Morgunblaðið - 03.03.2021, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 03.03.2021, Blaðsíða 17
Pabbi minn Helgi Kristmundur Ormsson sem ég sakna mikið kvaddi þennan heim 5. febrúar síðastliðinn sem var dánardagur móður minnar fyr- ir ári, hann var jarðsunginn sama dag og hún, 17. febrúar. Þau mamma voru góðir félagar þrátt fyrir að lífið hafi fært þeim alls konar áskoranir. Pabbi virkaði hrjúfur fyrir ókunnuga að sjá og heyra, en við fjölskyldan höfðum gaman af þessum karakter, það var sko sussað á alla á fréttatíma, já stór maður ekki bara í senti- metrum talið. Ég held að pabba hafi lang- að að lifa lengur, hann var rík- ur af afkomendum, hann hafði nóg að gera, hlustaði á útvarp, las blöð, ljóð og bækur, hafði einnig gaman af að leysa kross- gátur, pabbi var Rotary-félagi til 57 ára. Pabbi var morg- unhani, kominn út í göngu fyrir allar aldir á morgnana í alls konar veðri, ef þið hafið séð boginn mann á rjátli með göngugrindina sína hér í Borg- arnesi þá var það hann. Í byrj- un desember veiktist pabbi og tapaði flestum þessum lífsgæð- um, hann saknaði hennar mömmu svo óskaplega mikið þetta síðasta ár, honum fannst hún oft sitja í stólnum sínum hvíta. Oft vill það verða svo að annar aðilinn í hjónabandinu tekur sér það hlutverk að ann- ast um veika makann, það kom í hans hlut að fylgja mömmu í gegnum daginn síðustu árin, þetta var erfiður tími sem var ástæða þess að þau komu í Brákarhlíð en þar voru þau saman meðan mamma lifði sem var honum erfitt en þannig skyldi það vera – ævina út í blíðu og stríðu. Helgi Kristmundur Ormsson ✝ Helgi Ormssonfæddist 15. ágúst 1929. Hann lést 5. febrúar 2021. Útförin fór fram 17. febrúar 2021. Ég vil trúa því að mamma hafi tekið á móti hon- um í sumarland- inu, þau farin á skverinn í amer- ískum jeppa með seglagerðartjaldið, nestisboxið góða og berjatínur í skottinu. Ein af fyrstu minningum mínum af mömmu eru úr þannig ferðum, hún með mig í bóndabeygju að vökva móana sem ég geri enn. Nestið var saxbauti, niðursoðnar pyls- ur og lifrarkæfa í dós, þetta var veisla. Minna skemmtilegt í þessum ferðum fannst mér þegar pabbi fór að sturta sig í öllum mögulegum fossum og sprænum, nú er ég sjálf farin að taka upp þetta háttalag. Mínar fyrstu minningar af pabba eru þegar ég sat í fang- inu á honum í holinu á Kjart- ansgötunni og hann var að kenna mér að lesa meðan mamma eldaði kvöldmat. Fyrst þegar pabbi kom fram til mín í Brákarhlíðinni til að hlusta á upplestur sagði hann „þér hef- ur bara farið fram í lestri“, hann mundi það líka, það var alltaf stutt í glensið. Kvöldið fyrir andlátið settist pabbi upp í síðasta skiptið, hann ætlaði sér eitthvað. „Pabbi minn hvert ertu að fara?“ spurði ég. „Nú, ég er að fara í Boðaþingið.