Morgunblaðið - 26.02.2021, Qupperneq 18
Hér sá Hildur um að velja húsgögn inn
í nýja íbúð sem var að fara á sölu.
Það skiptir mjög miklu máli að hafa hús-
gögn í íbúðum þegar þær fara á sölu.
„Eðlilega þróast heimili fólks í takt við fjölskyldulífið og þá
gæti stofunni verið raðað upp þannig að allir sjái á sjón-
varpið eða heimaskrifstofan er kannski flutt inn í stofu því
þar er best að vinna. Það er ekki endilega að slík uppröðun
sýni rýmin í bestu ljósi og geta þannig höfðað síður til til-
vonandi kaupenda. Það ber að varast þá hugsun að nokkrir
skrautpúðar, upplífgandi textaspjöld og kertastjakar selji
íbúðina því heildarmyndin er það sem skiptir máli. Best er
ef íbúðin er smekklega innréttuð á fremur hlutlausan hátt
þar sem loftar á milli húsgagna,“ segir Hildur.
Er nauðsynlegt að mála íbúðina fyrir söluferli?
„Það fer eftir ástandi íbúðarinnar. Það er betra að hafa
fremur hlutlausa liti á veggjum þar sem það höfðar til
flestra. Ef málningin er gömul, veggir sótaðir eða álíka þá
er mjög gott að mála þá. Ef gluggar þarfnast málningar er
gott að mála þá líka. Það getur borgað sig að lappa upp á
það sem auðvelt er að kippa í liðinn. Það þarf þó að passa
að mála ekki yfir ummerki um raka eða viðvarandi leka því
það má ekki fela galla sem geta verið á eigninni,“ segir
Hildur.
Á fólk að hafa mikið af hlutum eða lítið af hlutum?
„Við virðumst flest vera þannig að við sönkum að okkur
mörgum hlutum og hættum jafnvel að taka eftir því hvað
er orðið mikið í kringum okkur. Það er langsamlega oftast
þannig að það þarf að fækka hlutum fyrir sölu. Oft er fólk
að flytja vegna þess að eignin er orðin of lítil og þá er oft
allt of mikið af húsgögnum. Þegar eldra fólk er hins vegar
að minnka við sig þá getur jafnvel þurft að bæta við hús-
gögnum, þá getur til dæmis verið búið að breyta auka-
svefnherbergjum í skrifstofu eða koma fyrir þar hlaupa-
bretti en það getur verið betra að sýna fram á að herbergið
nýtist sem svefnherbergi. Of mikið af skrautmunum og
persónulegum munum getur líka verið fráhrindandi því þá
getur verið erfiðara fyrir kaupandann að sjá fyrir sér eign-
ina sem sitt heimili. Íbúð full af uppstoppuðum dýrum og
rifflum er til að mynda fráhrindandi fyrir marga.“
Er mikið mál að gera íbúð klára fyrir sölu?
„Það fer mikið eftir ástandi íbúðarinnar og innbúsins.
Við höfum tekið að okkur að mublera tómar eignir fyrir
sölu og þá getur þetta verið ansi mikil vinna. Þetta eru þó
langoftast aðeins tilfæringar á húsgögnum sem eru á
staðnum fyrir og þess háttar, allt með það að markmiði að
rýmin njóti sín sem best og höfði til sem flestra. Við höfum
þróað aðferð sem gengur út á það að seljandinn tekur
myndir af hverju rými fyrir sig, og við sendum síðan skjal
þar sem farið er yfir það hverju þarf breyta, en seljandinn
sér þá sjálfur um að fylgja eftir því sem stendur í skjalinu.
Í sumum tilfellum velur seljandinn að fá meiri þjónustu og
þá komum við og stillum upp, komum með aukahluti sem
seljandinn fær lánaða í myndatökunni og í opnu húsi, og þá
erum við í myndatökunni til þess að ganga úr skugga um
að allt sé eins og það á að vera.“
Er það satt að þið eigið húsgögn á lager sem þið notið
fyrir íbúðasölur?
„Já, við erum komin með ágætan lager af húsgögnum og
húsmunum. Við erum til dæmis með sjöur og sóleyjarstóla
sem við notum oft til að skipta út borðstofustólum, sófa-
borð, plöntur, vasa, myndir á veggi og allt upp í jafnvel
sófa og borðstofuborð.“
Hvað drífur þig áfram í þessum verkefnum?
„Sem arkitekt nýt ég þess að gera fallegt í kringum mig,
hvort sem það er heima eða í öðrum verkefnum. Það veitir
mér mikla gleði að geta aðstoðað fólk í þessum aðstæðum,
þetta eru oftast stærstu viðskipti sem fólk á í um ævina.
Svo er dásamlegt að vinna með Ástu Birnu arkitekt að Kot
hönnunarstúdíó en hún er mjög hæfileikaríkur arkitekt.“
Hægt er að fylgjast með verkum þeirra á Instagram
undir heitinu kothonnunarstudio. Sjálf er Hildur með
Instagrammið hvasso heima.
Eftir og fyrir. Hér gaf Hildur ráð um hvernig mætti raða húsgögnum upp
fyrir myndatöku þannig að íbúðin myndi virka meira heillandi.
18 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 26. FEBRÚAR 2021
H a m r a b o r g 1 2 • 2 0 0 K ó p a v o g u r • 4 1 6 0 5 0 0
ÁRANGUR Í SÖLU FASTEIGNA
Vegna mikillar sölu vantar eignir á skrá
Óskar Bergsson löggiltur fasteignasali • Sími 893 2499 • oskar@eignaborg.is