Morgunblaðið - 03.03.2021, Síða 10
10 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 3. MARS 2021
Immortelle blómið.
Dýrmætur æskuelixír náttúrunnar
Gullna andlitsolían okkar inniheldur nú hið nýja Immortelle ofurseyði sem unnið er úr lífrænum Immortelle
blómum sem er náttúrulegur valkostur fyrir retínól. Olían hjálpar sýnilega við að draga úr hrukkum,
endurheimtir ljóma húðarinnar og gerir hana silkimjúka.
Hver þarf tilbúið innihaldsefni þegar náttúran getur gert enn betur?
Kringlan 4-12 | s. 577-7040 | www.loccitane.is
aeilíf !
Athyglisvert sumarhús er að rísa á
landi úr jörðinni Hólum í Helgafells-
sveit, skammt frá Stykkishólmi. Eig-
endur eru Bretar, fjölskyldufólk.
Bætast þeir í hóp íslenskra og er-
lendra auðmanna sem eru flytja á
svæðið til búsetu eða sem sumar-
gestir eða til að stunda ferðaþjón-
ustu.
Guðmundur Kristjánsson, forstjóri
sjávarútvegsfyrirtækisins Brims,
hefur keypt jörðina Þingvelli í Helga-
fellssveit, eins og fram hefur komið.
Þýskar fjölskyldur hafa keypt hús og
jörð í Kolbeinsstaðahreppi hinum
forna og Eyja- og Miklaholtshreppi
og íslenskir og erlendir athafnamenn
eru að koma upp gistihúsi á jörðinni
Dal. Þá er að ljúka breytingum á hús-
um jarðarinnar Dranga á Skógar-
strönd í hótel og fengu eigendur
Studio Granda hönnunarverðlaun Ís-
lands fyrir þátt sinn í því verki.
Sumarhúsið í landi Hóla stendur
við Álftafjörð, um 10 kílómetra frá
Stykkishólmi. Það er hannað af Guð-
mundi Jónssyni arkitekt í Ósló sem
hannað hefur þekktar menningar-
miðstöðvar þar í landi. Það er reist á
súlum, eins og sést á ljósmyndinni, og
er 240 fermetrar að gólfflatarmáli.
Samkvæmt upplýsingum oddvita
sveitarstjórnar er húsbyggjandinn
Bazzcorp ehf., félag skráð á lög-
mannsstofu í Reykjavík. Í fyrir-
tækjaskrá er Guy Colin Mcleod sagð-
ur raunverulegur eigandi félagsins,
stjórnarformaður og fram-
kvæmdastjóri. helgi@mbl.is
Sérstakt sumarhús við Breiðafjörð
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Hólar Sumarhúsið er byggt á súlum við Álftafjörð. Í baksýn sést yfir Hvammsfjörð til Fellsstrandar. Hæstu kollarnir eru Dímonarklakkar í Klakkeyjum.
Tveir hafa gefið kost á sér í 1. sæti
á lista Vinstri grænna í Suðvestur-
kjördæmi fyrir næstu þingkosn-
ingar, annars vegar núverandi
þingmaður flokksins í kjördæminu,
Ólafur Þór Gunnarsson, og hins
vegar Guðmundur Ingi Guðbrands-
son umhverfisráðherra.
Forval mun fara fram hjá VG í
kjördæminu en ekki er búið að til-
kynna dagsetningu.
Guðmundur Ingi kom inn í ríkis-
stjórn Sjálfstæðisflokks, Fram-
sóknar og VG eftir síðustu kosn-
ingar og situr utan þings. Í
tilkynningu um framboðið segist
hann hafa fylgt VG að málum „frá
upphafi“, eins og það er orðað og
bætir við: „ekki síst vegna áherslu á
umhverfis- og náttúruvernd, mann-
réttindi og réttlátara samfélag.“
Í tilkynningu um sitt framboð
segist Ólafur Þór hafa beitt sér á
þingi í málefnum eldra fólks og vel-
ferðarmálum almennt, en hann er
menntaður öldrunarlæknir og fv.
bæjarfulltrúi í Kópavogi.
Guðmundur Ingi
Guðbrandsson
Ólafur Þór
Gunnarsson
Keppast um fyrsta
sætið í SV-kjördæmi
Kynning verður í Norræna húsinu
annað kvöld kl. 20:30 á stofnun
Kjarnasamfélags Reykjavíkur, þess
fyrsta hér á landi. Kynningin er
ætluð öllum sem hafa áhuga á að
vita meira um verkefnið kjarna-
samfélög eða hafa mögulega áhuga
á að ganga til liðs við hópinn.
Í tilkynningu um fundinn segir
að kjarnasamfélög séu samfélög
sem oft leggi áherslu á sjálfbærari
lifnaðarhætti. T.d. geti fólkið í sam-
félaginu ákveðið hvernig hverfi
þeirra eigi að líta út og virka. Allir
eigi sitt heimili en geti valið að eiga
sum rými eða hluti með öðrum.
Fyrsta kjarnasam-
félagið stofnað