“ Já, hann var tilbúinn á leið til hennar mömmu. Í dag 3. mars er 70 ára brúðkaupsafmæli þeirra - platínubrúðkaup og þá leggjum við kerið hans til moldar við hlið mömmu í kirkjugarðinum í Borgarnesi, ég er þakklát fyrir að hafa átt mína góðu foreldra í svo mörg ár. Pabbi var trúaður og morg- unbænin í útvarpinu var einn af föstum liðum dagsins, bæn dagsins 17. febrúar, þ.e. á út- farardag pabba, var úr 37. Davíðssálmi og hljóðar svo: Fel Drottni vegu þína og treyst honum, hann mun vel fyrir sjá. Þuríður Helgadóttir MINNINGAR 17 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 3. MARS 2021 ✝ Henný Sigríð-ur Guðmunds- dóttir fæddist í Reykjavík 3. mars 1929. Hún lést á Hjúkrunarheim- ilinu Sólvangi 22. febrúar 2021. Foreldrar henn- ar voru Helga Em- ilía Sigmundsdóttir húsmóðir, f. 24. nóvember 1906, d. 17. apríl 1974 og Guðmundur Nóvember Hannesson línumað- ur, f. 29. nóvember 1901, d. 13. febrúar 1990. Henný átti 3 bræður, Sigmar Gunnar Haf- stein Guðmundsson, f. 25. jan- úar 1925, d. 27. nóvember 1999, Hannes Ingólf Guðmundsson, 21. febrúar 1926, d. 27. desem- ber 1998 og Emil Lúðvík Guð- Helgi og Adam Steinn. 2) Ás- mund, f. 4. febrúar 1952, maki hans er Stella Sigfúsdóttir, f. 13. janúar 1953, dætur þeirra eru Henný Ása og Fjóla Karen. 3) Gústaf Jóhann, f. 7. nóvember 1955, dóttir hans er Sóley Eva. 4) Sigurð, f. 17. nóvember 1959. 5) Emil, f. 26. júlí 1961, maki hans er Elfa Björt Hreinsdóttir, f. 16. september 1962, börn þeirra eru Atli Þór, Adam Ívar, Emil Andri og Linda Íris. 6) Henný Sigríður, börn hennar eru óskírð, Pálmi Georg, Anna Þóra og Hafdís Ósk. 7) Árni Þor- björn, f. 12. febrúar 1967, maki hans er Sonja Bent, f. 12. desem- ber 1977, sonur hans er Daníel Kári, Máni Bent og Högni Gald- ur. Barnabarnabörnin eru 30 og það 31. væntanlegt. Útförin fer fram í dag, 3. mars 2021, frá Fossvogskirkju klukkan 13. At- höfninni verður strymt. Stytt slóð á streymið: https://tinyurl.com/23ujb3fe/. Ennig má nálgast virkan hlekk á: https://www.mbl.is/andlat/. mundsson, f. 19. september 1935. Henný giftist 11. ágúst 1951 Gústaf Pálma Ásmunds- syni bólstrara, f. 3. október 1924, d. 6. maí 2013. For- eldrar hans voru Sigríður Pálína Gústafsdóttir hús- móðir, f. 14. júní 1901, d. 11. desem- ber 1984 og Ásmundur Árnason afgreiðslumaður, f. 7. apríl 1900, d. 3. febrúar 1984. Henný og Pálmi eignuðust sjö börn: 1) Guðmund Helga, f. 21. nóv- ember 1950, maki hans er Þor- björg Steins Gestsdóttir, f. 15. júlí 1951, börn Guðmundar eru H. Auður, Ester María, Rúna Ír- is, Helga Berglind, Guðmundur Elsku mamma. Að setjast niður og skrifa minningargrein um þig er eitt það erfiðasta sem ég hef gert. Ég hélt að þú yrðir hérna allt- af, ég átti mjög erfitt með að sleppa af þér hendinni. En ég má víst ekki vera eigingjörn, ég þurfti að sleppa og segja þér að það yrði allt í lagi með mig. Þú beiðst eftir mér áður en þú kvaddir, þú opnaðir augun þegar ég kom sem þú hafðir ekki gert allan daginn. Er svo þakklát fyrir að hafa fengið að vera hjá þér og halda utan um þig þessar síðustu stundir sem við áttum saman og talað við þig hvað biði þín. Að pabbi myndi taka vel á móti þér og að þú yrðir fallegasti engillinn. Það eru svo ótal minningar sem hægt væri að rifja upp, ég var einkadóttir ykkar