Morgunblaðið - 26.02.2021, Page 6

Morgunblaðið - 26.02.2021, Page 6
H vað varð til þess að þú ákvaðst að gerast fasteignasali? „Það var aldrei á stefnuskránni að gerast fasteignasali þegar ég byrjaði að huga að því hvað ég vildi starfa við í framtíðinni, þó að áhugi á fasteignum hafi verið til staðar síðan ég man eftir mér. Án þess að vita nákvæmlega hvað ég vildi gera eftir menntaskóla þá fór ég í lögfræði við Háskóla Íslands og í framhaldinu kláraði ég löggildingarpróf til þess að starfa sem lög- maður. Ég starfaði við lögmennsku í um sjö ár og komst að því að það hentaði mér alls ekki. Þó að lögmennskan hafi verið skemmtileg á köfl- um þá fannst mér neikvæði hluti starfsins of mikill til þess að vilja starfa á þeim vettvangi til framtíðar. Í framhaldinu má segja að ég hafi slysast inn á þennan starfsvettvang. Það atvikaðist þannig að ég fór ut- an í vikufrí og allan þann tíma hugsaði ég ekki um annað en þau verk- efni sem biðu mín þegar ég kæmi til baka úr fríi. Þegar heim var kom- ið úr fríi opnaði ég blaðið og það fyrsta sem ég sá var auglýsing um starf fasteignasala. Eftir að hafa kynnt mér starfið nánar og farið í við- tal var ekki aftur snúið og hef ég mætt til vinnu brosandi og fullur til- hlökkunar hvern einasta vinnudag síðan ég hóf störf sem fast- eignasali,“ segir Heimir. Hvað drífur þig áfram í starfinu? „Það er klárlega fólkið sem ég umgengst á hverjum degi. Þá meina ég kúnnarnir, seljendur og kaupendur, og samstarfsfólk mitt á Lind fasteignasölu. Starf fasteignasala er að mínu mati skemmtilegasta starf sem hægt er að hugsa sér og ég hefði ekki getað endað á betri vinnustað þegar litið er til fagmennsku og góðs vinnuanda. Nálægð við kúnnann er mikil og maður hittir skemmtilegt og áhugavert fólk á hverjum degi. Það að kveðja glaða og ánægða kúnna í lok viðskipta er það sem maður stefnir að í hverri einustu eign sem maður tekur í sölu- meðferð.“ Hver er mesta áskorunin í starfinu? „Það er að standa ávallt undir því trausti sem mér er sýnt af hálfu seljanda annars vegar og kaupanda hins vegar. Hagsmunir seljanda og kaupanda fléttast að vissu leyti saman þar sem seljandi vill selja og kaupandi vill kaupa. Þegar kemur að kaupverðinu þá eru hagsmunir aðila ekki alveg þeir sömu þar sem seljandi vill selja á sem hæstu verði og kaupandi vill kaupa á sem lægstu verði. Því er mikilvægt að tryggja að seljandi fái hæsta mögulega verð sem markaðurinn er tilbúinn til þess að greiða fyrir eignina á þeim tíma og að sama skapi tryggja jafn- ræði milli tilboðsgjafa/kaupenda, þ.e. að allir sitji við sama borð og fái að bjóða í eignina og hækka boð sín eftir atvikum. Þá þarf að passa upp á að allar upplýsingar sem hægt er að afla um eignina liggi á borð- inu fyrir væntanlega tilboðsgjafa. Það er nú þannig að fasteignasalar sýsla með stærstu viðskipti sem flestir einstaklingar gera á lífstíð sinni og því er afar mikilvægt að það sé gagnkvæmt traust milli aðila.“ Nú ertu ekki bara fasteignasali heldur mikill fjallagarpur. „Ég hef ávallt haft mikinn áhuga á útivist og verið duglegur að þvælast á fjöll frá unga aldri. Bakterían í að klífa hærri fjöll og há- fjallamennska hófst þó ekki af alvöru fyrr en árið 2018, þegar ég kynntist Vilborgu Örnu Gissurardóttur og Sigurði Bjarna Sveinssyni eða Sigga eins og hann er kallaður í ferð á Hvannadalshnjúk. Það sama ár fórum við þrjú, ásamt Hrafni Svavarssyni, á topp Mont Blanc. Þremur mánuðum síðar var ég kominn með Vilborgu Örnu ásamt góð- um hópi upp í grunnbúðir Everest og þaðan náðum við á topp Island Peak í Nepal.“ Þú ert á leiðinni í mikla svaðilför, hvernig kom það til? „Eins og svo margir vita þá hefur áhugi minn á Everest alltaf verið mikill. Allt frá því ég las um Everest í grunnskóla hafa blundað í mér draumórar um að vita hvernig tilfinning það er að standa skýjum ofar, á hæsta punkti veraldar. Ég get ekki sagt að Everest hafi verið of- arlega í huganum á mér undanfarin ár en að sjá toppinn með eigin augum árið 2018 og standa í grunnbúðum Everest ýtti enn meira undir þá hugsun að þessi draumur gæti orðið að veruleika einn daginn. Það var svo á síðasta ári sem aðstæður í annars vegar einkalífi og hins veg- ar vinnulega séð opnuðu óvænt á þann möguleika, að láta þennan draum rætast, að reyna að klífa Everest. Í framhaldinu heyrði ég í Sigga og kannaði hvort þetta væri ekki