Morgunblaðið - Sunnudagur - 21.02.2021, Blaðsíða 20
Ingibergur Þorkelsson fæst við meðferð íhugrænni endurforritun. Hann kennir íDáleiðsluskólanum auk þess að starfa sjálf-
ur við að veita meðferð.
„Ég veiti einnig handleiðslu þeim sem út-
skrifuðust af framhaldsnámskeiðinu í nóv-
ember á síðasta ári. Þau byrjuðu sitt meðferð-
arstarf í hugrænni endurforritun fyrir
nokkrum vikum og gengur mörgum þeirra nú
þegar frábærlega vel.“
Hvernig útskýrir þú það sem þú starfar við
fyrir almenningi?
„Ég hjálpa fólki við að gera þær breytingar
sem það vill gera með því að tengja það við sinn
innri lækni til þess að hægt sé að endurforrita
hugann þannig að hann vinni með því en ekki á
móti.“
Uppeldið stundum misheppnað
Það er margra mánaða bið í tíma til Ingibergs
og því meiri eftirspurn eftir þjónustu hans en
möguleiki er að sinna.
„Fólk kemur með allskonar mál til mín. Ég
leit einmitt yfir listann yfir bókanir fyrir
skömmu. Fólk vill losna við afleiðingar áfalla,
eineltis og misheppnaðs uppeldis.
Birtingarmyndirnar eru kvíði, vanlíðan,
þreyta, þrekleysi, svefnerfiðleikar, áfengis- og
fíknienfaneysla, félagsfælni, þunglyndi, sorg,
höfnunartilfinning, meðvirkni, skömm, lágt
sjálfsmat, minnimáttarkennd, fullkomnunar-
árátta, ástar- og kynlífsfíkn, frestunarárátta,
vefjagigt, spilafíkn, áfallastreituröskun, þung-
lyndi, ótti og áráttuhugsanir.“
Hverjir eru alvarlegustu málaflokkarnir sem
þú vinnur í?
„Fólk kemur í dáleiðslumeðferð eftir að hafa
reynt flest annað. Þegar læknar, sálfræðingar,
hugleiðsla, núvitund, jóga og aðrar meðferð-
arleiðir hafa ekki getað leyst málin
þá er dáleiðslumeðferðin oftast síðasta
stopp. Alvarleikinn er í samræmi við það.“
Hver er þín upplifun af áfallasögu þjóð-
arinnar?
„Áfallasagan er aðallega skrifuð í huga
barna og ungmenna. Fréttir frá Barnavernd-
arstofu um rúmlega 13 þúsund tilkynningar á
árinu 2020 um vanrækslu eða ofbeldi gagnvart
börnum segja okkur að áföllum er síst að
fækka.
Ein þekktustu ummæli Desmonds Tutu,
biskups í Suður-Afríku, eru að í stað þess að
standa á bakkanum og draga fólk upp úr ánni
ættum við að ganga upp með henni og athuga
af hverju fólkið dettur í ána.
Ef við viljum búa í þjóðfélagi þar sem áföll
eru fátíð þarf að hlúa að þeim verst settu í þjóð-
félaginu og sjá til þess að öll börn alist upp í
öruggu umhverfi og líði hvorki skort né ást-
leysi.“
Upplifun um að hafa lifað áður
Hefur þú getað farið til barnsins í móðurkviði
eða jafnvel til fyrri lífa í vinnunni þinni?
„Tilfinningatengdar minningar byrja oftast
eftir fæðingu en ef móðurinni hefur liðið illa
andlega á meðgöngunni geta þær tilfinningar
orðið að fyrstu minningum barnsins.
Í meðferð upplifir fólk stundum að það hafi
lifað áður. Það er líka hægt að leiða fólk í fyrri
líf. Hins vegar er ekki vitað hvort þetta eru
fyrri líf fólksins, óskhyggja og ímyndun eða
upplýsingar úr fyrri lífum annars fólks.
Carl Jung taldi að við hefðum aðgang að
sameiginlegri sögu forfeðranna. Ég hallast að
því að hann hafi haft rétt fyrir sér. Þegar fólk
hefur upplifað fleiri en eitt fyrri líf virðast þau
alveg ótengd hvert öðru og sögupersónan er
aldrei sú sama. Upplifunin er hins vegar per-
sónuleg og oft afar tilfinningaþrungin.“
Hver er þín trú þegar kemur að lífinu og til-
gangi lífsins?
