Morgunblaðið - 03.03.2021, Blaðsíða 25
Klikkaður eða ekki?
Villi Neto er bráðskemmtilegur
leikari og með virkilega góða
tilfinningu fyrir gamanleik, eins og
sjá má í þáttunum. Geðsveiflurnar
eru miklar, stundum rifjar hann
pollrólegur upp atburði og er þá
snyrtilega greiddur og smekklega
klæddur en á öðrum stundum virðist
hann viti sín fjær með hárið úfið og í
fótboltatreyju. Er þannig spilað
skemmtilega með áhorfendur sem
velkjast í vafa um hvort Villi sé
raunverulega búinn að missa vitið
eða hafi séð það sem hann segist
hafa séð: Friðrik Dór liggjandi dauð-
an á gólfi sturtuklefa eftir tónleika í
Kaplakrika. Villi segist vera með
vídeóupptöku af Friðriki látnum í
símanum sínum en því miður var
síminn tekinn af honum um leið og
hann var handtekinn í Kaplakrika
eftir að hafa hlaupið þar um eins og
óður maður, gargandi að Friðriki
væri dáinn. Fyrrverandi unnusta
Villa, Vigdís, leikin af innlifun af
Maríu Thelmu Smáradóttur, hefur
ekki náð sér eftir þá skelfilegu uppá-
komu og slitið öllum samskiptum við
Villa. Hún er nú formaður aðdá-
endaklúbbs Friðriks.
Leit Villa að morðingja eða
morðingjum Friðriks er ævintýraleg
og skrítin, svo ekki sé fastar að orði
kveðið og oft sprenghlægileg.
Þekktir leikarar og persónur koma
við sögu og berst leitin til Færeyja
þar sem Villi hittir fyrir dularfullan
munk sem leikinn er með tilþrifum
af Benedikt Erlingssyni. Þar kemst
Villi að hinu sanna um Friðrik Dór
sem á ættir að rekja til Færeyja,
nánar tiltekið Dórshafnar en þangað
er ekki hægt að komast nema með
Dórsbátnum svokallaða (!). Það sem
svo gerist í Dórshöfn minnir að
mörgu leyti á hrollvekjuna Mid-
sommar með sínum einkennilegu at-
höfnum og skrítnu fólki sem virðist
ekki allt þar sem það er séð.
Forfaðir Friðriks er Friðálfur
nokkur Dór en portrettið af honum
er þekkt sjálfsmynd þýska endur-
reisnarlistamannsins Albrecht Dür-
er. Villi finnur gröf hans og kemst í
framhaldi í hann krappan í Dórs-
höfn og er þar tekinn höndum. Í
þessum Færeyjahluta koma m.a. við
sögu María Ellingsen, Hinrik Ólafs-
son og Jón Jónsson, bróðir Friðriks,
sem á erfitt með að vera alvarlegur í
hádramatísku atriði. Jón segir
margt vissulega furðulegt í fari
bróður síns sem áður hafi verið feit-
ur og átt „fröllustað“ (veitingastað
sem sérhæfir sig í frönskum kart-
öflum) en sé nú orðinn grannur og
búinn að gefa út matreiðslubók,
Léttir réttir Frikka, þar sem hann
kenni fólki m.a. að spæla egg. Þykir
þetta í meira lagi grunsamlegt. „Ég
meina hver kann ekki að spæla
egg?!“ hrópar Villi í örvæntingu
þegar hann reynir að færa rök fyrir
máli sínu, að Friðrik sé allur. Þá er
einnig hent gaman að öðrum raun-
verulegum atburðum og fréttum af
Friðriki, m.a. því að hann hafi ætlað
í nám í innanhússhönnun á Ítalíu.
Vitaskuld er Friðrik með í gríninu
og leikur sjálfan sig í þáttunum, lífs
eða liðinn, tekur lagið og leikur á
gítar og alltaf klæddur regnjakka
sem er auðvitað mjög skrítið.
Gott sjónvarpsefni
Ég viðurkenni að mér þótti efni
þessara þátta við fyrstu sýn svo ein-
kennilegt að ég var efins um að
þættirnir væru fyndnir. Vildi þó
gefa þeim séns og sé ekki eftir því.
Ég horfði á alla þættina í beit með
fjölskyldunni og var mikið hlegið.
Þættirnir eru með þeim skemmti-
legri sem framleiddir hafa verið á Ís-
landi hin síðustu ár og Sjónvarp
Símans er greinilega að standa sig
vel því stöðin hefur líka framleitt
Venjulegt fólk sem eru mjög
skemmtilegir og fyndnir þættir.
