Morgunblaðið - 03.03.2021, Qupperneq 24

Morgunblaðið - 03.03.2021, Qupperneq 24
24 MENNING MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 3. MARS 2021 Fermingar- myndatökur Einstök minning Ljósmyndir Rutar og Silju Skipholti 31 | 105 Reykjavík | Sími 568 0150 | www.rut.is | Opið alla virka daga kl. 10-17 Við förum eftir öllum sóttvarnartilmælum Lilja Hrund A. Lúðvíksdóttir liljahrund@mbl.is Hljóðlistakonan Ingibjörg Frið- riksdóttir, betur þekkt sem Inki, gaf 19. febrúar síðastliðinn út sjónrænt tónverk, Pars Pro Toto. Verkið var upphaflega hluti af inn- setningunni Norður í Listasafni Árnesinga haustið 2020. Hug- myndin að sýningunni var að fá listamenn af Norðurlöndunum til að koma saman og velta fyrir sér áhrifum hlýnunar jarðar á norður- slóðum á sína eigin listsköpun, að sögn Ingibjargar. Daría Sól And- rews var sýningarstjóri innsetning- arinnar. Sex norrænir listamenn áttu verk á sýningunni sem öll fjölluðu um náttúruna á einn eða annan hátt. Pars Pro Toto er píanóverk, leikið af norska píanóleikaranum Mathias Halvorsen, og myndar eina heild með myndbandsverki sem sýnt var sem hluti af sýning- unni Norður. Í verkinu leggur Ingibjörg áherslu á bráðnun jökla á Íslandi. Hún segir hlýnun jarðar vera vandamál af stærðargráðu sem sé svo yfirþyrmandi að hún hafi ákveðið að einblína á hluta fyrir heildina við gerð verksins, Pars Pro Toto. „Þegar ég hugsa um hlýnun jarðar finnst mér vandamálið oft svo stórt að það kemur smá upp- gjöf í mann ef maður hugsar um allar hliðar þessa vandamáls á sama tíma. Þess vegna ákvað ég að einbeita mér bara að bráðnun jökla hér á Íslandi,“ segir Ingibjörg og minnist í því samhengi á Ok, jökul- inn sem hvarf. Kallast á við vaxandi ógn „Tónverkið er þessi fallega píanósmíð sem endurspeglar nátt- úruna og jöklana, sem smám sam- an verður fyrir breytingum. Verkið fer smám saman að hljóma eins og það sé að fara undir vatn, en í rauninni verður hlustandinn ekki svo var við breytingarnar. Það er í rauninni ekki fyrr en komið er undir lok verksins þegar það er eiginlega alveg komið undir vatn að þú ferð að taka eftir því, eins og með jöklana. Það er ekki fyrr en þeir eru alveg horfnir að við mun- um sakna þeirra,“ segir Ingibjörg. Ingibjörg segir að eins og á við um bráðnun jöklanna sé breytingin á verkinu hæg og ferlið ekki ljótt í sjálfu sér. Breytingin gerist hægt og í henni felst ýmislegt fallegt. Það er ekki fyrr en verkið er alveg drukknað, jöklarnir horfnir, að við sjáum eftir því sem við misstum. Ingibjörg segir að með verkinu sé hún að velta fyrir sér þessari sammannlegu vá sem við stöndum frammi fyrir. „Þetta er kannski smá tal við sjálfa mig um að taka breytingarnar alvarlega þó að þær gerist yfir tímaramma sem er mjög erfitt að skynja,“ segir Ingibjörg. Í verkinu er fegurð náttúrunnar túlkuð með lagrænni, róandi og næstum rómantískri laglínu sem kallast á við vaxandi ógn. Mikilvægt að eiga opið samtal Við gerð verksins lagði Ingibjörg áherslu á að eiga samtöl við fræði- menn á sviði loftslagsbreytinga. Hún segir það mikilvægt fyrir listamenn að eiga í opnu samtali við fræðimenn til að skilja andlag verka sinna á þessu sviði betur. Það var í einu slíku samtali sem nafn verksins, Pars Pro Toto, kom til sögunnar. „Jöklarnir standa fyr- ir þessa stóru heild, og ég ákvað að taka þetta eina atriði og láta það standa fyrir heildina,“ segir Ingi- björg. Verkið er það fyrsta eftir Ingi- björgu sem gefið er út af Inni Mu- sic útgáfu, en Ingibjörg skrifaði nýlega undir samning við fyrir- tækið. Hún stefnir á að gefa út sína fyrstu hljómplötu í vor, en platan er einn af þremur hlutum listaverksins Meira Ástandið sem sýnt verður á Listahátíð í Reykja- vík. Tónskáldið Ingibjörg Friðriksdóttir í hljóðveri en hið sjónræna tónverk hennar kom út í febrúar síðastliðnum. Pars Pro Toto Verkið var hluti af innsetningu í Listasafni Árnesinga 2020. Tónverk