„Ég er ennþá að móta mér skoðun. Innsæi
mitt segir að tilgangur lífsins sé að njóta þess
og að hjálpa öðrum.“
Vöndum hvernig talað er við börn
Hvað með grunngildi fólks? Telur þú að for-
eldrar, samfélagið og kennarar sem dæmi
gætu vandað sig betur
þegar kemur að því að tala
við börn, þar sem rann-
sóknir sýna að það hvern-
ig er talað við börn hefur
áhrif á hugmyndir þeirra
um sig sjálf?
„Börn fram að 6 ára
aldri eru galopin fyrir
upplýsingum og reynslu.
Þau læra að ganga, tala,
allar reglur þjóðfélagsins
og fjölskyldunnar og allt sem fyrir þeim er
haft. Algjörlega gagnrýnislaust.
Þau trúa því sem þeim er sagt af foreldrum,
kennurum og öðrum, meðal annars um þau
sjálf.
Það þarf þess vegna að vanda mjög hvað er
sagt við börn og hvað fyrir þeim er haft. Talið
er að 95% af öllum þeim þúsunda reglna sem
við förum eftir í lífinu, aðallega ómeðvitað,
komi frá öðrum. Við erum því að mestu leyti á
ómeðvitaðri sjálfstýringu í daglegu lífi.
Þegar börnin eldast fara þau að vega og
meta það sem þau heyra og sjá. Yfirvald og
þeir sem við lítum upp til hafa samt greiðan að-
gang að undirvitundinni. Foreldrar, kennarar
og læknar þurfa að gæta að því hvað þau segja.
Læknirinn sem segir þér að þú eigir þrjá mán-
uði ólifaða er því sem næst að kveða upp dauða-
dóminn yfir þér og stjórna dánardeginum.“
Hvað er mest meiðandi sem viðgengst í sam-
félaginu að þínu mati, og þyrfti að afmá eða
breyta?
„Það sem er mest meiðandi er þegar barn
getur ekki tengst móður sinni þar sem móðirin
er ekki hæf og getur ekki veitt ástúð og um-
hyggju. Faðirinn skiptir auðvitað máli en móð-
irin skiptir öllu máli.
Afleiðingar tengslarofs við móður eru alvar-
legar og langvarandi.“
Ótti á undanhaldi
Hvað er jákvætt og gott við að starfa hér á
landi við dáleiðslumeðferð?
„Það er mikil vakning meðal almennings og
margir að „vinna í sér“. Hræðsla við dáleiðslu-
meðferð er á undanhaldi og árangur af henni
góður. Það er líka jákvætt að yfirvöld hafa ekki
sett dáleiðendum stólinn fyrir dyrnar eins og í
sumum löndum. Það eru engin lög um dáleiðslu
á Íslandi og það hafa engar kvartanir borist
vegna dáleiðslumeðferðar til landlæknisemb-
ættisins eða siðanefndar Félags dáleiðenda.
Á hinn bóginn gerir þetta regluleysi það að
verkum að hver sem er getur kallað sig dáleið-
anda, hvort sem hann hefur
mikla, litla eða enga mennt-
un eða reynslu í dáleiðslu-
meðferð þannig að með-
ferðarþegar þurfa að vanda
valið.“
Bókin Hugræn endur-
forritun kom út í lok ársins
2020.
„Í henni útskýri ég með-
ferðina á einfaldan hátt á
auðskildu máli og birti
meðferðarlýsingar. Þar má finna áhugaverðar
frásagnir um dáleiðslu og fjölbreyttar upplýs-
ingar um þau mál sem ég vinn með.“
Með tímanum verða kraftaverkin
hversdagsleg
Getur þú nefnt dæmi um undraverðan árangur
af dáleiðslumeðferð?
„Ég var svo heppinn að kynnast snemma á
ferlinum bandaríska dáleiðandanum Roy Hun-
ter, sem í dag kennir endurlitsdáleiðslu (Reg-
ression Therapy) við Dáleiðsluskóla Íslands, og
læra af honum. Roy lærði af Charles Tebbetts
sem aftur lærði af Gil Boyne sem hafði lært af
Ormond McGill. Öll þessi nöfn eru nú heims-
þekkt og þeir félagar allir í „The Hypnosis Hall
of Fame“.
