamt syni mínum sem er að verða 17 ára, hef búið
á Akranesi, sjálfum Floridaskaganum, á frábærri hæð
með útsýni úr stofunni yfir Faxaflóa og upp að Esjunni.
Við erum nánast á Langasandi og ég sofna með fögur ljós-
in frá stórhöfuðborgarsvæðinu og vakna svo við sólarupp-
rásina. Við vorum áður í annarri eign hér á Akranesi sem
við tókum í gegn sem ég seldi. Þegar ég kom að skoða nú-
verandi eign og gekk inn í stofu og sá þetta óhindraða út-
sýni þá var það engin spurning, hér vildi ég búa.
Það koma margar eignir til greina að flytja í þegar að
þú skoðar tugi íbúða á viku. Ég fæ jafnmargar hugmyndir
með mína að breyta og bæta. Þá stoppar maður og bíður
jafnvel og hugsar, ég ætti kannski að selja og kaupa
þessa. Það eru alveg eignir hér á Akranesi sem eru að
fara í byggingu sem ég myndi vilja eignast. Svo festi ég
kaup á íbúð á Spáni, þar er gott að vera og ég stunda
uppáhaldsafþreyinguna mína þar, golfið, þegar tækifæri
gefst til.“
Heimir
Bergmann.
Mikil spenna á fasteignamarkaði
Heimir Bergmann, fasteignasali og eigandi
Lögheimilis Eignamiðlunar, býr á Akranesi
ásamt syni sínum. Hann segir að það sé
mikil spenna á fasteignamarkaði vegna
þess að eftirspurn er meiri en framboð þeg-
ar kemur að húsnæði.
Marta María | mm@mbl.is