Morgunblaðið - 03.03.2021, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 03.03.2021, Blaðsíða 22
22 ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 3. MARS 2021 England Manchester City – Wolves ...................... 4:1 Staða efstu liða: Manch. City 27 20 5 2 56:17 65 Manch. Utd 26 14 8 4 53:32 50 Leicester 26 15 4 7 45:30 49 West Ham 26 13 6 7 40:31 45 Chelsea 26 12 8 6 41:25 44 Liverpool 26 12 7 7 47:34 43 Everton 25 13 4 8 38:33 43 Tottenham 25 11 6 8 41:27 39 B-deild: Millwall – Preston ................................... 2:1  Jón Daði Böðvarsson lék fyrstu 86 mín- úturnar með Millwall. Cardiff – Derby ........................................ 4:0 Coventry – Middlesbrough ..................... 1:2 Huddersfield – Birmingham ................... 1:1 Nottingham Forest – Luton.................... 0:1 Reading – Blackburn ............................... 1:0 C-deild: Blackpool – Crewe .................................. 1:1  Daníel Leó Grétarsson lék ekki með Blackpool vegna meiðsla. D-deild: Exeter – Walsall....................................... 0:0  Jökull Andrésson lék allan leikinn með Exeter. Ítalía Juventus – Spezia..................................... 3:0 Staða efstu liða: Inter Mílanó 24 17 5 2 60:24 56 AC Milan 24 16 4 4 47:29 52 Juventus 24 14 7 3 48:20 49 Atalanta 24 13 7 4 55:31 46 Roma 23 13 5 5 48:34 44 Napoli 23 14 1 8 49:25 43 Lazio 24 13 4 7 38:32 43 Sassuolo 23 9 8 6 37:34 35 B-deild: Brescia – Cozensa.................................... 2:0  Birkir Bjarnason lék seinni hálfleikinn með Brescia og skoraði, Hólmbert Aron Friðjónsson kom inn á sem varamaður hjá Brescia á 75. mínútu. Pólland Bikarkeppnin, 8-liða úrslit: Lech Poznan – Raków ............................ 0:2  Aron Jóhannsson lék allan leikinn með Lech Poznan. Hvíta-Rússland Meistarakeppnin: BATE – Shakhtyor Soligorsk........ 4:5 (0:0)  Willum Þór Willumsson kom inn á sem varamaður á 89. mínútu hjá BATE og skor- aði í vítakeppninni.  Grill 66-deild karla Fjölnir – Selfoss U ............................... 23:24 Staðan: Víkingur 11 10 0 1 300:260 20 HK 11 9 0 2 326:234 18 Valur U 11 8 0 3 330:317 16 Fjölnir 12 6 2 4 339:321 14 Kría 11 6 2 3 304:293 14 Selfoss U 12 4 2 6 316:332 10 Haukar U 10 3 1 6 239:259 7 Hörður 10 3 1 6 303:325 7 Vængir Júpíters 11 2 0 9 252:311 4 Fram U 11 0 0 11 258:315 0 Evrópudeild karla B-RIÐILL: Kristianstad – Nimes .......................... 30:30  Teitur Einarsson skoraði 1 mark fyrir Kristianstad en Ólafur Guðmundsson var ekki með.  Lokastaðan: Füchse Berlín 14, Nimes 12, Kristianstad 11, Sporting 10, Dinamo Búk- arest 7, Tatran Presov 6. C-RIÐILL: Alingsås – Besiktas ............................. 30:29  Aron Dagur Pálsson skoraði ekki fyrir Alingsås. CSKA Moskva – Magdeburg.............. 27:35  Ómar Ingi Magnússon og Gísli Þorgeirs- son skoruðu sitt markið hvor fyrir Magde- burg.  Lokastaðan: Magdeburg 18, CSKA Moskva 14, Montpellier 12, Nexe 10, Al- ingsås 6, Besiktas 0. D-RIÐILL: RN Löwen – GOG ................................ 32:24  Ýmir Örn Gíslason skoraði ekki fyrir Lö- wen.  Viktor Gísli Hallgrímsson varði 8 skot í marki GOG. Kadetten – Pelister ............................ 29:26  Aðalsteinn Eyjólfsson þjálfar Kadetten.  Lokastaðan: RN Löwen 17, Kadetten 14, GOG 12, Pelister 11, Trimo Trebnje 6, Ta- tabánya 0. Frakkland B-deild: Sélestat – Nice ..................................... 33:31  Grétar Ari Guðjónsson varði 15 skot í marki Nice.   KÖRFUKNATTLEIKUR Úrvalsdeild kvenna, Dominos-deildin: Borgarnes: Skallagrímur – Breiðabl. . 18.15 DHL-höllin: KR – Fjölnir.................... 19.15 Stykkishólmur: Snæfell – Valur.......... 19.15 Blue-höllin: Keflavík – Haukar ........... 