Morgunblaðið - Sunnudagur - 21.02.2021, Page 17

Morgunblaðið - Sunnudagur - 21.02.2021, Page 17
ið fundið að framkvæmd kosninganna í Bandaríkj- unum í nóvember sl. Sennilega er enn ekki hægt að ræða það mál af lágmarksstillingu eða votti af skyn- semi. Reyndar verður varla séð að nokkurs staðar hér austan hafsins hafi verið reynt að fá smjörþefinn af því, út á hvað slíkar athugasemdir hafi gengið. Þó er sennilega algjörlega hættulaust að staðhæfa að hefði verið farið eins með framkvæmd kosninganna hér í þessum heimshluta og gert var þar, þá hefðu kosningarnar hvarvetna verið blásnar af sem ógildar og endurteknar. Þá er Hvíta-Rússland undanþegið en ekki endilega Rússland sjálft. En á móti kemur að margt af því sem valdið hefði fyrrnefndri ógildingu Evrópumegin hafsins er ekki bundið við kosningarnar 2020. Kosningarnar 2020 voru hins vegar sýnu verri en stórgallaðar bandarísk- ar kosningar á undan þeim. Nú var notað færið og vitnað óspart til kórónuveirunnar og faraldursins, til að teygja sig mjög langt út fyrir öll þau mörk sem annars staðar hefði verið talið lögmætt. Og sér- staklega var slíkum aðgerðum beitt þar sem sérlega þótti víst að mjög mjótt yrði á munum! Hér og víðar hefur verið minnt á að kosningaum- gjörðin er víða í lamasessi í Bandaríkjum Norður- Ameríku. Menn hafa í flimtingum að iðulega hafa tugþúsundir látinna manna „kosið“ í forsetakosn- ingum og sjálfsagt ekki síður í öðrum kosningum þar. Alkunna er að Lyndon Johnson og hans menn tryggðu að tugir þúsunda greiddu atkvæði í Texas í nóvember 1960. Úr því er lítið gert vegna þess að tal- ið er öruggt að þau atkvæði hafi ekki ráðið úrslitum í Texas og þar með ekki á landsvísu! Ekki er hins vegar í fullri alvöru um það deilt að þeir sem réðu lögum og lofum í Illinois (Daley borg- arstjóri og slíkir) tryggðu að Kennedy og demókratar fengju þau atkvæði þar, sem talið væri að upp á vant- aði. Talningaskrípaleikurinn sem Al Gore stóð fyrir í Flórída vikum saman sýndi hrópandi veikleika í kosningakerfinu þar. Hvernig væri að kynna sér stöðuna? Fólki hér þætti sláandi ef það vissi að ekki er gildandi í landinu almenn regla um að kjósendur skuli sanna með lögmætum skilríkjum að þeir hafi kosningarétt og að þeir hafi ekki þegar kosið og jafnvel oft. Og það hlýtur að vekja óskipta athygli, ef ekki heilbrigða tor- tryggni að annar stórflokkurinn, demókratar, hafa lagst hart gegn því að slík regla sé sett í alríkislög. Og meginrökin sem þeir beita hafa verið þau að krafa um lögmæt skírteini muni bitna mest á blökkumönn- um (sem demókratar hafa átt góðan stuðning hjá). Ekki hefur verið upplýst hvernig á slíku getur staðið. Óþægilega algengt er að námsmenn fjarri heima- byggð kjósi á svæðinu þar sem skólinn er og mæti svo aftur á heimaslóðir og kjósi aftur. Fréttamenn hér, sem fylgjast flestir illa með svo sárgrætilegt er, fullyrða ítrekað að ekkert hafi bent til þess að svindl hafi átt sér stað í þessum kosn- ingum. Á því er enginn vafi. Spurningin er aðeins sú hvort svindlið hafi verið miklu meira en vant er. Vandinn er hins vegar sá að um það er erfitt að full- yrða vegna lélegrar umgjarðar kosninganna, sem hvergi þar sem Íslendingar þekkja til mála yrði talin fullnægjandi. En eins og fyrr segir á sú staðreynd ekki einungis við um kosningarnar 2020, heldur hefur verið landlægt. Fréttamennrnir, sem hafa hvað eftir annað fjallað um