Morgunblaðið - 26.02.2021, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 26.02.2021, Blaðsíða 18
Hér sá Hildur um að velja húsgögn inn í nýja íbúð sem var að fara á sölu. Það skiptir mjög miklu máli að hafa hús- gögn í íbúðum þegar þær fara á sölu. „Eðlilega þróast heimili fólks í takt við fjölskyldulífið og þá gæti stofunni verið raðað upp þannig að allir sjái á sjón- varpið eða heimaskrifstofan er kannski flutt inn í stofu því þar er best að vinna. Það er ekki endilega að slík uppröðun sýni rýmin í bestu ljósi og geta þannig höfðað síður til til- vonandi kaupenda. Það ber að varast þá hugsun að nokkrir skrautpúðar, upplífgandi textaspjöld og kertastjakar selji íbúðina því heildarmyndin er það sem skiptir máli. Best er ef íbúðin er smekklega innréttuð á fremur hlutlausan hátt þar sem loftar á milli húsgagna,“ segir Hildur. Er nauðsynlegt að mála íbúðina fyrir söluferli? „Það fer eftir ástandi íbúðarinnar. Það er betra að hafa fremur hlutlausa liti á veggjum þar sem það höfðar til flestra. Ef málningin er gömul, veggir sótaðir eða álíka þá er mjög gott að mála þá. Ef gluggar þarfnast málningar er gott að mála þá líka. Það getur borgað sig að lappa upp á það sem auðvelt er að kippa í liðinn. Það þarf þó að passa að mála ekki yfir ummerki um raka eða viðvarandi leka því það má ekki fela galla sem geta verið á eigninni,“ segir Hildur. Á fólk að hafa mikið af hlutum eða lítið af hlutum? „Við virðumst flest vera þannig að við sönkum að okkur mörgum hlutum og hættum jafnvel að taka eftir því hvað er orðið mikið í kringum okkur. Það er langsamlega oftast þannig að það þarf að fækka hlutum fyrir sölu. Oft er fólk að flytja vegna þess að eignin er orðin of lítil og þá er oft allt of mikið af húsgögnum. Þegar eldra fólk er hins vegar að minnka við sig þá getur jafnvel þurft að bæta við hús- gögnum, þá getur til dæmis verið búið að breyta auka- svefnherbergjum í skrifstofu eða koma fyrir þar hlaupa- bretti en það getur verið betra að sýna fram á að herbergið nýtist sem svefnherbergi. Of mikið af skrautmunum og persónulegum munum getur líka verið fráhrindandi því þá getur verið erfiðara fyrir kaupandann að sjá fyrir sér eign- ina sem sitt heimili. Íbúð full af uppstoppuðum dýrum og rifflum er til að mynda fráhrindandi fyrir marga.“ Er mikið mál að gera íbúð klára fyrir sölu? „Það fer mikið eftir ástandi íbúðarinnar og innbúsins. Við höfum tekið að okkur að mublera tómar eignir fyrir sölu og þá getur þetta verið ansi mikil vinna. Þetta eru þó langoftast aðeins tilfæringar á húsgögnum sem eru á staðnum fyrir og þess háttar, allt með það að markmiði að rýmin njóti sín sem best og höfði til sem flestra. Við höfum þróað aðferð sem gengur út á það að seljandinn tekur myndir af hverju rými fyrir sig, og við sendum síðan skjal þar sem farið er yfir það hverju þarf breyta, en seljandinn sér þá sjálfur um að fylgja eftir því sem stendur í skjalinu. Í sumum tilfellum velur seljandinn að fá meiri þjónustu og þá komum við og stillum upp, komum með aukahluti sem seljandinn fær lánaða í myndatökunni og í opnu húsi, og þá erum við í myndatökunni til þess að ganga úr skugga um að allt sé eins og það á að vera.“ Er það satt að þið eigið húsgögn á lager sem þið notið fyrir íbúðasölur? „Já, við erum komin með ágætan lager af húsgögnum og húsmunum. Við erum til dæmis með sjöur og sóleyjarstóla sem við notum oft til að skipta út borðstofustólum, sófa- borð, plöntur, vasa, myndir á veggi og allt upp í jafnvel sófa og borðstofuborð.“ Hvað drífur þig áfram í þessum verkefnum? „Sem arkitekt nýt ég þess að gera fallegt í kringum mig, hvort sem það er heima eða í öðrum verkefnum. Það veitir mér mikla gleði að geta aðstoðað fólk í þessum aðstæðum, þetta eru oftast stærstu viðskipti sem fólk á í um ævina. Svo er dásamlegt að vinna með Ástu Birnu arkitekt að Kot hönnunarstúdíó en hún er mjög hæfileikaríkur arkitekt.“ Hægt er að fylgjast með verkum þeirra á Instagram undir heitinu kothonnunarstudio. Sjálf er Hildur með Instagrammið hvasso heima. Eftir og fyrir. Hér gaf Hildur ráð um hvernig mætti raða húsgögnum upp fyrir myndatöku þannig að íbúðin myndi virka meira heillandi. 18 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 26. FEBRÚAR 2021 H a m r a b o r g 1 2 • 2 0 0 K ó p a v o g u r • 4 1 6 0 5 0 0 ÁRANGUR Í SÖLU FASTEIGNA Vegna mikillar sölu vantar eignir á skrá Óskar Bergsson löggiltur fasteignasali • Sími 893 2499 • oskar@eignaborg.is

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.