rétti tíminn í svona verkefni saman. Eftir nokkurra daga umhugsunarfrest þá kom Siggi til baka og sagðist vera til í þetta. Frá því símtali höfum við Siggi verið í miklum undirbúningi vegna ferðarinnar sem og vinnu með Umhyggju – félagi langveikra barna. Frá því ákvörðun var tekin vorum við Siggi ákveðnir í að reyna að láta gott af okkur leiða samhliða ferðinni og munum standa að söfnun með Umhyggju sem ber heitið „Með Umhyggju á Everest“,“ segir Heimir. Hvernig fer fasteignasala og fjallamennska saman? „Það fer nokkuð vel saman eins og flest áhugamál ef maður er vel skipulagður. Ég viðurkenni þó að 70 daga ferð til Nepal til þess að klífa hæsta tind veraldar fer ekkert sérstaklega vel saman við sölu á fasteignum þar sem mikill hraði einkennir fasteignamarkaðinn og fast- eignasalar þurfa að bregðast hratt við gagnvart kúnnum sínum á hverjum degi. Það sem gerir það að verkum að ég get farið í ferð af þessari stærðargráðu í tíma og umfangi er gífurlega sterk liðsheild og samheldni sem einkennir Lind fasteignasölu og því afar sterkt bakland sem tekur við mínum verkefnum meðan á ferð stendur. Þess má geta að Lind fasteignasala er einn af aðalstyrktaraðilum ferðarinnar sem við Siggi erum afar þakklátir fyrir.“ Fyrir áhugasama er hægt að fylgjast með undirbúningi og ferðinni sjálfri á Instagram-reikningi Heimis, Sigga og Umhyggju. Hætti í lögmennsku og gerðist fasteignasali Heimir er á leið- inni á Everest en hann smitaðist af fjallabakt- eríunni 2018. Heimir Hallgrímsson, löggiltur fasteignasali og einn af eigendum Lindar fasteignasölu, er menntaður lög- fræðingur. Eftir að hafa unnið við lögmennsku í um sjö ár gerðist hann fasteignasali. Nú er hann að undirbúa ferð á Everest en hann smitaðist af fjallabakteríu 2018 og þá varð ekki aftur snúið. Marta María | mm@mbl.is 6 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 26. FEBRÚAR 2021 Heimir Bergmann Löggiltur fasteigna- og skipasali og löggiltur leigumiðlari. Sími 630 9000 heimir@logheimili.is Kristín Skjaldardóttir Löggiltur fasteignasali Sími 824 4031 kristin@logheimili.is Ásgeir þór Ásgeirsson Löggiltur fasteignasali og lögfræðingur Sími 772 0102 asgeir@logheimili.is Guðmundur Ólafs Kristjánsson Löggiltur fasteigna- og skipasali Sími 847 0306 gudmundur@logheimili.is Unnur Alexandra Nemi til löggildingar fasteignasala og viðskiptalögfræðingur Sími 788 8438 unnur@logheimili.is Sólrún Aspar Hefur lokið námi til fasteignasala. Sími 862 2531 solrun@logheimili.is Jónas H. Jónasson Nemi til löggildingar fasteignasala Sími 842 1520 jonas@logheimili.is Skipholti 50d, 105 Reykjavík Skólabraut 26, 300 Akranesi 530 9000 • www.logheimili.is Ertu í sölu- hugleiðingum? Getum bætt við eignum á söluskrá Fagmennska og traust í meira en áratug 1 Fyrsta skrefið í að undirbúa flutninger að taka til á eigin heimili. Farðu yf- ir allar skúffur og skápa og ekki pakka neinu niður sem þú veist að mun ekki verða notað á nýju heimili. 2 Farðu yfir eigur þínar og seldu þaðsem þú getur komið í verð. Úti í sam- félaginu eru safnarar sem líta á eigur þín- ar sem fjársjóð þótt þú kunnir ekki að meta þær. Á Facebook eru fjölmargir hópar sem bjóða upp á sölu á húsgögnum, fötum og öðru dóti sem fólk vill ekki eiga lengur. Svo má alltaf setja varning inn á Bland. Ef þú átt að flytja eftir tvo mánuði byrjaðu þá strax. 3 Byrjaðu að pakka niður. Pakkaðuþví sem þú notar sjaldan og komdu fyrir á góðan stað. Vertu með almenni- lega kassa og vandaðu þig þegar þú pakk- ar niður. Gættu þess svo vel að merkja vel kassana svo þú verðir ekki í hálft ár að koma þér fyrir á nýjum stað. 4 Byrjaðu að þrífa smátt og smátt.Það tekur lúmskan tíma að þrífa eld- hússkápa, bakarofn og allt þetta helsta sem þú vilt að sé upp á tíu þegar þú af- hendir nýjum kaupanda íbúðina þína. 5 Ef þú átt alvöruvini þá munu þeirhjálpa þér að flytja. Þiggðu alla hjálp því fleiri hendur vinna léttara verk. Vertu með svalandi drykki og huggulegar veit- ingar fyrir þá sem hjálpa þér á ögur- stundu. Það mun margborga sig. 5ráð til aðauðvelda flutninga Fólk er misöflugt þegar kem- ur að flutningum. Mörgum finnast flutningar hið mesta böl meðan aðrir sperrast allir upp þegar þeir flytja. Hér eru fimm góð ráð fyrir þá sem eru með kvíðahnút í maganum yfir komandi flutningum. Marta María | mm@ mbl.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.