þessi mál eins og álfar, hafa nokkra afsökun. Þeir ímynda sér að umgjörðin þar og til að mynda hér á Íslandi sé sambærileg. Því fer fjarri. Hún er ekki einu sinni svipuð. Eitt meginvandamálið er að Banda- ríkin hafa ekki þjóðskrá með sama hætti og hér er. Bréfritari var lengur ráðherra Hagstofu Íslands en nokkur annar og munar miklu. Hagstofan er ekki lengur sérstakt ráðuneyti. Hann átti iðulega í miklum bögglingi að ræða um slíka þætti við Bandaríkja- menn, hvort sem það voru stjórnmálamenn eða úr öðrum lögum þjóðfélagsins. Sérstaklega varð þeim um og ó þegar farið var yfir að öllum væri skylt hér að vera á þjóðskrá og tilkynna heimilisfesti sitt og þeir yrðu innan tiltekins tíma að tilkynna flutning á nýtt lögheimili, að viðlagðri refsingu, og jafnvel fang- elsi! Viðmælendur göptu og töldu að hagstofuráð- herrann hlyti að vera eins konar yfirforstjóri í Gulag- inu. Hér á landi og í lýðræðishluta Evrópu væri al- gjörlega óhugsandi að fólk pantaði sér atkvæði heim (t.d. með vísun til veirumála) og svo tækju menn að sér í verktöku eftir útboði að sækja slík atkvæði og ekki væri borið við að hafa samanburð á öðru en því hvort nafn þess sem pantaði og skrifaði undir at- kvæðið væri sambærilegt án þess að nokkur skilríki kæmu við sögu. Þarna er ekki verið að tala um utan- kjörfundaratkvæði í hefðbundnum skilningi, sem lúta sæmilegum lögmálum þarna og voru dropi í þetta haf. Þá eru kosningavélarnar dæmi út af fyrir sig. Allt annað viðhorf Það er fróðlegt að horfa til kosninga í Austurríki 2016, árið sem Trump var kosinn forseti. Þá var líka verið að kjósa forseta þar. Forseti Austurríkis er ábyrgðarlaus forseti eins og það er kallað. Þó er texti í stjórnarskránni þar, sem virðist við fyrstu sýn veita forseta vald til að skipa kanslara formlega og skrifa undir skipunarbréf ráðherra, skipa dómara Hæsta- réttar, háttsetta herforingja og háttsettustu menn hins opinbera. En eins og segir í skýringum um þetta þá er venjan og raunveruleikinn sá að forseti Austur- ríkis hefur aðeins táknrænt vald (figurehead). Vera má að einhvern tíma komi forseti sem kjósi að láta á slíkt reyna og jafnvel lærðir lögfræðingar stæðust ekki freistinguna um að fara gegn betri vitund og leggjast í tilfallandi túlkun. Austurríkismenn hafa að- spurðir sagst hafa ímyndunarafl til að sjá að slíkt geti gerst. En sem sagt í Austurríki er forseti kosinn í tveimur umferðum hljóti forseti ekki hreinan meirihluta í fyrstu umferð. En eftir seinni kosningarnar 22. maí 2016 var kosning forsetans hins vegar ógilt hinn 22. júlí og nýjar kosningar boðaðar. Úrslit kosninga í 20 kjördeildum af 117 voru kærðar og Stjórnarskrár- dómstóll Austurríkis taldi að kosningalögum hefði ekki verið fyllilega fylgt í 14 þeirra. Dómstóllinn taldi að utankjörfundaratkvæði (77.900) hefðu verið talin fyrr en mátti. Dómstóllinn taldi þó ekkert benda til þess að átt hefði verið við atkvæðin af annarlegum ástæðum. Engu að síður (og þótt ekkert benti til að mistökin hefðu getað haft áhrif á úrslit) var talið al- gjörlega nauðsynlegt að endurtaka kosningarnar. Ekki þarf að taka fram að allt annað var upp á ten- ingnum í Bandaríkjunum í síðustu kosningum, og reyndar iðulega áður þótt nú hafi keyrt um þverbak. Þá hafa stjórnskipunarsérfræðingar gert athuga- semdir við það, að með vísun til veirunnar hafi rík- isstjórar demókrata í tilteknum ríkjum heimilað