Morgunblaðið - Sunnudagur - 21.02.2021, Side 24

Morgunblaðið - Sunnudagur - 21.02.2021, Side 24
24 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 21.2. 2021 LÍFSSTÍLL Smáratorgi 1, 201 Kóp., s. 588 6090, vl@verkfaeralagerinn.is Vefverslunin alltaf opinwww.listverslun.is Verkfæralagerinn                     í miklu úrvali, gæða- vara á góðu verði Kolibri penslar Handgerðir þýskir penslar  !  "!#$ á afar hagstæðu verði Ennþá meira úrval af  % WorkPlus Strigar frá kr. 195 Tilgang í lífinu (e. Meaning inlife) er í grunninn hægt aðskilgreina sem líf sem er dýr- mætt og þess virði að lifa. Tilgangur í lífinu virðist vera nauðsynlegur eig- inleiki. Mikill tilgangur í lífinu hefur sterk tengsl við frekari sálfræðilega vellíðan allt frá unglingsaldri til efri fullorðinsára, lífsánægju, hamingju, heilsu og langlífi. Lítill tilgangur í líf- inu eykur líkur á sjálfsvígshugsun- um, fíknivandamálum og andlegum kvillum líkt og kvíða og þunglyndi. Tilgangur í lífinu er því lykilþáttur í að koma í veg fyrir og að geta fengist við andlega erfiðleika. Hér er mikil- vægt að nefna að ekki er verið að ræða um hinn eina sanna tilgang lífs- ins heldur persónulegan tilgang í líf- inu. Meginstoðir þess að upplifa tilgang í lífinu eru þrjár: Að hafa tilgang (e. purpose), að skilja samhengi (e. co- herence) og þýðing/mikilvægi (e. significance). Hér að neðan eru stutt- ar hugleiðingar um meginstoðirnar og tengingar þeirra við Viktor Frankl, sem skrifaði bókina Leitin að tilgangi lífsins (sem við mælum ein- dregið með). Viktor var fangi í Auschwitz og í bókinni lýsir hann upplifun sinni í búðunum og hvernig hann komst af. Tilgangur – hvatningarþátturinn Tilgangur er í grunninn er að hafa fullnægjandi stefnu sem þú færð mikla hvatningu af að framfylgja. Margir ruglast á tilgangi og mark- miðum en lýsa má tilgangi sem ein- hvers konar æðra markmiði. Til- gangur stjórnar og hefur áhrif á markmiðin sem maður setur sér. Markmið eru mælanlegri og ná- kvæmari en tilgangur. Munurinn á tilgangi og markmiðum er að þú nærð ekki endilega tilgangi heldur er það stefna sem heldur áfram þrátt fyrir að þú náir markmiðunum þín- um. Tilgangur er yfirleitt ástæðan fyrir markmiðunum þínum. Til- gangur er vegferð en ekki áfanga- staður. Tilgangur Viktors í hryllingnum í fangabúðunum var að hann vildi gefa út sálfræðimeðferð sem byggðist á upplifun hans í búðunum með þeirri von um að hún myndi hjálpa öðrum að finna tilgang í lífinu þrátt fyrir að vera í vonlausum aðstæðum. Það hélt honum gangandi ásamt von um að hitta fjölskylduna sína einn daginn. Tilgangur er misjafn eftir ein- staklingum. Fyrir suma er það að vera besta útgáfan af sjálfum sér en fyrir aðra er hún að hjálpa öðrum, fórna sjálfum sér fyrir aðra, skapa hluti, stuðla að betra samfélagi, lifa heilsusamlegu lífi, sýna ást og um- hyggju, ná árangri eða tengjast fólki. Þessi tilgangur getur verið mis- sterkur á ólíkum sviðum lífsins. Sem dæmi gætir þú fundið fyrir því að þú sért að verða besta útgáfan af sjálfum þér í vinnunni en ekki alveg sem maki eða fjölskyldufaðir. Þú getur líka haft ólíkan tilgang á misjöfnum sviðum lífsins. Hann gæti snúist um að vera skapandi í vinnunni en sýna ást og umhyggju í samskiptum við aðra. Ágætis þumalputtaregla virðist vera að því meira sem þú setur at- hyglina á aðra en sjálfan sig, því meiri tilgang upplifir þú. Að það sem þú tekur þér fyrir hendur hafi góð áhrif á aðra, stuðli að betra samfélagi og jafnvel betri heimi í heild sinni. Að þú sért að sinna hlutverki sem tengist einhverju stærra og skiptir meira máli fyrir aðra en þína eigin hags- muni. Því er best ef þinn persónulegi tilgangur skiptir máli fyrir þig á þann hátt að hann hafi jafnframt góð áhrif á aðra. Samhengi – hugræni þátturinn Samhengi er að skilja sjálfan sig, upplifanir og heiminn í kringum sig. Það er innbyggt í okkur mannfólkið að þurfa að skilja og draga einhverja merkingu úr lífinu, aðstæðunum sem við erum að eiga við eða atburðum sem við lendum í. Krafturinn í