Morgunblaðið - Sunnudagur - 21.02.2021, Page 19
þess að nota dökkgrátt notar fólk dökk-
brúnt með ljósari drappaðri litum. Brúnu
tónarnir verða klárlega vinsælustu tónarnir
árið 2021,“ segir Arnar Gauti.
„Kaffibrúnn, ryðbrúnn og ryðbrúnrauður
eru litir sem hafa ekki verið mikið notaðir
áður en koma nú sterkir inn.“
Heilmáluð herbergi
Arnar Gauti segir fólk nú farið að nota
mjög mikið liti á svefnbergi í stað þess að
hafa þau einungis hvít.
„Fólk er jafnvel að heilmála alveg her-
bergin og loftin með. Það kemur ótrúlega
vel út. Svefnherbergin eru oft herbergi sem
við spáum ekki mikið í. Fólk málar oft stof-
urnar en ekki herbergin,“ segir hann og
segist taka eftir breytingu þar á.
„Ég hef verið að fá skilaboð frá fólki sem
er svo ánægt með útkomuna og segist sofa
betur í heilmáluðu svefnherbergi.“
Allir að mála
Er fólk duglegt að mála nú í heimsfaraldr-
inum?
„Ef ég segi alveg eins og er þá er spreng-
ing. Fólk er komið í sjálfsnúvitund og það
vill hafa notalegt í kringum sig og þá er
málning það fyrsta sem því dettur í hug
þegar það vill breyta heima hjá sér. Maður
byrjar ekki endilega á nýrri eldhúsinnrétt-
ingu. Við erum virkilega dugleg að hafa fal-
legt í kringum okkur og að mála er ein
ódýrasta leiðin til að breyta. En málningin
breytir öllu.“
Ljósmyndir/Pétur Fjeldsted
21.2. 2021 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 19
VEFVERSLUN
www.betrabak.is
OPIN ALLAN SÓLARHRINGINN
5 STJÖRNU HÓTELRÚMIN frá Serta eru framleidd til að fullnægja
ýtrustu kröfum. Fjaðrandi botn gefur 5 svæða heilsudýnunni óvið-
jafnanlega fjöðrun og stuðning, lúxus yfirdýnan lagast að þér og
þér líður eins og þú svífir. Velkomin í þitt 5 stjörnu heilsurúm,
heima hjá þér – allar nætur – alltaf.
CLASSICO, YORK OG LIGNE eru með Serta Splendid Royal heilsu-
dýnu frá Serta. Hún er fimm svæðaskipt pokagormadýna með
góðum stuðningi við bak en mýkra gormakerfi á axla- og mjaðma-
svæði. Hægt er að velja um tvo stífleika á dýnunni eftir því hvað
hentar hverjum og einum. Yfirdýnan er millistíf, úr kaldpressuðum
svampi og vinnur vel á móti fjöðruninni í botni og dýnu.
MAGNIFIQUE rúmið er með Serta Royalty Superior heilsudýnu
sem sker sig frá Splendid Royal m.a. með því að vera með tvískiptu
gormakerfi og aukinni kantstyrkingu.
Áklæðið á rúmunum er slitsterkt bómullaráklæði, ofnæmisfrítt og
andar einstaklega vel. Það er fáanlegt í nokkrum litum sem eru
mismunandi eftir rúmgerðum. Hægt er að velja mismunandi fætur
og einnig eru fáanleg náttborð í stíl.
Verð: 349.900 kr (botn, fætur, dýna, yfirdýna og gafl)
Verðdæmi: Classico 160 x 200 cm
(Bókin Þess vegna sofum við fylgir í kaupunum)
Bókin Þess vegna sofum
við, eftir dr. Matthew
Walker fylgir kaupum
á rúmum úr 5 stjörnu
hótelrúmalínunni frá
Serta. Bókin hefur
slegið í gegn um heim
allan. Bókin opnar augu
almennings fyrir mikilvægi
svefns í tengslum við heilsu,
vellíðan og árangur.
Verðmæti: 3.490 kr.
MATTHEW
WALKER
M
Þessvegna
sofumvið
Um
mikilvægi
svefns
og
drauma
Alþjóðleg metsölubók
Mikilvæg og heillandi bók BILLGATES
AFP
Montreal. AFP. | Heilbrigðisyfirvöld í Kanada
hafa sett hömlur á að fólk komi saman á al-
mannafæri og hefur það meðal annars leitt til
þess að skautasvellum hefur verið lokað.
Kanadamönnum þykir vænt um skautana sína
og hafa þeir brugðið á það ráð að búa til
skautasvell í bakgarðinum hjá sér.
Felix Rheaume stendur á skautum á stóru
svelli sem nær yfir næstum allan garðinn hans
í Montreal og heldur á hokkíkylfu. „Við erum í
fjölskyldukúlunni okkar, við virðum almennar
heilbrigðisreglur og viljum um leið hafa gam-
an,“ segir hann og býr sig undir að slá pökkinn
eftir ísnum.
Með skautasvell í garðinum geta Kanada-
menn farið á skauta og stundað hokkí, þjóðar-
íþróttina, án þess að eiga í persónulegum sam-
skiptum út fyrir nánustu fjölskyldu og vini.
Skautasvellum við einkaheimili hefur fjölgað
um helming bara í Quebec-fylki í vetur og eru
þau nú komin yfir 1.550, að sögn Stephanes
Kirouacs, sem kennir rafvirkjun. Kirouac er
með vefsíðu á frönsku sem ber heitið „Það er
auðvelt að búa til útisvell“.
„Í faraldrinum hefur orðið sprenging,“ segir
hann og bætir við: „Þriðjungur þessa fólks
hafði enga reynslu af að búa til skautasvell.“
Svellunum hefur ekki bara fjölgað heldur
líka áhugamönnum um þau. Á félagsvefnum
Facebook er hópur þar sem fólk deilir mynd-
um og ráðum. Í september voru 800 manns fé-
lagar í hópnum en nú eru þeir 7.000.
„Þetta er í fyrsta skipti sem við gerum
þetta,“ sagði Rehaume. „Þetta er einfalt, tekur
hálfan dag.“
Hann taldi að kostnaðurinn væri í kringum
250 kanadíska dollara (um 25 þúsund krónur).
Skautasvell eru búin til ofan á grasi eða ein-
hvers konar dúk. Það er afmarkað með plönk-
um og vatni bætt í smám saman. Svellið getur
tekið nokkra daga að myndast.
Skautasvell í bakgarðinum
Fexlix Rheaume ásamt fjölskyldu sinni á svellinu í garðinum.
Felix Rheaume sinnir skautasvellinu í garðinum
fyrir aftan húsið sitt í Montreal í Kanada.
Kanadamenn elska að fara á
skauta og spila hokkí. Þegar
skautasvellum var lokað vegna
kórónuveirufaraldursins
ákváðu margir að endurvekja
gamla hefð í Kanada og búa til
skautasvell í garðinum hjá sér.
Skautasvellið í garðinum
hjá Rehaume-fjölskyld-
unni sést vel úr lofti.