breytingar frá kosningareglum, sem þeir hafa ekki vald til, því að það vald sé í stjórnarskránni falið rík- isþingunum. Löngu þekkt vandamál Árið 1996 kom út bókin Presidential Anecdotes eftir Paul F. Boller, sagnfræðiprófessor við Texas Christi- an University. Til gamans og vegna samhengisins skulu nefndar tvær sögur. Lyndon B. Johnson forseti hafði sérlega gaman að sögu um tvo félaga sem gerðu sér leið í kirkjugarðinn í Texas skömmu fyrir kosn- ingar og tóku niður nöfn í blokk sem þeir lásu af leg- steinum. Gengu þeir upp og niður raðirnar og skráðu niður nöfn. Loks komu þeir að steini, gömlum og máðum, og það svo mjög að mjög erfitt var að ráða í hvaða nafn stóð á honum. Annar sagði þá við hinn að þeir skyldu sleppa þess- um og halda áfram. „Hvað er eiginlega að þér?“ kvartaði sá óþolinmóði. „Af hverju í ósköpunum hangirðu yfir þessu?“ „Ja,“ svaraði hinn, „mér þykir einfaldlega að þessi maður hafi alveg jafnmikinn rétt til að kjósa og allir hinir sem liggja í þessum garði.“ Í hinu, sem höfundurinn nefnir fyrir aldarfjórðungi í bók sinni, segir hann: „Kosningarnar 1960 (á milli Nixons og Kennedy) voru mjög spennandi og afar mjótt á munum og mikið um kosningasvindl í all- mörgum ríkjum. Nixon hugleiddi um hríð að krefjast endurtalningar en hafnaði svo þeirri hugmynd. „Krefðist ég endurtalningar myndi dragast að koma á skipulagðri stjórn í landinu og þar með ásætt- anlegum valdaskiptum. Ástandið innan ríkisvaldsins yrði í ógöngum mánuðum saman.“ Þrátt fyrir þessa niðurstöðu frambjóðandans hóf fréttahaukurinn Earl Mazo rannsókn á kosn- ingasvindlinu og ritstýrði greinaflokkum um málið í New York Herald Tribune. Í byrjun desember 1960, eftir að fyrstu fjórar greinarnar birtust, bauð Nixon Mazo heim til sín til í spjall. „Earl,“ sagði Nixon þeg- ar þeir heilsuðust, „þetta eru mjög áhugaverðar greinar sem þú skrifar,- en það stelur enginn forseta- embætti Bandaríkjanna.“ Nixon hélt áfram og sagði að landið myndi engjast í átökum um opinberar ásak- anir um kosningaúrslitin og álit Bandaríkjanna yrði illa bætt á eftir. „Okkar land hefur ekki ráð á þeirri angist sem stjórnskipuleg krísa myndi valda – og ég mun aldrei taka þátt í að stuðla að því einungis til að geta orðið forseti eða eitthvað annað.“ Önnur tíð Allt síðasta kjörtímabil eftir kosningarnar 2016, í heil fjögur ár, hamaðist frambjóðandinn sem tapaði og flokkurinn sem heild, og fjölmiðlagerið í fullyrðingum og gauragangi sem gekk út á að forsetinn sem kosinn var 2016 hefði stolið kosningunum. Fráfarandi forseti hefur talað um það sama tvisvar í tæpan mánuð frá því nýr forseti tók við. Vonandi, Bandaríkjanna vegna, verður þetta kjör- tímabil notað til að koma kosningafyrirkomulaginu í þessu stóra og merkilega ríki í lágmarkshorf. Því fer fjarri að það sé í lagi og þó telja margir þar á bæ að þar fari fyrirmyndarríki í öllum slíkum efn- um. ’ Hér á landi og í lýðræðishluta Evrópu væri algjörlega óhugsandi að fólk pant- aði sér atkvæði heim (t.d. með vísun til veiru- mála) og svo tækju menn að sér í verktöku eftir útboði að sækja slík atkvæði og ekki væri borið við að hafa samanburð á öðru en því hvort nafn þess sem pantaði og skrifaði undir atkvæðið væri sambærilegt án þess að nokkur skilríki kæmu við sögu. 21.2. 2021 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 17

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.