Morgunblaðið - 03.03.2021, Qupperneq 20

Morgunblaðið - 03.03.2021, Qupperneq 20
20 DÆGRADVÖL MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 3. MARS 2021 70 ára Sólveig er Hafn- firðingur en býr í Garðabæ. Hún er stúd- ent frá Mennta- skólanum í Hamrahlíð og var innheimtu- fulltrúi hjá Samskipum. Sólveig er hestamann- eskja. Maki: Gunnar Ingimarsson, f. 1947, ljós- myndari. Börn: Tvíburarnir Hulda og Olga, f. 1969, Mjöll, f. 1974, og Hildur, f. 1985. Barna- börnin eru tólf og langömmubörnin eru fimm. Foreldrar: Hulda S. Hansdóttir, f. 1912, d. 2007, húsmóðir, og Friðjón Guð- laugsson, f. 1912, d. 1985, vélstjóri. Þau voru búsett í Hafnarfirði. Sólveig Hrönn Friðjónsdóttir Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl  Hrútur Nýttu þær auðlindir sem þú hefur aðgang að til að bæta umhverfi þitt, bæði í vinnunni og á heimilinu. Passaðu þig á því, að umkvörtunarefni þitt gæti bara verið til innra með þér. 20. apríl - 20. maí  Naut Þú nýtir orkuna í botn. Reyndu að taka tillit til þess að það eru ekki allir jafn ófeimn- ir og þú, og hafa ýmislegt fram að færa þótt þeir eigi erfitt með að láta það í ljós. 21. maí - 20. júní  Tvíburar Þú þarft að snúa þér að þeim verk- efnum sem þú hefur látið dragast. Mundu bara að ekki er allt sem sýnist. Kvenkyns vinnufélagar geta reynst hjálplegir. 21. júní - 22. júlí  Krabbi Þú hefur góðar hugmyndir um leiðir til þess að fegra hlutina. Lærðu bara af reynslunni. 23. júlí - 22. ágúst  Ljón Spennandi atvinnutækifæri blasa við þér á þessu ári. Hugsaðu um framtíðina og dragðu lærdóm af því sem réttmætt er. Slepptu dómhörku og reyndu bara að spjara þig eftir mætti. 23. ágúst - 22. sept.  Meyja Í dag er dagur nýrrar byrjunar, vopnahlés og möguleika. Veldu þér því góða samstarfsmenn ef þú vilt ná einhverjum ár- angri. 23. sept. - 22. okt.  Vog Kannaðu verð og gæði áður en þú festir kaup á nýjum hlut. Nýjar umbætur og stór- tækar breytingar eru líklegar. 23. okt. - 21. nóv. Sporðdreki Ráðkænskan er annað nafn þitt í dag. En ef þú hyggst ná árangri í slíkum fé- lagsskap, þarftu að hlusta og leyfa öllum að njóta vafans. 22. nóv. - 21. des. Bogmaður Nú er tímabært að laga fjár- málaóreiðuna. Ekki skrifa undir neitt. Reyndu ekki að fela mistökin heldur bættu úr þeim með bros á vör. 22. des. - 19. janúar Steingeit Hvötin sem hjálpar þér upp fjallið getur líka ýtt þér fram af hengiflugi. Gefðu þér nú tíma til þess að fara í gegnum hlutina og afgreiða þá einn af öðrum. 20. jan. - 18. febr. Vatnsberi Gerðu það upp við þig hvað það er sem þú raunverulega vilt en hlustaðu ekki bara á skoðanir annarra. 19. feb. - 20. mars Fiskar Einhver mun koma þér svo á óvart að þú verður að játa þá staðreynd að aldrei skyldi dæma eftir útlitinu einu saman. S igríður Sigursteinsdóttir fæddist 3. febrúar 1936 á Búrfelli í Hálsaveit í Borg- arfirði og ólst þar upp. „Við höfðum það gott í sveitinni. Pabbi og mamma voru samhent með búið og alltaf nóg að bíta og brenna. Pabbi var nákvæmnismaður og einn örfárra bænda sem héldu nákvæmt bókhald yfir búskapinn. Það var reyndar alltaf draumur hans að starfa við bókhald en örlögin höguðu því þannig að að hann varð bóndi þar til þau flutti til Flateyrar þar sem þau bjuggu til æviloka,“ segir Sigríður. Hún á góðar minningar frá Búrfelli. Þorsteinn, föðurafi hennar, Þorsteinn Jónsson, kom oft í heimsókn og þá leyndi sér ekki að Sigríður, sem ber nafn eiginkonu hans heitinnar, var augasteinninn hans. „Ég var mjög hænd að afa mínum og undi mér vel í návist hans. Ég man sérstaklega hve sorgmædd ég var þeg- ar hann kom í seinasta sinn og sagðist vera kominn til að deyja. Hann var þá orðinn mjög veikur og það fór eins og hann sagði. Ég var lengi óhuggandi eftir að afi minn dó haustið 1948. Hann var góður maður,“ segir Sigríður. Sigríður útskrifaðist frá Hús- mæðraskólanum í Reykjavík. „Á þess- um tíma var