Morgunblaðið - 03.03.2021, Qupperneq 1

Morgunblaðið - 03.03.2021, Qupperneq 1
M I Ð V I K U D A G U R 3. M A R S 2 0 2 1 Stofnað 1913  52. tölublað  109. árgangur  HRUN Í BRÉFA- SENDINGUM EYKUR FJÁRÞÖRF ÁHRIF HLÝNUNAR JARÐAR ELDARNIR RJÚKA ÚT Í KJÖLFAR JARÐHRÆRINGA OG PARS PRO TOTO 24 PRENTA FLEIRI EINTÖK 2VIÐSKIPTAMOGGINN Jarðskjálftahrinan á milli Keilis og Fagradalsfjalls á Reykjanesi hélt áfram í gær með rúmlega 2.000 skjálftum yfir daginn. Ólíkt fyrri dögum urðu ekki stórir skjálftar eftir hádegi, sem náttúru- vársérfræðingurinn Einar Bessi Gestsson segir þó að sé ekki nauðsynlega til marks um að hrinan sé í rénun. Það þekkist að rólegri lotur komi inn á milli en að hrinan geti svo tekið við sér á ný. Þar sem gert er ráð fyrir að kvikuinnskot hafi orðið í jarð- skorpu á svæðinu er tvennt sem getur gerst í framhaldinu: Að kvikan stoppi og storkni eða þá að hún brjóti sér að lokum leið upp á yfirborðið og endi þannig í eldgosi. Ógerningur er að segja til um hvort gerist en algengara er að kvikan storkni og verði ekki að gosi, að sögn Einars. Nýjar upplýsingar um frekari land- breytingar vegna kviku fást ekki fyrr en með nýjum gervihnatt- armyndum sem eru teknar í kvöld en unnið úr á morgun. Þangað til er ekki líklegt að stóra myndin breytist. »4 Hrinan ekki í rénun þótt skjálftarnir séu minni Morgunblaðið/Eggert  Algengara að kvikan storkni en að hún leiði til eldgoss  Nýjar gervihnattarmyndir væntanlegar  Fjöldi Evrópusambandsríkja er farinn að huga að því að semja um bóluefni gegn Covid-19 utan bólu- efnasamstarfs Evrópusambandsins og eru nokkur þeirra nú þegar far- in að semja utan þess. Danmörk og Austurríki bættust í hóp þessara ríkja í gær en löndin skoða nú sam- starf við Ísrael í þeim efnum. Ekk- ert hefur heyrst af ákvörðunum ís- lenskra stjórnvalda hvað þetta varðar en Ísland er aðili að bólu- efnasamstarfi Evrópusambandsins. Hvorki sóttvarnalæknir né heil- brigðisráðherra höfðu tök á að veita viðtöl vegna þessa þegar þess var óskað í gærkvöldi. Evrópusambandið lýsti því yfir í gær að aðildarríkjum þess væri nú frjálst að gera sérstaka samninga um kaup á bóluefnum, en fyrri stefna þess var sú að ríkin stæðu öll saman að bóluefnakaupum. Bólusetningar í ríkjum Evrópu- sambandsins hafa gengið mun hægar en í Bretlandi, Bandaríkj- unum, Ísrael og víðar. Kanslari Austurríkis sagði í gær að Evr- ópska lyfjastofnunin hefði verið of lengi að samþykkja bóluefni gegn Covid-19. »11 Fleiri ríki leita bólu- efna utan samstarfs Evrópusambandsins Stefán E. Stefánsson ses@mbl.is Starfsmenn Íslenskra aðalverktaka vinna nú að því að flytja verkfæri og annan búnað fyrirtækisins af at- hafnasvæðinu við Kirkjusand þar sem fyrirtækið hefur reist tvö stór fjölbýlishús og var búið að steypa upp ríflega 7.000 fermetra skrifstofu- byggingu. Ekkert verður af frekari aðkomu fyrirtækisins að þeirri bygg- ingu né öðrum frágangi á fjölbýlis- húsunum. Ástæðan er sú að 105 Mið- borg, fjárfestingarverkefni í stýringu Íslandssjóða og eigu lífeyrissjóða, tryggingafélaga og annarra fagfjár- festa, hefur rift samstarfssamningi við verktakann. Heimildir Viðskipta- Moggans herma að skýringarnar sem gefnar eru fyrir riftuninni séu miklar tafir við framkvæmdir og gall- ar á húsbyggingunum sem ÍAV neiti að gera við, nema gegn frekari greiðslum. Heildarumfang verkefnis- ins var árið 2018 metið á ríflega 10 milljarða króna og 105 Miðborg stefnir enn á frekari uppbyggingu á reitnum. Heimildir blaðsins herma að for- svarsmenn verkefnisins hafi verið mjög ósáttir við margt í frágangi ÍAV í húsbyggingunum og að nú sé stefnt að því að ljúka betrumbótum á þeim og að gengið verði á verktryggingu verktakans vegna þess. Tryggingin er hjá tryggingafélaginu VÍS og hljóðar upp á hálfan milljarð króna. Undir lok þessa árs virkjast samn- ingur 105 Miðborgar við heilbrigðis- yfirvöld um útleigu á 1.500 fermetra rými í skrifstofubyggingunni sem nú stendur hálfkláruð við Sæbraut. Enn liggur ekki fyrir hvaða verktakar munu koma að því að fullbúa húsið en heimildir blaðsins herma að enn standi vonir til þess að það takist í tíma, áður en leigusamningurinn tek- ur gildi. ÍAV missir stórt verk á Kirkjusandi  Harðar deilur vegna meintra vanefnda og galla á byggingum MViðskiptaMogginn Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Nýbyggingar Mikil uppbygging hefur verið á Kirkjusandi á síðustu árum. Mikill áhugi er á heilsu- og lífsstíls- drykknum Collab erlendis. Ölgerðin leggur nú á ráðin um hvernig og hvert selja eigi vöruna. Frá þessu greinir Andri Þór Guðmundsson, forstjóri Ölgerðarinnar, í viðtali við ViðskiptaMoggann í dag. Í viðtalinu segir Andri sömuleiðis frá áformum Ölgerðarinnar um upp- byggingu nýs framleiðslurýmis. Fyrsta skóflustungan verður tekin síðar í mánuðinum en vonir standa til að framkvæmdum ljúki snemma á næsta ári. Fjárfestingin hleypur á nokkrum milljörðum króna en nýtt framleiðslurými mun koma til með að margfalda framleiðslugetu fyrir- tækisins. Það mun m.a. auðvelda út- flutning á vörum. Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Forstjóri Andri Þór Guðmundsson. Mikill áhugi frá útlöndum

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.