Morgunblaðið - 03.03.2021, Síða 11

Morgunblaðið - 03.03.2021, Síða 11
FRÉTTIR 11Erlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 3. MARS 2021 Stefán Gunnar Sveinsson sgs@mbl.is Frönsk stjórnvöld tilkynntu í gær að þau hygðust leyfa að bóluefni Astra- Zeneca yrði notað til að bólusetja eldri borgara þar í landi gegn kór- ónuveirunni. Sneru þau þar með við fyrri ákvörðun um að ekki bæri að veita fólki yfir 65 ára aldri bóluefnið, að sögn vegna „skorts á gögnum“ um virkni þess í efri aldurshópum. Stjórnvöld í Þýskalandi, sem einn- ig settu aldurstakmarkanir á notkun AstraZeneca-efnisins eru sögð íhuga að stíga sama skref til þess að flýta fyrir bólusetningarherferð Þjóð- verja, sem talin er frumforsenda þess að hægt sé að létta á sóttvarna- aðgerðum þar í landi. Olivier Veran, heilbrigðisráðherra Frakklands, kynnti stefnubreyt- inguna og sagði að héðan í frá gæti fólk með undirliggjandi sjúkdóma einnig fengið bóluefni AstraZeneca, og ætti það við um alla aldurshópa, þar á meðal á aldrinum 65-74 ára, en þeir sem eldri eru munu áfram fá annaðhvort bóluefni Pfizers eða Moderna. Töluðu efnið niður Stefnubreytingu Frakka og Þjóð- verja má skýra að einhverju leyti vegna þess hversu illa hefur gengið í ríkjunum að halda dampi í bólusetn- ingarherferðum þeirra og er það rak- ið að einhverju leyti til tregðu meðal íbúa ríkjanna til þess að bólusetja sig með efninu, sem þróað var í samein- ingu af Oxford-háskóla og sænska lyfjafyrirtækinu AstraZeneca. Bárust fréttir af því í síðustu viku að milljónir skammta af efninu sætu eftir ónotaðir í báðum ríkjum, en ein- ungis um 273.000 skammtar af þeim 1,7 milljónum sem Frakkar hafa fengið afhenta hafa verið notaðir. Er tregða fólks til þess að bólusetja sig með efninu meðal annars rakin til þess að fyrir mánuði, meðan deilur AstraZeneca og Evrópusambands- ins um efni samkomulags þeirra stóðu sem hæst, töluðu embættis- menn í ríkjunum tveimur efnið niður, bæði hvað varðaði virkni þess hjá efri aldurshópum, sem og varðandi þær aukaverkanir sem fylgdu því. Emmanuel Macron Frakklands- forseti var þar fremstur í flokki, en hann sagði efnið „nánast óvirkt“ meðal eldri borgara án þess að fyrir þeirri fullyrðingu væri nokkur fótur. Breskir embættismenn og vísinda- menn mótmæltu þeirri fullyrðingu harðlega á sínum tíma, og héldu Ox- ford-háskóli og AstraZeneca þá því fram, að ástæðan fyrir því að ekki væru næg gögn fyrir virkni efnisins meðal eldri borgara væri sú að þau hefðu viljað forðast sem mest að nota viðkvæmari hópa samfélagsins í prófunum sínum á efninu. Ekkert gæfi hins vegar til kynna að efnið ætti að virka öðruvísi meðal fólks sem væri eldra en 65 ára gamalt. Bresk stjórnvöld ákváðu því að halda sínu striki og kusu að bólusetja sem flesta með þeim bóluefnum sem tiltæk væru. Niðurstöður rannsókn- ar á virkni efnisins, sem birt var á mánudaginn, bendir til þess að sú af- staða Breta hafi átt rétt á sér, en þar kom fram að bólusetning með Ast- raZeneca-efninu dró stórlega, eða um 80%, úr líkunum á því að fólk yfir áttræðu myndi veikjast alvarlega af völdum kórónuveirunnar, jafnvel þótt það hefði bara fengið einn skammt af þeim tveimur sem mælt er með. Annað hljóð í strokkinn Orðið hafði vart óánægjuradda meðal lækna og heilbrigðisyfirvalda í bæði Frakklandi og Þýskalandi með afstöðu stjórnvalda þar til AstraZe- neca-efnisins, jafnvel áður en niður- stöður bresku rannsóknarinnar birtust í vikunni. Þannig sagði Jacques Battistoni, formaður læknafélags Frakka, fyrir helgi að komið væri nóg af „bar- smíðunum“ gagnvart AstraZeneca, sem hefði í raun valdið því að fólk veigraði sér við að nota efnið. Þá lýsti Angela Merkel Þýskalands- kanslari því yfir að hægt væri að „treysta“ bóluefninum, en þegar hún var spurð hvort hún myndi láta bólusetja sig með efninu vék Merkel sér undan því með því að benda á að hún væri 66 ára gömul og því yfir aldursviðmiðum þýskra stjórn- valda. AFP Bólusetning Olivier Veran, heilbrigðisráðherra Frakklands, lét bólusetja sig í byrjun febrúar með Covid-19 bólu- efni Astra Zeneca til þess að hvetja Frakka undir 65 ára aldri til að nota það. Nú hafa frönsk stjórnvöld skipt um skoðun og