Morgunblaðið - 03.03.2021, Síða 21

Morgunblaðið - 03.03.2021, Síða 21
DÆGRADVÖL 21 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 3. MARS 2021 Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger „LEYFÐIRÐU KETTINUM AÐ FÁ RÖNDÓTTU SKYRTUNA MÍNA LÁNAÐA?” Hermann Ferdinand Hrólfur hræðilegi Grettir ... að tísta til hans. ALLT SEM ÉG ÞARFNAST ER HÉR HEIMA OG NOKKRIR HLUTIR SEM ÉG GÆTI VERIÐ ÁN NÚ SKULUM VIÐ SKOÐA HVAÐ ÞÚ MUNT AÐHAFAST Í FRAMTÍÐINNI! ÓKEI… FYRST ÞARFTU AÐ SVERJA ÞAGNAREIÐ OG SKRIFA UNDIR SAMNING ÞESS EFNIS! RÖGNVALDUR VISSI AÐ NÝJU VERSLUNARHÖFTIN MYNDU BORGA SIG UPP Á ÖRSKOTSSTUNDU. GRÍPTU GÆSINA! EKKI MISSA AF ÞESSUM KOSTAKJÖRUM! dóttir, f. 22.9. 1908, d. 22.9. 1984, hús- freyja á Húsavík. Börn Sigríðar og Trausta: 1) Reynir Traustason, f. 18.11. 1953, ritstjóri og fararstjóri í Njarðvík. Fyrrverandi eiginkona Reynis er Halldóra Jóns- dóttir. Börn þeirra eru Róbert Reyn- isson, f. 26.7. 1974, ljósmyndari. Hann á tvö börn; Hrefna Sigríður Reynis- dóttir, f. 27.9. 1977, kennari. Hún á fjögur börn; Jón Trausti Reynisson, ritstjóri og framkvæmdastjóri. Hann á tvö börn; Símon Örn Reynisson, tölv- unarfræðingur. Hann á eitt barn; Harpa Mjöll Reynisdóttir, leikskóla- starfsmaður. Hún á eitt barn; 2) Halldór Traustason, f. 6.9. 1959, vél- stjóri á Flateyri. Eiginkona hans er Dhorn Sakulphrom verkakona; 3) Björn Jakob Traustason, f. 22.2. 1961, d. 25.5. 1961; 4) Þorsteinn Traustason, f. 16.6. 1962, verkamaður á Ísafirði. Eiginkona hans er Jóna Símonía Bjarnadóttir, forstöðumaður Byggða- safns Vestfjarða; 5) Þórir Traustason, f. 2.12. 1977, sjómaður á Ísafirði. Eigin- kona hans er Wansika Yamchumporn. Systkini Sigríðar: Ólöf Guðríður Sigursteinsdóttir, f. 29.3. 1939, d. 15.11. 2020, húsmóðir á Akranesi, og Þor- steinn Sigursteinsson, f. 18.9. 1950, bóndi á Laufskálum í Stafholtstungum í Borgarfirði. Foreldrar Sigríðar voru hjónin Sig- ursteinn Þorsteinsson, f. 9.10. 1901, d. 5.1. 1988, bóndi á Búrfelli, og Jakobína Guðríður Jakobsdóttir, f. 8.8. 1910, d. 4.6. 1977, bóndi og húsmóðir á Búrfelli. Sigríður Sigursteinsdóttir Ingibjörg Benediktsdóttir vinnukona á Látraströnd og víðar í Þing. Jón Einarsson vinnumaður á Látraströnd og í Eyjafirði Sigríður Jónsdóttir húsmóðir á Höfða og í Hólakoti Þorsteinn Jónsson bóndi á Höfða í Þverárhlíð og í Hólakoti í Hálsasveit Sigursteinn Þorsteinsson bóndi á Búrfelli Helga Jónsdóttir húsmóðir á Úlfsstöðum, síðar í Winnipeg Jón Þorvaldsson bóndi á Úlfsstöðum í Hálsasveit Guðríður Þorsteinsdóttir húsfreyja áVatnsskarðshólum Pétur Erlendsson bóndi á Vatnsskarðshólum í Mýrdal Guðríður Pétursdóttir húsmóðir í Vík Jakob Björnsson trésmiður í Vík í Mýrdal Ólöf Þorsteinsdóttir húsfreyja í Holti á Skeiðflöt og Dyrhólum Björn Bergsteinsson bóndi í Holti, á Skeiðflöt og Dyrhólum í Mýrdal Úr frændgarði Sigríðar Sigursteinsdóttur Jakobína Jakobsdóttir bóndi og húsmóðir á Búrfelli í Hálsasveit,Borg. Í Gervilimrum Gísla Rúnars erutvær limrur, sem birtast með mynd af Kristmanni Richter lækni, en eiga einstaklega vel við núna að breyttu breytanda. Sú fyrri heitir „8 x 4 á Richter“: Allt það sem að honum Richter amar – á ímyndun byggt er. „En lakara er,“ sagði læknirinn mér, „hve af honum undarleg lykt er.“ Síðan er „8,4 á Richter“: Það kom mér á óvart hve Kristmann gat kreist mann og skekið og hrist mann: Hvorki í Álftaneshreppi né inni á Kleppi hef ég vitað jafn skjálfhentan vistmann. Á Boðnarmiði býður Hólmfríður Bjartmarsdóttir „góðan daginn“ og segir að hér fyrir norðan sé allt samkvæmt hefð og enginn hrist- ingur: Aldan faldar upp við land oft um kalda vetur. Hlóð um aldir sandi á sand og sofnað aldrei getur. Guðrún Bjarnadóttir svaraði: „Og fyrir sunnan“: Hálf við skjálfum skolli vel og skorðum kálfa syðra. Þessir skjálftar þjálfa, tel ég, þreytta bjálfa og viðra. Og Indriði á Skjaldfönn stendur vaktina, – „Vaggað í svefn“: Sofðu unga ástin mín úti skelfur jörðin. Ástandið er ekkert grín, í iðrum neðra kölski hrín, en ég stend hjá vöggu þinni vörðinn. Kristjana Sigríður Vagnsdóttir: Skrattinn ekki skelfur neitt skömm er til að vita. Útlitið er ekki feitt ekki má hann gráta neitt, hann garga má um alltof stóran bita. Hólmfríður Bjartmarsdóttir: Tunnan valt og úr henni allt allur súr og slátur. Þó skjálfi lönd og bresti bönd þá brosir landinn kátur. Og bætir við: „Við förum nú ekki á taugum af smámunum.“ Stefán Einarsson í Laufási kvað: Man ég það ég mokaði flór með mjóum fingrabeinum. Er ég nú staddur innst í kór með öðrum dándisveinum. Halldór Blöndal halldorblondal@simnet.is Vísnahorn Allt kyrrt fyrir norðan þótt skjálfi syðra

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.