pabba af sjö systkinum og einhverjir sögðu að ég væri dekurdós. Ég man nú ekki eftir því að hafa fengið sérmeðferð í uppeldinu, en það var auðvitað bara ein uppáhaldseinkadóttir. Þegar við systkinin vorum á unglingsárunum þá tókstu alltaf öllum opnum örmum, þú varst alltaf að gantast við alla og hafð- ir gaman af því. Þú sast alltaf úti í glugga og beiðst eftir að ég kæmi inn, þú fórst ekki að sofa fyrr en ég var búin að skila mér inn, sama hvað klukkan var. Þú varst ekki alltaf sátt við hvað ég kom seint heim, en hafðir sem fæst orð um það. Þú varst alltaf til staðar, alltaf boðin og búin að hjálpa til. Þú varst til staðar þegar ég tók mín fyrstu skref í móðurhlutverkinu. Þegar ég fór í nám á gamals aldri, þá stóðuð þið pabbi við bakið á mér á meðan ég var í námi við KHÍ. Geitin, pabbi átti það til að kalla þig geitina sína, geitin var alltaf meint í fallegum skilningi og það hélst við þig alla tíð, þeg- ar þú kynntir þig þá fylgdi ið- urlega í kjölfarið, já eða bara geitin. Á Hjúkrunarheimilinu Sólvangi kynntir þú þig líka sem geitin og hafði starfsfólkið þar gaman af því og var mikið gant- ast með það. Meira að segja undir lokin sagðir þú geitin hef- ur það gott. Þú kvartaðir aldrei, sagðir alltaf: Það er ekkert að mér, látið ekki svona. Þar er þér rétt lýst, þú vildir ekki vera byrði, þú vildir ekki láta hafa of mikið fyrir þér. Þú varst ennþá að gantast síð- ustu dagana áður en þú kvaddir, þú varst mjög falleg og friðsæld yfir þér þegar þú kvaddir. Veit að pabbi og saumaklúbbsstelp- urnar taka vel á móti þér. Söknuður er hjartans sár, þar er tilfinningar að finna. Oft eru þar mörg tár uns því fer að linna. (Kristbjörg Árný Ólafsdóttir) Hvíldu í friði, elsku mamma mín, minning þín er ljós í lífi mínu. Þín uppáhaldseinkadóttir, Henný. Elsku amma, þakka þér fyrir allt, allar okkar góðu stundir. Allt mitt líf hef ég haft þig og afa mikið í mínu lífi. Þú tókst mig með þér í vinnunna í Hamp- iðjunni, á öll jólaböllin og þegar þið afi tókuð mig með ykkur í ferðalög, sunnudagsísbíltúrarnir með viðkomu í Straumnesi að kaupa Staur, þegar ég sat á eld- húsborðinu í Völvufellinu og þú hækkaðir í botn þegar Ég er á leiðinni með Brimkló kom í út- varpinu og við sungum hástöfum með, ég á endalaust af góðum minningum um ykkur afa. Þú hefur alltaf verið svo stolt af mér og þegar ég fór í nám á gamals aldri varstu mín helsta klappstýra og sagðir öllum sem heyra vildu að nú væri ég komin í háskóla, enda varstu stór part- ur af þeirri ákvörðun minni að fara að mennta mig. Einnig hef- ur þú alltaf fylgst vel með öllu sem börnin mín höfðu fyrir stafni og verið stolt af þeim, svo ég tali nú ekki um hversu ánægð þú hefur alltaf verið með Markús og knúsin hans. Við áttum margt sameiginlegt, eitt af því var að við áttum báðar fatlað barn, það gátum við rætt fram og til baka, þú gafst mér ráð og við gátum deilt áhyggjum okkar og gleði varðandi þau. Ég er þakklát fyr- ir allar stundirnar okkar saman. Það er undarlegt að nú skulir þú vera farin