Morgunblaðið - Sunnudagur - 21.02.2021, Síða 8

Morgunblaðið - Sunnudagur - 21.02.2021, Síða 8
ÚTTEKT 8 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 21.2. 2021 D rengir og stúlkur standa jafn- fætis þegar námsferill þeirra hefst í fyrsta bekk grunnskóla en með tímanum verður leik- urinn ójafnari. Stúlkur eru í meirihluta meðal stúdenta og í meirihluta þeirra sem ljúka háskólaprófi. Kynjahallinn hér á landi er mikill í alþjóðlegum sam- anburði. Karlar voru í yfirgnæfandi meiri- hluta þeirra sem brautskráðust frá Háskóla Íslands fram á áttunda áratug 20. aldar. Fjöldi brautskráðra jókst eftir 1970 en þá fjölgaði konum mun hraðar en körlum. Árið 1987 brautskráðust í fyrsta skipti fleiri konur en karlar og þeim fjölgaði hlutfallslega meira en körlum nánast samfleytt til ársins 2009. Frá 2009 hafa konur verið um 70% braut- skráðra en karlar um 30%. Taflið snýst Gylfi Zoega, prófessor í hagfræði við Háskóla Íslands, hefur velt þessum málum fyrir sér á umliðnum árum. Hann segist hafa tekið eftir miklum kynjahalla á göngum Háskóla Íslands í langan tíma sem hafi orðið til þess að hann fór að skoða hvernig á þessu stæði. Frá Há- skóla Íslands brautskrást um þessar mundir um það bil tvær konur fyrir hvern karl úr grunnnámi en fyrir hvern karl með meistara- gráðu brautskrást um þrjár konur. Konur eru einnig í miklum meirihluta þeirra sem útskrif- ast frá Háskólanum á Akureyri. Greinar þar sem karlar voru áður ráðandi eru ýmist smám saman að verða kvennagreinar eða eru þegar orðnar það. Gylfi bendir á, að vísbendingar séu um að vandi drengja í skólakerfinu á Vesturlöndum fari vaxandi. Lestur reynist þeim að jafnaði erfiðari, þeir séu ekki eins líklegir til þess að ljúka háskólanámi og hafi ekki lengur sama forskot í stærðfræði líkt og eldri rannsóknir gáfu til kynna. Um þrír af hverjum fjórum nemendum sem eru í lægstu tíund í íslensku í tíunda bekk eru strákar. Brottfall drengja er um 50% meira en stúlkna í framhaldsskólum, bæði í bóknámi og starfsnámi. Brautin úr grunnskóla í verknám er ekki eins greið og í flestum Evrópuríkjunum og því ekki gert jafnhátt undir höfuð og bóknámi. Um leið og Gylfi fagnar því að menntun kvenna aukist, sem hafi í för með sér betri kjör og fleiri tækifæri þeim til handa, þá sé umhugsunarvert að á sama tíma sé farið að halla á karlana. Það hafi lengi hallað á konur í þjóðfélaginu þegar kom að menntun, tækifær- um og launum en góður árangur hafi náðst í baráttu þeirra fyrir bættum kjörum. Mikið hefur verið rætt og ritað um kvennabaráttu og jafnrétti kynjanna gegnum tíðina og núna þegar taflið virðist vera að snúast við, allavega í skólakerfinu, megi ekki falla í þá gryfju að horfa framhjá því og taka ekki á vandanum. Ekki 15 ára drengjum að kenna Í ljósi sögunnar gæti einhver spurt hvort þessi þróun sé ekki bara sjálfsögð og í góðu lagi. Er ekki tímabært að konur komist til meiri áhrifa í samfélaginu og taki meira til sín á kostnað karla? Gylfi svarar því til að fimm- tán ára drengir sem nú sitja á skólabekk beri enga ábyrgð á því hvað fyrri kynslóðir gerðu og fyrir vikið fráleitt að refsa þeim. Þeir voru ekki fæddir þegar hallaði sem mest á kven- þjóðina í námi og starfi. Og þótt meirihluti forstjóra í stórum fyrirtækjum sé enn sem komið er karlar þá réttlæti það ekki að margir ungir menn beri skarðan hlut frá borði. Skól- ar eiga að höfða jafnmikið til drengja og stúlkna. Vaxandi vandi Gylfi segir alvarlegt að um 1.100 af um 4.000 nemendum í hverjum árgangi sem ljúka grunnskólaprófi geti ekki lesið sér til gagns. Drengir eru þar í meirihluta en þetta á auðvit- að einnig við um stúlkur en PISA rannsóknir sýna að fimmta hver stúlka geti ekki lesið sér til gagns. Þetta þýðir að þessir 1.100 ein- staklingar eiga á hættu að búa við skert tæki- færi í lífinu. Á hverjum fjórum árum verður til hópur sem samsvarar íbúum Vestmannaeyja sem getur ekki lesið sér til gagns. Það sé ekki nóg að búa til tíu ára áætlun til þess að taka á þessum máli … þetta sé alvarlegra en svo. Hann nefnir að ekki megi gleyma börnum innflytjenda. Hér búi um 50 þúsund innflytj- endur og það verði að tryggja þeim og börn- um þeirra jöfn tækifæri. Einnig verði að huga að því hvort börn á landsbyggðinni hafi sömu tækifæri og þau sem búa á höfuðborgarsvæð- inu. Yfirsjón hefðbundinna stjórnmála Stórir hópar sem búa við skert tækifæri eru frjór jarðvegur fyrir ýmsar öfgahreyfingar í stjórnmálum, reiði og félagsleg vandamál. Gylfi segir hefðbundna stjórnmálaflokkar á Vesturlöndum hafa á liðnum áratugum gert þau mistök að sitja aðgerðalausir á meðan ójöfnuður myndast og hópar dragast aftur úr. Síðan sé hneykslast á fylgi ýmissa stjórn- málahreyfinga sem höfða til reiði þessara hópa í stað þess að taka á rótum vandans sem er ójöfn tækifæri í lífinu. Mun fleiri konur ern karlar brautskrást frá háskólum á Íslandi. Morgunblaðið/Kristinn Erum við tilbúin að fórna einni kynslóð drengja? Í meira en áratug hafa konur verið um 70% þeirra sem ljúka háskólaprófi á Íslandi sem er ein birtingarmynd þess vanda sem drengir glíma við innan skólakerfisins. Hvaða þjóðhagslegu og samfélagslegu áhrif hefur þessi staða haft og hvað þýðir hún til lengri tíma litið? Erum við á leið frá einni þjóðfélagsskekkju yfir í aðra? Lengi hallaði á konur en mun framvegis halla á karla? Orri Páll Ormarsson orri@mbl.is ’Um þrír af hverjum fjórum nemendum sem eru í lægstu tíund ííslensku í tíunda bekk eru strákar. Brottfall drengja er um 50%meira en stúlkna í framhaldsskólum, bæði í bóknámi og starfsnámi Viðar Halldórsson, prófessor í félagsfræði. Gylfi Zoëga, prófessor í hagfræði.

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.