sem smám saman drukknar  Ingibjörg Friðriksdóttir leggur áherslu á bráðnun jökla í verki sínu Pars Pro Toto  „Verkið fer smám saman að hljóma eins og það sé að fara undir vatn,“ segir Ingibjörg um hið sjónræna tónverk Umhverfisstofnun Alberts prins, fursta af Mónakó, heldur upp á 15 ára starfsafmæli með nýrri alþjóðlegri ljósmyndasamkeppni með áherslu á umhverfisljós- myndun. Upp á ensku er þema samkeppninnar „Humanity - Wildlife: crossed destinies and shared territories“. Valinkunnir einstaklingar, þekktir fyrir framlag sitt bæði til ljósmyndunar og umhverfismála, skipa dómnefndina. Er þar efstur á lista Ragnar Axelsson, RAX, fyrrverandi ljósmyndari Morg- unblaðsins, sem vinnur nú óskipt- ur að því að skrásetja mannlíf og náttúru á norðurslóðum og hafa verk hans vakið mikla athygli víða um lönd. Meðal annarra dómara eru ljósmyndararnir Nick Danziger, Daisy Gilardini, Laur- ent Ballesta og Jean-Michel Krief sem allir hafa unnið til virtra viður- kenninga en formaður dóm- nefndar er vara- formaður stofn- unar Alberts prins. Þeir sem áhuga hafa á að taka þátt í samkeppninni skrá sig á vefnum Photocrowd. Skila má inn allt að fimm myndum í þremur flokkum: „Ótrúleg náttúra“, „Náttúra í vanda“ og „Ástæður til bjartsýni“. Verðlaunamynd- irnar verða á sýningu í Mónakó í vor. RAX dæmir fyrir Mónakófursta Ragnar Axelsson Winston Churchill, forsætisráð- herra Breta, var lunkinn áhuga- málari og málverk eftir hann hafa iðulega verið seld á uppboðum. Aldrei þó fyrir viðlíka upphæð og greidd var á uppboði hjá Christie’s í fyrrakvöld fyrir eina málverkið sem hann málaði svo vitað sé með- an á heimsstyrjöldinni seinni stóð. Hæstbjóðandi greiddi 8,2 milljónir punda fyrir málverkið, hátt í einn og hálfan milljarð króna. Seljand- inn var hinn kunna leikkona Ange- lina Jolie. Þetta dýra málverk Churchills sýnir turn Koutoubia-moskunnar í Marrakess í Marokkó. Churchill málaði myndina eftir kunnan fund bandamanna, andstæðinga Þjóð- verja, í Casablanca í janúar 1943. Hann bauð Franklin D. Roosevelt Bandaríkjaforseta að koma með sér til Marrakess eftir fundinn, þar sem hann yrði að upplifa það- an sólsetrið yfir Atlas-fjöllum áður en hann sneri aftur heim. Churc- hill málaði myndina þar og gaf Roosevelt hana. Afkomendur for- setans seldu verkið og samkvæmt The Art Newspaper komst það í eigu leikarans Brads Pitts sem gaf það Jolie, þáverandi eiginkonu sinni, sem seldi það nú. Fyrra verðmetið fyrir verk eftir Churchill var 1,7 milljónir punda. Það féll tvisvar á mánudagskvöldið en alls voru þrjú verk eftir for- sætisráðherrann fyrrverandi þá boðin upp. Og athygli vakti að sami kaupandi var að þeim öllum, ónefndur Belgi, og samkvæmt The Art Newspaper greiddi hann vel yfir matsverði fyrir öll verkin. Auk fyrrnefnds málverks frá Marra- kess var selt annað frá sömu borg, málað 1935, fyrir 1,8 milljónir punda með gjöldum, og málverk sem sýnir kirkjugarðinn við St. Paul’s-dómkirkjuna var selt fyrir 880 þúsund pund með gjöldum. Alls greiddi kaupandinn því 11,2 milljónir punda, nær tvo milljarða króna, fyrir málverkin þrjú. Þess má geta að auk þess að mála í frístundum sendi Churchill frá sér fjölda bóka og hlaut Nób- elsverðlaunin í bókmenntum árið 1953, fyrir sagnfræðileg og ævi- söguleg skrif og einstaka ræðu- mennsku. Í fyrrakvöld var einnig greitt metfé fyrir teikningu eftir Vincent van Gogh á uppboði Christie’s í New York. Teikningin, La Mo- usmé, var seld hæstbjóðanda fyrir 10,4 milljónir dala með gjöldum, rúmlega 1,3 milljarða króna. Fyrra met fyrir teikningu eftir van Gogn var um 40 milljónum kr. lægra. Jolie fékk metverð fyrir málverk eftir Churchill  Þrjú málverk Churchills seld fyrir nær tvo milljarða kr. AFP Frá Marrakess Dýrasta verkið sem Winston Churchill málaði um dagana. Portrett Hluti af teikningu van Goghs sem seld var fyrir metfé.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.