20.15 Í KVÖLD! GOLF Kristján Jónsson kris@mbl.is Guðrún Brá Björgvinsdóttir, Ís- landsmeistari í golfi úr Keili, segist vonast eftir því að geta spilað er- lendis í maí en Guðrún er með keppnisrétt í Evrópumótaröðinni. „Það er mjög erfitt að gera ein- hverjar áætlanir. En Evrópumóta- röðin er búin að raða upp mótunum og gefa út dagskrá. Fyrsta mótið á að vera 13. maí í Suður-Afríku. Við höfum hins vegar verið varaðar við því að bóka ferðir nema maður geti breytt því með litlum fyrirvara. Ég hef ekki trú á öðru en að við getum byrjað að spila í maí. Mótaröðin byrjar í Suður-Afríku og fer síðan til New York. Fyrsta mótið í Evrópu verður í Frakklandi í byrjun júní,“ sagði Guðrún Brá þegar Morgun- blaðið hafði samband við hana. Guð- rún er með fullan keppnisrétt í Evr- ópumótaröðinni og segist reikna með því að komast inn í öll mót sem hún hefur áhuga á. Guðrún vann sér inn keppnisrétt í mótaröðinni haustið 2019 og varð fjórða íslenska konan sem nær því. Ólöf María Jónsdóttir ruddi braut- ina og þær Ólafía Þórunn Kristins- dóttir og Valdís Þóra Jónsdóttir komust inn í Evrópumótaröðina fyr- ir nokkrum árum. „Ég er í raun ákveðin í að fara út þegar færi gefst en maður leyfir sér ekki að gera sér of miklar væntingar. Maður fylgist með hvernig heimsfaraldurinn þróast næstu vikurnar og vonandi styttist í að maður geti gert áætl- anir. Ég hafði vonast eftir því að við myndum byrja í febrúar. Maður hafði reynt að undirbúa sig fyrir það seint á síðasta ári en svo var fyrstu mótunum frestað. Maður getur í raun ekki æft á fullu í fjóra mánuði og farið svo á fullt inn í keppnis- tímabilið. Maður þarf aðeins að stjórna álaginu og auka það smám saman.“ Nýtir þá aðstöðu sem í boði er Guðrún Brá hefur dvalið hér heima síðustu mánuðina á undirbún- ingstímabilinu. Hún hefur á þeim tíma starfað í verslun til að ná sér í tekjur en æfir samhliða því eins og hægt er við þær aðstæður sem eru í boði hérlendis. „Ég hef verið mikið inni í [golf] herminum að slá og hef lagt mikla áherslu á líkamsrækt. Samhliða þessu hef ég unnið í verslun. Undan- farið hef ég reynt að nýta góða veðr- ið og slá svolítið utandyra enda gam- an að sjá boltann fljúga líka. Um jól og áramót tók ég mér hins vegar gott frí og eyddi tíma með fjölskyld- unni,“ sagði Guðrún og útilokar ekki að fara til útlanda í æfingabúðir fyrir tímabilið ef tækifæri gefst. „Ég hef aðeins skoðað hvort það sé möguleiki. Ef það er hægt og lítið vesen sem fylgir því þá geri ég það auðvitað. Maður hefur verið að slá mikið á mottunum hér heima og því væri alveg geggjað að komast þang- að sem hægt er að spila áður en maður mætir í mótin. Reyndar er mótaröð í Suður-Afríku sem heitir Sunshine Tour. Það gæti verið einn valmöguleiki fyrir mig að spila í mót- um þar áður en Evrópumótaröðin hefst,“ sagði Guðrún. Komst ekki í gang fyrir alvöru Hér heima gátu kylfingar spilað í samræmi við reglur sem settar voru af GSÍ þar sem fólk forðaðist sam- eiginlega snertifleti. Guðrún varð til að mynda Íslandsmeistari þriðja ár- ið í röð þegar Íslandsmótið fór fram í Mosfellsbæ. Hún segir hins vegar að erlendis hafi síðasta tímabil verið undarlegt vegna veirunnar og óviss- unnar sem henni fylgdi. „Ég fór í nokkur mót og spila- mennskan var fín en maður komst samt sem áður aldrei almennilega í gang. Ástandið var svo skrítið og maður vissi ekki hvað myndi gerast. Það voru miklar reglur í kringum þetta og ég reikna með að það verði áfram miklar sóttvarnareglur í kringum mótaröðina. Maður er svo sem tilbúinn að gera ýmislegt til að fá að spila aftur. Maður gleymir því heldur ekki að hérna er maður í betri stöðu en margir aðrir. Enskar vinkonur mínar hafa til dæmis