frá okkur og risa- stórt skarð komið í líf okkar og hjörtu. En ég er viss um að það hafa verið fagnaðarfundir hjá ykkur afa þegar þið hittust aftur. Elsku amma. Ég sendi þér kæra kveðju, nú komin er lífsins nótt, þig umvefji blessun og bænir, ég bið að þú sofir rótt. Þó svíði sorg mitt hjarta þá sælt er að vita af því, þú laus ert úr veikinda viðjum, þín veröld er björt á ný. Ég þakka þau ár sem ég átti, þá auðnu að hafa þig hér, og það er svo margs að minnast, svo margt sem um hug minn fer, þó þú sért horfinn úr heimi, ég hitti þig ekki um hríð, þín minning er ljós sem lifir og lýsir um ókomna tíð. (Þórunn Sig.) Ég mun alla tíð geyma minn- inguna um þig í hjartanu, glað- væra amma sem vildir öllum vel. Ég elska þig og mun alltaf sakna þín. Þín Sóley Eva. Elsku amma, það er erfitt að trúa að þú sért farin en við vitum að þú vakir yfir okkur. Við þökk- um fyrir allar stundirnar sem við áttum með þér. Við kveðjum þig með þakklæti í hjarta, þú varst alltaf tilbúin að aðstoða okkur og styðja í því sem við tókum okkur fyrir hendur. Við fögnum því að börnin okkar fengu að kynnast þér þó tíminn hafi verið stuttur. Við erum þakklát fyrir að hafa getað verið til staðar fyrir þig, fyrir búðarferðirnar og heimsóknirnar. Það var alltaf gott að sofna á sófanum hjá elsku ömmu. Elsku lambakaamma-súttul- aðinammi, þín verður sárt sakn- að. Hér að hinstu leiðarlokum ljúf og fögur minning skín. Elskulega amma góða um hin mörgu gæði þín. Allt frá fyrstu æskudögum áttum skjól í faðmi þér. Hjörtun ungu ástúð vafðir okkur gjöf sú dýrmæt er. Hvar sem okkar leiðir liggja lýsa göfug áhrif þín. Eins og geisli á okkar brautum amma góð, þótt hverfir sýn. Athvarf hlýtt við áttum hjá þér ástrík skildir bros og tár. Í samleik björt, sem sólskinsdagur samfylgd þín um horfin ár. Fyrir allt sem okkur varstu ástarþakkir færum þér. Gæði og tryggð er gafstu í verki góðri konu vitni ber. Aðalsmerkið: elska og fórna yfir þínum sporum skín. Hlý og björt í hugum okkar hjartkær lifir minning þín. (Ingibjörg Sigurðardóttir) Anna Þóra, Hafdís Ósk, Hjörtur Freyr, Freyja Rut, Amelía Henný og Ýmir Aron. Henný, elskuleg föðursystir mín, er látin 92 ára. Hún var einkadóttir ömmu og afa og systir þriggja bræðra. Sem barni fannst mér alltaf gott að koma til Hennýjar, hún var skapgóð og hlý og virtist alltaf hafa nægan tíma til að spjalla. Hún og Pálmi tóku mig oft með í útilegu, en tveir elstu synir þeirra og ég vorum á líkum aldri og við lékum okkur oft saman sem börn. Þeir voru ófáir sunnu- dagarnir sem ég arkaði vestur á Fálkagötu til að horfa á kana- sjónvarpið með fjölskyldunni og var mér ætíð vel tekið. Þegar ég fór að búa leitaði ég til Hennýjar með ýmislegt og þrátt fyrir mik- ið annríki tók hún mér ávallt með bros á vör. Henný og Pálmi eignuðust sex drengi og eina dóttur og eins og gefur að skilja var oft kátt á hjalla og í mörg horn að líta. Eftir að Henný varð ekkja 2013 flutti hún í íbúð við Sólvang í Hafnarfirði og seinna á hjúkr- unardeild Sólvangs þar