Morgunblaðið - Sunnudagur

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Morgunblaðið - Sunnudagur - 21.02.2021, Qupperneq 2

Morgunblaðið - Sunnudagur - 21.02.2021, Qupperneq 2
Hver er konan? Hún er utanbæjartútta, tónlistarkona, leikkona, aðstoð- arforstöðumaður félagsmiðstöðvar og núna útvarpskona! Svo er ég mjög seinheppin manneskja. Ég kveikti eitt sinn í hárinu á mér og svo er ég mjög gjörn á að detta upp stiga. Kannski segi ég brussusögur í beinni! Hefur þú verið að vinna sem leikkona? Já, en ég hef aðallega verið að einbeita mér að tónlistinni. En ég var að leika í Frystiklefanum á Rifi þar sem ég setti upp mína eigin sýningu. Hvernig kom það til að þú fórst í útvarp? Það var haft samband við mig og mér boðið þetta góða tækifæri sem ég gjörsamlega stökk á. Ég var ótrúlega tilbúin í þetta. Við er- um þrjú með þáttinn, ég, Einar Bárðar og Yngvi Eysteins. Ég þekkti þá ekki áður en við smullum saman og viðtökurnar hafa verið góðar. Hvað heitir þátturinn? Hann heitir Helgarútgáfan og er á K100. Þetta er hressandi mann- lífsþáttur þar sem við förum yfir hvað er að gerast um helgina. Svo hringjum við í skemmtilegt fólk og spilum tónlist inn á milli. Þú ert ekkert að taka lagið í þættinum? Nei, ég er nú ekki að því þarna en var reyndar sjálf að gefa út mitt fyrsta lag á föstudaginn sem heitir Red Flags. Það er kannski þess vegna að þú fórst að vinna við útvarp, svo lagið þitt kæmist í spilun? Nei, það er samt ótrúlega skemmtileg tilviljun og mikið búið að gera grín að þessu í vinahópnum. Morgunblaðið/Kristinn Magnússon ANNA MARGRÉT KÁRADÓTTIR SITUR FYRIR SVÖRUM Brussusögur í beinni Í FÓKUS 2 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 21.2. 2021 Þar sem ég hamaðist kófsveitt í ræktinni í morgun stytti ég mér stund-irnar við eigin hugsanir. Ég fór að hugsa um lög og reglur. Hvernigheimurinn væri án þeirra, heimilið eða lífið sjálft. Flestum finnst best að hafa reglu á hlutum; hafa allt á sínum stað. Nema í ruslaskúffunni. Þar má vera óreiða. Best er að vakna á sama tíma, borða á sama tíma, vinna á sama tíma, sofna á sama tíma. Rútínan er nefnilega best. Í heimsfaraldrinum höfum við þurft að aðlagast og fara eftir mörgum nýj- um reglum. Auðvitað eru skiptar skoðanir um þær, eins og aðrar reglur. Það er grímuskylda mjög víða og ætlast til að fólk spritti sig og það sem það snertir. Í Hress í Hafnarfirði er svo vel sprittað á milli æfinga að ég gæti sleikt þar lóð, dýnur og tæki og yrði ekki meint af. Nema ég fengi ógeðs sprittbragð í munninn. Í vinnunni göngum við með grímu fyrir vitum á milli hólfa og Kristófer kokkur þarf að standa sveittur og skammta matinn. Þórólfur, fer þetta ekki að verða gott með hólfaskipt- ingu og grímur? Við erum jú búin að vera nánast veirulaus í meira en mánuð. En alla vega, á meðan þríeykið setur okkur reglur ætla ég ekki að óhlýðnast. Ég er nefnilega ægilega lög- hlýðin og stillt. Dagar anarkís eru löngu liðnir og stóðu fremur stutt yfir á unglingsárunum. Pönkaratímabilið mitt var fremur endasleppt. En talandi um reglur þá eru sumar reglur fremur undarlegar. Þannig er mál með vexti að ég skrapp í Costco í vikunni. Þar í anddyri hangir skilti sem á er ritað: Takk fyrir að: 1) Halda börnunum alltaf hjá ykk- ur. 2) Vera klædd í skyrtu og skóm í vöruhúsinu. 3) Leyfa okkur að skoða í skjalatöskur og bakpoka. Nú voru góð ráð dýr. Ekki gat ég brotið þessar reglur verslunarinnar. Ég hafði sem betur fer skilið skjalatöskuna mína eftir heima og það gerðu fleiri. Ég sá ekki einn einasta mann með skjalatösku í Costco. Enda voða lítið sem hægt er að troða af mat í eina litla skjalatösku. Hvað þá 40 rúllum af klósett- pappír. Engin eftirlitslaus börn voru heldur ráfandi um verslunina og reyndar hef- ur fólk líklega skilið þau eftir heima til að passa upp á skjalatöskurnar. Þá var það reglan um klæðnaðinn. Ekki voru allir sem hlýddu þessu en ég gerði það að sjálfsögðu. Ég fékk samt margar augngotur þegar ég klæddi mig úr buxunum í anddyrinu. Buxnalaus án skjalatösku Pistill Ásdís Ásgeirsdóttir asdis@mbl.is ’Ég hafði sem betur ferskilið skjalatöskunamína eftir heima og þaðgerðu fleiri. Ég sá ekki einn einasta mann með skjalatösku í Costco. Þórhildur Helgadóttir Það er erfitt að segja. Örugglega bara fiskur. SPURNING DAGSINS Hvað er það versta sem þú hefur smakkað? Elís Sigurjónsson Hið sænska „surströmming“. Það er það versta sem ég hef smakkað! Sigurbjörg Helgadóttir Hákarl. Heiðar Ingi Eggertsson Ætli það sé ekki hákarl. Ritstjóri Davíð Oddsson Ritstjóri og framkvæmdastjóri Haraldur Johannessen Aðstoðarritstjóri og umsjón Karl Blöndal kbl@mbl.is Prentun Landsprent ehf. Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Útgáfufélag Árvakur hf., Reykjavík. Forsíðumyndina tók Ásdís Ásgeirsdóttir Helgarútgáfan er nýr útvarpsþáttur á K100 á laugardags- morgnum frá 9 til rúmlega 12. Anna Magga stýrir þættinum ásamt Einari Bárðarsyni og Yngva Eysteinssyni. Þetta er frum- raun Önnu Möggu í útvarpi sem kemur fersk í starfið. Nú finnur þú það sem þú leitar að á FINNA.is Dalvegi 10-14, 201 Kópavogi - Sími: 555-1212 - handverkshusid.is

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.