Charles Tebbetts er meðal annars frægur
fyrir bók sína „Miracles on Demand“ eða
Kraftaverk eftir pöntun. Þegar ég hafði einnig
lært af dr. Edwin Yager, höfundi „Subliminal
Therapy“, var ég kominn með svo öflug verk-
færi að þegar ég hóf mitt meðferðarstarf rak
hvert kraftaverkið annað.
Með tímanum verða kraftaverkin hvers-
dagsleg og maður býst við ótrúlegum árangri.
Einstaka sinnum tekst þó ekki að dáleiða við-
komandi með neinu móti og þá eru vonbrigði
mín jafnvel meiri en meðferðarþegans.
Tveir af mínum meðferðarþegum, karl og
kona, hafa komið fram í sjónvarpsviðtölum og
sagt frá frábærum árangri. Bæði voru nem-
endur í Dáleiðsluskóla Íslands, en ég býð öllum
nemendum á framhaldsnámskeiði ókeypis
meðferðartíma.
Karlmaðurinn vildi vinna með margvísleg
vandamál. Þar á meðal mjög mikla ofþyngd,
þunglyndi og verki. Meðferðin gekk mjög vel
og tók aðeins eitt skipti. Venjulega má gera ráð
fyrir þremur eða fleiri skiptum. Tæpu ári
seinna kom hann fram í Íslandi í dag á Stöð
Tvö. Hann hafði þá lést um rúmlega 30 kíló, var
að mestu verkjalaus og alveg laus við þung-
lyndið. Hann hafði smátt og smátt minnkað
þunglyndislyfin í samráði við lækni og var
lyfjalaus. Þunglyndið hefur ekki látið á sér
kræla aftur til dagsins í dag, þremur árum
seinna.
Konan kom fyrst í tíma vegna vefjagigtar.
Mín reynsla er sú að vefjagigt orsakist nær al-
laf af áföllum. Okkur gekk vel að finna áfallið
og uppræta áhrif þess. Seinna kom hún í tvo
tíma vegna astma og ofnæmis. Astminn háði
henni mikið og hún átti erfitt með störf utan-
húss og jafnvel að ganga á móti vindi. Ofnæmið
var mjög mikið og hún tók að jafnaði fimm of-
næmislyf. Hún hafði ofnæmi meðal annars fyr-
ir kattahári og hafði mikið frjóofnæmi. Hún
lýsti því í þættinum Undir yfirborðið á sjón-
varpsstöðinni Hringbraut tveimur árum eftir
meðferðina að hún væri algjörlega laus við
vefjagigtina, astmann og kattaofnæmið og nær
alveg við frjóofnæmið en þyrfti að taka eitt of-
næmislyf þegar frjó væri í hámarki yfir sum-
arið.“
Hvað er erfiðast við meðferðarstarfið?
„Meðferðarstarfið sjálft er mjög gefandi en
um leið krefjandi. Ég get að hámarki unnið
með tveimur meðferðarþegum á dag án þess að
ganga á eigin orku. Það sem er erfiðast er þó að
geta engan veginn sinnt öllum þeim meðferð-
arbeiðnum sem berast.
Ég ákvað að leysa þann vanda með því að
mennta dáleiðendur sem gætu náð sama ár-
angri og ég. Mér sýnist að það sé að takast,
fyrsti hópurinn er farinn að vinna við meðferðir
með góðum árangri.
Annað framhaldsnámskeið hefst í apríl
þannig að ég vona að á milli 20 og 30 klínískir
dáleiðendur verði starfandi í árslok sem geti
náð sama árangri og ég hef gert.“
Hugræn endurforritun
Ingibergur Þorkelsson, skóla-
stjóri Dáleiðsluskóla Íslands
og höfundur bókarinnar Hug-
ræn endurforritun, er einn
vinsælasti meðferðaraðili
landsins. Hann segir að málin
sem komi á borð til hans séu
alvarleg, enda séu skjólstæð-
ingar hans búnir að reyna allt
án þess að það virki.
Elínrós Líndal elinros@mbl.is
Fleiri leituðu til Ingibergs
en hann gat sinnt og ákvað
hann því að fara að
mennta dáleiðendur.
Morgunblaðið/Eggert
’Það sem er erfiðast erþó að geta engan veg-inn sinnt öllum þeim með-ferðarbeiðnum sem berast.
Ég ákvað að leysa þann
vanda með því að mennta
dáleiðendur sem gætu náð
sama árangri og ég.
20 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 21.2. 2021
HUGURINN