sem hún lést 22. febrúar sl. en í dag, 3. mars, hefði hún orðið 92 ára. Létta skapið og þolinmæði voru sterk persónueinkenni hennar. Blessuð sé minning Hennýjar frænku. Emilía (Emma). Elsku yndislega föðursystir mín er látin. Ég var svo lánsöm að fá að vinna með henni og þar kynntist ég henni vel og við urð- um miklar vinkonur. Ég dáðist að henni, hún var svo æðrulaus hvernig sem aðstæður voru, en samt var alltaf stutt í grínið. Hún var einstaklega dugleg og samviskusöm. Fyrir mér var hún stórkostlegasta kona sem ég hef kynnst. Við spjölluðum mikið saman, þá var hlátur og gaman. Ég kíkti stundum til hennar í kaffi eftir vinnu, þá tókum við upp þráðinn og spjölluðum um allt á milli himins og jarðar. Henný var hrein og bein og ófeimin að segja sína meiningu. Mér þótti innilega vænt um hana, hún var yndisleg frænka og vinkona. Ég kveð Henný, mína góðu frænku og vinkonu, með miklum söknuði. Ég sendi börnum henn- ar og fjölskyldum þeirra dýpstu samúðarkveðjur. Minning þín lifir. Ellen Vestmann Emilsdóttir. Himneskt er að vera með vorið vistað í sálinni, sólina og eilíft sumar í hjarta. Því hamingjan felst í því að vera með himininn í hjartanu. Lifi lífið! (Sigurbjörn Þorkelsson) Ég votta fjölskyldunni og að- standendum mína dýpstu samúð. Guðmundur Árni Sigurðsson. Henný Sigríður Guðmundsdóttir Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, HENNÝ SIGRÍÐUR GUÐMUNDSDÓTTIR, hjúkrunarheimilinu Sólvangi, lést mánudaginn 22. febrúar í faðmi sinna nánustu. Útförin fer fram frá Fossvogskirkju miðvikudaginn 3. mars klukkan 13. Athöfninni verður streymt á: https://youtu.be/jlTZw6tUL6M Guðmundur H. Gústafsson Þorbjörg Steins Gestsdóttir Ásmundur Gústafsson Stefanía Sigfúsdóttir Gústaf J. Gústafsson Sigurður Gústafsson Emil Gústafsson Elfa B. Hreinsdóttir Henný S. Gústafsdóttir Erna J. Erlendsdóttir Árni Þ. Gústafsson Sonja Bent barnabörn og barnabarnabörn Ástkær móðir okkar, tengdamóðir og amma, HELGA MAGNÚSDÓTTIR, Helguhvammi, lést á Heilbrigðisstofnuninni á Hvammstanga sunnudaginn 21. febrúar. Útför hennar fer fram frá Hvammstangakirkju föstudaginn 5. mars klukkan 13. Að ósk hinnar látnu verða aðeins nánustu aðstandendur viðstaddir. Útvarpað verður frá athöfninni á FM 106,5 á Hvammstanga. Kristín Guðmundsdóttir Ólafur Benediktsson Vigdís Guðmundsdóttir Sigtryggur Sigurvaldason Magnús Guðmundsson María Hjaltadóttir og fjölskyldur Elskulegur eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, afi og langafi, MAGNÚS ARNÓRSSON, Hlíf 1, Ísafirði, lést á Heilbrigðisstofnun Vestfjarða á Ísafirði 23. febrúar. Útför verður frá Ísafjarðarkirkju laugardaginn 6. mars klukkan 14. Friðgerður Hallgrímsdóttir Halldóra G Magnúsdóttir Guðmundur M. Kristjánsson Reynir S. Magnússon Eygló Ásmundsdóttir Kristjana Magnúsdóttir Guðni G. Borgarsson Dúna Magnúsdóttir Kristján Sigurjónsson Arnór Magnússon Dagný Jónsdóttir Ingibjörg S. Magnúsdóttir Þorleifur Ragnarsson barnabörn og barnabarnabörn

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.