því er að við getum valið merkinguna sem við drögum úr upplifunum og atburð- um. Aðalmerkingin sem Viktor dró úr Auschwitz sem við getum lært af er að sama í hvaða aðstæðum þú lendir í lífinu er aldrei hægt að taka það frá þér hvernig þú velur að bregðast við þeim. Þú öðlast merkingu með því að segja sögur því við tölum mestmegnis í sögum og það hjálpar þér við að átta þig á atburðum og þér sjálfum. Þú segir sögu með því að tala við aðra eða skrifa. Eitt er vitað og það er að þeim, sem segja sögur þar sem þeir túlka að neikvæður atburður hafi haft eitthvað gott í för með sér, tekst mik- ið betur að eiga við erfiðleika, líður betur og upplifa aukinn tilgang í líf- inu samanborið við þá sem túlka að hann hafi einungis haft neikvæðar af- leiðingar. Við teljum að sjálfsþekking leiki líka stórt hlutverk í að skilja sam- hengið í lífinu. Sjálfsþekking er með- al annars að vita hvað maður stendur fyrir og á hvað maður trúir. Þar að auki, þar sem við erum félagsverur, þá trúum við sannarlega á að það að tilheyra (e. belonging) skipti miklu máli. Við þurfum öll að finna að við séum sýnileg, heyrð og elskuð. Að finna að það sem við gerum skipti máli fyrir aðra og að hlutverk okkar sé mikilvægt. Þýðing – tilfinningalegi þátturinn Þýðing er að upplifa að lífið sé mikil- vægt í sjálfu sér og þess virði að lifa. Oft getur það verið afleiðing þess að þú sért með hinar áðurnefndu megin- stoðir tilgangs í lífinu. Algjört lykilatriði hér er sjálfslyft- ing (e. self-trancendence), sem er að rísa yfir sjálfan þig og tengjast ein- hverju sem er stærra en þú sjálfur. Það eru öll þessi sjaldgæfu augnablik þegar þú hefur þig yfir ys og þys hversdagsins, sjálfsvitund þín hverf- ur og þér líður eins og þú sért tengd- ur einhverjum æðri raunveruleika. Hver þessi æðri raunveruleiki er fer eftir einstaklingum. Fyrir suma er það annað fólk en fyrir aðra getur það verið náttúran, heimurinn eða einhver önnur æðri öfl. Í þessu samhengi er líka hægt að nefna flæði (e. flow), sem er upplifun þar sem þú ert himinlifandi og í þínu besta ástandi. Tíminn líður oftast eins og brennandi eldspýta og þú ert algjörlega sokkinn í það sem þú ert að gera. Sjálfslyftingin hans Viktors var meðal annars að nýta hvert augna- blik í að hlæja með föngunum í fanga- búðunum sem lét hann gleyma sjálf- um sér og þeim aðstæðum sem hann var í. Þó svo að hann væri að ganga í gegnum hrylling þá nýtti hann hvert augnablik til að hlæja. Við upplifum sjálfslyftingu þegar við skrifum, för- um í sund eða sjósund og heitu pott- ana, á æfingu og í innihaldsríkum samræðum við aðra svo eitthvað sé nefnt. Lokaorð Tilgangur í lífinu er verulega flókið viðfangsefni en eitt af því allra mikil- vægasta til að hafa í lífinu. Það er engin ein leynileið að upplifa tilgang í lífinu og þú þarft alls ekki að hafa all- ar meginstoðirnar að ofan á hreinu. Okkar trú er hins vegar að allir geti upplifað tilgang í lífinu – því það hafa allir eitthvað fram að færa í þessum heimi. Hvort sem þeir upplifi hann með því að framfylgja mikilvægri stefnu, öðlast merkingu, með öðru fólki eða með sjálfslyftingu – þá geta þessar meginstoðir hjálpað okkur, rétt eins og Viktori, að tækla það krefjandi ævintýri sem lífið er. Þrjár meginstoðir þess að upplifa tilgang í lífinu Vísindi og samfélag Hermundur Sigmundsson hs@nu.is Bergsveinn Ólafsson Morgunblaðið/Eggert ’Það er innbyggt í okk-ur mannfólkið aðþurfa að skilja og dragaeinhverja merkingu úr líf- inu, aðstæðunum sem við erum að eiga við eða at- burðum sem við lendum í. Krafturinn í því er að við getum valið merkinguna sem við drögum úr upplif- unum og atburðum. „Okkar trú er hins vegar að allir geti upplifað tilgang í lífinu - því það hafa allir einhvað fram að færa í þessum heimi,“ segja höfundar. Hermundur er prófessor við Háskól- ann í Reykjavík og Norska tækni- og vísindaháskólann í Þrándheimi og Berg- sveinn er fyrirlesari með MSc-gráðu í jákvæðri sálfræði og þjálfunarsálfræði.

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.