Gott leikaraval, góð leikstjórn
og snarklikkaðar hugmyndir skila
góðum þáttum sem hljóta að gera
Villa Neto að einum eftirsóttasta og
vinsælasta gamanleikara landsins.
Hann átti eitt besta atriði Áramóta-
skaupsins í fyrra þar sem hann lék
töffara sem hélt í sér andanum þeg-
ar einhver labbaði fram hjá til að
forðast Covid-smit og endaði í
sjúkrabíl eftir að hafa fallið í yfirlið í
kjörbúð. Vonandi fáum við meira
grín með Villa í náinni framtíð.
Hver kann ekki að spæla egg?!
» Villi Neto er bráð-skemmtilegur leikari
og með virkilega góða
tilfinningu fyrir gaman-
leik, eins og sjá má í
þáttunum.
Ljósmyndir/Snark
Fyndinn Vilhelm Neto fer á kostum í þáttunum Hver drap Friðrik Dór? Hér sést hann á slæmri stundu.
Lífs? Friðrik Dór í þáttunum sem snúast um hver hafi drepið hann.
AF SJÓNVARPI
Helgi Snær Sigurðsson
helgisnaer@mbl.is
Leitun er að forvitnilegri titli ásjónvarpsþáttaröð en Hverdrap Friðrik Dór? Ha?! Var
Friðrik Dór drepinn?! Guð minn
góður! Nei, auðvitað var Friðrik Dór
ekki drepinn, hann er sprelllifandi,
söngfuglinn sá og meira að segja í
ágætu formi, ef marka má nýlegar
myndir. En hver vill drepa söngv-
arann góða? Vilhelm Neto, sá sem
fer með aðalhlutverkið í þáttunum?
Nei, Vilhelm, kallaður Villi, er alsak-
laus en segist hins vegar hafa komist
að því að Friðrik Dór sé dáinn, að
hann hafi verið drepinn. Því miður
trúir honum enginn og aðdáendur
Friðriks snúast gegn honum, lítil-
lækka hann á samfélagsmiðlum og
hóta öllu illu. Villi gefst þó ekki upp í
leit sinni að sannleikanum og leggur
allt í sölurnar, æru og geðheilsu.
Gerviheimildaþættir
Þættirnir Hver drap Friðrik
Dór? eru sýndir í Sjónvarpi Símans
og framleiddir af stöðinni í samstarfi
við fyrirtækið Snark. Þeir eru
hugarsmíð leikstjóranna Eilífs Arn-
ar Þrastarsonar, Hauks Björgvins-
sonar, Helga Jóhannssonar og Harð-
ar Sveinssonar og er þáttaröðin sú
fyrsta sem Snark framleiðir. Sögu-
sköpun og handritsskrif voru í hönd-
um leikstjórateymisins, að því er
fram kemur í tilkynningu en um að-
stoðarleikstjórn og framleiðslu sá
Þórunn Guðlaugsdóttir.
Þættirnir falla í flokk svokall-
aðs gerviheimildarefnis, „mocku-
mentary“ eins og það heitir á ensku,
þátta eða heimildarmynda sem á
yfirborðinu líta út fyrir að vera
raunverulegt heimildarefni en í
raun um grín að ræða. Stundum er
leikið á viðmælendur og þeir látnir
halda að um raunverulega heimild-
arþætti eða -myndir sé að ræða og af
meisturum í gerð slíks efnis má helst
nefna Sacha Baron Cohen sem hefur
farið á kostum í hlutverki Borats og
fleiri furðufugla. Þeir sem eiga eftir
að horfa á þættina um Friðrik eru
hér með hvattir til að horfa fyrst og
lesa síðan þennan pistil þar sem
hann inniheldur spilliefni.
MENNING 25
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 3. MARS 2021
Nánari upplýsingar um sýningartíma á sambio.is
• Wrong Turn
- The Foundation
• The Little Things
• The Witches
• Wonder Woman 1984
Aðrar myndir
í sýningu:
SÝND MEÐ
ÍSLENSKU TALI
TRYGGÐU ÞÉR
MIÐA INNÁ
VA R I E T Y C H I C AG O S U N
T I M E S
I N D I E W I R E T H E T E L E G R A P H
FRÁBÆR MYND FYRIR ALLA FJÖLSKYLDUNA
SÝND MEÐ ÍSLENSKU OG ENSKU TALI.
frumsýnd 5. mars – forsala hafın
sýnd með íslensKu, ensKu og pólsKu talı