Morgunblaðið - 26.02.2021, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 26.02.2021, Blaðsíða 16
16 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 26. FEBRÚAR 2021 Þ ú ert ekki bara sérfræðingur í að gera fallegt í kringum þig og fjölskyldu þína heldur hefur tekið að þér að græja íbúðir fyrir sölu. Hvernig kom þetta til? „Ég byrjaði á þessu vegna þess að ég fór að aðstoða manninn minn, Hreiðar Levý Guðmundsson fast- eignasala, og ráðleggja hvernig mætti breyta fasteignum þannig að þær yrðu söluvænlegri. Hreiðar tók eftir því að oft einfaldar breytingar juku áhuga kaupenda á íbúðum. Við Ásta Birna Árnadóttir arkitekt ákváðum í kjölfarið að taka slík verkefni að okkur og erum að stofna fyrirtæki sem heitir Kot hönnunarstúdíó. Ég hef alltaf verið fylgjandi því að fólk móti sinn persónulega stíl og að heimili fólks endur- spegli persónuleika þess og líf, það er hins vegar ekki alltaf sem það skilar sér í söluvænlegri íbúð og þá getur verið gott að leita sér aðstoðar hjá fagfólki,“ segir Hildur. Hvað skiptir máli þegar íbúð er til dæmis ljósmynduð? „Það skiptir miklu máli að fá góðan ljósmyndara. Því miður gerist það of oft að fasteignasalar taki sjálfir myndir sem eru misgóðar, og sumir fasteignaljósmyndarar leggja metnað sinn í að klára myndatöku á undir 20 mínútum, en þá eru gæðin því miður oft samkvæmt því. Best er ef það er bjart úti og þá þarf að velja tímasetningu myndatökunnar vel, sér í lagi á veturna. Ef það er súld og dimmt daginn sem mynda á eignina þá er gott að fresta myndatökunni. Góður fasteignaljósmyndari færir hundaskál úr mynd og fleira þess háttar en það má samt ekki reiða sig á það, passa þarf að allt sé eins og það á að vera. Myndirnar sýna rýmin en ættu líka að sýna samband milli rýma þannig að hægt sé að átta sig betur á eigninni. Það má líka ekki gleymast að taka myndir sem sýna útsýnið ef það er til staðar, en það er of oft sem það gleymist. Í sumum tilfellum getur verið sniðugt að láta útbúa fasteignamyndband, sér í lagi í stærri eignum til þess að gefa kaupendum enn betri innsýn í eignina. Það skiptir miklu máli að íbúðin sjálf fái að njóta sín en til þess má hún ekki vera yfirfull af húsgögnum og húsmunum.“ Hvernig þarf íbúð að líta út til þess að hún seljist? „Góður fast- eignaljós- myndari færir hundaskál úr mynd“ Hildur hefur stofnað fyrirtæki ásamt vinkonu sinni sem sérhæfir sig í að „mublera upp“ íbúðir fyrir sölu.  SJÁ SÍÐU 18 Hildur Gunnlaugsdóttir arkitekt hefur í gegnum tíðina gert upp eigin heimili þann- ig að eftir sé tekið. Eftir að hún kynntist manninum sínum, Hreiðari Levý Guð- mundssyni fasteignasala, uppgötvaði hún að fólk í söluhugleiðingum vantaði oft hjálp við að fegra heimili sitt fyrir fasteigna- myndatökur. Nú hefur hún stofnað fyrirtæki ásamt öðrum arkitekt til að mæta þessum þörfum. Marta María | mm@mbl.is Hildur á húsgögn á lager sem hún notar þegar vantar húsgögn inn í íbúðir. Hér sést hvern- ig íbúðin leit út áður en Hildur og Ásta settu sitt handbragð á hana. W W W. A L LT. I S VANTAR EIGNIR Á SKRÁ PÁLL ÞORBJÖRNSSON s. 560 5501 / pall@allt.is Löggiltur fasteignasali Framkvæmdastjóri KRISTINN SIGURBJÖRNSSON s. 560 5502 / kristinn@allt.is Löggiltur fasteignasali Byggingafræðingur

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.