Morgunblaðið - Sunnudagur - 21.02.2021, Side 12

Morgunblaðið - Sunnudagur - 21.02.2021, Side 12
Þrælar púðanna Morgunblaðið/Eggert Nikótínpúðar hafa leyst neftóbak í vör af hólmi að miklu leyti. Ungt fólk verður fljótt háð nikótínpúðunum, enda er nikótín mjög ávanabindandi og nikótínið í púðunum er oft mun meira en í öðrum tóbaksvörum. Í dag gilda engin lög um nikótínpúða en frumvarp til laga mun brátt fara fyrir þing til að koma púðunum undir lög um rafrettur. Morgunblaðið ræddi við lækni, fagaðila og neytanda púðanna til að fá innsýn í þennan heim. Ásdís Ásgeirsdóttir asdis@mbl.is HEILSA 12 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 21.2. 2021 Ég sé alveg notkun nikótínpúða í grunnskólum enekki mikið,“ segir Ása Sjöfn Lórensdóttir, fags-tjóri heilsuverndar skólabarna. „Þetta er svo nýtt fyrirbæri. Það er ekki fyrr búið að koma böndum á rafrettur en þetta skýtur upp koll- inum. Í kringum áramótin 2019-20 voru unglingarnir farnir að ræða þessa púðanotkun og ég kom alveg af fjöllum,“ segir Ása og segist nú mjög ánægð með að það standi til að leggja fram frumvarp á alþingi varð- andi nikótínpúða. Fleiri sem velja heilbrigði Fræðið þið börnin um skaðsemi nikótínpúða? „Við vinnum hér forvarnastarf með fræðslu og bendum þá börnum á að velja betri og hollari kosti. Við fræðum börnin ekki sérstaklega um nikótínpúða, rafrettur eða kannabis, þó að það sé óhjákvæmi- legt að minnast á þessi efni við fræðslu, heldur fræðum þau um heilbrigða lífs- hætti og styrkjum þau í vali sínu á þeim. Það er okkar aðferð. Við viljum líka byggja upp sjálfsmynd barna svo þau eigi auðveldara með að taka réttar ákvarðanir. Það eru alltaf miklu fleiri sem hafna vímuefnagjöfum í dag og velja hollan lífsstíl.“ Sterkt ávanabindandi efni Eru kannski púðarnir skárri en aðrar nikótínvörur? „Engar nikótínvörur eru skárri en aðrar. Í nikótínpúðum er ekki tóbak, sem inniheldur ákveðin eiturefni líka, en nikótínið sjálft er mjög sterkt ávanabind- andi efni. Það ætti enginn að velja sér slíkt ávanabindandi efni. Viltu vera fast- ur á króknum alla ævi?“ spyr Ása. „Þó svo þetta skaði ekki lungun, eins og rafrettur og sígarettur, og innihaldi ekki skaðlegt tóbak, þá hefur þetta þau áhrif að æðar þrengjast. Æðarnar í gómnum þrengjast þannig að tannholdið rýrnar. Þarna er mjög þunn slímhúð. Þú ert í raun alltaf að erta svæðið með þessu efni.“ Á að vera falið Hvað finnst þér um að þessu sé stillt upp í verslunum með sælgæti? „Fáránlegt. Þetta á að vera jafn ósýnilegt og reyktóbak. Þetta á að vera eins falið og hægt er. Við viljum hafa þetta eins óaðgengilegt og hægt er og eins hátt skattað og hægt er til að hindra notkun hjá börnum og ungmennum.“ ÁSA SJÖFN LÓRENSDÓTTIR Ása Sjöfn Lórensdóttir Viltu vera fastur á króknum alla ævi? Við sjáum að það hefur dregið stórlega úr notk-un rafretta og reykingum ungmenna, og þáhelst framhaldsskólanema. Við sjáum líka minnkun á notkun á tóbaki í vör. Hins vegar byrj- uðum við að mæla í fyrra þessa rosalegu miklu notk- un á tóbakslausum nikótínpúðum og sjáum að þetta er yfirfærsla að stórum hluta,“ segir Viðar Jensson, verkefnastjóri tóbaksvarna hjá embætti landlæknis. Ódýrari vara „Þessi vara kemur í staðinn fyrir tóbak í vör og raf- rettur. Salan á ÁTVR-neftóbaki minnkaði um það bil um helming í fyrra; fór úr 46 tonnum í 25,5 tonn. Nikótínpúðar eru ódýrari en tóbak, en verð hefur mikla þýðingu, sérstaklega fyrir ungt fólk. Við höf- um ekki tekið afstöðu til þess hvernig eigi að skatt- leggja þessa nýju vöru en fræðin segja að hærra verð fæli frekar krakkana frá að kaupa hana,“ segir Viðar. „Við kölluðum eftir lögum sem ná utan um allar nikótínvörur sem ekki hafa markaðsleyfi sem lyf vegna þess að engin lög eða reglur ná utan um þær í dag. Það teljum við að þurfi að laga.“ Auglýsingar og sýnileiki Viðar nefnir að vegna þess hve ný þessi vara er hafi ekki verið sýnt fram á skaðsemi nikótínpúðanna með langtímarannsóknum enn sem komið er. „En það er slæmt að ungt fólk verði háð nikótíni og að þessum vörum sé haldið að þeim með auglýs- ingum og sýnileika,“ segir Viðar og telur púðana mjög ávanabindandi. „Það eitt og sér er nóg til þess að það verði brugð- ist við. Ég veit að Svíar eru með í smíðum lög sem eiga að ná utan um þessa vöru,“ segir Viðar og nefnir að í rannsóknum á sænska snusinu hafi verið sýnt fram á að þeir sem verða háðir snusnotkun eru oft með í vörinni 13-14 tíma á dag. Viðar segir brýnt að koma á nýjum lögum sem eiga að taka á fjórum meg- inatriðum. „Við viljum fá lög sem ná utan um í fyrsta lagi aldurstakmark, í öðru lagi bann við að auglýsa vör- urnar, í þriðja lagi að koma í veg fyrir sýnileika á sölustöðum og í fjórða lagi að það verði skilgreint eftirlit með þessum vörum á markaði,“ segir Viðar og bendir á að í dag gildi engar reglur um vörurnar og gætu því börn keypt hana án vandræða. Hann nefnir einnig að varan geti verið hættuleg börnum og því telur embætti landlæknis að skýra þurfi betur há- mark nikótíns í hverri einingu af vöru. Mikilvægt sé að vörur á markaði séu þannig úr garði gerðar að þær lágmarki hættu á eitrunaráhrifum, til dæmis þegar börn innbyrða vörur sem innihalda nikótín. Mikil notkun á níkótínpúðum Notkun nikótínpúðanna er mikil hér á landi hjá ungu kynslóðinni. „Stelpur nota þetta í svipuðu magni og strákar,“ segir Viðar en í könnun frá því í fyrra á vegum emb- ættis landlæknis kemur fram að í aldurshópnum 18- 24 ára nota 25% ungra karla og 21% ungra kvenna nikótínpúða daglega. „Þegar við skoðum líka þá sem nota púðana öðru hvoru er sama hlutfall hjá báðum kynjum eða 28%. Að sjálfsögðu finnst okkur þessar tölur allt of háar. Við bindum vonir við að með nýjum lögum dragi úr notkun nikótínpúða. Það er lykilatriði að banna aug- lýsingar og sýnileika á sölustöðum eins og gildir um rafrettur og tóbak.“ VIÐAR JENSSON Slæmt að ungt fólk verði háð nikótíni Viðar Jensson

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.