leyft notkun bóluefnisins meðal fólks á aldrinum 65 til 74 ára. Það hafa íslensk stjórnvöld ekki gert. Frakkar skipta um skoðun  Frakkar hyggjast bólusetja fólk á aldrinum 65-74 ára með bóluefni AstraZeneca  Milljónir skammta sitja ónotaðir  Danir og Austurríkismenn leita til Ísraels Her og lögreglulið í Búrma, sem einnig er þekkt sem Mjanmar, beittu skotvopnum á mótmælendur í gær, þriðja daginn í röð. Að minnsta kosti þrír voru sagðir illa særðir í gær eftir viðskipti sín við lögregluna, og var framferði herforingjastjórnarinnar fordæmt af nokkrum af nágranna- ríkjum Búrma. Hin harkalegu viðbrögð gærdags- ins koma í beinu framhaldi af aðgerð- um hers og lögreglu á sunnudaginn, en áætlað hefur verið að minnst átján manns hafi þá látið lífið eftir að þeir voru skotnir. Ekkert lát er á mótmælum í land- inu þrátt fyrir að herforingjastjórnin beiti nú mikilli hörku til þess að kveða þau niður. Þannig sóttu þúsundir manna í borginni Jangon, stærstu borg landsins, útför háskólastúdents sem skotinn var til bana á sunnudag. Sungu gestirnir byltingarsöngva og héldu þremur fingrum á loft, en það er nú tákn þeirra sem andmæla valdaráninu í síðasta mánuði. Þá héldu þeir á lofti skiltum til stuðnings Aung San Suu Kyi, leiðtoga réttkjör- inna stjórnvalda í landinu, en hún hefur verið í stofufangelsi frá því her- inn rændi völdum 1. febrúar sl. Mótmælin héldu áfram að útför lokinni í ýmsum hverfum borgarinn- ar, og gengu mótmælendur um með byggingarhjálma og annan hlífðar- búnað. Beitti lögreglan í Jangon tára- gasi og kylfum gegn mótmælendum. Fordæmdu ofbeldið Utanríkisráðherrar ríkja í Suð- austur-Asíu héldu fjarfund í gær á vettvangi ASEAN að viðstöddum fulltrúa frá Búrma. Kusu nokkrir ráðherranna að fordæma aðfarir her- foringjastjórnarinnar harkalega, en hefð er fyrir því á fundum ASEAN- ríkjanna að halda gagnrýni í lág- marki og skipta sér lítt af innanrík- ismálum. Lýstu ráðherrar nokkurra ríkj- anna yfir miklum áhyggjum sínum að fundi loknum, og hvatti utanríkisráð- herra Filippseyja til þess að Aung San Suu Kyi yrði þegar í stað sleppt úr haldi. Ekki náðist að samþykkja sameig- inlega fundarályktun á fundi ráð- herranna, en utanríkisráðherra Bru- nei, sem situr í forsæti ASEAN- ráðsins í ár, sagði nauðsynlegt að allir aðilar hefðu viðræður um lausn þeirr- ar stöðu sem komin væri upp. Áfram skotið á mótmælendur  Að minnsta kosti þrír eru illa særðir 22:47 Stefnumót kerfi virkt SAMSTARFSAÐILI FLÝTIVAL FYRIR STEFNUMÓTIÐ LJÓS DEYFÐ TÓNLIST Í GANG DYRUM LÆST Sérsniðið öryggiskerfi fyrir þitt heimili, enginn binditími. Austurríki og Danmörk til- kynntu í gær að þau myndu leita út fyrir bóluefna- samstarf Evrópu- sambandsins (ESB) vegna Co- vid-19 og fara í samstarf við Ísr- ael í þeim efnum. ESB hefur verið langt á eftir Bretlandi, Ísrael og Bandaríkjunum hvað bóluefni gegn Covid-19 snertir. Sambandið lýsti því yfir í gær að aðildarríkjum þess væri nú frjálst að gera sérstaka samninga um kaup á bóluefnum, en fyrri stefna þess var sú að ríkin stæðu öll saman að bóluefnakaupum. Ísland er aðili að bóluefnasam- starfi Evrópusambandsins. Fram kemur í frétt Telegraph að ákvörðunin beri frekari merki þess að trú á bóluefnasamstarfi ESB fari dvínandi. Sebastian Kurz, kanslari Austur- ríkis, sagði við dagblaðið Bild í gær- kvöldi að Evrópska lyfjastofnunin hafi verið of lengi að samþykkja bóluefni. „Við verðum þess vegna að búa okkur undir frekari afbrigði veir- unnar og við ættum ekki að reiða okkur áfram á ESB þegar kemur að framleiðslu annarrar kynslóðar bólu- efna,“ sagði Kurz. Mette Frederiksen, forsætisráð- herra Danmerkur, sagði í gær að Danmörk hefði þegar boðið í af- gangsbirgðir af því bóluefni sem Ísr- ael hefur tryggt sér. Yfirvöld í Póllandi, Slóvakíu, Ung- verjalandi og Tékklandi hafa öll gert ráðstafanir til að tryggja sér bóluefni utan Evrópusambandsins. Þá hefur Þýskaland tryggt sér 30 milljónir skammta af bóluefni Pfizer auk þess sem svæðisbundin yfirvöld í Frakk- landi hafa reynt að fá umframbólu- efni eftir öðrum leiðum. Leita bóluefna utan ESB  Reiða sig ekki á Evrópusambandið Sebastian Kurz

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.