ekki um annað að ræða en að stefna að því að verða húsmóðir. Seinna varð mér hugsað til þess að það hefði verið gaman að læra eitthvað annað en það þótti vera viðeigandi að konur lærðu frekar til húsverka. En það er dálítið spaugilegt að eitt út- skriftarverkefna minna var að ég saumaði kjól á væntanlega dóttur mína. Ég eignaðist svo aðeins stráka og kjóllinn hékk óhreyfður inni í skáp þar til barnabörnin komu til sögunnar. Það sem ég lærði í húsmæðraskól- anum nýttist mér annars vel í daglegu amstri. Það eina sem ég sé eftir er að hafa ekki lært meira. Ég hafði gaman af stærðfræði og hefði gjarnan viljað læra það fag.“ Sigríður flutti til Flateyrar árið 1958 með eiginmanni sínum. Hún starfaði lengi sem umboðsmaður flugfélaganna Arnarflugs og Vængja sem héldu uppi áætlun á milli Reykjavíkur og Flat- eyrar. Þess utan var hún umboðs- maður DV og Morgunblaðsins. Um árabil starfaði hún við fiskvinnslu á Flateyri og var gjarnan á meðal bón- usdrottninganna sem afköstuðu mestu. „Það var ekkert sérstaklega gaman að vinna í fiski. En þetta gaf vel í aðra hönd og það hélt mér við efnið. En ég var afskaplega fegin þegar ég gat hætt í fiskinum og fór að starfa við flugið. Ég hafði gaman af því og það starf festist svo rækilega við mig að ég var kölluð Sigga Flug. Mér leiddist ekki einn einasta dag að vera á fullu við að afgreiða flugið í Holti í Önundar- firði, þótt á köflum gæti starfið verið erfitt.“ Sigríður starfaði að félagsmálum á Flateyri, meðal annars Kvenfélaginu Brynju og Slysavarnafélaginu á staðn- um. „Ég er ánægð með lífshlaupið. Ég kom fjórum börnum á legg en upplifði þá sorg að ég missti eitt í frum- bernsku. Ég hafði gaman af því að fara á böll og skemmtanir í gamla daga. Í dag spila ég við fólkið hér á Hlíf á Ísa- firði. Flateyri stendur hjarta mér næst. Þar átti ég mín bestu ár innan um gott fólk. En Borgarfjörðurinn er fallegur og lifir í minningunni. En hvað skyldi Sigríður ætla að taka sér fyrir hendur á stóra daginn þegar hún verður 85 ára? „Ég ætla að vera heima á afmælisdaginn og hafa það náðugt, mér líður best heima og er hætt að ferðast eins og ég gerði svo mikið af fyrir nokkrum árum.“ Fjölskylda Eiginmaður Sigríðar var Jón Trausti Sigurjónsson, f. 14.10. 1932, d. 16.7. 1978, verslunarstjóri og sjó- maður. Þau bjuggu lengst af á Flat- eyri, en Sigríður býr núna á Dvalar- heimilinu Hlíf á Ísafirði. Foreldrar Trausta voru Sigurjón Jónsson, f. 20.6. 1903, d. 7.12. 1968, sjómaður á Húsa- vík, og Guðrún Sigríður Valdimars- Sigríður Sigursteinsdóttir, fyrrverandi umboðsmaður og fiskverkakona – 85 ára Ljósmynd/Róbert Reynisson Afmælisbarnið Sigríður ætlar að hafa það náðugt í dag. Saumaði kjól á stúlku en eignaðist eintóma stráka Með elsta syninum Sigríður og Reynir á Flateyri, þar bjó hún í hálfa öld. 30 ára Knútur fædd- ist í Värnamo í Sví- þjóð og ólst þar upp og einnig í Reykjavík og Bergen í Noregi. Hann býr núna á Álftanesi. Knútur er með M.Sc.-gráðu í rekstrarverkfræði frá HR og er vöru- merkjastjóri hjá Bílaumboði BL. Knútur hefur áhuga á bílum og stundar líkams- rækt. Maki: Eva Lind Fells, f. 1992, með meistaragráðu í mannauðsstjórnun og er launafulltrúi á Landspítalanum. Sonur: Elías Kári, 2019. Foreldrar: Kári Knútsson, f. 1958, lýta- læknir, og Erla Ólafsdóttir, f. 1950. Þau eru búsett á Seltjarnarnesi. Knútur Steinn Kárason Til hamingju með daginn Börn og brúðhjón Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks, svo sem stórafmælum, hjónavígslum, barnsfæðingum og öðrum tímamótum. Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð. Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is–– Meira fyrir lesendur NÁNARI UPPLÝSINGAR um auglýsingapláss: Berglind Bergmann Sími: 569 1246 berglindb@mbl.is BÍLA-SÉRBLAÐ BÍLA fylgir Morgunblaðinu þriðjudaginn 16. mars 2021BLAÐ

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.