verið í útgöngubanni og geta ekkert æft. Þótt veðrið sé nú ekkert frábært hér þá getum við alla vega verið að æfa og maður er þakklátur fyrir það,“ sagði Guðrún Brá enn fremur. Við erum í betri stöðu en margir aðrir  Guðrún Brá Björgvinsdóttir vonast til að geta hafið keppni erlendis í maí Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Tilbúin Guðrún Brá Björgvinsdóttir er með fullan keppnisrétt í Evrópumótaröðinni og bíður þess að geta gert endanlegar áætlanir. Juventus vann í gærkvöldi sannfær- andi 3:0-sigur á Spezia í ítölsku A- deildinni í fótbolta. Eftir marka- lausan fyrri hálfleik kom varmaður- inn Álvaro Morata meisturunum á bragðið með sinni fyrstu snertingu á 62. mínútu. Federico Chiesa bætti við öðru marki á 71. mínútu og Cris- tiano Ronaldo skoraði þriðja markið á 89. mínútu. Andrey Galabinov gat minnkað muninn fyrir Spezia í upp- bótartíma en Wojciech Szczesny varði frá honum vítaspyrnu. Juven- tus er í þriðja sæti með 49 stig, sjö stigum á eftir toppliði Inter Mílanó. Sannfærandi sigur Juventus AFP Mark Cristiano Ronaldo kom sér vel fyrir inn í marki Spezia í gærkvöldi. Tryggvi Snær Hlinason og sam- herjar hans í spænska liðinu Zara- goza fara vel af stað í L-riðli í Meist- aradeild Evrópu í körfubolta. Liðið vann 95:83-útisigur á Dinamo Sass- ari frá Ítalíu í fyrsta leik í gær- kvöldi. Tryggvi spilaði í tæplega 15 mínútur hjá Zaragoza og skoraði fjögur stig, tók sex fráköst, gaf eina stoðsendingu og varði fjögur skot. Martin Hermannsson skoraði 4 stig og gaf 3 stoðsendingar fyrir Valencia sem tapaði 83:99 fyrir Efes á útivelli í Evrópudeildinni. Valencia er í 9. sæti með 14 sigra og 12 töp. Tryggvi atkvæða- mikill á Ítalíu Ljósmynd/FIBA Öflugur Tryggvi Snær Hlinason lék vel með Zaragoza í gær. Manchester City vann sinn 21. leik í röð í öllum keppnum er liðið vann sanngjarnan 4:1-sigur á Wolves á heimavelli í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta í gærkvöldi. Lokatölurnar gefa ekki rétta mynd af leiknum þar sem staðan var 1:1 þegar tíu mínútur voru til leiksloka og 2:1 á lokamínútu venjulegs leiktíma. Gabriel Jesus skoraði tvö marka City, Riyad Mahrez eitt og eitt markanna var sjálfsmark. Conor Coady skoraði mark Wolves, hans fyrsta mark í ensku úrvalsdeildinni. Með sigrinum náði City 15 stiga for- skoti á toppi deildarinnar. AFP Tvenna Gabriel Jesus skorar annað markið sitt og fjórða mark City í gær. Toppliðið óstöðvandi Riðlakeppni Evrópudeildar karla í handbolta lauk í gærkvöldi en fyrir lokaumferðina var ljóst að fimm Ís- lendingalið færu í 16 liða úrslitin en eitt væri úr leik. Kristianstad gerði 30:30-jafntefli á heimavelli gegn Nimes og endar í þriðja sæti B-riðils. Sænska liðið mætir Ademar León frá Spáni í 16- liða úrslitum. Ólafur Guðmundsson og Teitur Einarsson leika með Kristianstad. Gísli Þorgeir Kristjánsson og Ómar Ingi Magnússon og félagar í Magdeburg unnu 35:27-sigur á CSKA Moskvu á útivelli. Magde- burg vann níu af tíu leikjum sínum í C-riðli, vann riðilinn og mætir Pel- ister frá Norður-Makedóníu í 16- liða úrslitum. Íslendingaliðin Rhein Neckar- Löwen, Kadetten og GOG röðuðu sér í þrjú efstu sæti D-riðils. Löwen vann GOG á heimavelli í gær, 32:24 og gulltryggði sér toppsætið. Ýmir Örn Gíslason leikur með Löwen og Viktor Gísli Hallgrímsson ver mark GOG. Kadetten, undir stjórn Að- alsteins Eyjólfssonar, hafnar í öðru sæti riðilsins eftir 29:26-sigur á Pel- ister. GOG mætir CSKA Moskvu, Kadetten tekur á móti Montpellier og Löwen mætir Nexe frá Króatíu í 16-liða úrslitum. Fimm Íslendingalið í 16 liða úrslitum AFP Magdeburg Gísli Þorgeir Krist- jánsson leikur í 16-liða úrslitum.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.